12 athugasemdir

  1. Pétur Örn Björnsson september 13, 2011 @

    Alveg sammála Grími Atlasyni að varla saknar nokkur maður með viti kaldastríðsflakanna og allaballanna. En mikið þykir mér Ólafur forseti skemmtilegri allur og fjörlegri, heldur en leiðindagemsinn Steingrímur Jóhann Sigfússon, sá armi maður.

  2. Haukur Kristinsson september 13, 2011 @

    Vinstri stjórnin tók við nær óleysanlegu verkefni, að taka til eftir hrunstjórn Dabba og Dóra, að moka út skítnum í Augean gripahúsum Sjallanna + hækjunnar. Og við það bætist nú að glíma við “valdalausan” forseta, sem hamast eins og tarfur í flagi.

  3. Arinbjörn Kúld september 13, 2011 @

    „Ágætt að rifja söguna upp og átta sig á því hve tímabært það löngu orðið er að leggja fjórflokkinn og allt hans stóð á hilluna“
    Algerlega sammála.
    Kveðja að norðan.

  4. Pétur Örn Björnsson september 13, 2011 @

    Mikið væri það já gleðilegt Arinbjörn … og í reynd forsenda allrar uppbyggingar, ef fjór-flokkurinn og hagsmunaklíkurnar á þeim bæjum færu sem komplett safn beint í rotþró sögunnar.
    Það kæmi þá kannski eitthvað nothæft metangas úr hræjunum.

  5. Birgir september 13, 2011 @

    Allt saman satt og rétt … en það er líka allt saman satt og rétt sem Ólafur segir nú um afglöp Steingríms í starfi og tilraunir hans til sögufölsunar.

    Steingrímur hefur undanfarin tvö ár ítrekað unnið þjóðinni stórfellt ógagn – dæmin eru hreinlega of mörg til að telja þau upp hér (Icesave? bankakerfið? heimilin og vogunarsjóðirnir? Magma? Sjóvá? Saga? Byr?)

    Þó svo að gömlum pólitískum andstæðingi leiðist greinilega ekki að berja á Steingrími, þá megum við ekki leyfa okkur að afskrifa þá réttmætu gagnrýni sem „gamlar væringar“.

  6. Aron september 13, 2011 @

    Svar: Ólafur er þjóðhetja sem ver þjóðina fyrir nýlenduveldunum. Steingrímur er hins vegar gunga og lydda sem er landráðamaður!

  7. Hrafn Arnarson september 13, 2011 @

    Þetta er ekki rétt hjá þér Grímur. Fortíðin er liðin og barátta hennar einnig. Í nútímanum eru næg viðfangsefni og deiluefni. Eitt slíkt er icesave. þar hefur ólafur verið í andstöðu við ríkisstjórnina að því undanskildu að hann skrifaði undir icesave 2 sem bretar og hollendingar höfnuðu. Deilan snýst um þjóðaratkvæðagreiðsluna og þátt forsetans í henni.ÓRG hefur margoft brotið þær reglur sem hann hefur sjálfur sett sér og í reynd gert landið stjórnlaust.Hins vegar er viðtalið í Bylgjunni sögulegt. Forsetinn ræðst af furðulegri heift á fjármálaráðherra og afbakar orð hans. Eins og Guðni Th. sagnfræðingur hefur bent á þá hefur sambærilegt aldrei gerst í sögu þjóðarinnar. Forsetans býður aðeins eitt. Að hætta sem fyrst.

  8. Grímur Atlason september 13, 2011 @

    Ég spyr, þú þarna Aron sem notar orð eins og landráðamaður sem skraut við annars snautlegt bull, hvað gera menn við landráðamenn? Ertu að óska eftir að maðurinn verði tekinn af lífi – eða hvað?

  9. Aron september 13, 2011 @

    Nei, eins og hlustendur Útvarps Sögu hafa margoft nefnt þá á að draga SJS og JS fyrir landsdóm fyrir þessi örgu icesafe svik.

  10. Grímur Atlason september 13, 2011 @

    Ef þú ætlar að halda áfram að segja að einhver sé landráðamaður þá þarftu að koma fram undir meiru en nafninu Aron (ku jú vera algengasta nafn drengja þessa dagana). Annað er ræfildómur.

  11. Steinarr Kr. september 14, 2011 @

    „Ólafur Ragnar Grímsson, sem gegnir eins og kunnugt er tímabundið embætti forseta Íslands, hjólaði í dag af fádæma hörku í Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra.“

    Sem betur fer fyrir alla mun Steingrímur gegna stöðu fjármálaráðherra mun skemur en Ólafur forsetastöðunni.

  12. Jón Óskarsson september 14, 2011 @

    Eftir þennan mann er alls staðar sviðin jörð.

    Það var ólán Alþýðubandalagsins að ekki var rúm fyrir Ólaf innan raða Framsóknar, Samtök frjálslyndra búin að vera og of margir um forystuhlutverk í Alþýðuflokknum og Sjálfstæðisflokknum.

    Ólafur Ragnar sá að Alþúyðubandalagið var veikast fyrir og því stökk hann á það með eftirmálum sem allir þekkja.

    Uppákoman núna hefur ekkert með Alþýðubandalagið að gera heldur einungis persónu Ólafs Ragnars.
    Hann getur ekki hætt að ráða og stjórna því enginn kann neitt betur en hann.

Hver er þessi Ólafur? II

Óflokkað | Ummæli (12) Facebook

Ólafur Ragnar Grímsson, sem gegnir eins og kunnugt er tímabundið embætti forseta Íslands, hjólaði í dag af fádæma hörku í Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra. Ólafur var í viðtali á Bylgjunni að svara spurningum þess efnis hvort hann hefði með afskiptum af störfum Alþingis ekki gengið of langt. Ólafur svaraði hvass að Steingrímur J. væri í rauninni vandræðamaður sem ekki færi rétt með. Forsetinn að tala við fjármálaráðherra. Súrrelaísk staða.

Það er öllum ljóst sem nenna að hugsa að hér erum við ekki í nútímanum að tala um vandamál líðandi stundar. Það er eitthvað eldgamalt og úldið þarna undir sem fæstir yngri en 40 ára botna nokkuð í. Við gætum nefnilega allt eins verið á fundi í Risinu á Hverfisgötu haustið 1989 eða þar um bil. Ágætt að rifja söguna upp og átta sig á því hve tímabært það löngu orðið er að leggja fjórflokkinn og allt hans stóð á hilluna:

Frétt í Morgunblaðinu 27. ágúst 1992
RAGNAR Arnalds var kosinn formaður þingflokks Alþýðubandalagsins á fundi þingflokksins í gær. Ólafur Ragnar Grímsson, formaður flokksins, bar fram tillögu um Ragnar sem formann en Steingrímur Sigfússon, varaformaður flokksins, bar fram tillögu um Svavar Gestsson. Kosið var á milli þeirra tveggja og fékk Ragnar 5 atkvæði en Svavar 4. Jóhann Ársælsson var kjörinn varaformaður og Kristinn H. Gunnarsson ritari. (Allir vinir þarna – not).

Í kosningunni í þingflokknum í gær fékk Ragnar atkvæði Ólafs Ragnars Grímssonar, Margrétar Frímannsdóttur, Guðrúnar Helgadóttur og Jóhanns Ársælssonar en Svavar studdu Steingrímur Sigfússon, Hjörleifur Guttormsson og Kristinn H. Gunnarsson. (Sameining félagshyggjunnar – aldrei með þessum upptakti).

„Það var mitt mat að þetta væri skynsamlegasta niðurstaðan. Ég gerði því tillögu um Ragnar og hann var kosinn og ég var mjög ánægður með að hann var reiðubúin að taka þetta að sér,“ sagði Ólafur Ragnar Grímsson. Hann sagðist aðspurður ekki eiga von á að þessi kosning hefði eftirmála innan þingflokksins. (Völd, völd og meiri völd – eftirmáli? við erum enn að burðast með hann).

Þessi kosning þingflokksformanns ber keim af þeim átökum sem verið hafa innan Alþýðubandalagsins milli fylkinga sem Ólafur Ragnar og Svavar hafa farið fyrir. Þegar Ragnar var spurður hvort túlka mætti þessa kosningu þannig að hann væri búinn að skipa sér í fylkingu með Ólafi Ragnari sagðist hann hafa forðast eins og heitan eldinn að láta merkja sig einhverri fylkingu innan flokksins. „Ég hef mjög hvatt til þess að allar slíkar fylkingar yrðu leystar upp enda mjög varhugavert þegar þannig gerist í flokkum. Ef mitt kjör nú getur orðið til að stuðla að því að slíkar fylkingar gleymist og hverfi þá er það til góðs,“ sagði Ragnar Arnalds. (Fylkingar aflagðar? – þetta gengi er enn í sínum fylkingum).

En það gerðist ekki og íslensk þjóð situr uppi með þetta bull. Þvílík fádæma leiðindi og rugl. Saknar einhver Alþýðubandalagsins? Ekki ég – Ólafur Ragnar er í rauninni ekki forseti Íslands – hann er formaður Alþýðubandalagsins og þar er allt í klessu að vanda.

Grímur Atlason @ 12. september, 2011


Skrifa ummæli

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Kæfuvörn:   Hver er summan af sjö og fimm? Svar: