Nokkrir sprenglærðir peningamenn hafa komið fram á allra síðustu dögum og sagt að við, þ.e. Ísland stefni í gjaldþrot. Sumir ganga jafnvel svo langt að segja að það væri e.t.v. best að við myndum lýsa okkur gjaldþrota sem fyrst.
Kannski er ég alveg græn en ég bara verð að upplýsa um hversu fáfróð ég er. Hvað í ósköpunum gerist ef þjóð verður gjaldþrota? Ég veit hvað gerist ef einstaklingur verður það, amk svona sirka en ég hef ekki hugmynd um hvað gerist þegar þjóð verður gjaldþrota.
Getur einhver hjálpað mér?
Hafrún Kristjánsdóttir
Ummæli (2)
HaukurH // 3.7 2009 kl. 03:31
Í praktískum skilning er ekki til þjóðargjaldþrot í sama skilning og gjaldþrot einstaklinga eða fyrirtækja. Þeir sem hafa líst þessum skoðun sína skilja annað hvort ekki hvað orðið gjaldþrot þýðir eða eru að vísa til þess að við einfaldlega neitum að borga. Það er „algengt“ að ríki og þjóðir lendi í greiðsluerfiðleikum eða hreinlega neiti að greiða skuldir sínar, venjulega kallað „default“ sem hefur reyndar ansi víða skilgreiningu. Nýlegasta dæmið um slíkt er líklega „default“ Rússa árið 1998 sem setti fjármálakerfi heimsins á annan endan og varð til þess að Bandaríska ríkið varð að neyða banka á Wall Street til að baila út LTCM vogunarsjóðinn (sem m.a. var stýrt af tveimur frægum nóbelverðlaunahöfum í hagfræði). Ennfremur þekkjum við sögu Argentínu. Þessir menn hljóta því að eiga við það að við einfaldlega neitum að greiða skuldirnar. Reyndar hafa lönd alla jafnan jafnað sig eftir slíkt þó trúverðugleikinn hverfi algjörlega til styttri tíma. En þá þyrftum við ennfremur að segja skilið við drauma okkar um ESB. Ætli margur íhaldsmaðurinn hugsi ekki dreyminn til þess.
Héðinn Björnsson // 3.7 2009 kl. 07:28
Sigurbjörg fjallar hérna um hvað hún telur að muni gerast ef við borgum ekki og ég hugsa að það verði eitthvað svipað ef við förum í almennt greiðslufall:
http://blog.eyjan.is/sigurbjorg/2009/07/02/engin-rikisstjorn-fengi-godan-icesave-samning/#comments
Rita ummæli