Habbakriss

Klórar sér í kollinum

Íþróttaviðburður áratugarins?

14.4 2009 | 00:13 | 8 ummæli

Ég ákvað að láta 5 mín í heita pottinum duga eftir æfingu í dag. Það gerist ekki oft að ég stoppi svo stutt við í pottinum í klefanum okkar. Ástæðan fyrir stuttu stoppi var oddaleikur KR og Grindavíkur. Ég bara varð að drífa mig upp í sófa og taka til við gláp. Ég var nú ekki búin að horfa lengi þegar ég var farin að öskra á sjónvarpið. Ég var að reyna að koma skilaboðum til leikmannanna. Ég reyndi t.d. nokkum sinnum að öskra á Brenton leikmann Grindavíkur – „taktu frákastið maður“ Þulinir, tveir kunningjar mínir þeir Gaupi og Svali öskruðu mun minna á leikmennina inn á vellinum. Sennilega hafa þeir vitað sem var að leikmennirnir myndu lítið heyra í þeim. Þeir áttuð sig hins vegar á því að þeir gátu öskrað á áhorfendur heima í stofu. Þeir öskruðu vilt og galið á mig. Þeir sögðu mér miljón sinnum hvað þetta væri allt magnað. Ég er ekki frá því að ég hafi verið þeim sammála. Oddaleikur í úrslitum er ávalt magnaður…. ég tala nú ekki um þegar hann er eins jafn eins og þessi var.

Mitt í öllum spenningnum datt sjónvarpið út. Stöð2Sport ákvað bara að gefa upp öndina á ögurstundu. Ég hætti því að öskra á leikmenn Grindavíkur og öskraði í stað þess á ábyrga aðila… aðila sem ég vissi ekki alveg hverjir voru. Seint í fjórða leikhluta ákvað Stöð2Sport að leyfa mér að horfa áfram, ég hætti því að öskra út í loftið á ábyrga aðila og fór aftur að öskra á Brenton….. Gaupi og Svali voru enn að öskra á mig… enn voru þeir að segja mér hvað þetta var magnað. Þeir sögðu mér líka að slökkva ekki á sjónvarpinu. Ég var ekki líkleg til þess eftir á það sem undan var gengið.

Ég semsagt missti mig yfir þessum leik. Ég reyndi í alvöru að koma skilaboðum inn á völlinn. Ég missti mig þrátt fyrir að mitt lið Valur væri ekki að keppa. Hins vegar er það þannig að öll lið sem spila á móti KR eru mín lið :)

Þegar ég hélt að það væri ekki hægt að missa sig á kjánalegri hátt yfir íþróttaleik sem maður er ekki þátttakandi í en ég hafði gert í stofunni kom gullmoli frá Svala Björgvinssyni. Svali sagði mitt í öllum æsingnum: „Þetta er íþróttaviðburður áratugarins“ Silfrið hvað?

En til hamingju KR

Flokkar: Óflokkað



Ummæli (8)

  •   Guðmundur // 14.4 2009 kl. 10:12

    Verst hvað þetta endaði illa :(

  •   Ragnhildur // 14.4 2009 kl. 13:45

    Úps…

    Habba, ég sem hélt þú ætlaðir að fara segja okkur að þú værir búin að fá botn í mútugreiðslurnar til Sjálfstæðisflokksins!

    Ertu búin að komast að niðurstöðu varðandi mútumálið mikla sem tröllríður nú flokknum rétt fyrir kosningar?

    Hverjir eiga að fara?

    Gangi þér vel og áfram KR :)

  •   Bjarney // 14.4 2009 kl. 23:20

    Já Hafrún, þú mátt sem sagt ekki fjalla um NEITT ANNAÐ en styrkveitingar Sjálfstæðisflokksins á síðunni þinni framyfir kosningar!! Ekki vera að með þessi leiðindi að tala um þín áhugamál hérna eins og ekkert sé sjálfsagðara..! ;-þ

  •   Magga // 15.4 2009 kl. 22:08

    Já, Auðvitað áttu Grindvíkingar að skjóta comon!
    Og mér líst vel á þig, þú ert Valsari :D hehe
    -Magga

  •   Ragnhildur // 16.4 2009 kl. 02:32

    Habba

    Brennivíns Brósi er dottin út af þingi skv. skoðanakönnunum!

    Segir það þér ekki svolítið?

    Gangi þér vel, kjeeellling :)

  •   Bjarney // 16.4 2009 kl. 14:31

    úff, svo ertu hissa Ragnhildur á að kommentunum þínum sé eytt út!! Rosa málefnaleg alltaf hreint…

  •   Thelma // 18.4 2009 kl. 02:13

    Ragnhildur, hvað er að þér?

  •   Thelma // 25.5 2009 kl. 22:02

    hætt að blogga?

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af átta og fjórum? Svar: