Ábyrgðarmaður AMX
Óflokkað | Ummæli (24) Facebook
Hvað vakir fyrir þeim sem skrifar: Össur sendi samúðarkveðjur til Noregs og þóttist harmi sleginn. Í framhaldinu er sagt: Smáfuglarnir telja að hér sé á ferð einhver mesta hræsni seinni tíma í íslenskum utanríkismálum.?
Utanríkisráðherrann er sagður sérstakur vinur hryðjuverkamanna suður í Palestínu og því sé þessi samúðarkveðja hræsni. Þetta er ekki skrifað á einhverja lokaða bloggsíðu (sem væri engin réttlæting) heldur á síðu sem segist stunda: Vandaða miðlun frétta. Ristjórnarstefnan ku byggja á frelsi og borgaralegum gildum. Það var þá freslið! Drullan er skrifuð í skjóli nafnleyndar eins og svo margt sem þessi AMX miðill skrifar. Þvaðrið um hægri og vinstri í tengslum við þennan sorgaratburð í Norgegi nær nýjum hæðum á síðunni en ég ætla ekki að leggjast svo lágt að fara í þann auma sandkassaleik.
Það virðast ekki margir auglýsa á síðunni en ljóst er að ég mun ekki versla við computer.is eða aðra sem þar auglýsa.
Friðbjörn Orri Ketilsson er ábyrgðarmaður þessa auma miðils. Hann ætti að skammast sín – hann er ritsóði!
Grímur Atlason @ 24. júlí, 2011
Grímur Atlason
Hvernig finnast þér skrif Karls Th Birgissonar á bloggsíðunni hans. Er Karl ekki bölvaður ritsóði ?
Friðbjörn Orri Ketilsson ritstýrir einnig m5.is
http://www.m5.is/?gluggi=um&innrigluggi=fjolmidlar
Hvað er þá Karl Th.rtstjóri esb – eyjunnar ?
Svona er sannleikurinn sár. Friðbjörn og Breivik eiga nefnilega ansi margt sameiginlegt.
Fuglahvíslið hjá AMX er dæmigert áróðurssorp. Þeir gefa því ekki gaum að Anders Bering Breivik var meðlimur í íhaldssama hægriflokknum Fremskrittspartiet (eða ,,Framfaraflokknum“). Þótt að flokkurinn yrði seint talinn öfgaflokkur að þá er það deginum ljósara að ef hægt væri að staðsetja skoðanir Anders einhversstaðar í litróf stjórnmálanna að þá yrði hann klárlega settur í flokk öfgahægrisinnaðara.
Friðbjörn Orri er einnig ábyrgðarmðar Evrópuvaktarinnar og skrifar væntanlega eitthvað þar.
Friðbjörn Orri Ketilsson hefur markað tímamót með þessum skrifum sínum.
Nú skal hann fyrstur fá að finna til kjalvatnsins og uppskera eins og hann sáði.
@Marteinn
Hefur þú lesið pistilinn hans Karls eða ert þú eins og fleiri sem byggir skoðun þína á afspurn. Ég las hann og síðan fór ég á amx.is í fyrsta skipti í ár held ég. Karl segir m.a. og er að vitan í gamla grein eftir sig þegar að Hannes Hólsteinn hafði haldið því fram að Jón Ólafsson fjármagnaði sig með dópinnflutning um það segir Karl m.a.
„Fyrir rúmum áratug lauk ég grein með þessum orðum: „Ættum við ekki að gera siðlegri umræðu í þessu landi þann greiða að afgreiða Hannes Hólmstein Gissurarson sem það flón sem hann er?“
Tilefnið var ræða sem Hannes hafði flutt fyrir norræna blaðamenn í Reykholti. Hún fjallaði um Jón Ólafsson, sem þá átti Stöð 2, og viðskiptaveldið sem hann byggði upp á fíkniefnagróða og stjórnmálamennina sem hann hafði í vasanum.“
Hvað er svona sóðalegt við þetta. Hann rifjar þetta upp í tengsum við það að Hannes er meintur penni „Fuglahvíslsins“ þar sem að nafnlausar dylgjur eru bornar fram án þess að gefið sé upp hver skrifar. Og bullið þar yfirgengilegt. T.d. varðandi atburðina í Noregi eru þeir að fabulera um að Nasistar séu vinstri sinnaðir því að nafnið sé samsett úr þýsku orðunum sem standa fyrir Þjóðernis og sósialisma. Maður leyfir sér að efast um greind manna sem skrifa svona. Og því segja þeir að það sé rangt að segja að þessi vesalings morðingi í Noregi sé öfga hægri maður hann sé í raun sósialisti. Finnst mönnum svona almennt í lagi? Að hafa svona bull fyrir fólki á opinberum miðli.
Ágætt að benda á þessa grein í sambandi við þetta:
http://www.facebook.com/notes/gu%C3%B0mundur-r%C3%BAnar-svansson/tilgangslaus-umr%C3%A6%C3%B0a/10150331889640775
Friðbjörn Orri þarf enga auglýsendur, því hann mokar inn pening með áskriftum fólks að nino.is, sem hann á.
Hann er einnig maðurinn á bak við ungi.is og b2.is
Það þarf nú ekki miklar gáfur til að átta sig á að þjóðernissósíalismi er orðinn stór hluti af Íslensku þjóðarsálinni, og hefur máske verið í gegnum tíðina. AMX og MBL eru dæmigerðar málpípur slíkra öfgaafla.
Þeir bjóða upp á rökleysu og útúrsnúninga í bland við hreina lygi.
Reynið ekki að rökræða við þetta aumingjans fólk. Það er ekki hægt.
Því legg ég til að þegar heiðvirt fólk telur sig tilneytt að vitna í fuglana, nefni það ekki nafn vefjarins heldur ábyrgðarmannsins: ,,Friðbjörn Orri Ketilsson segir á vef sínum að…“
Það allra fyndnasta er að AMX er svo í mun að vera ekki kallaðir þjóðernis-sósíalistar að þeir gangast greiðlega við að vera hægri-öfgamenn!
Þvílíkir blábjánar!
Ummæli AMX um utanríkisráðherra eru einstaklega smekklaus og rætin. Leyfi mér að styðjast við tilvitnaða setningu og segja: Ég tel að hér sé á ferð einhver mesta lágkúra seinni tíma í íslenskum fréttamiðlum.
Magnús Björgvinsson. ritsóðinn Karl Th Birgisson segist bera HHG saman við fjöldamorðingjann í Noregi. Það hefur ekkert með Jón Ólafsson að gera.
AMX hefur alltaf verið idjótavefur og Friðbjörn Orri ómerkingur. Þessir plebbar sem stóðu að Frjálshyggjufélaginu voru aldrei meira en pappakassar í fullorðinsleik.
Þetta svokallaða ‘fuglahvísl’ er bara aum aðferð til að geta staðhæft hluti án þess að þurfa standa við orðin.
Þú hefðir e.t.v. átt að kynna þér nýjustu bloggfærslu ritstjóra Eyjunnar, Karls Th. Birgissonar, á þeim miðli sem þú viðrar skoðanir þínar á.
En ábyrgðarmaður AMX á ekki möguleika í ritstjóra Eyjunnar þegar kemur að ofstækisfullum færslum sbr. færslu hans „Hyski Hannesar“. Færslan hefur þó tekið nokkrum breytingum þar sem reynt er að fegra viðbjóðinn sem stóð upphaflega.
Þú mátt ekki vera of upptekinn af ritsóðaverkum ábyrgðarmanns AMX að þú takir ekki eftir blóðugum ritfingrum þinna heimamanna.
Gangi þér vel að finna út hvað vakti fyrir AMX með þessum skrifum sem þú vitnar í. Fáirðu hins vegar það sem þú telur viðunandi skýringu á því að bera, og líkja, Hannes Hólmstein og vini hans við einn miskunnarlausasta fjöldamorðingja seinni tíma þá hef ég engan áhuga á þeirri skýringu – Það er ekkert sem réttlætir þann samanburð!
Karl Th. skrifar algerlega fáránlega grein.
En hvernig kemur það málinu við? Getur Grímur Atlason ekki skrifað á sinni bloggsíðu um fáránleika, illgirni, tækifærismennsku og siðblindu AMX.is án þess að þurfa að fjalla um alla aðra fjölmiðla á sama tíma.
Eitt er samt hægt að segja, Karl th. skrifar undir nafni. Annað en árásmennirnir og dylgjusjálfstæðismennirnir á AMX.is sem gætu aldrei verið nógu miklir menn til þess að standa undir þeim viðbjóði sem þar stendur.
Viðbrögðin sem munu verða vegna þessara voðaverka í Noregi eru því miður fyrirsjáanleg. Reynt verður að fara auðveldu leiðina út úr hlutunum með því að tala um að nú verði að fara að ritskoða hinn og þennan málflutning á netinu og víðar. Af hverju ekki heldur að mæta þeim viðbjóði sem þar flæðir óhindrað og bak við nafnleyndina head-on ef svo má segja. Það er til að mynda hægt að segja um þessi skrif AMX að þau séu viðbjóðslegur sori og að sá sem þau ritar sé fantur og lygari og annaðhvort siðblindur með öllu eða tæpur á geði. Sannleikanum verður hver sárreiðastur og þeir sem svona skrifa ættu ekki að fá að komast upp með það óáreittir. En að ritskoða er ekki svarið. Opinber niðurlæging er betra og réttlátara vopn.
Sæll Siggi,
Á meðan enginn höfundur er skrifaður fyrir greinum smáfuglanna þá lít ég einfaldlega þannig á að höfundur sé Friðbjörn Orri, enda er hann ábyrgðarmaður vefsins. Rétt eins og ég myndi líta svo á að Björn Ingi og Karl Th. væru höfundar ónafngreindra skrifa sem kynnu að birtast á Eyjunni.
Ástæða þess að ég benti sérstaklega á grein Karls var sú að hún er skínandi gott, nærtækt og nýlegt, dæmi um enn ógeðfelldari skrif. Þar sem Grími fannst „Þvaðrið um hægri og vinstri í tengslum við þennan sorgaratburð í Norgegi ná nýjum hæðum á síðunni“ þá fannst mér ég mega til með að benda honum á í hvaða hæðum þvaðrið væri á hans heimaslóðum – tel ég óhætt að tala um allra hæstu hæðir í því sambandi!
Honum ættu því að reynast hæg heimatökin þegar kemur að því að siða aðra ritsóða.
Karl Th. er ekki tilefni skrifa minna. Fuglahvísl AMX er tilefnið og það er líka tilefni Karls Th. Önnur eru líkindin ekki. Taliði við Karl Th. ef þið viljið gagnrýna hann, skrif hans eða ritstjórn.
Grímur, ætlar þú ekki að gagnrýna hin rætnu skrif Karl Th. um Hannes Hómstein og þá sem tengjast honum?
Eða ertu með valkvæða siðferðiskennd eins og aðrir vinstrimenn, og finnst því þessi skrif hanns „eðlileg“ vegna þess að hann skrifar um aðila sem er þér ekki að skapi pólitískt séð?
Þar með ertu að halda í heiðri lífsgildi vinstrimanna sem er; „að óvinur óvinar míns, er minn vinur“.
En slík bandalög er skammvinn og snúast fljótt upp í andhverfu sína og hörmulegum afleiðingum.
Minnust bandalags Vestrænna þjóða og Sovétríkjanna gegn Þýsklandi Nazismans, sem snérist svo í andhverfu sína þegar sameiginlegur óvinur hafði verið sigraður.
Eða minnumst bandalags öfgasinnaðra múslíma, Mújahedin, og CIA gegn innrásarher Sovétmanna í Afganistan.
Það bandalag snérist rækilega upp í andstæðu sína eins og allir vita, og sér ekki fyrir lokin á þeim harmleik enn.
Þannig er óvinur óvinar míns ekki alltaf minn vinur þegar upp er staðið.
Annars tel ég Fuglakvíslið ágætis svar með málflutningi vinstraliðsins sem tröllríður netinu, sem birtist m.a. á Eyjunni, Sankornum DV, á bloggsíðum DV, Smugunni og Herðubreið.
Fuglahvíslið stígur á tær vinstraliðsins sem emjar ógurlega þegar hræsni og tvískinningur vinstraliðisins er afhjúpaður.
Það er borin von að AMX-arar biðjist afsökunar á færslum sínum en yfir 90% þjóðarinnar veit að skömm þeirra er mikil og ævarandi.
Eitt af því eftirmynnilega frá menntaskólaárunum voru fleyg orð Bubba kóngs: Drulla drulla.