8 athugasemdir

  1. Páll Þór Jónsson júlí 3, 2011 @

    Leiðindin eru þau að það er mökkur af fólki reiðubúið að trúa þessu bulli.
    Stór hluti landans er enn í afneitun og vonast til að þetta reddist eina ferðina enn og hægt verði að græða á daginn og grilla á kvöldin!

  2. snoi júlí 3, 2011 @

    Einmitt. Þetta var allt undir stjórn hjá þeim.

    Sést vel á þessu myndbandi hér frá 2007:

    http://www.youtube.com/watch?v=E3zqtGWEc8U

    Er það ekki annars?

  3. Halldór Halldórsson júlí 4, 2011 @

    Merkilega útbreidd þessi afstaða vinstra fólks eins og Gríms að allir sem eru þeim ekki sammála; eiga að halda kjafti og snúa sér að öðru!!??

  4. Magnús Fr. Gunn. júlí 4, 2011 @

    Uss, ekki segja svona, Halldór Halldórsson.

    Grímur er handhafi sannleikans og alls þess sem er réttlátt og því getur hann dæmt lifendur og dauða líkt og aðrir vinstrimenn af hans meiði.

  5. Páll Þór Jónsson júlí 4, 2011 @

    Halldór Halldórsson:
    Þú ert eitthvað að ruglast. Þú vísar í þöggun. Má ég minna þig á að Davíðísk þöggun hefur ekkert með Grím að gera. Áhugavert að þú getur aðeins svarað fyrir þig með skítkasti.

    Magnús Fr. Gunn.
    Áhugavert að þú getur einnig aðeins svarað fyrir þig með skítkasti.

    En hér eru tveir dæmigerðir Íslendingar á ferðinni.
    Íslendingar sem þurfa ekkert að óttast nema sjálfa sig.

  6. Magnús Fr. Gunn. júlí 5, 2011 @

    Fyrirgefðu, Páll Þór Jónsson.

    Er þetta skítkast í okkur að gagnrýna málflutning Gríms?

    Okkur finnst bara málflutningur Gríms vera svo fáránlegur og sýna í hnotskurn yfirlæti og hroka eðalvinstrimanns eins og Gríms.

    Grímur gerir lítið úr því að hér sé atvinnuleysi og finnst ekkert athugavert við aðgerðarleysi núverandi stjórnvalda í þeim efnum.

    Hann lítur fram hjá því að ástæða þess að kreppan hér á landi dregst á langinn er einmitt aðgerðarleysi þeirra Jóhönnu og Steingríms í atvinnumálaum þjóðarinnar.

    Ríkisstjórn eiga að skapa vænlega umgjörð fyrir atvinnulíf svo að það blómstri.

    Þetta hefur núverandi ríkisstjórn ekki gert, heldur alið á sundurlyndisfjanda í þeim efnum.
    Gott dæmi um þetta er hið fáránlega vanskapaða frumvarp þeirra um sjávarútvegsmál, sem hefði stefnt því litla sem eftir er af blómlegu atvinnulífi út af bjargbrúninni.

    Þessi frumvarpsbastarður ruddi öllum öðrum skynsamlegum og uppbyggilegum málum frá vegna þrákelkni stórnvalda.

    Eitt veit ég líkt og meirihluti þjóðarinnar, að Íslendignar þurfa ekki á óvinum að halda ef vinstrimenn fá að vaða hér uppi og ráða hér lögum og lofum.

  7. Páll Þór Jónsson júlí 5, 2011 @

    Þakka þér fyrir svarið Magnús Fr. Gunn.
    Það var bara ekkert í fyrra svari þínu um gagnrýni á málflutning Gríms.
    En þetta svar er mun betra.
    En grein Gríms fjallaði fyrst og fremst um að verið væri að endurskrifa söguna um orsakir hrunsins og hverjir bera ábyrgð á því. Það er hártogun að kenna núverandi ríkisstjórn um það.

    En ég get verið sammála þér um að uppbygging atvinnulífs og endurreisn er ekki góð. Það er annað mál sem ekki verður leist nema við náum að skipta um gjaldmiðil og haga hagstjórn eins og vitibornir einstaklingar. Það hefur engri ríkisstjórn Íslandssögunnar tekist.
    Stemningin á Íslandi er hinsvegar sú að ekki beri að stefna að skiptingu gjaldmiðils, ekki beri að ganga í ESB (sama hve góður samningur væri í boði) og síðan eru menn sammála um misvitibornar upphrópanir sem enda að venju í því sama: Þetta á bara að reddast…….einhvernveginn!
    En kannski skrifar Grímur pistil um þetta efni sem við getum rökrætt um í athugasemdakerfinu :)
    En uppbygging eða ástand þjóðarskútunnar er varla Grími að kenna, svona persónulega, er það nokkuð?

  8. Grímur Atlason júlí 5, 2011 @

    Það er naumast en verður líklega að vera svo – ég get því miður ekki dæmt lifendur og dauða þó egóið mitt telji sig stundum ráða vel við slíkt…

    En það breytir því ekki að söguskoðun þeirra Hilmars og Kára er ansi fjarri því sem gerðist – það eru til myndir, greinar og ræður sem sýna það svart á hvítu…

Sagnfræði þeirra Hilmars og Kára

Óflokkað | Ummæli (8) Facebook

Í fjölmiðlum í dag mátti hlusta á gamlan forsætisráðherra Íslands segja frá því að hann hefði í rauninni bjargað Íslandi frá hruni. Ef hans hefði ekki notið við hefði ekki þurft að spyrja að leikslokum. Já, guð blessi Ísland.

Í öðrum fjölmiðli talaði flokksbróðir þessa fyrirverandi forstætisráðherra og var ómyrkur í máli. Hann sagði að 20 til 30 þúsund störf hefðu glatast eftir að Steingrímur og Jóhanna tóku við stjórn landsins. Allt væri hér í klessu vegna vinstrimannana og mikilvægt að hann og félagar fengju aftur að taka við stjórnartaumunum.

Þeir Hilmar og Kári ættu að snúa sér að öðru en sagnfræði nútímans. Fjarstæðukenndari söguskoðun er nefnilega vandfundin.

Grímur Atlason @ 3. júlí, 2011


Skrifa ummæli

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Kæfuvörn:   Hver er summan af einum og sex? Svar: