I Want To Breake Free…
Seinni heimstyrjöldin er mjög lærdómsríkur kafli í mannkynssögunni fyrir okkur í dag. Bæði er að ekki er langt síðan hún gerðist og heimildir eru margar, þökk sé skráningaráráttu Þjóðverja. Hún kennir okkur margt um mannlegt eðli og viðbrögð almennings við ógnum.
Nazistar hnepptu milljónir í þrælkunarbúðir sem unnu myrkranna á milli fyrir Þriðja ríkið. Þeir sem urðu veikir eða þoldu ekki álagið dóu drottni sínum. Manneskjan var nýtt sem ódýrt vinnuafl í þágu hagsmuna fárra. Vonir, draumar eða framtíðaráætlanir fjölskyldna enduðu í hungri eða gasklefum. Með valdi naut valdastéttin þeirra mannréttinda að fylgjast með börnum sínum vaxa úr grasi og taka við keflinu en svifta hina því.
Fangaverðirnir voru miklu færri en fangarnir. Þess vegna hefðu fangarnir sennilega sigrað ef þeir hefðu staðið saman. Þess í stað taldi hver einstaklingur að ef hann væri duglegur og hlýðinn þá myndi hann frekar lifa af. Þess vegna var friður í fangabúðunum. Gyðingagettóið í Warsjá var skipulega tæmt af fólki í útrýmingabúðirnar. Þegar þeir sem eftir voru áttuðu sig á því að Nazistarnir ætluðu að eyða þeim öllum þá gerðu þeir uppreisn.
Hinir Pólverjarnir sem ekki voru gyðingar hjálpuðu ekki gyðingunum sérstaklega mikið því þeir hugsuðu líka að ef ég er hlýðinn og góður þá slepp ég kannski. Ef þeir hefðu staðið með gyðingunum þá hefði baráttan orðið Þjóðverjum mun erfiðari. Síðan gerðu Pólverjarnir uppreisn seinna en þá voru allir gyðingarnir dánir og andstaðan veikari.
Okkur finnst sjálfsagt í dag fáranlegt að kúgararnir geti komið inn slíkum fordómum hjá þeim kúguðu og þannig komið í veg fyrir að þeir geti unnið saman. Í þá daga gátu ekki allir samþykkt að vinna með gyðingum vegna þess að þeir voru gyðingar. Þrátt fyrir það sátu allir í sömu súpunni og hefðu átt að standa saman sem Pólverjar.
Í dag, 27 janúar, er dagurinn þegar Rússar frelsuðu síðustu fangana úr Auschwitz og Treblinka. Þá var það allt of seint fyrir allar þær milljónir sem þjáðust og dóu.
Í raun hefur lítið breyst nema að umbúðirnar eru svolítið öðruvísi. Fólk er hneppt í skudlafangelsi og vinnur myrkranna á milli. Þeir sem þola ekki álagið fá nánast að deyja drottni sínum því velferðarkerfið er skorði niður skipulega. Ódýrt vinnuafl verður til og ódýrar fasteignir fyrir bankana .
Enn í dag erum við miklu fleiri en fangaverðirnir. Ef við stæðum saman væri valdið okkar. Við hneykslumst á lang afa og ömmu að þau skyldu ekki brjóta hlekki valdsins af sér með sameiginlegu átaki. Okkur er eins farið. Því við trúum því hvert og eitt að ef við erum hlýðin og góð þá sleppum við, kannski. Við horfum á eftir vinum og kunningum í gjaldþrot. Við vitum að bankinn munn svifta þau öllum eigum þeirra. Ræna af þeim öllum ævisparnaði þeirra, öllu stritinu. Við vitum að bankinn mun kljúfa fjölskyldur.
Við vitum að vonir, draumar og framtíðaráætlanir fjölskyldna munu enda á báli kreppunnar. Við vitum að með valdi mun valdstéttin einoka þau mannréttindi að fylgjast með börnum sínum vaxa úr grasi án skorts og taka við keflinu.
Ætlum við ekkert að læra af sögunni, þurfum við alltaf að finna upp hjólið. Ef við gætum sameinast. Bara tímabundið. Þó við séum ekki öll nákvæmlega eins. Þó við túlkum ekki tilveruna nákvæmlega eins. Þó við séum ekki ákkúrat á réttum stað á hinum pólitíska kvarða, upp á millimeter. Þó við séum gyðingar eða með bólu á nefinu. Allt þetta hefur valdastéttin troðið inn í höfðið á okkur svo að við stöndum ekki saman. Það er ömurlegt að horfa upp á árangur hennar.
I want to breake free from the financial system… en þá verðum við að standa saman og þá er valdið okkar. Við verðum að hætta að dæma samherjana eftir gæðastaðli valdastéttarinnar.
Er það hámark eigingirninnar að vilja eyða dögum líf síns í öryggi hlekkjanna í stað þess að brjótast undan þeim í þágu barnanna okkar. Kannski er það heimska að hugleysi. Það er að minnsta kosti manninum eðlislægt að bregðast of seint við kúgun.
Við verðum að gera okkur fulla grein fyrir því að við erum með tilveruna að láni hjá börnunum okkar og ber að skila henni í jafn góðu ásikomulagi til þeirra. Í raun höfum við ekki neina undankomu því fyrsti gráturinn var undirskrift okkar.
I want to breake free from the financial system…
Gunnar Skúli Ármannsson
Leifur A. Benediktsson
28.01 2012 kl. 01:00 #
Þetta var góð grein hjá þér Gunnar Skúli,og tilvitnunin í fangabúðir nasistanna í Auschwitz og Treblinka á svo sannarlega við okkur í þessu sambandi.Ég er nýbúinn að lesa sögu útrýmingarbúðanna í Auschwitz og Birkenau,hún var hrollvekjandi og þörf áminning um allt það grimma sem býr í manninum, og auðvitað það hvað neyðin og samtakamáttur þeirra kúguðu getur áorkað,standi það þétt saman.
Að standa saman í blíðu og stríðu, gegn óréttlæti og kúgun hverskonar er okkur manninum stundum ofviða.
Það sem fyrst og fremst vantar hér á landi er öflug og beinskeytt hreyfing sem fær til sín fjöldann, sem búinn er að fá nóg af kúguninni og úrræðaleysi ráðamanna sem hlýða fjármagnsöflunum í blindni.
Við þurfum okkar Occupy hreyfingu,fjöldahreyfingu OKKAR 99% sem eiga að standa undir ruglinu og óréttlætinu.
Núverandi stjórnvöld tóku stöðu með fjármagninu gegn OKKUR. Þeim verður líkt og hínu hyskinu í 4FLokknum grimmilega refsað í komandi kosningum.
Nonni
28.01 2012 kl. 13:12 #
break free
ekki breake free
Ari
28.01 2012 kl. 14:50 #
Skil gagnrýni þína á bankamafíuna en að að þú skulir líkja fólki á Íslandi sem er statt í efnahagskreppu við fanga í Auschitz nær ekki nokkurri átt. Við höfum það alveg bærilegt á Fróni. Þetta er frekar desperat tilraun þín til að vekja athygli (allar desperat tilraunir í umræðu enda í samanburði við hegðun nasista)
p.s .+ svipta ekki „svifta“
Haukur Kristinsson
28.01 2012 kl. 14:53 #
Góður pistill Gunnar Skúli, mjög góður. Einnig góð ummæli hjá Leifi A.
“Die Aussiedlung hatte nur einen Zweck: den Tod”
Marcel Reich-Ranicki, 27. janúar 2012 „at the German parliament, Bundestag.“
Arinbjörn Kúld
28.01 2012 kl. 20:35 #
Góður Skúli. Ég hef oft pælt í því hvaða ósköp þurfi til að við íslendingar þ.e. almenningur standi saman gegn þessu óhugnalegu óréttlæti sem verið er að beita? Ég finn engin svör.
Kveðja að norðan.
Guðmundur Þórarinsson
28.01 2012 kl. 22:47 #
Jóhannesarguðspjall 15:12
Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hvert annað eins og ég hef elskað yður.
Flóknara er það nú víst ekki.
Og hvað segir sagan af honum að hann hafi komið til að sýna okkur meðal annars?
Jú, hvernig við gætum brotið hlekki veraldarhyggjunnar og verið áhyggjulaus eftir á.
Hvernig við það að losna undan veraldarhyggjunni færum við að sjá (í andlegri merkingu) þann þrældóm sem að hún skapaði.
Hvernig hafa svo kirkjunnar „þjónar“ farið með þennan einfalda sannleika?
Jú þeir gera hann að lygi.
