Gunnar Axel

gaflari tjáir sig

Hitaveitusagan öll

27.7 2010 | 17:57 | Lokað fyrir ummæli

geysir

Ég er viss um að það eru fleiri en ég sem bíða eftir því að fjölmiðlar fari að kafa aðeins dýpra í þetta Magma mál. Það er komin tími til að einhver skrifi vandaða fréttaskýringu, þar sem farið er yfir þetta mál frá a-ö.

Það er saga sem hófst formlega árið 2007 en á sér eflaust lengri aðdraganda á bak við tjöldin. Margt bendir til þess að Magma-kaflinn sé kannski sá sögunnar sem sé hvað best upplýstur nú þegar.   Í upphafi sögunnar liggja hins vegar hinar merkilegu staðreyndir, kjarni þessa máls.

Það var á því herrans ári 2007 sem ríkisstjórn Geirs H. Haarde og bæjarstjórnarmeirihlutinn í Reykjanesbæ, undir forystu Árna Sigfússonar, virðast hafa sammælst um að ráðast í einkavæðingu Hitaveitu Suðurnesja. Þá var lagaumhverfið töluvert frábrugðið því sem nú er og Hitaveitan var allt í senn, eigandi auðlinda, orkuframleiðandi og dreifingaraðili. Það þótti hins vegar ekki tiltökumál hjá ráðamönnum þess tíma að færa fyrirtækið í hendur einkaaðila. Það var bara í takti við tíðarandann í íslenskum stjórnmálum árið 2007.

Ferlið hófst með því að ríkið setti hlut sinn í fyrirtækinu í sölu. Samkvæmt þeim skilyrðum sem ríkisstjórnin setti fram máttu einungis einkaaðilar bjóða í hlutinn. Markmiðið með sölunni var því alveg skýrt frá upphafi, einkavæðing.

Það þarf að fjalla um það hver aðdragandinn var að því að ríkið ákvað að selja hlutinn sinn í HS og hverjir það voru sem keyptu. Þar voru kunnugleg nöfn á borð við FL-Group, Glitnir og fyrirtæki í eigu manna sem komu víða við í íslensku viðskiptalífi á undanförnum árum en eiga það þó aðalega sameiginlegt að hafa verið virkir í framvarðasveit Framsóknarflokksins um langa hríð. Saman mynduðu þessir aðilar bandalag undir nafni Geysis Green Energy.

Til þess að fólk skilji þetta mál, verður að fjalla um það hvað það var sem ríkið ætlaði að selja, hvaða lög voru svo sett í framhaldinu, þ.e. um aðskilnað auðlinda, framleiðslu og dreifingar og þann þrýsting sem Sjálfstæðismenn í bæjarfélögunum sem áttu hluti í HS settu á að hlutirnir yrðu seldir án nokkurrar umhugsunar.

Það er nauðsynlegt að einhver taki það að sér að svipta hulunni af þessari sögu og sýna fólki hvað raunverulega lá þarna undir, hvert plottið var, hverjir það voru sem skipulögðu það og hverjir það voru sem áttu að innleysa hagnað út úr öllu saman. Það er nöfn og andlit sem sjást lítið í þessari umræðu allri saman og ég er viss um að þau koma ekki fram í dagsljósið ótilneydd.

————————————————————–

Hér er listi yfir efni á netinu sem ætti að gefa ákveðna innsýn inní það sem þarna gerðist, a.m.k. á yfirborðinu:

http://www.hvitbok.vg/Profilar/FinnurIngolfsson/AdkomanIREI/
 
http://timarit.is/view_page_init.jsp?issId=277730&lang=fo
 
http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/entry/852821/
 
http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/entry/852056/
 
http://ak72.blog.is/blog/ak72/entry/937113/
 
http://blogg.visir.is/jarl/2009/01/12/hver-er-forma%C3%B0ur-si%C3%B0anefndar-bla%C3%B0amannafelags-islands/
 
http://www.dv.is/frettir/2009/7/10/s-hopurinn-med-tak-geysi-green-energy/
 
http://www.litlaisland.net/corruption/36/geysir-green-energy/
 
http://andresm.eyjan.is/2007/10/17/svo-skal-bol-b%c3%a6ta/
 
http://www.visir.is/article/20090820/FRETTIR01/29080218/1055
 
http://www.visir.is/article/20080820/FRETTIR01/408629470
 
http://www.visir.is/article/20100504/FRETTIR01/893578790/1048
 
http://www.ruv.is/frett/bjorn-ingi-skuldar-halfan-milljard
 
http://eyjan.is/2010/04/18/lan-egils-agustssonar-og-bjorns-inga-hrafnssonar-hluti-af-markadsmisnotkun-kaupthings/
 
http://www.tidarandinn.is/taxonomy/term/179
 
http://www.pressan.is/Frettir/Lesafrett/tengsl_shopsins_vid_framsokn_ahyggjuefni_innan_bunadarbankans?page=2&offset=70
 
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2007/10/13/ahrifamenn_i_framsokn_hluthafar/
 
http://gunnaraxel.blog.is/blog/gunnaraxel/entry/765674/
 
http://rna.clara.is/Kafli_8.12.a
 
http://www.hvitbok.vg/Profilar/SkilanefndLandsbankans/LeppurKristinsaftur/
 
http://www.rikisend.is/fileadmin/media/skyrslur/Fjarlaganefnd_samantekt.pdf
 
http://rna.clara.is/Kafli_12.8.a
 
http://www.vb.is/frett/1/5921/
 
http://silfuregils.eyjan.is/2009/01/14/huldupeningar-emirsins/
 
http://silfuregils.eyjan.is/2008/04/16/atakanlegt/
 
http://www.forsaetisraduneyti.is/media/Einkavaeding/einkavaeding03-07.pdf.pdf  (Bls. 7)

Flokkar: Óflokkað