Sófinn og Búsáhaldarbyltingin

21.1 2012

Að ræða um Nýtt Ísland þegar Búsáhaldarbyltingin er þriggja ára er nokkuð sorglegt. Við sem mættum á Austurvöll og á Opna Borgarafundi munum eftir spenningnum, ákafanum og vonunum. Nú átti að mala liðið. Eftir á að hyggja, þegar ég stóð svo til einn eftir á Austurvelli, þá var þetta allt saman hálfgert rugl. Við sem héldum áfram að mótmæala óréttlætinu vorum örfá. Hin voru sest í helgan stein. Þau höfðu fengið ríkisstjórnina sína. Það sem rak þau áfram í Búsáhaldarbyltingunni var voninn um sigur í kosningum, valdataka og ekki síst hatrið á Davíð Oddsyni. Þau náðu völdum og fengu vinstri ríkisstjórnina sína. Þrátt fyrir það er atvinnuleysi í hæstu hæðum, brottfluttir sjaldan fleiri, eigur fólks brenna upp og fólki er hent út af heimilum sínum svo bankinn fái veðið sitt. Áhugi Alþingis er lítill sem enginn á örlögum heimilanna. Mun frekar er karpað um aukaatriði og Stjórnarskránni okkar er stungið undir stól.
Það væri örugglega verra ef Sjálfstæðismenn stjórnuðu segja stjórnarliðar. Þetta hefðuð þið átt að vita þvi að allar bólur springa-og þar með játa stjórnarliðar trú kapitalsins. Ykkur var nær.
Er það virkilega nauðsynlegt að Sjálfstæðimenn komist aftur til valda til að sófakommarnir komi sér upp úr fleti sínu og geri almennilega byltingu? Að sitja á afturendanum og rökræða ágæti Alþjóðagjadeyrissjóðsins fyrir almenning á Íslandi svo að Steingrímur haldi völdum er einhver útópía sem ég hélt að ég myndi aldrei upplifa.
Jæja, þá er ég búinn að hella mér yfir kvíslingana úr Búsáhaldarbyltingunni. En meðal annarra orða það verður fundur í Háskólabíói mánudaginn 23. janúar kl. 20:00. Efni fudarins er Verðtryggingin og áhrif hennar á lánin okkar. Við munum öll eftir stemmingunni í Háskólabíói á Opnum Borgarafundum. Hver man ekki þegar Solla sagði „þið eruð ekki þjóðin“.
En man einhver eftir því að Steingrímur lofaði að afnema verðtrygginguna á einum slíkum fundi og fékk mikið lófaklapp fyrir. Hann er popúlisti af guðs náð. Ætlum við sem almenningur að láta blekkja okkur eina ferðina enn. Ætlum við ekki að kynna okkur málin, fræðast, spyrja spurninga og krefjast réttlætis???
Ef svo er þá er sófinn ekki valkostur!

 

FRAMSÖGUMENN Á FUNDINUM  23. jan.

Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, arkitekt
Karl Sigfússon, verkfræðingur og millistéttarauli

Marinó G. Njálsson, ráðgjafi
Guðbjörn Jónsson, fyrrverandi ráðgjafi

Pallborðið verður tvískipt en þar verða eftirtaldir:

PALLBORÐ I

Karl Sigfússon, verkfræðingur og millistéttarauli
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, arkitekt
Sverir Bollason, skipulagsverkfræðingur

PALLBORÐ II

Andrea J. Ólafsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna
Guðbjörn Jónsson, fyrrverandi ráðgjafi
Marinó G. Njálsson, ráðgjafi
Ragnar Þór Ingólfsson, stjórnarmaður VR

Fundarstjóri: Rakel Sigurgeirsdóttir
Pallborðsstjóri: Eiríkur S. Svavarsson

7 ummæli

  1. Leifur A. Benediktsson
    22.01 2012 kl. 01:55 #

    Mæti, og stend upp úr sófanum eins og forðum. Mætti á alla útifundina á Austurvelli með Herði Torfa og co.

    Aðra ,,byltingu“ þarf til að hreinsa út óværuna. 4FLokksóværan sannaði sig svo sannarlega á Alþingi sl. föstudag.

    Viva La Revolúcion.

  2. Rakel Sigurgeirsdóttir
    22.01 2012 kl. 03:11 #

    Þetta heitir dúndurblogg!

  3. Pétur Örn Björnsson
    22.01 2012 kl. 03:24 #

    Bæði Steingrímur og Jóhanna hafa lofað öllu fögru en svikið það flest.
    Hér er fjallað um hinn raunverulega kjarna máls. Takk fyrir það.

  4. Leibbi
    22.01 2012 kl. 04:46 #

    Held að það sé algjör óþarfi að minna á Hörð Torfa, reyndar skammarlegt.

    Á meðan íslendingar átta sig ekki hvernig valdastruktúrinn virkar, þá er baráttan fyrir bí.

    Valdaklíkur munu kannski draga sig í hlé í nokkurn tíma, barnaskapur að halda að þær munu draga sig í hlé varanlega.

    Að sjálfsögðu á þjóðin sjálf að taka ákvarðanir í málum sem varða þjóðina sjálfa.

    Þingið tekur ákvarðanir gegn hagsmunum þjóðarinnar.

    Kosið til að verja hagsmuni þjóðarinnar.

    En telur þjóðinni trú um að hagsmunir þjóðarinnar fylgi hagsmunum atvinnulífsisns, líkt og svikarar ASÍ.

    Tími til að stokka upp, Þeir þingmenn sem sverja eið og svíkja eru snörunnar virði.

  5. Nonni
    22.01 2012 kl. 09:11 #

    Búsáhaldar byltingin???

    Hver andskotinn er það?

    Var einhver búsáhöldur að gera byltinu?

  6. Ásthildur Cesil Þórðardóttir
    22.01 2012 kl. 17:25 #

    Vil taka upp hanskann fyrir Hörðm veit að hann var sannur í þvi sem hann var að gera, var í sambandi við hann meðan á hans byltingu stóð, og veit alveg hvað mæddi á honum. Honum var hótað og allt gert til að finna eitthvað á hann, en það var ekkert hægt að klína á hann, einn af fáum sem ekki var hægt að múta því hann var með sín fjármál á hreinu. En ég vil þakka þér þennan pistil þinn minn ágæti Gunnar Skúli og segi þér að hér er sannleikurinn svo beiskur sem hann er. Vildi að ég gæti verið meira með ykkur í þessari byltingu, því þó stundum virðist hún ekki óma, þá gerir hún það samt sem áður og mundu að dropinn holar steininn. Það tekur alltaf smá tíma, en svo sannarlega gerist það.

  7. Nonni
    22.01 2012 kl. 20:57 #

    Búsáhald

    Hvernig beygist þetta orð í eintölu og fleirtölu?

    Merkilegt er hversu margir læknar eru illa mæltir.

    Ætli það sé af því að þeir eru hættir að vera menntaðir?

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af átta og þremur? Svar: