Ég er ung kona. Eiginlega vil ég bara láta kalla mig stelpu. Ég er 29 ára og á því eftir að lifa vonandi í u.þ.b. 55 ár til viðbótar. Ég er að reyna að koma undir mig fótunum í lífinu. Ég skulda fullt í námslán enda var ég að hossast í háskóla í 5 ár. Ég keypti mér líka mína fyrstu íbúð á því herrans ári 2007. Ég skulda sem sagt fullt af peningum. Vegna þessa hef ég nú örlitlar áhyggjur af ástandinu. Það mun sennilega koma verr við mig en marga aðra. Ég er nefnilega á þeim aldri. Ég gerði samt ekkert rangt. Ég tók enga kjánalega ákvörðun í peningamálum. Ég svona velti fyrir því mér hvort þessi Icesave-samningur sem þú vilt endilega negla muni ekki hafa alvarlegar afleiðingar fyrr minn fjárhag, og það sem meira er, fyrir þjóðina mína sem mér þykir svo vænt um. Ég er ekkert handviss um að svo sé en mér svona sýnist það. Mér finnst allt benda til þess að þetta sé algjörlega afleitur samningur sem gamli foringinn þinn, hann Svavar, hefur gert.
Ég man ekki eftir því að mér hafi þótt neitt annað mál sem upp hefur komið á Alþingi skipta mig persónulega jafn miklu máli og þessi samningur. Ég sé í hendi mér að það hvernig þetta mál verður til lykta leitt muni skipta mig ansi miklu máli. Kárahnjúkavirkjun sem þú vildir eflaust að færi í þjóðaratkvæði er einhvers konar djók í samanburði við þetta, eða það finnst mér alla vega.
Ég er svona á því að þjóðaratkvæðagreiðsla sé e.t.v. eitthvað sem mætti a.m.k. skoða í tengslum við þetta Icesave-mál. Þetta er jú gífurlegt hagsmunamál fyrir okkur flest. Ég var því alveg hissa þegar þú komst fram á hinu háa Alþingi og sagðir að ég, og reyndar landar mínir, hefðum kosið um Icesave fyrir tveimur mánuðum. Ég skil ekki alveg hvað þú ert að fara og langar að fá skýringar frá þér.
Ég nýtti atkvæðisrétt minn í síðustu kosningum. Ég verð bara að viðurkenna það að mér var það ekki kunnugt að ég væri að kjósa um Icesave-málið. Var það kynnt eða tók ég svona illa eftir? Ef ég hefði vitað það þá hefði ég kynnt mér Icesave miklu betur. Ef ég hefði kynnt mér Icesave eins vel og ég gat á þessum tíma þá hefði ég líklega komist að þeirri niðurstöðu að ég ætti að kjósa þig og þinn flokk ef ég væri alfarið á móti því að við Íslendingar borguðum Icesave. Mig langar því að spyrja þig kæra Álfheiður, er ég að misskilja málflutning þinn og þinna félaga um Icesave fyrir kosningar eða hefur þú skipt um skoðun? Ef þú hefur skipt um skoðun getur þú þá upplýst mig um af hverju þú gerðir það? Annað sem mér finnst skjóta skökku við er hvernig ég hefði átt að geta kosið um Icesave málið í vor þegar ekki var búið að gera þann samning sem nú liggur fyrir dyrum, hvað þá birta öll þau skjöl sem honum fylgja. Hvernig átti ég að taka afstöðu til einhvers sem var ekki komið fram? Ég bara skil þetta ekki.
Viltu kæra Álfheiður skýra það út fyrir mér hvernig ég kaus um þetta? Þetta skiptir mig nefnilega máli.
Með von um skýr og skilmerkileg svör
Hafrún Kristjánsdóttir
Hafrún Kristjánsdóttir
Ummæli (2)
Sigfús // 1.7 2009 kl. 23:37
Sæl Habba
Gaman að sjá að þú ert mætt til svæðis á nýjan leik.
Bjarni Kjartansson // 2.7 2009 kl. 09:16
Komdu fagnandi.
Mibbó
Rita ummæli