Sá sem er kennari verður einfaldlega að ganga fyrir með góðu fordæmi, ekki satt?
Við erum orðin svo óttaslegin við þennan einfalda sannleika og lygina sem að okkur hefur verið rétt í gegnum aldirnar að í dag KREFJUMST við þess að fá að kjósa yfir okkur heilu hópana af Þingmönnum og embættismönnum sem eru háðir sama veikleika allir sem einn í hjartalaginu. Sama veikleika og allur afgangur af mannkyni.
Þeir þola ekki sannleikann um það að vera þrælar efnishyggjunnar.
Seinni heimstyrjöldin byrjaði vegna þess að:
A: Gyðingar áttu áberandi meira af efnislegum gæðum en hinn almenni Þjóðverji.
Og
B: Hinn almenni Þjóðverji hafði ekki NÓG af efnislegum gæðum.
Ef að ALLIR hefðu haft NÓG þá hefði þessi styrjöld aldrei hafist.
Í dag erum við að sjá sömu hlutina gerast, það sama er byrjað að gerast í huga fólks um alla veröld. Og þá eins og maðurinn sagði getur djöfullinn farið að birtast í ljósengilsmynd. Maðurinn með öll svörin fyrir almúgann.
Þýskaland kaus ekki Hitler yfir sig af því að þeir hötuðu gyðinga eða af því að þeir vildu hafa yfir sér vondan hæðstráðanda.
Þýskaland kaus Hitler yfir sig vegna þess að hann sýndi þeim áætlun um hvernig allir gætu átt nóg og enginn þyrfti að líða skort.
Ef þið spáið í það þá er þetta eina loforðið sem stjórnmálamaður þarf að sýna ykkur með sannfærandi hætti til þess að þið beygið ykkur undir vald hans (gefið honum atkvæðið ykkar).
Kristur sagði hinsvegar, beygið ykkur EKKI UNDIR NEINN NEMA GUÐ í ákvörðunum ykkar. Ef að við myndumm alltaf BYRJA Á ÞESSU myndum við sennilega búa við stjórnvöld sem tækju þær ákvarðanir vitandi það að þeirra yfirmaður (Guð almáttugur) gæti átt það til að varpa þeim til helvítis að jarðvist lokinni ef að allar ákvarðanir væru ekki teknar samkvæmt bestu samvisku og með hag ALLRA að leiðarljósi.
Á meðan við látum magann ráða okkur, þá fáum við einfaldlega fólk yfir okkur sem að stýrist af þeim sama maga og kaus það.
Mér sýnist í ljósi alls þessa að annaðhvort verðum við öll sem eitt að frelsast ef að dæmið á að ganga upp, nú eða þá að leggja niður þingfyrirkomulagið og embættismannakerfið og splæsa þess í stað í heppilega ofurtölvu sem að rekin yrði í gegnum nefskatt (segjum útvarpsáskrift á mánuði fyrir Ísland) og fengjum í staðinn lagagjöf byggða á stjórnarskrárforritinu, kalt mat á allar fjárhagsáætlanir og lyklapétur vírusvörn (innra eftirlit).
Og í staðinn myndum við losna við, gerspillt embættismannakerfi þar sem geðþóttaákvarðanir ráða ríkjum, mannlegan breyskleika þegar kemur að mútuþægni, bílakostnað, þingfararkaup og ég veit ekki hvað og hvað.
Until then. Sjáumst í stríðinu.
Viðar Ingvason
29.01 2012 kl. 14:18 #
Almenningur á Íslandi er að bíða eftir því að sérstakur saksóknari komi hrunvöldum í fangelsi. Vonandi tekst honum það. Ef réttarkerfið brekst og hrunvaldarnir sleppa þá er ekkert í boði annað en að almenningur taki lögin í sínar hendur og ráðist gegn mafíunni með öllum tiltækum vopnum.
Egill Kolbeinsson
31.01 2012 kl. 19:18 #
Frekar grátt Gunnar. Þó rétt sé að sameinaðir hefðu þeir kannski bjargast. En það er með gyðinga eins okkur, getum ekki sameinast um neitt. Þannig fljótum við að feigðarósi. Í langri sögu okkar höfum við aldrei getað staðið saman. Þetta er vonlaus þjóð lætur leiða sig til slátrunar möglunarlaust. Og leiðtogar okkar rífast um innihaldslaus mál sem engu skipta í raun.