Fjálslyndir demókratar í Bretlandi vilja að settur verði viðvörunartexti á auglýsingar þar sem búið að breyta útliti fyrirsætunnar í tölvu.
Þeir rökstyðja þessa tillögu á þá leið að, þegar fyrirsætum í auglýsingum er breytt þannig að þær fái fullkomna húð, fullkomið hár, fullkomið vaxtalag, þá gefi það konum og stúlkum þau skilaboð að þær séu ekki í lagi nema þær líti fullkomlega út.
Auglýsendur ættu að vera heiðarlegir varðandi allar þessar breytingar sem gerðar eru á myndunum eftir á því það er í raun óheiðarlegt að auglýsa krem gegn hrukkum og eyða síðan öllum misfellum í andliti fyrirsætunnar sem auglýsir. Og þeir vilja einnig meina að það sé beinlínis óábyrgt að taka myndir af vannærðri og allt of léttri fyrirsætu og skera síðan enn meira af mjöðmum eða lærum efitr á.
Nýja feminista hreyfingin í Svíþjóð (feministiskt initiativ) hefur komið með svipaðar kröfur þó áhersla þeirra hafi meira veið á kynjamisrétti og misnotkun á líkama og nekt kvenna í aulýsingum.
Ég tek ofan fyrir stjórnmálafólki sem þorir að koma með svona tillögur.
Þessar auglýsingar eru vondar fyrir sjálfsmynd kvenna.
Vandinn er bara sá að þetta eru ekki einu blekkingarnar sem fyrir koma í auglýsingum. Auglýsingar ganga meira og minna út á að blekkja okkur.
Auðvitað vitum við þetta en mér þætti samt ágætt að vera minnt á þetta þegar ég skoða myndir af fullkomnu andliti sem auglýsir hrukkukremið sem mun yngja mig um tíu ár.

Guðrún Karlsdóttir
.
You must log in to post a comment.