Árið er liðið og hver er árangurinn
Náttúruöflin minntu á sig víðs vegar um heim og mannskepnan reyndi að hemja þau eftir bestu getu. Þrátt fyrir nauðsyn þess finnst mörgum mun mikilvægara að nota stóran hluta af skatttekjum almennings í hergögn, stríð og að endurreisa fallna banka. Skuldin hefur farið um heiminn á liðnum áratugum og skilið eftir auðn og dauða. Þjóðir hafa reynt að losna við hlekki skuldarinnar en verið mætt af ofbeldi. Almenningur á Vesturlöndum hefur á undandörnum árum fengið forsmekkinn af afleiðingum skuldarinnar sem löndin í Suðri hafa búið við lengi.
Almenningur í Bandaríkjunum sem telur sig búa við afgerandi skiptingu valdsins fékk ný lög á árinu. Lög sem leyfa bandaríska hernum að handtaka hvern sem er hvenær sem er og halda viðkomandi án dóms og laga um óákveðinn tíma. Evrópubúar munu safna bankastjórum álfunnar saman í Brussel og þeir munu taka allar ákvarðanir um fjármál Evrópulandanna. Afnám lýðræðis og réttinda almennings helgast af nauðsyn þess að borga skuldir. Skuldin drepur mun fleiri en náttúruhamfarir gera, 24.000 börn deyja á dag fyrir fimm ára aldur, flest vegna fátæktar á Jörð sem hefur allt til alls öllum til handa.
Jörðin er svo rík af öllu sem við þurfum; við gætum bara rétt út höndina, við gætum grafið eftir vatni, við gætum sáð og uppskorið fæðu, byggt hús og allt annað. Flöskustúturinn á öllum slíkum framkvæmdum er skortur á peningum. Fyrst þarf peninga og síðan má framkvæma. Bankar sem eru einkafyrirtæki hafa einkaleyfi á því að búa til peningana fyrir almenning. Með því að stjórna magni peninga í umferð stjórna bankar framkvæmdum og þar með örlögum okkar. Þess vegna er peningavaldið fjórða valdið í lýðræðisskipulagi okkar en er aldrei í framboði. Það stjórnar fulltrúum okkar í skjóli einkaleyfis síns á peningamyndun.
Það er engin stjórnmálahreyfing né stefna í sjónmáli sem hafnar þessum forgangi fjármagns fram yfir verðmætasköpun og á meðan mun skuldin vera fjötrar okkar.
Gunnar Skúli Ármannsson
Hörður Tómasson
01.01 2012 kl. 02:25 #
Sæll Gunnar og gleðilegt nýtt ár.
Ég vil þakka þér fyrir þá pistla sem þú hefur ritað á undanförnu ári. Í mínum huga ert þú eyja sannleika í hafi af niðurgangi. Vonandi vakna fleiri á nýja árinu. Ég óska þér og þínum, árs og friðar og sannleika og réttlætis og…….lifi byltingin.
Kær kveðja. Hörður Tómasson.
HB
01.01 2012 kl. 06:46 #
Takk fyrir að nenna að skrifa þessa pistla.
Þetta er það eina sem maður nennir orðið að lesa hér á eyjunni.
En þökk sé fólki eins og þér eru sífellt fleiri að vakna til meðvitundar.
Sennilega jafnvel mun fleiri en maður heldur.
Gleðilegt ár
Gunnar Skúli Ármannsson
01.01 2012 kl. 14:13 #
Takk fyrir hlý orð í minn garð, gleðilegt ár og þökk fyrir þau gömlu.
Rakel Sigurgeirsdóttir
02.01 2012 kl. 00:26 #
Ég vona að HB hafi rétt fyrir sér varðandi það að hér séu mun fleiri að vakna en maður heldur!
Pétur Örn Björnsson
02.01 2012 kl. 03:06 #
Ólafur Ragnar má eiga það að hann hafði dug til að vísa Icesave málinu til þjóðarinnar í tvígang og þar með stimplaði hann sig inn sem öflugan málsvara lýðræðis, en ekki blinds flokkaforingjaræðis og þess gjörspillta stjórnsýsluræðis, sem skötuhjúin Steingrímur og Jóhanna hanga nú á sem hundar á lygaroði, líkt og Geir og Solla og Dabbi og Dóri fyrr.
En gleymum því ekki, að það gerðist eftir tvær öflugar undirskriftasafnanir stórs hluta þjóðarinnar, sem blessunarlega hefur enn þá grunngildin á hreinu og í þessu tilviki þá óbugandi réttlætiskennd, að einkavinavæddir einkabankar skuli borga sínar eigin skuldir, en ekki sauðsvartur almúginn.
Undarlegur andskoti að þeir sem kenna sig við jafnaðarmennsku, sem þau skötuhjú ESB og AGS og yfirþjóðlegra hrægamma stórauðræðis skuli enn sitja og enn berja sér á brjóst sem farísear og tollheimtumenn fyrir yfirþjóðlega, glóbalíseraða, hrægamma auðræðis.
Það helvíti laumuspils og aðlögunar að yfirþjóðlegu banka-auðræði gengur ekki lengur. Hér þarf ferska lýðræðisstrauma. Eigi síðar en nú er lag, dúndrandi lag til ferðalags inn í spennandi lýðræðis tíma.
Árið verður okkur vonandi gleðilegt, því almúgi þessa lands og reyndar heimsins alls er á leið inn í tímabil vaxandi vitundarvakningar, það er enginn vafi lengur, um það hvernig kaupin gerast á eyrinni og hvernig vitlaust er mælt af stríðs- og banka-möngurunum.
Pétur Örn Björnsson
02.01 2012 kl. 03:10 #
Dropinn holar steininn … tek svo undir góð orð síðuhafa og þeirra annarra sem góðar athugasemdir skrifa hér og segi dúndrandi og hressandi gleðilegt ár … 2012.