Alþingi er vinnustaður eins og allir aðrir vinnustaðir. Þar vinna þingmennirnir okkar og fullt af öðru fólki. Þetta fólk borðar saman í hádeginu, fer saman í vinnuferð, mætir á árshátíð vinnustaðarins og vinnur stundum vel saman að lausn mála. Þótt að á alþingi sé fólk sem hefur ólíka polítíska sýn og er ósammála um grundvallaratiði þá er þetta samt vinnustaður. Maður kynnist vinnufélögum sínum persónulega, sumum betur en öðrum og jafnvel getur myndast vinátta a.m.k. kunningskapur á milli fólks jafnvel þótt að afstaða til evrópusambandsins sé heldur ólík.
Á alþingi vinnur líka fólk sem tengist flokksböndum. Það hefur þekktst í mörg ár í gegnum flokkinn og eytt ómældum tíma saman í flokksstarfinu, hefur hitt fjölskyldu hvors annars osfv.
Það er ekkert ólíklegt ef þú starfar á alþingi að þar starfi með þér bestu vinir þínir, góðir kunningjar og jafnvel miklir óvinir þínir.
Nú er svo komið að alþingismenn eiga að vega það og meta hvort að ákæra eigi fyrrverandi samstarfsmenn þeirra til lengri eða skemmri tíma og í sumum tilfellum flokksystkin. Dettur einhverjum sem notar baunina í kollinum á sér að tengsl þeirra sem sitja á alþingi nú við mögulega sakborninga hafa ekki áhrif á dómgreind þeirra? Í raun væri það óeðlilegt ef þessi tengsl myndu ekki hafa áhrif á dómgreind alþingismanna. Það er ekki einu sinni hægt að ætlast til þess að alþingismenn verði algjörlega hlutlægir í mati sínu á því hvort eigi að ákæra fjórmenningana.
Þegar siðanefndir eru settar upp átta menn sig einmitt á þessu atriði. Ef að maður tengist þeim sem er til umfjöllunar vegna meints brots í starfi er veruleg hætta á því að maður geti hreinlega ekki komist að hlutlægri niðurstöðu í málinu. Það kallast vanhæfni. Þess vegna eru siðanefndir settar þannig upp að það eru aðal og varamenn. Ef allt væri eðlilegt ætti stór hluti þeirra sem sitja nú á alþingi að vera vanhæfir til þess að taka þá ákvörðun hvort að ákæra eigi fjórmenningana. Af þeim sökum er þessi landsdómur afskaplega kjánalegur.
Hafrún Kristjánsdóttir
Ummæli (11)
Einar // 12.9 2010 kl. 15:15
Því miður verður það þannig að þttta verður einn stór skrípaleikur þar sem stóryrtir þingmenn reyna að skora einhver ímynduð stig hjá bloggheimum.
Réttarríkið verður afskræmt, því það er grundvallaratriði að enginn sé ákærður nema saksóknari telji góðar líkur á sakfellingu. Nú vilja tækifærissinnarnir á Alþingi kæra og rétta yfir einstaklingum bara til að „fá málin á hreint“. Það er rétt eins og þú yrðir handtekin fyrir meint lögbrot, ekki alveg vitað hvaða, og svo yrðu réttarhöldin notuð til að kanna hvort þú værir ekki örugglega sek um eitthvað. Þetta er gert til að „mæta kröfum almennings“.
Einn bjánabloggari á eyjunni (nefni engin nöfn en það er Jenný Anna) skilur ekki af hverju ekki er hugsað um vilja almennings þegar kemur að ákæru. Jenný, sem er yfirlýstur kommúnisti, vísar þarna til starfsaðferða í ríkjum þar sem hennar skoðanabræður voru, og eru, við völd þar sem allir þegnar eiga það á hættu að vera handteknir ef þeir ganga gegn skoðunum einhvers. Það skiptir engu máli hvaða skoðun almenningur hefur á einstaka ráðherrum eða gjörðum þeirra. Nákvæmlega engu. Það eina sem skiptir máli eru lögin og hvort þau hafa verið brotin.
Það sem kjánarnir á Alþingi munu gera, hins vegar, er að ákæra menn fyrir það sem þeir voru, en ekki fyrir það sem þeir gerðu eða ekki gerðu. Sýna þessum fjandans Sjálfstæðisflokki í tvo heimana.
Það er sorglegt að horfa á löggjafarvaldið hegða sér eins og viðbjóðslegt heykvíslarpakk. Taka undir með botnfalli íslensks samfélags sem þrífst í sorpræsum bloggheima og fyllast heilagri vandlætingu, bara af því að það hentar.
Þau sár sem nú fossblæðir úr í íslensku þjóðfélagi hafa með eftirmála hrunsins að gera. Strigakjaftar bloggheima og fjölmiðla ásamt veruleikafirrtum hálfvitum á Alþingi gera það að leik sínum að etja þjóðinni saman einmitt þegar hún þarf að snúa bökum saman.
Jón // 12.9 2010 kl. 15:30
Þetta var ansi kjarnyrt og fínt hjá þér Einar!
Karl // 12.9 2010 kl. 16:19
Tek undir alla sem hafa skrifað. Fáranlegur skrípaleikur til að sefa þorsta bloggara. Ekkert tengt vestærnu réttlæti.
Magnús // 12.9 2010 kl. 16:33
Já, það er hárrétt að hætta er á vanhæfi þegar tengslin eru slík. En munum eitt – við höfum áhyggjur af slíkum tengslum að því að að þau geta leitt til þess að fólki sé hlíft óeðlilega. Þannig sýnist mér að þetta skipulag Landsdóms geti leitt til þess að ráðherrar sleppi fyrir horn en ætti síður að leiða til þess að þeir fái harkalegri meðferð. Með þetta í huga sýnist manni að Sjálfstæðisflokkurinn hafi brugðist núna vegna vanhæfi og Samfylkingin að hluta til.
Er það bara tilviljun að þessir tveir flokkar vilja taka vægar á málum? Ég held ekki. Var þessi bloggfærsla ekki einmitt skot á Sjálfstæðisflokkinn? Bendir ekki hugsanleg ákæra til Landsdóms þrátt fyrir öll persónuleg tengsl þeirra sem vísa málum þangað einmitt til þess að nægar málsástæður hafi verið fyrir hendi? Eigum við ekki fyrst og fremst að hafa áhyggjur af því að einhverjir hafi sloppið, en ekki að einhverjum málum hafi verið vísað til Landsdóms?
habbakriss // 12.9 2010 kl. 16:59
Magnús þessi tengsl geta virkað í báðar áttir, einhverjum sé hlíft óeðlilega eða að einhver fær harkalegri meðferð vegna tengsla.
Þessi færsla var ekki skot á einn né neinn. Ég er ekki búin að kynna mér þessa skýslu efnislega. Eina sem ég veit er hvernig praktíska hliðin er og hún er að mínu mati mjög vafasöm, setur alla sem að máli koma í kjánalega stöðu.
Að því sögðu vil ég að það komi fram að ég vil að þeir sem brutu lög í aðdragandi hrunsins sæti ábyrgð. Þá er mér nákvæmlega sama úr hvaða flokki viðkomandi kemur, hvað hann heitir, í hvaða banka hann vann osfv. Það verður hins vegar að vera hafið yfir allan skynsamlegan vafa að viðkomandi hafi brotið lög. Einnig verður að vera eitthvað vit í allri málsmeðferð. Mér finnst bara ekkert vit í þessari ákæruaðferð
Einnig held ég að margir verði að átta sig á muninum á því að mistakast eitthvað, vera örlítið vitlaus, yfirsjást eitthvað osfv annars vegar og þess að brjóta lög hins vegar. Mér finnst þetta allt vera sett svoldið undir sama hatt… það er ekki mjög hjálplegt.
habbakriss // 12.9 2010 kl. 17:36
Magnús, ég óvart hakaði við seinna kommentið þitt sem spam og ég kann ekki að ná í það aftur :/ Sorry
Trausti Þórðarson // 12.9 2010 kl. 17:44
Eftir sjóslys þætti í meira lagi undarlegt ef áhöfn skipsins væri skipuð sem dómarar í sjóréttinum.
Látum pólitískar leyfar Davíðs Oddssonar og Halldórs Ásgrímssonar sem vel að merkja er hvorugum stefnt fyrir landsdóm hvíla í friði við hlið biskupssins.
Ófeigur // 12.9 2010 kl. 17:53
Mér finnst að Jóhönnu og Össuri og fleirum veiti ekki af því að fá ákærur á sig, svo það sé nú eitthvað samræmi í þessari herferð. Það þarf enginn að segja mér að þetta fólk hafi ekki verið upplýst og meðvitað um hvað var á seyði. Össur skrattaðist um allt með IGS, meðan varaformaður Samfó sat sneyptur heima. Jóhanna sat í 4 manna ráðherrahópi um ríkisfjármál, svo það er klárt mál að hún vissi stöðu mála.
Jóhanna var spurð í gær hvort þessar tillögur myndu róa almenning. „Ég vona það. Til þess var þetta sett á laggirnar…“
Þetta er sem sagt smjörklípa… og mér finnst þær orðnar bæði stórar og dýrar og ekki stjórnvöldum, sem að öðru leyti eru nokkuð aðgerðarlítil, sæmandi!
Magnús // 12.9 2010 kl. 18:09
Ekkert mál Habba..
Ég er að mörgu leyti sammála en í mínum huga er hættan við núverandi fyrirkomulag mun meiri sú að ráðherrar sleppi vegna tengsla sinna við þingheim – ekki öfugt. Þessi nánu persónulegu tengsl á vinnustað sem þú bendir réttilega á skapa þá hættu. En munum, óvilhöll rannsóknarnefnd Alþingis með Pál Hreinsson í forsvari komst að sömu niðurstöðu. Það hefði verið í meira lagi óþægileg staða ef að þingheimur hefði lagst gegn þeirra áliti og þá hefðu þínar ábendingar svo sannarlega bent til að e-ð óeðlilegt hefði verið á seyði.
En svona eru lögin núna og þingmenn verða að dreypa af þessum beiska kaleik og reyna að taka faglega ákvörðun. Ekki þýðir að segja leikreglurnar séu rangar, svona eru þær núna, og ef við viljum breyta þeim þá er bara að vindsa sér í róttækar breytingar á stjórnarskránni.
Að lokum vildi ég benda á að mér finnst það nokkuð augljóst að þeir sem núna kvarta undan að lög um landsdóm séu eins og þau eru flestir hliðhollir Sjálfstæðisflokki (eða Samfylkingu – nú síðast Margrét Frímanssdóttir). Þessi sömu aðilar hafa að mér vitandi aldrei bent á þessa galla áður þrátt fyrir margra áratuga umræður um stjórnarskrárbreytingar!
Guðmundur // 12.9 2010 kl. 22:43
„Impeachment“ (sem er það sem landsdómur er) er til í einni eða annarri mynd í flestum ef ekki öllum lýðræðisríkjum. Það sem er óvenjulegt við landsdóm hér á landi er að því var svo komið fyrir í stjórnarskrá að það væri nánast óhugsandi að nokkur yrði kallaður fyrir landsdóm, þannig að þetta stjórnarskrárákvæði var í raun óvirkt. Það þurfti óvenjulegar aðstæður eins og eru núna til að þetta yrði (hugsanlega) virkt. Ég reyndar efast um að þetta fari í gegn, slík er samtryggingin á þingi. Og reyndar átti þessi ákæra að koma þegar þessir ráðherrar sátu enn í embætti, til þess er eiginlega þetta ákvæði (eins og ég skil það). Það sem er alvarlegt er í raun að landsdómur skuli aldrei hafa verið kallaður saman í sögu lýðveldisins, þetta ætti að vera virkt öryggistæki. Og ef þetta fer í gegn, vona ég að þetta verði gert rétt og öllu sjónvarpað beint, líkt og gert er í öllum siðmenntuðum löndum sem við viljum líkja okkur við.
habbakriss // 12.9 2010 kl. 22:56
Samtyggingin sem þú nefnir er enn ein rökin fyrir því að ákæruvaldið þarf að vera á einhvern annan hátt. Það er absúrt að Össur og Jóhanna t.d. séu að meta hvort að það eigi að kæra ráðherra sem voru með þeim í stjórn!! Fyrir utan það að Össur er svili Ingibjargar og Jóhanna vinkona hennar. Hvernig er hægt að ætlast til þess að þetta fólk geti tekið algjörlega hlutlæga ákvörðun. Reyndar togast á hjá þeim að setja vini sína, samstarfsmenn osfv í alvarlega stöðu og það að taka vinsæla politíska ákvörðun.
Magnús það er rétt hjá þér að það er ekki hægt að hafa þetta öðruvísi núna. Það er víst ekki hægt að breyta leikreglum eftir á. Ég hef aldrei pælt í þessum Landsdómi og skoðun mín hefur ekkert með mínar politísku skoðanir að gera. Mér finnst bara svo augljósir praktískir gallar á þessu. Getur vel verið að það séu mikið fleiri gallar
Rita ummæli