Bjarni fann sig í vissu uppnámi

15.2 2012

Bjarni Ben formaður Sjálfstæðisflokksins telur að hann og félagar hans hafi gripið inn í þegar staðan var komin í „vist uppnám“. Því er augljóst að lögfræðingurinn Bjarni Ben var með hlutina á hreinu um hvað snéri upp eða niður. Lögfræðingar lúslesa venjulega alla samninga, velta fyrir sér málfari og hvort eitthvað geti orkað tvímælis. Þannig vinna lögfræðingar, eiga að vinna þannig og eru menntaðir til þess. Að skrifa undir samning með rangri dagssetningu er æði sérkennilegt. Það virðist vera frekar brask en vönduð vinnubrögð.
Sérkennilegt að tala um bankakerfi sem er komið í þrot að það sé komið í „vist uppnám“.
Þetta „vist uppnám“ varð þess valdandi að feðgarnir seldu öll hlutabréf  sín fyrir hundruði milljóna. Þeir vissu eins og góð skipsrotta að hin hinsta för var í aðsigi. Það eina sem skorti á þessi „eðlilegu“ viðskipti var að þeir hefðu mátt bjóða fleirum með sér niður landfestarnar, t.d. þjóð sinni.
Er ekki kóngurinn í Valhöll kominn í „vist uppnám“.
Hvað sem er rétt eða rangt í þessu máli þá vona ég svo innilega að Bjarni Ben haldi stöðu sinni sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Bæði munu andstæðingar flokksins  hafa höggstað á honum en það sem er þó mikilvægara að hugsanlegt er að umbótaröfl innan Sjálfstæðisflokksins munu hreinsa til í flokknum. Sennilega borin von en samt…

5 ummæli

  1. Ásthildur Cesil Þórðardóttir
    15.02 2012 kl. 00:21 #

    Jamm það er alveg öruggt að formaður sjálfstæðisflokksins vissi hvað til síns friðar heyrði, Þorgerður Katrín og þorri sjálfstæðismanna. Þannig var það bara.

  2. Haraldur
    15.02 2012 kl. 05:43 #

    Löglegt en siðlaust á hér sennilega best við, eins og góður drengur sagði titt sinn.

  3. stebbi
    15.02 2012 kl. 09:05 #

    „Á engum tímapunkti stóð ég frammi fyrir einhverri siðferðilegri spurningu þar sem dómgreind mín í þessu máli brást,“ Segir Bjarni.

    Ég velti fyrir mér. Að eigin mati eða góðra manna? Á því er mikill munur!

  4. Leifur A. Benediktsson
    15.02 2012 kl. 13:59 #

    Það lekur af þessum Engeyingi sakleysið! Almannatengslasúpa FLokksins hefur unnið nótt sem nýtan dag til að N1Bjarni kæmist stórslysalaust frá Kasljósi. Allt þaulæft sl. vikur, ég trúi ekki einu orði þessa manns,sem kom N1,Sjóva og öðrum fyrirtækjum fjölskyldunnar á hvínandi kúpuna. Með afar undarlegum Vafningum og snúningum að hætti FLokksins.

    Mín von eins og annarra sem fyrirlíta þetta fólk sem kom landi voru á vonarvöl,að N1Bjarni verði formaður sem allra allra lengst.

  5. Ari
    15.02 2012 kl. 15:29 #

    visst er með 2 S-um gamli.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af átta og þremur? Svar: