Þú ert að skoða færslur í flokknum: Óflokkað.

Færslur

Bændablaðið

Grímur Atlason @ 12. mars, 2010 # Ummæli (13)

Bændablaðið er ríkisstyrktur fjölmiðill sem dreift er út um allt land – lesendum að kostnaðarlausu. Þessi fjölmiðill er stundum ágætur og ýmislegt gott þar að finna. Það hefur reyndar dregið úr því merkilega þar upp á síðkastið og meira farið fyrir einstrengingslegum og staglkenndum áróðri. Í þessum fjölmiðli er þannig að finna einkar harða afstöðu [...]

Lesa meira

Ábyrgð okkar

Grímur Atlason @ 11. mars, 2010 # Ummæli (10)

Pétur Blöndal er á köflum skemmtilegur alþingismaður. Hann verður ekki sakaður um að fara ekki sínar eigin leiðir og að vera ekki trúr sannfæringu sinni (oftast). Sannfæring hans og skoðanir eru hins vegar ekki alltaf minn bolli af tei en það er eðlilegt.
Í morgun var Pétur í viðtali á Bylgjunni og lét þar ýmislegt flakka. [...]

Lesa meira

Þvermóðska

Grímur Atlason @ 10. mars, 2010 # Ummæli (10)

Nú þegar stjórnmálamenn tala um sannfæringu sína og mikilvægi hennar er rétt að minna á eitt: Ef stóriðjukratarnir í Samfylkingunni fara nú að hlusta á sannfæringu sínu um álver hér og álver þar – hvað gerist þá? Mynda þeir ekki bara meirihluta með Sigmundi Davíð og Bjarna Ben eins og aðrir pólitískir sannfæringasinnar hafa gert [...]

Lesa meira

Sögulegar staðreyndir og minnisleysi þjóðar

Grímur Atlason @ 8. mars, 2010 # Ummæli (14)

Í aðdraganda alþingiskosninganna 1999 var tekist á um grundvallaratriði í pólitík á Íslandi. Stjórnarflokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, óskuðu eftir umboði til þess að ráðast í stóriðjuframkvæmdir, einkavæðingu Landssímans, ríkisbankanna og annarra gulleggja. Á stefnuskrá þessara flokkar voru skattalækkanir og önnur dæmigerð hægrisjónarmið. Þessir flokkar fengu umbeðið umboð og héldu völdum.
Áður en gengið var til kosninga [...]

Lesa meira

Lifi tónlistin og Evrópa!

Grímur Atlason @ 4. mars, 2010 # Ummæli (7)

Það er merkilegt að fara í gegnum Evrópu með tónlist. Þar er þessari deild menningar gerð skil á þann hátt sem hún á skilið. Á Íslandi er vissulega slæmt hvernig komið er fram við kvikmyndagerð þessa dagana en það er þó ekkert samanborið við þá lítilsvirðingu sem tónlist og þá sérstaklega popptónlist er sýnd á [...]

Lesa meira

Gríslendingar

Grímur Atlason @ 25. febrúar, 2010 # Ummæli (3)

Það er athyglisvert að sjá deilu Grikkja og Þjóðverja. Hún verður án efa til þess að magna upp einhverskonar umfram andúð á Evrópusambandinu á Íslandi. Stóra þjóðin sem stal gullforða litlu þjóðarinnar er núna að koma því til leiðar að litla þjóðin þurfi ein að fást við efnahagsvandann heima fyrir.
Þetta hljómar óneitanlega illa. Það er [...]

Lesa meira

Bönnum pasta…

Grímur Atlason @ 19. febrúar, 2010 # Ummæli (12)

Hörðustu andstæðingar Evrópusambandsins eru sumir hverjir miklir þjóðernissinnar. Heyrði af einum sem hefur verulegar áhyggjur af íslenskum landbúnaði. Hann hefur lifibrauð sitt af greininni svo það kannski eðlilegt að hann hafi áhyggjur. Það er vissulega mjög margt sem þarf að lagfæra innan greinarinnar og viðvörunarbjöllurnar hringja víða. Kerfið er lúið og úr sér gengið og öflugir bændur ná [...]

Lesa meira

Söguskýring sem fellur

Grímur Atlason @ 11. febrúar, 2010 # Ummæli (2)

Halldór J. Kristjánsson fyrrverandi bankastjóri Landsbankans er mættur aftur í fjölmiðlana. Sólón, fyrrverandi kollegi hans í Búnaðarbankanum, mætti í útvarpsviðtal í fyrradag og sagði Halldór hafa suðað út úr sér rúma 3 milljarða svo Samson gæti borgað fyrir Landsbankann. Það voru sterk rök Davíðs og félaga að velja Samson vegna dollarana sem þeir ætluðu að [...]

Lesa meira

Hvítþvottur fyrrverandi aðstoðarkonu

Grímur Atlason @ 10. febrúar, 2010 # Ummæli (6)

Um helgina birtist grein í Fréttablaðinu eftir fyrrverandi aðstoðarkonu fyrrverandi utanríkisráðherra Íslands. Tilgangur greinarinnar er ekki ljós en þó er ekki ofsagt að halda því fram að þar sé reynt að hampa myndugleika fyrrverandi utanríkisráðherra og samningatækni hennar og hennar nánustu ráðgjafa.  Það fer hins vegar ekki á milli mála hvert álit greinarhöfundar er á samninganefndinni sem síðan tók [...]

Lesa meira

Er Staksteinn vænisjúkur?

Grímur Atlason @ 9. febrúar, 2010 # Ummæli (7)

Las  Stakstein gærdagsins úr Mogga. Þar er því haldið fram að flokkseigendafélagið í VG hafi refsað Baldvini H. Sigurðssyni, oddvita flokksins á Akureyri, í forvali helgarinnar. Hann ku hafa skrifað opið bréf til formannsins sl. sumar vegna meints Evrópuandstöðuleysis formannsins. Formaðurinn og flokkseigendaklíkan þoldi auðvitað ekki pilluna og refsaði Baldvini með því að segja öllum [...]

Lesa meira