13 athugasemdir

  1. Hans Haraldsson júlí 31, 2011 @

    Það er vafalaust gaman að tengja óþokka við það sem manni er illa við og kannski ert þú að skemmta þér of vel til að láta staðreyndir spilla gamninu. Ég ætla þó að benda á þrennt:
    1) Í maifestóinu segist Breivik hafa komið sér undan herþjónustu í norska hernum. Frá þessu hefur verið margsinnis verið sagt í fjölmiðlum. Breivik virðist ekki hafa verið í mjög sterkum tengslum við raunveruleikan en ekkert hefur heyrst frá hernum, fólki sem þekkti til hans, fólki sem hefði gengt herþjónustu með honum o.s.frv. um annað. Líklega er það því satt.
    2) Breivik var líklegast einn að verki. Enn hafa ekki fundist neinir samverkamenn. Hvað tengir hann sterkar við almenna hægri menn en Brigate Rosse eða Baader-Meinhof við almenna vinstrimenn? Þar var þó í það minnsta um samtök að ræða.
    3) Þótt Stoltenberg hafi eðlilega lagt mesta áherslu á varðstöðu um lýðræðisleg gildi hefur líka verið ákveðið að setja af stað ransókn á viðbúnaði og viðbrögðum norsku lögreglunnar.

  2. Grímur Atlason júlí 31, 2011 @

    Ég er ekki að tengja óþokka við það sem mér er illa við nú eða að skemmta mér við það. Breivik er þjóðernissinnaður hægriöfgamaður – sem gerði hörmulega hluti. Spurningin er hins vegar þessi: Af hverju eru nær öll hryðjuverk síðustu 10 ára kennd við Al-Kaída – skipulagðar í þaula en Noregur verk einstaklings sem tengdist engu(m)?

  3. Hans Haraldsson júlí 31, 2011 @

    Það er ekki rétt að öll hryðjuverk síðustu 10 ára séu kennd við Al-Kaída. Ég hef t.d ekki orðið var við annað en að hryðjuverk ýmiskonar hópa aðskilnaðarsinna eða nýnasista í Evrópu séu rétt feðruð.

    Hryðjuverk Breiviks er hinsvegar verk einstaklings án samverkamanna.

  4. Halldór Halldórsson júlí 31, 2011 @

    Eftir að hafa lesið pistilinn, þá er niðurstaðan: „Hermdarverkin í Noregi eru kannski Birni Bjarnasyni og Sjálfstæðisflokknum að kenna.“

    Hvers vegna í ósköpum var slík „mannvitsbrekka“ settur af sem sveitarstjóri????

  5. Grimur Atlason júlí 31, 2011 @

    Jaeja – eg las Bjorn Bjarnason – synist ad her se nokkur vontun a thvi. Halldor hver sem thu ert – vertu uti med skitkastid thitt!

  6. Jóhann Guðmundsson júlí 31, 2011 @

    Í fréttum kvöldsins tengdri skotárásinni í Noregi heyrði ég að innanríkisráðherra vildi takmarka skotvopnaeign landsmanna, og hugsaði fínt, þar nálgast Norðmenn Íslendinga. En nei, þar talaði innanríkisráðherra Íslands!

    Björn Bjarnason vill eflaust gott, en hann mætti draga af sér kaldastríðsgleraugun og líta oftar á landakortið. Ísland er eyja, laust við innflytjendur og með tvö Laugaskörð; Keflavík og Seyðisfjörð.

    Betra væri að þrengja landganginn.

  7. Ómar Kristjánsson júlí 31, 2011 @

    þetta er alveg réttmætur punktur. Og reydar punktur sem tekinn er upp erlendis, td. á N.löndum og á sennilega eftir að fá aukið vægi.

    Al-Kaída hefur verið fyrirbrigði sem erfitt hefur verið að festa fingur á alla tíð. Td. fyrir stuttu kom sérrfræðingar í terrorisma upp með þaða að það væru ekki í raun formleg samtök í venjulegum skilningi. Menn vöknuðu bara upp einn morguninn – og þá væru þeir hugsanlega orðnir Al-Kaída menn.

    Hvort einhverjir aðstoðuðu Breivik við voðaverkin á eftir að koma í ljós. Hitt er vitað að hann var í sambandi við allskyns hægri-öfgamenn.

    Eins er vitað og norskir fjölmiðlar fjalla um, að fyrst efit sprengjuna þá urðu muslimar á götunum fyir aðkasti. Ef td. hefði komið í ljós að muslimi hafi verið að veki – þá hefði það ekki verið aðeins Al-Kaída. Nei. það hefðu verið í útleggingu sumra – allir muslimar.

  8. tryggvi ágúst 1, 2011 @

    Þetta er nú lélagasti pistill sem ég hef lesið á netinu lengi og það frá manninum sem setti Bolungarvík á hausinn!

  9. Halldór Halldórsson ágúst 1, 2011 @

    „Björn Bjarnason og félagar hafa alla síðustu viku keppst við að sverja verk hryðjuverkamannsins af því sem gæti kallast eitthvað til hægri.“

    „Alveg sama hvað smyrlarnir með Björn Bjarnason fremstan í flokki reyna að einangra morðingjan frá öfgahægrinu – því miður: Breivik kom þaðan.“

    Sem sagt: Þetta er eiginlega Birni Bjarnasyni og Sjálfstæðisflokknum að kenna!

    Og skítkastið er bara þitt, skíthæll!!

  10. Grímur Atlason ágúst 1, 2011 @

    Lestur er mikilvægur kostur þegar maður ætlar að tjá sig um eitthvað. Því skora ég á helstu skítadreifarana að gera það áður en þeir tjá sig. En svona til að stappa það með tómatssósu og smjöri hvað ég sagði í færslunni:

    1. Björn Bjarnason er fastur í kaldastríðsórum hvar tortryggja þarf marga og þar sem her og leynilögregla er mikilvægara en flest.

    2. Björn Bjarnason og fleiri félagar hans úr Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki fóru með ófriði til Íraks – það var för byggð á þröngsýni og fölsuðum sönnunargögnum.

    3. Hryðjuverkin í Bandaríkjunum færði þeim nýjan óvin: öfgaíslam.

    4. Hryðjuverkin í Noregi kunna að vera verk eins mans en þau spretta upp úr jarðvegi öfgahægristefnu – þessu reyna Björn og félagar að hafna – ég er að benda á það.

    5. Öfgahægrið á sér stjórnmálasamtök út um allan heim. Þar er gjarnan alið á útlendingahatri. Breivik starfaði innan slíks stjórnmálaafls í tæpan áratug. Jarðvegur fyrir ótta, hatur og þröng sjónarmið.

    6. Sjálfstæðisflokkurinn og Björn Bjarnason bera enga ábyrgð á hryðjuverkunum í Noregi – það stendur ekki í pistlinum og ég hef aldrei haldið því fram.

    7. Annað er ekki svaravert…

  11. Steini ágúst 1, 2011 @

    Þetta er spurning um nálgun. Stoltenberg segir fallega hluti í stað þess að tala um hefnd og hert eftirlit. Það er klókt. En ég er nokkuð viss um að Norðmenn herða á öryggisráðstöfunum til frambúðar.

  12. Gísli I ágúst 3, 2011 @

    Öfga hægrið er sundurleitur hópur. Þetta er kannski fremur illa rannsakað svæði hugmynda vegna áhugaleysis vinstrisins á fyrirbærinu. Merkimiðinn Ný-nasistar hefur oft verið látinn nægja.

    Vegna þess að þjóðfélög okkar stjórnast af hugmyndum og forgangsröðunum þeirra er skiljanlegt að upp komi andspyrna við aðflutta hugmyndafræði einsog til dæmis Íslam. Það fyrirbæri hefur fengið mikla umfjöllun og mótsagnarkennda. Annarsvegar varðandi hugmyndir Al Qaida og slíkra sem setur fólk í varnarstöðu og hinsvegar umfjöllun á jákvæðari nótunum sem stundum jaðra við að vera áróður til að friðþægja vondri samvisku vegna meðferðar vestursins á almenningi í ríkjum byggðum múslimum í meirihluta.

    Hægrið hefur gagnstætt vinstrinu átt auðveldara með taka orðræðuna yfir með því að gagnrýna einmitt þessa friðþægingartölur sakbitinnar vestrænnar herstjórnar. Það er alveg rétt hjá hægrinu að af hugmyndum stafar hætta. Hugmyndir okkar um múslima hefur fengið fengið blæ saklausra fórnarlamba heimsvaldsstefnu vestursins og yfirgangs Ísraelsríkis gagnvart palestínuaröbum annars vegar og mikillar menningar sem er í vörn gegn ágengni vestrænna hugmynda og þarfnast því sérstakrar verndar.

    Vinstrið hefur fjarlægst meira og meira pósitívistiska lífskoðanir sem byggja á framfarahyggju endurreisnarinnar eftir síðari heimsstyrjöld. Fjölmenningarhyggjan sem talin hefur verið svarið við auknum kröfum innflytjenda að fá að halda í sínar hefðir, siði og gildi hefur strandað á skeri sífellt aukinna og ákveðnari krafna af hálfu múslima að fá að setja sér eigin lög og skilgreina mannréttindin út frá sínum hugmyndaheimi. Þetta eiga jafnvel postmodern vinstri menn erfitt með að kyngja. En þeir reyna þó að smakka á þessu. Kannski af kurteisi.

    Hægrið er hins vegar með einhvern ósjálfráð viðbrögð gegn öllu slíku. Öfgamenn einsog sá norski djöfull í mannsmynd eru ekki margir en áhrif þeirra eru mikil og klárt mál að þeir byggja á hugmyndum og margra annara úr hægrinu.

    Að ráðast að vinstrinu með blóðbaðieinsog hann gerði var rökrétt í hans hugarheimi og tengdist ekki „hatri á innflytjendum“ per se heldur þeim sem hann taldi beina áhrifum frá miðausturlöndum inn í Noreg og vesturlönd og hann vildi láta þá finna til „Tevatnsins“ en ekki múslimana per se. Þá hefði hann ráðist á þá.

    Þegar maður skoðar þetta í ljósi átaka hugmynda er margt skiljanlegra þó það réttlæti ekki neitt. Björn Bjarnason er ekki merkilegur hægri maður og hefur fyrst og fremst sérhagmuna skírskotun á íslenskan mælikvarða. Hann gæti verið talsmaður hvers sem er ef hagsmunir þeirra sem gauka að honum fé myndu krefjast þess, jafnvel ESB aðildar. Hann er svo ómerkilegur greyið.

  13. joi ágúst 3, 2011 @

    Rosalega lélegur pistill. Greinilegt að villta vinstrið er komið í algera tilvistarkreppu. Ef það er ekki að gagnrýna samstarfsflokkinn, samflokksmenn eða hvort tveggja í senn, þá er tekin pása á því um stund og BB og DO látnir finna fyrir því. Það er eiginlega bara gamall vani frekar en hitt.

    Ekki skrýtið að fylgi stjórnarinna sé farið úr rúmum 70% þegar lagt var af stað með hina „tæru vinstristjórn“ og niður undir 30%. næstu fjárlög þýða að ríkisstjórnin verður komin langt undir það fylgi sem hrunstjórnin komst nokkurn tíma niður í. Hvenær ætlar þetta vinstra lið eiginlega að segja af sér?

Íslensku smyrlarnir

Óflokkað | Ummæli (13) Facebook

Eftir lestur á Birni Bjarnasyni þessa vikuna er rétt að fara yfir nokkur mál:

Fyrir rúmum 8 árum sátu tveir karlar í Lækjargötunni og ákváðu að hagsmunum Íslands væri best borgið með því að styðja árásarstríð á hendur Írak. Engu skipti þó sönnunargögnin væru fabríkeruð – tilgangurinn helgaði meðalið. Hryðjuverkin í Bandaríkjunum rúmu ári áður höfðu breytt heimsmynd karlanna tveggja.  Eftirlit með einstaklingum var hert og persónulegt frelsi skert, Með illu skal illt út reka. Þannig hugsuðu haukarnir í Washington og smyrlarnir í Reykjavík.  Hættan við öfgaíslam er það sem allt snýst um fyrir utan upplausnina og firringuna sem þeir sjá á hverju götuhorni og ekki síst agaleysi ungu kynslóðarinnar.

Það kom því ekki á óvart þegar Björn Bjarnason, fyrrverandi dómsmálaráðherra og kaldastríðssmyrill númer eitt, tjáði sig daginn eftir hryllinginn í Osló og Útey. Hans skilaboð voru þessi: Fjölga þarf í lögreglunni, koma á fót leynilögreglu og auka rannsóknarheimildir lögreglunnar. Þetta eru sambærileg viðbrög og Bush yngri sýndi fyrir 8 árum. Klassísk óttaviðbrögð. Jens Stoltenberg kaus aðra aðferð sem felst í því að efla lýðræði og auka umburðarlyndi. En það er hinsvegar ekki kaffibolli smyrlana á Íslandi.

Björn Bjarnason og félagar hafa alla síðustu viku keppst við að sverja verk hryðjuverkamannsins af því sem gæti kallast eitthvað til hægri. Um sé að ræða einangrað tilfelli brjálaðs einstaklings. En er það svo?

Það er magnað hvernig þessir íslensku hernaðarsinnar berjast um á hæl og hnakka. Fyrir 8 árum voru ögfaíslamistarnir hluti af ósýnilegu neti hryðjuverkamanna sem hefur verið kennt um öll hryðjuverk síðan þá. Meira að segja skömmu eftir að sprengjan sprakk í Osló var það mat sumra að greina mætti handbragð Al-Kaída á henni.

Það voru fyrstu viðbrögðin. En svo kom hið sanna í ljós: Ljóshærður Norðmaður, með þjálfun í norska hernum, feril í hægrisinnuðum stjórnmálaflokki og frímúrari í þokkabót.  Ekkert Al-Kaída – tóm vandræði og úr vöndu að ráða. En þá er formúlunni bara breytt: Engin samtök, ekkert ósýnilegt net, ekkert skipulag –  bara einn úlfur!  Þeir sem voga sér að benda á samhengi hlutana eru umsvifalaust dæmdir úr leik og eru ýmist smekklausir eða einhverjir bjánar úr Samfylkingunni sbr. afgreiðslu Björns Bjarnasonar á Hjálmari Sveinssyni.

Það kann vel að vera að hryðjuverkamaðurinn í Noregi hafi verið einn að verki og að hann sé kolbrjálaður. En hugmyndafræði þjóðernishægrisins er uppsprettan – við megum aldrei gleyma því! Hann sótti þjálfun sína til hersins og skiptist á skoðunum við hægriöfgamenn út um alla Evrópu. Hann bar virðingu fyrir borgaralegum gildum og starfaði innan frímúrarhreyfingarinnar. Hann er ekki dæmigerður brúnn einstaklingur úr flóttamannabúðum í Pakistan. Hann er þokkalega menntaður ungur maður frá Noregi sem mótaði skoðanir sínar innan stjórnmálaafls sem hefur sambönd út um alla Evrópu hvers stefnumál eru til hægri og byggja á þjóðernishyggju.

Alveg sama hvað smyrlarnir með Björn Bjarnason fremstan í flokki reyna að einangra morðingjan frá öfgahægrinu – því miður: Breivik kom þaðan.

Grímur Atlason @ 31. júlí, 2011


Skrifa ummæli

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Kæfuvörn:   Hver er summan af fjórum og átta? Svar: