Að „dílíta“ Búsáhaldarbyltinguna

20.1 2012

Það er með ólíkindum að menn geti rætt svona lengi og ítarlega um það hvort draga eigi ákæruna til baka á Geir Haarde. Þó málefnið sé athyglisvert ætti það frekar heima hjá háskólasamfélaginu. Ákvörðun hefur verið tekin um að ákæra Geir og þar við situr að mínu mati. Það er lang best fyrir Geir að málinu ljúki með dómi Landsdóms. Það eru allir sammála um að það sé ósanngjarnt að Geir sé einn ákærður og mun fleiri ættu að sitja með honum á bekknum. Koma tímar og koma ráð og því þurfum við að halda áfram með mál Geirs.
Allir vita líka að eiðsvarinn vitnisburður fyrir Landsdómi gæti orðið eldfimur. Margir vilja að slíkar vitnaleiðslur fari fram en mörgum er líka illa við þá tilhugsun og vilja koma í veg fyrir þær. Þess vegna vilja sumir svifta Geir möguleikanum á sýknu vegna eigin hagsmuna. Það er ekki umhyggja fyrir Geir heldur óttinn við að vitnaleiðslurnar muni skaða þá persónulega.
Ef Alþingi Íslendinga kemur núna í veg fyrir þær vitnaleiðslur þá hafa kjörnir fulltrúar almennings sameinast um að þagga niður spillingu og vanhæfni hins þrönga hóps sem fór og fer með völdin í landinu.
Ef slíkt gerist hefur Búsáhaldarbyltingin endanlega verið núlluð, „dílítuð“. Þar með hefur þessi litla krumpa sem Búsáhaldarbyltingin var á vammlausum ferli valdastéttarinnar á Íslandi verið þurrkuð út af harða diskinum. Þar með mun valdastéttin sitja eftir sigri hrósandi og halda áfram að sinna þörfum sínum og vina sinna. Þar með mun valdastéttinni hafa líka tekist að sannfæra Alþingismenn um að þeir sem ná áhrifum og völdum í þjóðfélaginu séu undanþegnir hefðbundnum lögmálum réttarríkissins.
Ef einhver er ósáttur þá er bara að efna til nýrrar Búsáhaldarbyltingar.

5 ummæli

  1. Halldór Halldórsson
    20.01 2012 kl. 21:42 #

    Vertu bara áfram í Svíþjóð.

  2. Gunnar Skúli Ármannsson
    20.01 2012 kl. 21:54 #

    Sæll Halldór,

    hvernig á ég að túlka orð þín?

  3. Haukur Kristinsson
    20.01 2012 kl. 22:01 #

    Vel mælt Gunnar Skúli. Rökvís og skynsamur.

  4. Leibbi
    21.01 2012 kl. 02:18 #

    Forvirkar rannsóknarheimildir ættu að gilda fyrir frímúrararegluna, en gera það líklega ekki, hún er það saman gróin í íslensku samfélagi.

    Fyrstu ummæli eru í stíl við Hells Angels.
    Og hver er þá munurinn á Hells Angels og frímúrarareglunni?

  5. Doddia
    21.01 2012 kl. 12:36 #

    Sennilega eru menn að taka það af Geir að geta verið sýknaður þannig að hann verður jafnsekur og hinir 3.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af átta og sex? Svar: