Samkvæmt Magnúsi Þór er hafin undirskriftasöfnun á Akranesi gegn komu þessara kvenna og barna þeirra frá Palestínu. Ég held að ég taki undir með Agli. Guð minn góður! Ef þetta er raunverulega stemmingin á Akranesi en ekki bara stemmingin heima hjá Magnúsi og besta vin hans þá held ég í alvöru að það ætti að skoða hvort að eitthvað annað sveitafélag sé ekki tilbúið að taka á móti grey konunum og þeirra börnum. Það er vont að mæta á einhvern stað sem maður er ekki alveg velkomin á en geta ekkert farið.
Margt í málflutningi Magnúsar var skrítið í Silfrinu. Hann sagðist m.a. vita ekkert um þetta fólk en sagði það jafnframt að það væri ekki sambærilegt flóttamönnum sem komu m.a. til Ísafjarðar frá Júgóslavíu.
Hann jafnframt lýsti því yfir að hann hafi mikla samúð með þessum konum. Telur Skagann bara ekki í stakk búin að taka á móti konunum. Mér finnnst þetta eins og ef blautur og kaldur maður myndi banka upp á á bóndabæ eftir að hafa verið týndur á vappi í heilan sólarhring og biðja um fá kvöldmat. Bóndin myndi segja honum að hann hefði mikla samúð með honum en það hefði bara verið gert ráð fyrir fjórum í mat!
Ég hef farið mikin í að gagnrýna Magnús í þessu máli. Ég bara get ekki þagað. Aðalega hef ég verið að gagnrýna hann fyrir viðbrögð sín eftir að hann lagði fram hið geysi vandaða plagg sitt. Það getur vel verið að koma þessara kvenna sé ekki nægilega vel skipulögð og eitthvað að upplýsingum vanti. Ef svo er þá er alveg sjálfsagt að gagnrýna það. En rétt eins og hjá bóndanum, þótt að það hafa bara verið lagt á borð fyrir fjóra þá er hægt að gera gott úr hlutunum ef vilji og næg samúð er fyrir hendi.
Hafrún Kristjánsdóttir
Ummæli (15)
Bjarnveig // 18.5 2008 kl. 14:37
Mikið er ég fegin að búa ekki á Akranesi. Hér í Dalvíkurbyggð var tekið á móti hópi af flóttafólki frá Kósóvó. Allir lögðust á eitt, þótt undirbúningurinn væri stuttur. Allt gekk vel og ég held að bæjarbúar séu almennt stoltir að því hvað vel tókst til. Í Dalvíkurbyggð eru u.þ.b. 2000 íbúar en á Akranesi skilst mér að búi um 6000 svo ég skil ekki í öðru en félags- og skólaþjónustan þar ráði við svona verkefni. Einnig það er ekki í boði að hjálpa þessu fólki í sínu heimalandi því það er heimalandslaust.
Þroftur // 18.5 2008 kl. 15:09
Sammála þér Hafrún og takk fyrir að halda gagnrýninni gangandi. Var að horfa á Silfrið og Magnús. Ég fór að hugsa…. er þetta rödd Skagamanna??? Er þetta almennt viðhorf Skagamanna gagnvart komu flóttafólks?
Ef svo er, þá er það skylda Rauða krossins og Ríkistjórnar Íslands að taka þessa ábyrgð frá Skagamönnum og færa það annað. Mér gjörsamlega óar við því fyrir hönd flóttamanna að flytja á Skagann ef meirihluti íbúa – eins og Magnús Þór heldur fram – er á móti komu þeirra. Sami punktur og Reynir Traustason kom inn á.
Að þessu sögðu. Þá rennir mig í grun að Magnús hafi ekki jafn mikið stöðuna á bæjarpúlsinum eins og hann vill vera láta. Í það minnsta trúi ég því ekki að óreyndu að Skagamenn ætli að láta Magnús og hans skoðanir stjórna för. En Skagamenn verða að fara að standa upp og mótmæla Magnúsi hástöfum í fjölmiðlum. Er Magnús að tala fyrir meirihluta bæjarbúa?
