Ég eins og aðrir átti æskudrauma. Ég fór að rifja þessa drauma mína upp þegar þegar Michael vinur minn dó um daginn. Michael er nefnilega samofinn minni barnæsku…. Hann og Hemmi Gunn.
Ég átti mér þann draum að….
…vera kvennkyns útgáfa og Michael Jackson. Ég vildi bara nákvæmlega eins og hann nema að því leiti að ég vildi ekki vera karl. Mikið er ég fegin að þessi draumur rættist ekki.
… að Fram yrði langbesta fótboltalið á Íslandi alltaf. Mikið er ég fegin að þessi draumur rættist ekki.
… að ég yrði sjoppukona þegar ég yrði stór – alltaf. Er hrikalega fegin að þessi draumur rættist ekki, með fullri virðingu fyrir sjoppukonum.
… að ef ég yrði ekki kvennkyns MJ að ég yrði hin nýja Elín Hirst. Mér þótti það svalasta starf á Íslandi að segja fréttir. Held að það sé ágætt að ég sé ekki í því hlutverki. Elín er bara fín í þessu.
… að mér yrði boðið að syngja og dansa í þættinum Á tali hjá Hemma Gunn. Mikið er ég fegin að þessi draumur rættist ekki. Sennilega ekki til margir jafn hæfileikalausir söngvarar og dansarar eins og ég.
Hafrún Kristjánsdóttir
Ummæli (1)
Haukur // 2.7 2009 kl. 10:17
Ég á 8 ára son sem á sér líka drauma. Hann er mikið að spá í háskólanámi þessa mánuðina, hvað hann vill verða „þegar hann verður stór“ – en svona á praktískum nótum. Í gær var frétt þar sem Gylfi Magnússon sagði, næstum glaðhlakkandi, að við þyrftum bara að borga ca 70 milljarða á ári fram til ársins 2023.
Sonur minn spurði mig hvað 70 milljarðar væru eiginlega mikið. „Það kostar 70 milljarða að reka alla skóla á Íslandi, leikskóla og upp úr, á einu ári“ svaraði ég. „Ok… get ég þá ekki farið í skóla fyrr en ég er orðinn næstum 25 ára?“
Slík er samningasnilld Svavars Gestssonar, og vinahollusta Steingríms, að þeir ætla að leggja viðbótarkostnað á þjóðina sem jafngildir rekstri heils menntakerfis í næstum 15 ár.
Af því að þeir eru of stoltir til að fara til baka og viðurkenna að þeir sömdu af sér.
Rita ummæli