Grikkland og dýrbítarnir
Mörg grísk börn mæta svöng í skólann og eru svöng allan daginn. Nýlega er hafið starf við skólamáltíðir handa þeim. Tugþúsundir lítilla fyrirtækja hafa farið á hausinn. Þar fór strit og draumar þúsundir fjölskyldna fyrir lítið. Þúsundir ríkisstarfsmanna hafa misst vinnuna. Strax á að segja upp 15.000 manns og til viðbótar 150. 000 fram til 2015. Ríkisstarfsmenn hafa nú þegar þurft að sætta sig verulegar kauplækkanir og fyrirhugað er að lækka laun enn frekar um 22% á næstunni. Eftirlaun sem nú þegar hafa glatað 50% af kaupmætti sínum á einnig að lækka núna um 23%. Starfmenn eru sviftir áunnum réttindum og starfsöryggi sem áunnist hafa með áralangri kjarabaráttu. Starfsmenn eru líka sviftir réttinum til að semja um kaup og kjör. Skattar og gjöld hafa aukist þannig að margir ná ekki endum saman. Velferðakerfi Grikkja var lítið miðað við aðrar Evrópuþjóðir og alvanalegt að foreldrar styrktu börn sín og aldraða foreldra sína. Núna á að skera enn meira niður í mennta-og heilbrigðiskerfinu. Þegar velferðakerfið og efnahagur fjölskyldna er lagður í rúst á hinn almenni Grikki hvergi höfði sínu að halla þegar út af bregður.
Nú þegar hafa 500. 000 þúsund störf farið forgörðum í Grikklandi síðan 2008. Nær annar hver af yngri kynslóðinni er atvinnuleus. Það stefnir í 30% almennt atvinnuleysi. Í lok næsta árs er gert ráð fyrir því að þjóðarframleiðsla Grikkja hafi minnkað um 20%. Í kreppunni miklu minnkaði þjóðarframleiðsla í Bandaríkjunum um 29%.
Það sem nánast enginn skilur er hvernig þjóð í þessum aðstæðum á að vinna sig út úr kreppunni. Fjölmiðlar telja okkur trú um að þjóð sem á varla til hnífs og skeiðar sé líkleg til að vinna sig út úr kreppu. Að þjóð sem er neydd til að selja fyrirtæki sín á brunaútsölu, fyrirtæki sem gefa tekjur til ríkis og einstaklinga. Allar nýjar skuldbindingar grísku ríkisstjórnarinnar skulu meðhöndlaðar af breskum dómstólum, ekki grískum. Þvílík niðurlæging fyrir fullvalda þjóð. Þar með er loku fyrir það skotið að Grikkir geti losnað við ólögmætar skuldir.
Fullyrðingar og áróður fjölmiðla um aðferðir ESB/AGS gagnvart Grikkjum standast ekki nánari skoðun. Þrátt fyrir það eru ýmsir fjólmiðlar og starfsmenn þeirra tilbúnir að segja okkur að þetta sé aðferðin sem beita eigi og eina aðferðin fyrir Grikki. Auk þess telja fyrrnefndir aðilar að Grikkir eigi ekkert betra skilið.
Aðferðir ESB/AGS munu valda gríðarlegum hörmungum, eru ómennskar, brjóta lög, mannréttindi og stjórnarskrá Grikklands.
Sök Grikkja felst í því að hafa þegið boðið í veislu bankanna.
Um 90% af afrakstrinum af öllum þessum aðgerðum ESB/AGS mun verða notaður til þess að greiða eigendum ríkisskuldabréfa. Þeir eru upp til hópa einkabankar. Einhvern afslátt ætla þeir að veita en í staðin fá þeir ný ríkisskuldabréf frá Grikkjum sem skattgreiðendur í Evrópusambandinu munu ábyrgjast. Þar með hefur eðlileg áhætta við kaup á skuldabréfum verið þurrkuð út. Evrópskir bankar geta ekki látið Grikkland falla því þeir hafa keypt tryggingar fyrir tapi sínu hjá bandarískum bönkum. Bandarísku bankarnir hafa veðjað á að Grikkland lafi. Ef Grikkland fellur og evrópskir bankar sækja sitt tryggingafé til bandarískra banka þá falla þeir bandarísku. Þess vegna heimsótti Geithner Evrópu um daginn. Díllinn gengur út á það að láta Grikki lafa nógu lengi meðan hreinsað er til í óreiðunni.
Á tíunda áratugnum var S-Kórea í helgreipum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Kosningar voru væntanlegar og AGS neyddi forystumenn stærstu stjórnmálaflokkanna til að skrifa undir loforð um að þeir myndu ekki breyta samstarfinu við AGS eftir kosningar. Almenningur gat því ekki beitt lýðræðinu til að hafa áhrif á framtíð sína.
Evrópusambandið beitir sömu aðferðum í dag á Grikklandi. Kosningar verða sennilega í apríl. Þessa dagana er ESB að þvinga gríska stjórnmálaleiðtoga til að lofa því fyrirfram að engin breyting verði á helstefnu sambandsins eftir kosningarnar í Grikklandi. Nú þegar hefur Antonis Samaras(New Democracy) skrifað upp á. “if New Democracy wins the next election in Greece, we will remain committed to the program’s objectives, targets and key policies”. Þar með er verið að svifta Grikki þeim lýðræðislegu réttindum að geta með þátttöku sinni í kosningum haft áhrif á framtíð Grikklands.
Þetta segir okkur að ESB telur eins og AGS að lýðræðið sé eingöngu fyrir útvalda. Þessi þáttur í kjarnastefnu ESB/AGS á uppruna sinn í þeim öflum sem ráða lögum og lofum innan þessara stofnana. Þessi öfl eru fjármálaöflin. Þegar kemur að hag fjármálaaflanna þá er lýðræðinu ýtt út af borðinu. Ekki bara lýðræðinu heldur velferð og hamingju heillar þjóðar. Ef fjármálaöflin fá sitt er ESB sama þó að Grikkir eigi ekki fyrir mat, geti ekki kynnt híbýli sín, búi á götunni og að öll uppbygging þjóðfélagsins hverfi ofaní svart gímald bankakerfisins.
Þegar fjármálaöflin eru orðin sátt við tilraun sína á Grikkjum munu þau færa sig til. Ítalía, Spánn og Portúgal eru næst á dagskrá. Síðan munu þau færa sig norður á bóginn, Frakkland og Þýskaland verða þá orðin veikluð og skuldum vafin eftir alla björgunarpakkana. Eftirleikurinn verður því auðveldur.
Öllum með meðalgreind ætti að vera ljóst að fjármálaöflin hafa rænt evrópska draumnum. Til að sá draumur verði einhvern tíman að gagni fyrir almenning í Evrópu þurfum við að brjótast undan oki fjármálaaflanna sem stjórna öllu í Brussel.
Að kalla þessa dýrbíta fasista eða nýfrjálshyggju gaura flokkast undir skreytni. Á venjulegri íslensku kallast þetta bara djöfulsins mannvonska og er framkvæmd af bankavaldinu og Evrópusambandinu í sameiningu og slefan lekur ekki á milli þessara aðila. Almennilegir Íslendingar ættu að vita hvernig umgangast skal dýrbíta.
Það verða samstöðumótmæli um alla Evrópu á laugardaginn; http://www.facebook.com/events/300173683376937/
Á Íslandi verða samstöðumótmæli á laugardaginn kl 1530 í Grasrótarmiðstöðinni,
Brautarholti 4.
http://www.facebook.com/events/110020119126970/

Gunnar Skúli Ármannsson
Þorsteinn Úlfar Björnsson
16.02 2012 kl. 23:31 #
Flottur oistill!!
Takk, takk, takk!
Guðmundur Brynjólfsson
16.02 2012 kl. 23:48 #
Heyr heyr!