Að taka við flóttafólki snýst fyrst og síðast um vilja. Viljann til að deila Samfélagi með þeim sem eiga ekkert Samfélag. Allt tal um að vera ekki undirbúin er hlægilegt í samanburði við þá reynslu sem Íslendingar hafa af því að taka á móti flóttafólki eins og Kristrún Heimisdóttir benti réttilega á.
Svo fannst mér Egill koma með nokkuð gott orð yfir það sem er í gangi hjá Magnúsi. Rasismi er allt of gildishlaðið og ég held ekki að Magnús sé Rasisti. En ég held að hann sé með útlendingaandúð! Hann vill Ísland fyrir Íslendinga… -hvað svo sem það þýðir. Ég held líka að Magnús sé sýnu verst á móti komu múslima til Íslands. Ég held líka að hörð viðbrögð hans við komu næsta hóps flóttafólks til Íslands og á Skagann sé svona mikil vegna þess að um múslima er að ræða. Hann mótmælir þessu að sjálfsögðu. En þetta er mín tilfinning!
Jón Bóndi // 18.5 2008 kl. 15:48
Ég get ekki séð hvernig sagan um blauta og kalda manninn geti jafnast á við að fá upphringingu og þar tilkynnt að eftir x daga komi einhver blautur og hrakinn og vilji fá mat og gistingu. Þá held ég að sé maður raunverulega ekki með neitt aflögu, segi maður að sjálfsögðu frá því og biðjist velvirðingar á því að geta ekki tekið við neinum. Svo er reyndar annað hægt, benda á annan sem betur er í stakk búinn eða hreinlega biðja viðkomandi um að hringja á morgunn því ég ætli að fara að safna í kost svo ég geti verið tilbúinn. En það er svona sem ég sé það.
Rómverji // 18.5 2008 kl. 15:57
Magnús hefur lagt sig fram um að tromma upp óánægu og fjandskap á Skaganum í garð væntanlegs flóttafólks.
Hann er eins og brennuvargur sem leggur eld að húsi og þykist svo fyrstur með fréttirnar af brunanum.
Skagamenn eru flestir stærri í sniðum en Magnús og munu áreiðanlega sjá í gegnum Þennan svívirðilega loddaraskap.
Sigtryggur Karlsson // 18.5 2008 kl. 16:25
Ég sem Skagamaður skammast mín fyrir málflutning Magnúsar Þórs. Ég er hinsvegar feginn að hafa ekki hitt einn einasta mann hér á Akranesi sem tekur undir málflutning hans.
Skagamenn eru nánast án undantekninga mannúðlegt, hjartahlýtt og raungott fólk. Viðhorf Magnúsar á sér formælendur fáa á Akranesi sem betur fer. Því mun ekki væsa um flóttamennina þegar þar að kemur.
Allir embættismenn bæjarins sem hafa með þá málaflokka að gera sem munu varða þetta fólk telja að ekki verði nein sérstök vandamál því fylgjandi að taka á móti þeim. Sveitarstjórnarmenn allra flokka nema eins eru sama sinnis.
Vegna einstaklingsbundinnar andstöðu Magnúsar kaus bæjarfulltrúi Frjálslyndra að skipta um flokk svo ekki yrðu pólitísk vandkvæði á móttökunni. Margítrekuð fullyrðing Magnúsar um að hann sé enn formaður félagsmálaráðs Akraness eru rangar. Frjálslyndi flokkurinn á enga fulltrúa lengur í nefndum og ráðum sveitarfélagsins. Það mun að mér skilst verða gert endanlega opinbert, formlega, á bæjarstjórnarfundi á morgun.
Magnús og félagar eru því orðnir algjörlega valdalausir í stjórn bæjarins. Ef til vill er það undirrót ofstopa og yfirgangs hans.
Magnús er auðvitað að vinna veruleg skemmdarverk á samstöðu bæjarbúa í þessu máli. Ég hefi þá trú að þegar um hægist og gerningaveðrinu slotar þá muni bæjarbúar standa saman að því að gera komu flóttamannanna sem besta og hagfelldasta fyrir þá.
Heiðrún Janusardóttir // 18.5 2008 kl. 16:33
Sæl og takk fyrir góða pistla. Sem Skagakonu finnst mér þessi umræða þyngri en orð fá lýst. En sem betur fer er hinn almenni Skagamaður aðeins að taka við sér. Ég er alveg sammála þeim sem segja að ef þetta er skoðun meirihluta Skagamanna þá er þessu aumingjans fólki betur komið annars staðar – og mér sennilega líka. Mér hugnast ekki að dvelja lengur við í samfélagi sem elur á hatri pökkuðu inn í eitthvað allt annað.
Guðmundur Andri // 18.5 2008 kl. 19:20
Það er alltaf hættulegt þegar skoðun verður að tísku. En það er svo margfalt hættulegra heilbrigðu þjóðfélagi þegar andstaða gegn ákveðnum skoðunum verður að tísku. Þegar við verðum svo hrædd við að tjá okkur um ákveðin atriði vegna ótta við viðbrögð samfélagsins.
Ég ætla ekki að gera mikið úr aðferðafræði þeirrar skoðanakönnunar sem sýndi Magnús Þór með 68% fylgi, en ég hef þó á tilfinningunni að stuðningur við sjónarmið Magnúsar sé langt um meiri en hinn hræddi og háværi minnihluti gerir sér grein fyrir.
Það þorði enginn að andmæla því á árum áður ef einhver benti á fátæka konu á götu og kallaði hana norn. Það var nefninlega miklu hættuminna að taka þátt í hrópunum og garga norn, norn þangað til kveikt var í aumingja konunni en að eiga það á hættu að vera brenndur sjálfur.
Staðreyndir geta verið óþægilegar og þegar fram líða stundir þá verður fólk dæmt eftir því hve óhrætt það var að tjá sig um staðreyndir líðandi stundar.
Fyrir mér lyktar umræða um komu 60 þjáðra flóttakvenna til Akraness af sviðnuðum birkigreinum og sveittum prestum.
Fyrir mér er svitalyktin af hinum háværa meirihluta og brunalyktin allt í kring.
Fyrir mér svipar hinni hundeltu norn til Magnúsar Þórs. Hann er kannski ekki heimsins flinkasti maður í tjáningu og ekki hægt að segja að hann hafi alltaf fullkomna stjórn á skapi sínu, en er það svo óeðlilegt þegar menn kveikja galdrabrennur og hrópa norn, norn um leið og hann opnar munninn.
Guttormur Sigurðsson // 18.5 2008 kl. 20:25
Þetta er fyrst og fremst leikur Ingibjargar Sólrúnar. Áratugum saman eru milljónir flóttamanna búnir að banka á dyr allra vestrænna þjóða. Þær hafa tekið við þúsundum af farandverkafólki frá löndum eins og Tyrklandi og víðar, en hafa flestar ekki staðið við skuldbindingar sínar samkvæmt alþjóðasamningum varðandi flóttamenn. Við Íslendingar höfum verið þar mjög aftarlega á merinni.
Það er alls ekki stefna Samfylkingarinnar að opna Ísland fyrir flóttamönnum, dyr útlendingareftirlitsins verða þeim áfram lokaðar. Um daginn var Ingibjörg Sólrún hinsvegar að tala við leiðtoga Al Fatah-hreyfingarinnar og ákvað í kjölfarið að hleypa nokkrum palitínskum konum inn í landið, svona til að gera sig gildandi í augum
Al Fatah-leiðtoganna. Hún gerir þetta síðan að óskaplega dýrkeyptu fyrirtæki. Tilgangurinn með því er að sýna fram á að ekki sé hægt fjárhagslega að greiða götu mikið fleiri flóttamanna.
Ingibjörg Sólrún hefur síðan sett sig í sviðsljósið með þessu tiltæki til að sýna að hún sé miskunnsami stjórnandinn sem fyrir sérstaka náð getur opnað dyr miskunnseminnar. þ.e útlendingareftirlitsins, og leyft örfáum útvöldum sálum að öðlast þessa einstöku sáluhjálp.
þegar stjórnmálamenn eru farnir að gerast slíkir skömmtunarstjórar manngæskunnar ættu hinir óbreyttu borgarar að skoða vel gjörðir þeirra.
Auðvitað hefðu slíkir fjármunir, sem það kostar hjá Ingibjörgu Sólrúnu, að flytja inn örfáa flóttamenn, nýst miklu fleirum og miklu betur, ef þeim hefði verið varið í að bæta aðbúnað fólks í heimalandi þess, eða verið veitt til hjálparstofnanna þar. En þá hefði hin pólitíska sviðsetning ekki getað farið fram og ekki verið hægt að berja á mönnum eins og Magnúsi Þór Hafsteinssyni.
Venjulegt fólk finnur auðvitað til mikillar vorkunnar vegna bágra aðstæðna flóttakvennanna. En ef einhverjum öðrum en Ingibjörgu Sólrúnu dytti í hug að reyna að bjarga flóttakonu eða konum og veita þeim fæði og húsaskjól, fengi viðkomandi ekki leyfi til þess. Ingibjörg Sólrún hefur nánast einkaleyfi á slíkum miskunnarverkum.
Sigtryggur Karlsson // 18.5 2008 kl. 20:35
Guttormur hefur ef til vill ekki áttað sig á því, fremur en Magnús Þór, að þetta fólk á ekkert heimaland. Það hefu ekkert ríkisfang og er neglt niður í aðstæður sem það kemst ekki út úr. Eina leiðin fyrir það er að komast burtu til að eignast ríkisfang og verða þannig meðlimur í samfélagi þjóðanna.
Að ætla að negla það fast á staðnum sem það er statt á er því engin líkn. Því þarf nokkru til að kosta. Að menn sjái eftir þeim aurum sem fara í það að bjarga nokkrum tugum barna frá helvítisvist er að mínu mati „fátæklegur“ hugsunarháttur.
Þroftur // 18.5 2008 kl. 20:50
Mér finnst innlegg Sigtryggs frábært. Það er örugglega svo að mikill meiri hluti Skagamanna er velviljaður í garð komu flóttafólks. Enda segja sviptingar í bæjarpólitíkinni allt sem segja þarf eins og Sigtryggur benti á.
Það lætur bara hæst í Magnúsi. Eina leiðin til að koma í veg fyrir að Akranes fái á sig ósanngjarnan stimpil skoðana Magnúsar er að hinn almenni Skagamaður láti vel í sér heyra eins og Sigtryggur og fleiri eru að gera.
Guttormur Sigurðsson // 19.5 2008 kl. 07:40
Ég er bara að benda á hræsnina, sem fylgir því að þykast vera að reyna að hjálpa bágstöddu fólki úr þriðja heiminum. Öll stefna ríkisstjórnarinnar er hinsvegar að hafa landamæri Íslands harðlæst fyrir flóttafólki. Gildir þar einu hvort einhver sé tilbúin að taka ábyrgð á því hér innanlands eða ekki. Hinsvegar ef einhver atvinnurekandi vill tímabundið flytja inn vinnukraft þá opnast hliðið og viðkomandi útlendingur er þá algerlega hér upp á náð atvinnurekandans. Flóttafólk er ekkert að biðja um að það sé trakterað eins og kóngafólk. Það þarf ekki að eyða stórfé úr almannasjóðum til að aðstoða það. Það er örugglega hægt að finna fólk hér á landi sem persónulega vill aðstoða það. Það sem fólk er nú að gagnrýna er að flóttafólkið, sem Ingibjörg Sólrún hefur valið til miskunnarverksins, fær hlutfallslega miklu meiri aðstoð heldur en margir Íslendingar sem eru í félagslegum og efnahagslegum nauðum. Er ekki eðlilegra að palítínsku konurnar flytji til palestínu? Ef það er óbyggilegt fyrir þær þar, hvað þá með allar konurnar sem þar búa? Ætlar Ingibjörg Sólrún að bjóða þeim til Íslands.
