Merkel og vandi ESB
Í lok síðasta mánaðar áttu Þjóðverjar í vandræðum með að selja ríkisskuldabréf. Þeir seldu um helminginn af þeim skuldabréfum sem þeir ætluðu sér. Rætt var um misheppnað útboð. Afleiðingin varð hinn alkunni „titringur á mörkuðum“ og evran lét eitthvað undan. Menn óttuðust jafnvel að þýskaland væri að fara til fjandans. Tveim dögum seinna var ítalska ríkið með ríkisskuldaútboð og þau bréf runnu út eins og heitar lummur.
Bankarnir voru bara að láta Merkel vita hver ræður.
Ríkisstjórnir fjármagna útgjöld sín með sköttum og það sem upp á vantar er fjármagnað með sölu ríkisskuldabréfa. Flest öll ríki þurfa að gefa út ríkisskuldabréf til að endar nái saman.
Ríkisskuldabréf er skuldaviðurkenning. Ríkið lofar eiganda bréfsins að endurgreiða honum þá upphæð sem skráð er á bréfið. Merkel getur skrifað á ríkisskuldabréfið sitt milljón evrur og lofar að endurgreiða þær á 10 árum. Síðan kaupir einhver bréfið, oftast bankar, og afhenda Merkel milljón evrur og Merkel getur þá byggt skóla og sjúkrahús fyrir þýskan almenning.
Samkvæmt reglum ESB verður Merkel að fá peninga lánaða hjá bönkunum á þennen hátt, hún má ekki búa til peningana sjálf. Þess vegna stjórna bankarnir Merkel eins og öðrum skuldsettum aðilum.
Strax eftir hið misheppnaða útboð kom Merkel fram og lofaði öllu fögru til að friðþægja fjármálaveldið, hún skildi fyrr en skall í tönnum.
Það sem er merkilegast er að peningar eru bara verkfæri til að flytja verðmæti frá einum stað til annars. Bankar hafa einkaleyfi á því að búa til peningana okkar. Bankar eru einkafyrirtæki. Bankar hafa aldrei verið kosnir til að stjórna örlögum okkar en þeir stjórna þeim fulltrúm sem við kjósum til þess. Þar að auki búa þeir til peningana úr engu.
Það sem er lang merkilegast er að við sættum okkur við þetta án nokkurrar umræðu.
Gunnar Skúli Ármannsson
Eyjólfur
30.12 2011 kl. 02:48 #
Ítalska útboðið var til sex mánaða. Ekki beint mögnuð traustsyfirlýsing fólgin í að einhverjir skyldu hafa trú á að sá dallur sykki ekki innan hálfs árs.
Til fróðleiks má hins vegar geta þess að ávöxtunarkrafan á eins árs grísk ríkisskuldabréf er 354.39%.
Gunnar Skúli Ármannsson
30.12 2011 kl. 12:36 #
Sæll Eyjólfur og takk fyrir innlitið,
hvað um það, hefur þú aldrei velt því fyrir þér að bankarnir hafa ríkisstjórninr í vasanum, við höfum mjög lítið að segja.
Að bankarnir búa til peninginn okkar og hafa einkaleyfi á því.
Eyjólfur
31.12 2011 kl. 05:28 #
Jájá, en ef peningar verða gerðir að e-s konar sósíalískum WC pappír fer fólk einfaldlega að geyma verðmæti sín í einherju öðru sem heldur verðgildinu betur. Rauðvín, koníak, gull? Take a pick. Síðasta skrefið er svo eldiviður/eldsneyti, dósamatur og skotfæri. Þetta er ekki fallegt (né er ég hlynntur því!), en svona er það bara.
Er annars sammála sentimentinu almennt. Þjóðir hafa gefið stjórn þessara mála frá sér og sumir hafa togað meira af sænginni til sín en eðlilegt getur talist.
HB
31.12 2011 kl. 10:39 #
Það er svo óþægilegt að hugsa um raunveruleikann Strákar. Eigum við ekki
frekar að tala um venjuleg dægurmál og pólítík. Svo veit fólk svo sáralítið
um hvað er að ské í Evrópu. Rúv dregur fram þá mynd að þar sé lítilsháttar
tímabundin mótvindur núna, smámál.
Aðal málið er að við fáum inngöngu í ESB sem fyrst!
Hefðum við haft Evru, nú þá hefði hrunið náttúrulega aldrei gerst.
Grikkland, Portúgal, Írland, Spánn og Ítalía eru frávik frá reglunni. Fólk
í þessum löndum nennir ekkert að vinna og eyðir líka allt of miklu í
vitleysu, það vita allir. Nú eru komnir Bankastjórar í öll helstu embættin
og þeir redda þessu!! Þeir gera auðvitað eins og Steingrímur og setja
Hagvöxtin á oddinn, enda eins og allir vita…það eina sem einhverju máli
skiptir.
Ekki tala um Bankasvindl Gunnar, ekki tala um mótmæli, ekki tala um
tengsl sjálfbærni og sjálfstæðis……. Ekki ræða alvöru ástæðurnar fyrir
átökunum fyrir botni miðjarðarhafs eða hvernig lög eru sífellt að herðast
á vesturlöndum til að auðvelda stjórnvöldum að berja niður mótmæli…..
Talaðu um hagvöxt, opnun kauphallarinnar, hugsanlega sölu Landsbankans.
Talaðu um methagnað bankana, talaðu um aukna veltu á fasteignamarkaði.
Talaðu um sölutölur úr jólaverzluninni. Talaðu um ERLENDA FJÁRFESTINGU, og
þá meina ég á jákvæðan hátt…… Og ef þú verður að vera með neikvæðni
talaðu þá um hryðjuverk og hvað þú hræðist þau og um nýjar leiðir til að
stöðva þau
áður en þau gerast…
http://rt.com/news/terrorism-credit-cards-government-613/