Jón Frímann
17.02 2012 kl. 01:11 #
Grikkir fölsuðu bókhaldið í meira en áratug. Þegar upp komst þá var ástandið svo slæmt að það sér ekki ennþá fyrir endan á því.
Grikkjum er frjálst að yfirgefa Evrópusambandið ef þeir kjósa svo. Gallin er bara að sú leið er mun dýari heldur en að vera í Evrópusambandinu og leysa vandan í eitt skipti fyrir öll. Ég reikna með að grikkir geri það, enda er hinn kosturinn mun verri en það sem núna stendur fyrir dyrum hjá grikkjum.
Hérna er yfirlit BBC News um kreppuna í Grikklandi.
http://www.bbc.co.uk/news/business-13798000
Guðni Karl Harðarson
17.02 2012 kl. 01:30 #
Þakka fyrir þennan góða og raunsanna pistil Gunnar.
Kveðja,
Guðni Karl
Gapandiundrandi
17.02 2012 kl. 03:28 #
Þetta er haft eftir einum Grikkja í breskum fjölmiðli um þýska þarma-gasið:
„They need to stop pretending that Greece is a special case and decide once and for all what they are going to do with all the culprits or PIGS [Portugal, Italy, Greece and Spain] and what they want Europe itself to be. Are they really going to flush Greece down the toilet and hope it will disappear from planet earth?“
Ég spyr sem Grikkinn:
Hélt helferðarstjórn hausfrau Johanna virkilega að það væri nóg að sturta óbreyttum lánaþrælum niður klósettið, eftir að vera búin að endurreisa bankana og þar með væri vandinn leystur?
Nei, þarma-gasið er orðið óbærilegt af helferðar-hræi hausfrau Johanna!
Gapandiundrandi
17.02 2012 kl. 03:35 #
Í forsíðufrétt eins af grísku dagblöðunum í gær sagði:
„Lýðræðið – fer það nú í þýska gasofna herr Schauble?“
Friðrik Tryggvason
17.02 2012 kl. 08:40 #
Ok. Grikkir fölsuðu bókhaldið, annar hver maður borgar ekki skatta, ríkið er fullt af einhverjum afætum sem gera ekkert í vinnunni og þeir hafa verið á lánafyllerí. Er þetta vonda AGS að kenna?
Magnus Jonsson
17.02 2012 kl. 09:21 #
ÞAð kom fram í fréttum á Al Jazera að gullið sem þjóðverjar stálu frá grikkjum í ww2 og liggur einhverstaðar niðurgrafið í hirslum Rotchild fjölskyldunnar væri meir en nóg til að borga allar skuldir Grikkja og gott betur.
Finnst fólki almennt í lagi að börn séu að hníga niður í skólastofum úr hungri af því að póltíkusarnir voru svo spilltir og almenningur eigi að borga fyrir sukkið ?
Ekki ein Evra af öllum þessum „björgunarpakka“ fer til Grikklands bara skuldin, hitt fer allt beint á þýska og svissneska bankareikninga.
Halldór Friðgeirsson
17.02 2012 kl. 11:17 #
http://www.youtube.com/watch?feature=player_embedded&v=W8Ayb8P1LbU
Guðjón Erlendsson
17.02 2012 kl. 12:36 #
Af hverju er verið að úthúða IMF, Evrópusambandið og Þýskaland?
Grikkir sjálfir kusu yfir sig ramm-spillta stjórnmálaflokka þar sem völd gengu í erfðir. Flokkar sem veittu stuðningsfólki sínu vel launuð en gagnslaus embætti hjá ríkinu.
Grikkir sjálfir hafa algjört andlæti á að borga skatta. En ætlast til stórra útláta frá ríkinu. Stór hluti þjóðarinnar vinnur beint eða óbeint fyrir ríkið.
Grikkir gefa sjálfum sér góð eftirlaun eftir 55 ára aldurinn. Einna yngst í allri Evrópu.
Grikkir hafa lítinn áhuga á nýsköpun, og hafa lítið gert til að skapa fjölbreytara efnahagskerfi.
Þetta er einfaldur reikningur: Ef ríkið fær engar tekjur (skattar) en er með stór útgjöld (laun, styrkir, eftirlaun ofl.) þá ber það sig ekki til lengdar og þar að taka lán. Ef ekkert breytist, þá verður ríkið gjaldþrota.
Þette er engum öðrum að kenna nema Grikkjum sjálfum. IMF og EU eru tilbúin að hjálpa, en ekki á meðan alkahólistinn er ennþá að drekka. Þessi aðstoð er fjármunir sem skattgreiðendur EU, aðalega í Þýskalandi, hafa greitt úr eigin vasa. Skattgreiðendur sem hafa unnið hörðum höndum fyrir þessum fjármunum. Skattgreiðendur sem fara ekki á eftirlaun 55 ára gamlir. Af hverju eru þessir skattgreiðendur „vondir“?
Finnst fólki það í lagi t.d. þegar Útrásarvíkingarnir á Íslanid fá öll lánin sín afskrifuð og geti byrjað á næstu eyðsluævintýrum? Og skuldirnar lenga á þér, skattgreiðandanum?
Grikkir eru nefninlega útrasarvíkingar Evrópu.
Það væri allt í lagi að láta þá sigla bara sinn sjó ef þeir eru óánægir með að þurfa að fara að borga skatta og hætta eyðslufylleríinu sínu. Það er það eina sem verið er að fara framá. Og ég hef nákvæmlega enga samúð með „fátækum“ Grikkjum. Þeir eru með kostningarrétt og gátu kosið eitthvað annað. Það hefur nefninlege ekkert breyst í pólitík Grikklands. Það er auðveldara að kenna útlendinum um þetta, og þá sérstaklega Þjóðverjum, en ef menn vilja leita af öfgum og rasistum, á þarf ekki að fara til Þýskalands til þess.
Það að henda nasistmanum framaní Þjóðverja er mjög ósmekklegt.
Gunnar Skúli Ármannsson
17.02 2012 kl. 13:57 #
Sæll Jón Frímann og takk fyrir innlitið,
ég er ósammála því að almenningur sé látin greiða skuldir með þeim hætti sem núna er gert í Grikklandi. Almenningur er að missa allt sitt, heimili, heilsu, vinnu, fyrirtæki, o sv fr.
Það er einfaldlega of dýru verði keypt og slík meðferð á heilli þjóð er ekki hægt að léttræta með einhverri hegðun í bókhaldi áður fyrr. Það brýtur á grunngildum mínum og lífssýn, þetta eru dýrslegar aðfarir en ekki mennskar.
Þessi kenning þín er svipuð og sú kenning að Íslendingar eigi ekki neitt gott skilið vegna þess að þeir kusu yfir sig Davíð Oddson og félaga. Þar sem ég hef alltaf orðið fyrir því að kjósa þá sem lentu í stjórnarandstöðu, þá er ég sem sagt stikk frí?
Sama gildir um aðra þegna sem kusu yfir sig óvanda forystumenn-Hitler, Mussolini, Obama o sv fr.
Áratugum saman hafa verið til pólitísk öfl í Grikklandi sem hafa gagnrýnt stefnu stjórnvalda þegar kemur að spillingu og lántökum. Eiga þau þá ekki að vera stikk frí? Eiga ekki bara þeir sem kusu viðkomandi flokka að bera ábyrgð. Almenningur er að borga fyrir sukk elítunnar í Grikklandi. Ríkt fólk og stórfyrirtæki hafa sloppið undan skatt heimtu mun frekar en almenningur. Ráðstafanir ESB/AGS breyta þessu ekkert sérstaklega mikið enda er ESB/AGS að semja í dag við gömlu sukkara elítuna sem þú ert að skamma.
Gunnar Skúli Ármannsson
17.02 2012 kl. 14:20 #
Sæll Friðrik,
að ræða á þennan hátt um heila þjóð er rasismi og ekki boðlegt viti bornu fólki.
Það var JP Morgan sem falsaði bókhald Grikkja og seldu þeim síðan pakkann. Allir innan framkvæmdavalds ESB vissu um þetta frá fyrsta degi.
Grikkir vinna lengstu vinnuvikuna í ESB, framleiðniaukning vinnuaflsins í Grikklandi hefur verið mjög mikil s.l. 10 ár. Stærsti hluti lánafyllerísins eru lán einkabanka til að taka þátt í spilavítinu. Ekki átti almenningur á Íslandi allar skuldirnar þegar hrunið kom 2008. Það var að stærstum hluta einhverjir aðrir en almenningur. Þrátt fyrir það greiddi almenningur fyrir endurreisn einkabankanna og það kostaði okkur um 64% af einni þjóðarframleiðslu, um 1000 milljarða. Við hefðum getað notað þá fjármuni í eitthvað annað.
Jafnvel þó að allt sem þú segir um þjóðina sem býr í Grikklandi væri satt þá réttlætir það ekki framferði okkar við þá.
Gunnar Skúli Ármannsson
17.02 2012 kl. 14:32 #
Sæll Guðjón,
mér þætti vænt um ef þú vísaðir beint í færsluna mína hvar ég hendi nasismanum framan í Þjóðverja.
Mér er eiginlega öllum lokið. Ég bara endurtek að jafnvel þó að allar ykkar ásakanir væru sannar þá réttlætir það ekki þessa framkomu við Grikki að mínu mati. Það stríðir gegn lífsskoðunum og þeim gildum sem ég aðhyllist.
Hvort það hafi einhver áhrif á þig að vitna í Biblíuna veit ég ekki en þar stendur m.a. þetta,
„skuldið ekki neinum neitt nema að elska hvorn annan“
og hitt líka,
“ sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum“
Haukur Kristinsson
17.02 2012 kl. 15:21 #
Hér er margt vel sagt og réttilega. Pistlarhöfundurinn sjálfur og margir ummælendur. Hinsvegar virðist Gunnar Skúli vera nokkuð stressaður. Guðjón segir t.d. hvergi að Gunnar Skúli hafi hent nazismanum framan í Þjóðverja, hann sagði að Grikkir geri það, og það er rétt hjá honum. Grikkir væru fyrir löngu komnir á hausinn, hefðu Þjóðverjar ekki rétt þeim hjálparhönd. Grikkir hafa lifað um efni fram í tugi ára, vinir og vandamenn eru ráðnir til ríkisins án þess að verkefni séu fyrir hendi. Margir mæta því ekki einu sinni í vinnuna, og enginn tekur eftir því. Íslenskir embættismenn verða þó að mæta. Vinur minn grískur sagði við mig, að það þyrfti að afskrifa allar skuldir Hellena, 100%. Þá þyrfti að veita þeim aðstoð, sem næmi 20% skuldanna, svo þeir gætu komið undir sig fótunum í nýjan leik. En einhver yrði að halda í hendina á óvitanum, svo hann færi sér ekki aftir að voða.
En hvernig vill Gunnar Skúli að tekið sé á þessu Herkúles verkefni?
Jón Jón Jónsson
17.02 2012 kl. 15:36 #
Það vita flestir að hver þjóð fyrir sig hefur mismunandi þjóðarsál og það finnst mér dásamlegt, en ekki að ein stöðluð stærð sé ætluð öllum þjóðum. Það er gaman að heimsækja stoltar þjóðir, því þær njóta þess að sýna öðrum reisn sína. Grikkir eru yndislegir.
En Þjóðverjar eru fínir líka, en bara á allt annan hátt. Þetta ESB og Evru dæmi ber í sér feigðina, því kerfis- og bíró-teknó-kratían í Brussel mun aldrei geta staðlað mismunandi sálir þjóðanna. Þar í liggur feigð valdakerfisins, því stundum vilja limirnir dansa, hvert eftir sínu höfði, en ekki eftir rödd að ofan. Öllum finnst gaman að dansa frístæl, líka Þjóðverjum:-)
Jón Jón Jónsson
17.02 2012 kl. 15:39 #
Og auðvitað elskar Grikkinn Sorba frístæl, alveg eins og Oscar með Blikktrommuna:-)
Gunnar Skúli Ármannsson
17.02 2012 kl. 17:18 #
Sæll Haukur,
þú spyrð hvernig ég vilji taka á vandamálum Grikkja.
Í fyrsta lagi skuldadómstól, debt audit. Þar yrðu skuldir Grikkja sorteraðar. Þær skuldir sem Grikkjum ber að greiða greiða þeir. Samið yrði um mannsæmandi kjör án þess samfélagið hrinji.
Þetta hefur verið gert áður. Í dag hefur almenningur ekki hugmynd hverjum þeir eru að greiða. Á Írlandi hafa ýmsir reynt að komast að hvert allir milljarðarnir fara og komist að því að stór hluti hefur ekkert með Íra að gera, þ.e. ólögmætar skuldir.
Það sama þarf að gera í Grikklandi og þess vegna á íslandi.
http://www.cadtm.org/Why-a-debt-audit-in-Greece
„Most part of Greek public debt is reflected in sovereign bonds. The first question we must ask is: What part of Greek public debt comes from bonds issued to rescue banks? What part of this debt has never being really received by Greece, because is just a result of financial mechanisms, attacks, and speculations in financial market? Does anyone own what has never received? Is it right that all Greek people pay for this?“
Haukur Kristinsson
17.02 2012 kl. 17:31 #
Gunnar Skúli, við erum líklega sammála í megin atriðum. Það sem þú skrifar í þínum góða pistli um bankana og Geithner er líklega rétt. En Grikkir verða að axla sína ábyrgð og STANDA SIG. Það hafa þeir ekki gert. Ég er vel kunnugur ástandinu og mitt hjarta slær með Grikkjum. Þar hef ég kynnst yndislegu fólki. Sonur minn býr þar, er læknir eins og þú, en móðirin er grísk. Kveðja, Haukur
Gunnar Skúli Ármannsson
17.02 2012 kl. 18:30 #
Sæll Haukur,
gott að heyra að við erum að mestu sammála. Skuldadómstóll myndi sennilega helminga skuldir Grikkja og á löngum tíma geta þeir endurgreitt afganginn. Einnig ef þeir halda sínum fyrirtækjum og auðlindum eru þeir betri borgunarmenn.
Að sukk efri stéttarinna sé þess valdandi að allur almenningur þjáist er óréttlæti.
Ég er líka í sambandi við „grasrótarfólk“ um alla Evrópu og þar með talið Grikkjum. Vinn í Svíþjóð og með mörgum Grikkjum. Þannig að mér streyma upplýsingar frá allri Evrópu og þar með Grikklandi.
Eyjólfur
17.02 2012 kl. 20:06 #
http://1.bp.blogspot.com/-DHy356hm6c0/Tz5jx_F_tNI/AAAAAAAAVVY/V7VAQ1sxRso/s1600/eurozone.jpg
Svolítið forvitnilegt…
Ari
18.02 2012 kl. 19:09 #
Jújú grikkir thurfa að laga kerfið, borga jafn mikið inní almenna kerfið og their eyða, minnka útblásið kerfi sem their hafa ekki efni á, borga sína skatta o.s.frv., laga thetta smám saman í gegnum árin en thað má ekki tortíma thessari thjóð, staða fólksins er krítísk, sá í vetur sænska heimildarmynd thar sem sáust grátandi ellilífeyristhegar, foreldrar sem eiga ekki mat f. börnin sín, maður fær sting í hjartað og vill hjálpa thessu fólki, ekki öskra að thað geti sjálfu sér um kennt(thað skiptir líka engu máli thegar fólk tharf hjálp)
Þorsteinn Úlfar Björnsson
18.02 2012 kl. 23:13 #
Hún er afar athyglisverð myndin sem Eyjólfur bendir á hér ofar og sannar að mínu viti að bankar kunna ekki með peninga að fara.