Persónulega tel ég að fólk eigi að fá að búa þar sem það vill, en á sömu forsendum og annað fólk í viðkomandi landi, sem það vill flytjast til.
Sigtryggur Karlsson // 19.5 2008 kl. 09:20
Það mun vera hægt að telja það í milljörðum sem eytt er á Íslandi í félagslega aðstoð við Íslendinga hér á Íslandi. Hinu get ég verið sammála að það er full ástæða til að eyða meiru í innflutning á flóttafólki en gert er. En það mundi þá þjóta eitthvað í frjálslyndisskjánum ef það yrði gert. Vert er að benda Guttormi á enn og aftur að það fólk sem um ræðir að flytjist á Akranes er landlaust, ríkisfangslaust og allslaust. Það er ekki hægt að hjálpa því til að flytja til Palestinu því það á engan rétt til að fara þangað. Þar að auki er ástandið í Palestína þannig undir járnhæl Ísraellsmanna með þeim hætti að það væri að fara úr öskunni í eldinn.
Nei auðvitað eigumvið að taka á móti konum þessum og börnum með þeim hætti að sómi sé að. Með opnum örmum og huga því við höfum vel efni á því og meiru til.
Benson // 19.5 2008 kl. 10:42
Guttormur Sigurðsson þyrfti að fara á sjálfsstyrkingarnámskeið og reyna að komast yfir Ingibjargarfóbíu sína. Vesalingurinn er með hana á heilanum.
Guttormur Sigurðsson // 19.5 2008 kl. 23:40
Benson, er ekki betra að fylgja mannúðlegri hugmyndafræði, heldur en þessum verðbréfakapitalisma, sem Samfylkingin fylgir, og neyðir áhangendur sína til samstöðu með ógnarstefnu Bandaríkjamanna og annarra í utanríkis- og hernaðarmálum.
Ég er að benda á að við eigum ekki að láta blekkjast af sýndarmennskutilburðum utanríkisráðherra í mannúðarmálum. Stefna Ingibjargar er að opna landið fyrir öllu kjöti af lífvana skepnum en hafa það lokað fyrir lifandi fólki í nauð, nema eftir geðþóttaákvörðunum hennar, þá má hleypa inn í landið örfáum flóttamönnum, með rándýrum umbúnaði, bara til að auglýsa hver hefur einkaleyfi á Íslandi til að bjóða hingað flóttafólki. Sumt venjulegt fólk verður auðvitað steinhissa, að allt í einu skuli vera til hellingur af peningum til velferðarmála, þegar utanríkisráðherra þarf að sína mannúð sína i pólitískum tilgangi. Aðrir komast við í einfeldni sinni yfir mannúðarseminni.
Ég sting upp á að öllu flóttafólki verði leyft að setjast að á Íslandi ef það er tilbúið að samsemja sig íslenskri þjóð og einhver tekur persónulega og formlega ábyrgð á að það fái þær grundvallarnauðsynjar sem það þarf til að lifa sæmilega. Að pólitíkusar geti ausið af geðþótta úr almannasjóðum fyrir uppsprengdum kostnaði af innflutningi flóttafólks, bara þegar þeim hentar, er ekkert annað en vanþróuð geðþóttapólitík.
Hringbrot » Blog Archive » Sá fordómalausi fordæmir fordóma // 10.9 2008 kl. 10:28
[...] Ég læt vera að fjalla meira um opinn huga og fordómaleysi Magnúsar eða undirskriftarlistann gegn einstæðum Palestínskum mæðrum á Akranesi. Flogging a dead horse, held ég enskumælandi [...]
Rita ummæli