„Ekki eins og Frjálslyndi flokkurinn“……
16.2 2012
Siggi stormur sagði í Silfri Egils þann 12. febrúar 2012 að Samstaða vildi innkalla kvótann en ekki breyta kvótakerfinu „eins og Frjálslyndi flokkurinn ætlar að gera“. Auk þess notar hann orðalagið „ á morgun“. Að gera þjóðinni upp þá heimsku að hún trúi því að eitthvert stjórnmálaafl ætli að breyta slíku kerfi eins og kvótakerfinu á örfáum klukkustundum er vanvirðing við skynsemi þjóðarinnar.
Núverandi fyrirkomulag við útdeilingu á kvóta brýtur mannréttindi á Íslendingum á Íslandi samkvæmt áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna frá 24. október 2007. Mannréttindarnefndin komst að þeirri niðurstöðu að íslensk stjórnvöld brjóti eigin lög um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi, lög nr.10 frá 1979. Sennilega er þetta eina mannréttindarbrot okkar Íslendinga sem Sameinuðu þjóðirnar hafa slegið föstu að við framkvæmum. Nefndin óskaði eftir viðbrögðum innan 180 daga en við höfum ekki bætt ráð okkar frekar en Sýrlandsforseti.
Frjálslyndi flokkurinn vill breyta kvótakerfinu þannig að það brjóti ekki mannréttindi en hinir virðast ekki reiðubúnir til þess. Samkvæmt skoðanakönnunum vill þjóðin breyta kvótakerfinu eins og Frjálslyndi flokkurinn. Það sem virðist sætta menn við mannréttindarbrot á Íslandi er annaðhvort óttinn eða samsömun við stóru kapítalistana innan LÍÚ.
Allt tal um kollsteypur ber skort um vanþekkingu á málflutningi Frjáslynda flokksins. Flokkurinn gerir ráð fyrir að hluti auðlindagjalds fari til greiðslu skulda útgerða, skulda sem komu sannanlega til vegna kaupa á kvóta. Einkaþyrlur eru og verða einkamál.
Munurinn felst ekki í innkölluninni á kvóta. Munurinn felst í nýrri úthlutun. Frjálslyndi flokkurinn krefst jafnréttis við úthlutun á kvóta. Þannig mun manréttindarbrotum linna á Íslandi. Hann vill að nýir aðilar geti skapað sér framtíð í grundvallariðngrein Íslendinga. Frjálslyndi flokkurinn hafnar mismunun og krefst jafnréttis. Flokkurinn telur að slík mannréttindarbrot séu ekki verslunarvara.
Mannréttindarbarátta hefur oft þurft að lúta í lægra haldi fyrir miklum einkahagsmunum. Það er sárt þegar baráttu Frjálslynda flokksins fyrir jöfnum rétti og þar með mannréttindum er afgreidd með jafn óábyrgum hætti. Í hverra þágu er það?
Gunnar Skúli Ármannsson |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag |
Gunnar Skúli Ármannsson
GB
16.02 2012 kl. 11:13 #
Siggi var snöggur að eyða sinni pólitísku inneign………
Þorsteinn Úlfar Björnsson
16.02 2012 kl. 12:11 #
Er ekki bara einfaldast að hætta þessari hræsni og lögleiða þrælahald?
Þessir skuldafjötrar virka ekki nógu vel eftir dóm hæstaréttar í gær.
Gunnar Skúli Ármannsson
16.02 2012 kl. 13:41 #
Sæll Guðmundur og takk fyrir innlitið,
það yrðu mjög sorgleg niðurstaða ef Samstaða eyddi sinni pólitísku inneign. Ég vil að Lilju og Samstöðu gangi allt í haginn og þau nái topp kosningu. Það er skelfilegt til þess að hugsa ef þau munu taka mannréttindarbrotin með sér í kosningabaráttuna. Að drusla þeirri líkkistu með sér mun enda með því að Samstaða fellur fyrir björg. Það mun fjórflokkurinn nýta sér til hins ýtrasta. Það væri mjög slæmt. Þess vegna vona ég að þau íhugi afstöðu sína til mannréttindarbrota á íslenskum sjómönnum.