Habbakriss

Klórar sér í kollinum

Hvað á erindi við almenning?

1.8 2009 | 23:07 | 13 ummæli

Nú er búið að setja lögbann á umfjöllun RUV á Kaupþingsgögnunum. Finnur bankastjóri segir að þetta eigi ekki erindi við almenning og er sýslumaður honum sammála. Það er þó ljóst að skuldir gamla Kaupþings koma almenningi við. Ég get ekki betur séð en að ég og þið hin munið þurfa að borga þetta helvítis bull í mörg mörg ár.

Þetta lögbann, þessar fréttir um að sukk innan Kaupþings sem við þurfum að borga eigi ekki erindi við almenning kemur á sama tíma og stór hluti landsmanna liggur yfir tekjublöðum og skoðar hvað náunginn hefur í laun. Ég hef tvisvar sinnum lent í þessum tekjublöðum. Hvorki þá né nú finnst mér tekjur mínar eigi erindi við almenning. Dómstólar eru þó mér ósammála. Dómstólar voru líka ósammála Jónínu Ben þegar henni fannst einkatölvupóstar sínir ekki eiga erindi við almenning. Ég man ekki betur en í þessum tölvupóstum hafi m.a. verið einhverskonar upplýsingar um ástarlif Jónínu og ef ég man rosalega rétt þá var eitthvað fjallað um það í DV. Þetta þótti dómstólum eiga erindi við almenning. En sýsla þykir almenningur ekki eiga heimtingu á því að vita hvernig var stofnað til skulda sem hann á að borga. HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? (já já ég skal vera sanngjörn, etv var ekki annað í spilunum fyrir Sýsla)

Ég held að Banka Finnur sé að fremja einhverskonar PR sjálfsmorð. Hann er að stýra ríkisfyrirtæki fyrir okkar hönd. En virðist þó vera í liði með þeim sem kom okkur á hausinn. Mér langar mest að hætta viðskiptum við Kaupþing vegna þessa stórleiks Finns. Ég held þó að ég sé bara fangi Kaupþings. Ég held að engin annar banki sé æstur í það að taka íbúðarlánið mitt yfir. Líka helvíti slæmt að geta ekki tekið yfirdráttinn út og lagt hann inn á annan banka. Þá væri lífið sko auðvelt :)

Thumbs Up fyrir Evu Joly. Það hefði nú verið óskandi ef Jóhanna eða Steingrímur hefðu haft pung í að skrifa svona grein.

Flokkar: Óflokkað



Ummæli (13)

  •   Tryggvi // 1.8 2009 kl. 23:22

    hænski ræðir þú þetta mál við þá sem stóðu að lögbanninu á næsta landsfundi þeir verða þar flestir.

  •   habbakriss // 1.8 2009 kl. 23:23

    hef aldrei átt sæti á landsfundi og efast að ég eigi það á næsta

  •   Ragnhildur // 2.8 2009 kl. 00:24

    Flott hjá þér Habba!

    Ert þú með pung í að segja og gagnrýna það sama um Landsbankann og Ice-Save?

    Það liggja allar skuldirnar þínar sem þú þarft, ásamt okkur hinum, klárlega að greiða.

    Kaupþingsskuldir voru skildar eftir í Gamla Kaupþingi.

    Ice-Save fer ekkert.

    Ertu með pung í það, Habba Kriss?

  •   Óli // 2.8 2009 kl. 00:55

    DV málið var dæmt Jónínu í hag en hún tapaði málinu sem hún höfðaði gegn Fréttablaðinu. Bara svo að það sé á hreinu

  •   Þorsteinn Hauksson // 2.8 2009 kl. 01:21

    Þetta er það sem þetta sem þessi helvítis stjórnvöld eru búinn að leiða yfir okkur. ekki ræða neitt ekki láta okkur vita bara borga. Þessi helvítis apaköttur hann Finnur undir verndarvæng bjálfans sem er fjármálaráðherra þá er þetta allveg eftir bókinni

  •   Björgvin Valur // 2.8 2009 kl. 01:21

    Setti sýslumaður ekki lögbann á birtingu tölvupósta Jónínu og dómstólar afléttu banninu síðan? Mig minnir það en skal ekki hengja mig upp á það.
    Kannski hnekkja dómstólar þessu banni líka vegna þess að þeir telja að þetta eigi erindi við almenning en verður þá ekki að opna lánabækur hinna gömlu bankanna líka?

  •   Þórður // 2.8 2009 kl. 01:29

    Innheimtumenn eru þeir einu sem eiga erindi við almenning.
    Eða eins og sagt er: „Halltu K-J og borgaðu“!!!!

  •   habbakriss // 2.8 2009 kl. 01:35

    jú það passar sennilega Björgvin Valur. Þetta er ekki hárnákvæmt hjá mér enda var þetta svona meira fruss á skjáinn heldur en ígrunduð skrif. Varð bara að frussa þegar ég sá þetta rugl. Ég vona að dómstólar hnekkji þessu. Það er þó ekki víst að ef þeir geri það verði að opna hinar lánabækunar, en það mætti væntanlega ekki banna umfjöllun um þær ef þeim yrði lekið. Annars vona ég bara að þetta komi allt upp á borðið svona fyrst að það er ég sem á að borga þetta.

    Óli takk fyrir þetta.

    Ragnhildur, ég held að ég hafi nú alveg pung í að gagnrýna Icesave og landsbankann. Hef nú gert það reyndar. Öskraði m.a. næstum á vinkona mína um daginn út af icesave og ég öskra bara aldrei á vini mína…. eða ég ösrka bara almennt aldrei á fólk. Það er hins vegar ekki svo að allt sem ég tel gagnrýnivert fari hér á þessa síðu. Bara alls ekki allt. Ég blogga ef ég hef ekkert annað að gera eins og akkúrat núna.

  •   b´bí // 2.8 2009 kl. 01:42

    Þú ert vonandi að þorskast habba mín kriss.
    Það gerist jafnan en mismunandi fljótt.

  •   Mummi // 2.8 2009 kl. 04:06

    mundu bara, að Finnur er sjálfstæðismaður sem og flestir meðlimir skilanefndar Kaupþings.

  •   Þorsteinn Egilson // 2.8 2009 kl. 05:39

    Hef lengi hugsað til þess að hætta launarennslinu mínu í gegnum kaupþing en hefur virzt sem það væri að fara úr öskunni í eldinn að færa það „eitthvert annað“! -Í mótmælaskyni færði ég t.d. viðbótarlífeyrissparnaðinn minn frá landsbankanum.
    Lýzt vel á hugmyndina með yfirdráttinn -næg eru fordæmin, ekki satt !??
    Kveðja,

  •   habbakriss // 2.8 2009 kl. 11:58

    Mummi, og hvað með það þótt að Finnur sé Sjálfstæðismaður? Skiptir það einhverju máli? Með hvaða liði heldur hann annars? Veistu það?

  •   Jakob // 2.8 2009 kl. 12:23

    Frábær grundvallarspurning, Hrabba, sem þú varpar fram í yfirskrift þíns pistils. Þetta er einfaldlega grútarhausaleg umræða, sem því miður formaður BÍ lætur veiða sig í ítrekað og fólk virðist telja að hafi eitthvert gildi í sjálfu sér: ausa fé í dómstóla til að véla um hvort þetta eða hitt eigi erindi við almenning. Sem er svona álíka gáfulegt og fullyrða að allir eigi skýlausan rétt á að vita að Egner skrifaði um dýrin í Hálsaskógi, en hafi hins vegar ekkert með þær upplýsingar að gera að Shakespeare skrifaði um Hamlet.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af þremur og þremur? Svar: