34 athugasemdir

  1. Rósa júní 25, 2011 @

    Sammála.

    En sýnir þetta ekki að hefðbundnir stjórnmálamenn og -flokkar hafa brugðist?

    Mjög víða hafa mjög margir snúið baki við hefðbundnum flokkum.

    Varla er það tilviljun eða bara heimska viðkomandi?

    Telur þú að útlendir glæpahópar séu ekki starfandi á Íslandi?

  2. Jón Frímann júní 25, 2011 @

    Dönum gengur illa að koma á þessu landamæraeftirliti. Enda bæði Svíar og Þjóðverjar mjög óánægðir með þessa áætlun hjá dönskum stjórnvöldum.

    http://www.dr.dk/Nyheder/Politik/2011/06/24/230420.htm

    Þá sérstaklega þjóðverjar, sem ætla ekki að líða þennan uppsteyt í dönum.

    Síðan stefnir í að þetta landamæraeftirlit fari fyrir ECJ. Þar sem líklegt er að danir tapi málinu gjörsamlega.

  3. Elín Sigurðardóttir júní 25, 2011 @

    Villta hægrið? Á ESB ekki meira sammerkt með USA í þessum efnum með frjálsu flæði milli ríkja?

  4. Gunnlaugur Ingvarsson júní 25, 2011 @

    Æi Grímur. Koma nú þessar stöðluðu hræðsluklisjur frá þér um öll þessi vondu öfgaöfl.

    Þú áttar þig bara ekki á því að það er einmitt vegna þess að innan ESB svæðisins þá er það valdið og lýðræðið sem er komið svo langt frá fólkinu.
    Þannig finnst almúganum að hann hafi lítið sem ekkert um umhverfi sitt og alla stjórnarháttu að segja.

    Hin innmúraða og innvígða valdaelíta í Brussel er í órafjarlægð en sumir töldu jafnvel að þetta system myndi verða svo ofboðslega mikið til góðs. Allar sérfræðinganefndirnar og samrráðssullið.

    Þetta hefur allt meira og minna brugðist, það sér almúgi þessara landa. Þess vegna hefur óánægjan með Valdaelítu Brussel valdsins farið stigvaxandi og í raun aldrei reynst meiri.

    Í sumum löndum ESB vill meirihluti fólks ganga burt úr þessu bandalagi, sem því finnst ekkert hafa gert fyrir sig. Þessi valdastétt nýtur almennt mjög lítils traust almennings.

    Stjórnmálamenn heima fyrir eru meira og meira uppá punt og vængstífðir af regluverki og tilskipanaflóði sem almenningur skilur lítið sem ekkert í.
    Þegar fólk líka finnur hvernig þetta nýja embættisvald misnotar vald sitt og spillingin drýpur þar af hverju strái, eins og raunin er, þá magnar það reiðina og heiftina gegn þessu fjarlæga og ósýnilega valdi.

    Þegar við bætist að þessi harðsvíraða ESB valdaklíka skirrist nú ekki við að taka höndum saman við banakabraskarana og vogunarsjóðina til þess að koma skuldum þessa gjörspillta bankakerfis yfir á almenning þessara landa og færa fólkið í áratuga þrælkunarbúðir bara til að þjónka fjármálaöflunum, þá sýður upp úr !

    Þá myndast andfélagsleg öfl og stjórnleysisöflum vex fiskur um hrygg en einnig últra hægri og últra vinstri sjónarmiðum.

    Þetta vonlausa og ónýta ólýðræðislega kerfi uppsker nefnilega eins og það sáir til !

    Mótmælin um stóran hluta Evrópu eru af þessu sprottinn.

    Getuleysinu og vantrú fólksins á að það sé verið að vinn að því að leysa vandamál þeirra.
    Grískur, Spænskur, Portúgalskur og Írskur almenningur og almenningur fleiri ríkja innan ESB er að byrja að rísa upp gegn þessu óréttlæti og þessum ósköpum.

    Þessum sömu ósköpum og þú óskar þjóð þinni helst að ganga inní !

    Farðu að opna augun maður !

  5. Pétur Henry Petersen júní 25, 2011 @

    Já, er þetta ekki eins og annað og einhverskonar skynsöm millileið best? Fyrir ekki svo löngu síðan var íslenskur atvinnumarkaður t.d. nær algerlega lokaður, svo allt í einu var hann galopinn. Auðvitað, eiga sér svo stað félagsleg undirboð þegar að vinnan hverfur, hver græðir á því? Einnig, auðvitað eiga „útlendingar“ að geta búið hér, en getum við ekki lært eitthvað af misstökum norðurlandaþjóðanna í þeim málum.

  6. Tómas júní 25, 2011 @

    Sammála þér. Hins vegar er það skondið að Þjóðverjar, sem grenjað hafa manna hæst, eru að gera það sama á landamærum sínum að Frakklandi: http://www.bt.dk/politik/tyskerne-goer-selv-det-ved-graensen-som-danmark-ikke-maa.

  7. Jón Frímann júní 25, 2011 @

    Gunnlaugur Ingvarsson á heima í ESB. Skil ekki hvað hann er að væla svona. Ef honum finnst ESB vera svona slæmt. Þá getur hann bara flutt aftur til Íslands í vesenið á Íslandi.

  8. Lúðvík Júlíusson júní 25, 2011 @

    .. það vita allir sem eitthvað hafa hugsað síðan haustið 2008 að Ísland er búið að afnema frjálsa fólksflutninga til landsins. Nú þarf fólk að uppfylla sérstök skilyrði, sækja um undanþágur og vera stillt. Hér var talað um efnahagslega nauðsyn og að Ísland væri fyrirmynd annarra Evrópuríkja í þessum málum. Þegar önnur ríki taka okkur síðan til fyrirmyndar þá er það kallað þjóðremba. Hér er ekkert villta hægri heldur „vinstri velferðarstjórn“ sem lokar landamærunum.

  9. Gísli Ingvarsson júní 25, 2011 @

    Það verður reyndar að taka tillit til óánægjuradda. Þær verða líklega ekki til úr lausu lofti. Í fyrsta lagi stendur baráttan um frelsi til að andæfa. Það getur verið „móðgandi“ og særandi fyrir aðkomna hópa sem telja umræður um sig of nærgöngular. Um þessar mundir eru það nær eingöngu múslimar sem verða fyrir barðinu á þessari umræðu. Nú er þetta sjaldnast spurning um hörundslit lengur heldur kúltúr eða trúarbrögð.

    Í öðru lagi eru það glæpamenn sem í skjóli samruna og auðveldra samgangna koma sér upp hentugum aðferðum til að gera strandhögg með smáþjófnaði eða bara koma sér þægilega fyrir í undirheimum stórborganna með aðgangi að eiturlyfjum og vændi. Allt er þetta gert í samráði við heimamenn líka. Það eru hins vegar aðferðirnar einsog „landamæraeftirlit“ sem eru vafasamar bæði hvað varðar gagn og kostnað. Það er hinsvegar aldrei reykur án elds og undirliggjandi óánægju verður að ræða en ekki beita þöggun einsog algengast hefur verið hingað til. Stjórnmálamenn með alvöru ambisjónir verða að geta tekið þessa umræðu einmitt til að geta beint henni útúr lýðskruminu.

    Það er hinsvegar ljóst að það er engin „þægileg“ lausn á þessum málum og í framtíðinni fer allt í bál og brand ef menn geta ekki höndlað þessi mál í dag. Það þarf að setja skorður einhversstaðar. Danir eru bara ekki með lausnina ennþá.

  10. Gunnlaugur Ingvarsson júní 25, 2011 @

    @ Jón Frímann og aðrir lesendur:

    Af því að Jón Frímann ESB trúboði fer hér mikinn og upplýsir um að ég búi í ESB ríki, þá er það alveg rétt og hefur ekki verið neitt leyndarmál.

    Hann vill því skipa mér heim og hefur reyndar áður sagt að ég mætti ekki voga mér að gagnrýna dýrðina hér þar sem ég byggi hér. Ekki ósvipað og var viðkvæðið í Sovéttinu !

    En það getur vel verið og er meira en líklegt að ég flytji heim þegar það hentar mér.

    Ég hinns vegar bý hér í „ESB sælunni hans, í ESB og EVRU ríkinu Spáni“ af ýmsum ástæðum.

    Þetta er hinns vega enginn sérstök sæla fyrir utan veðurlagið og sólina sem er yndislegt en er alls ekki umhverfisapparati ESB að þakka, ég tek það sérstaklega fram.

    Af því að hér er hræðilegtlangvarandi 20 til 22ja% atvinnuleysi á landsvísu og atvinnuleysi ungs fólks er milli 40 og 50%.

    Evran eða ESB er hér ekkert að hjálpa. Vesöld og vonleysi ríkir meðal almennings, því atvinnulífið er hálf lamað og bankakerfið gjörsamlega gjaldþrota.

    Stjórnvöld eru ráþrota og ESB Elítan situr bara á eilífum bænafundum !

    Mótmæli og óeyrðir breiðast út um allt land og lögreglan hér sýnir ótrúlegt ofbeldi og hörku gegn friðsömum mótmælendum.

    Þeir hafa sýnt svona tilburði eins og hefði verið trúandi uppá KGB og önnur einræðisríki að hafa orðið uppvísir að því að planta óeyrðarseggjum með bensínsprengjur inn í raðir mótmælenda til þess að nota sem tækifæri til lögregluofbeldis og fólskuverka.
    Var einhver að tala um frelsi og mannréttindi hér í boði kannski marnnréttinda stofnunar ESB eða hvað !

    Allir hér vita að Spánn er að fara niður um ESB/EVRU Niðurfalls-holræsið þar sem AGS og ESB Elítan með liðsinni Spænsku Samfylkingarinnar sem hér stjórnar í ráðaleysi sínu munu hengja Spænskan almenning til að þóknast Stór-Braksbönkum Evrópu og reyna þar með að bjarga bankstera genginu og stórgjaldþroti ECB banka Evrópusambandsins sem hefur tekið þátt í allri vitleysunni með fádæma ábyrgðarleysi !

    Jón Frímann. Lífskjör hér á Spáni skrapa botninn. Hér er fátæktin og eymdin við hvert fótmál allt í boði ESB og betl, glæpir og vændi í vaxandi mæli sjánlegt á götum úti hvern einasta dag. Spilling embættis og stjórnmálaliðs ríður hér húsum sem aldrei fyrr. Lögreglan og herinn líka innvikluð í spillingarruglinu ásamt bönkunum og einkaframtakinu oft í nánu samstarfi við Lobbýistana í Brussel.

    Er þetta ESB sæluríkið þitt ? Það trúir enginn lengur þessum sögum nema svona heilaþvotta trúboðar eins og Jón Frímann, um almætti ESB apparatsins og þeirrar dýrðar, ekki frekar en nokkur ærlegur maður trúði dýrðarsögunum um Sovéttið gamla hér fyrr á tíð !

  11. Jón Jón Jónsson júní 25, 2011 @

    Ertu orðinn hægri-krati Grímur Atlason, kannski obbolítið villtur á leiðinni til Brussel?

    Allur fyrir frjálst og óheft flæði fjármagns og láglauna-þræla milli landa? Kannski heims-kapítalisti?

    Um það snýst málið nefnilega líka, en það er auðvelt að nota Piu Kjærsgaard sem grýlu og jamma svo og jáa sem heilagur maður eftir forsöng Brussel-bírókrata og bankstera svörtu turnanna í Frankfurt.

    En það viðurkennist að þetta er trikkí mál og stutt í öfgar á báða og kannski alla kanta.

  12. Jón Frímann júní 25, 2011 @

    @Gunnlaugur Ingvarsson,

    Þú segir, „Ég hinns vegar bý hér í “ESB sælunni hans, í ESB og EVRU ríkinu Spáni” af ýmsum ástæðum.“

    Eina ástæða þess að þú býrð á Spáni er vegna þess að íslensk lög ná ekki yfir gjaldþrotavesenið sem þú skildir eftir þig á Íslandi fyrir um áratug síðan.

    Ég gáði hver þú værir í blöðunum (í gegnum timarit.is).

    Þú ennfremur lýgur uppá á mig og kemur með rangfærslur sem dæma sig sjálfar. Þú ennfremur lýgur til um ástæður þess að atvinnuástand er slæmt á Spáni. Þú veist fullvel afhverju atvinnuleysi er mikið á Spáni, og hvað er verið að gera til þess að laga það ástand.

    Þú veist ennfremur að atvinnuleysi mun ekkert aukast á Íslandi, enda hefur Íslandi verið hluti af frjálsri för fólks ESB í gegnum EES samninginn síðan árið 1994. Þetta er staðreynd sem þú kýst viljandi að hunsa, vegna þess að hún hentar ekki þínum málstað.

    Rugludallar eins og þú eru best afgreiddir eins og aðrir rugludallar. Það á ekkert að hlusta á ykkur.

  13. Gunnlaugur Ingvarsson júní 25, 2011 @

    @ Jón Frímann.
    Persónulegt rógburður þinn og níð þitt um mig á sér enga raunverulega stoð.

    Ég er ekki á neinn hátt að flýja landið mitt eins og þú virðist hér setja svo ósmekklega og mannorðsmeiðandi upp, allt fyrir vesæalan ESB málsstað þinn.

    Ég hef algerlega óflekkað mannorð og hef ekki verið dæmdur fyrir eitt eða neitt, eða er heldur að flýja eitt eða neitt.

    Þú skalt bara reyna halda þig á mottunni vesæli persónulegi tilræðismaður og mannorðsmorðingi og hrokatittur sem þú sýnir þig í að vera !

  14. Páll Skagfjörð júní 25, 2011 @

    Gunnlaugur,
    Það er því greinilegt að það að vera þrástagaður ESB-sinni telst til örorku líkt og hrjáir Jón Frímann, enda kemur þetta m.a. fram í ranghugmyndum hans um ESB.

  15. Gunnlaugur Ingvarsson júní 25, 2011 @

    Takk fyrir stuðninginn Páll.
    En Jón Frímann ESB postulinn sá er hreinræktað skítseyði og hefur sýnt það mjög lengi ! Hann er hreinræktuð ótukt og dusilmenni !

  16. joi júní 25, 2011 @

    Nei nei, sættum okkur ekkert við það sem er til hægri við miðju. Hokrum frekar í Villta vinstrinu, þar sem lífeyrissparnaður er skattlagður mörgum sinnum, áfengisskattar eru hækkaðir svo mikið að allir fara að brugga, álögur á fyrirtæki eru með þeim ósköpum að þeir einir hafa efni á að reka fyrirtæki sem geta borgað með þeim í gegnum vaxtamun (bankar) eða skattlagningu á almenning(ríkið). Hokrum í villta vinstrinu þar sem sóun á nýtingu auðlinda er með þeim hætti að þeir sem eitthvað vit hafa á málum hlægja að. Þetta er sýn villta vinstri. Þar er í góðu lagi að henda grjóti úr glerhúsi, en eftir situr, á hverju á fólkið að lifa?

  17. Jón Frímann júní 25, 2011 @

    Það vill nú svo til Gunnlaugur Ingvarsson að ég fann blaðagrein um þig frá árinu 1998. Þegar þú varst í skipasmíðabransanum.

    Ég er svo heppin að þér er mynd af þér í þessum blaðagreinum. Þú ert þó með hár þarna.

    http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=4909624

    Um fyrirtækið IceMac finnst hvorki tangur né tetur í dag á internetnu. Það fór því á hausinn áður en internetið varð algengt á Íslandi eða var keypt upp (þá væntanlega orðið gjaldþrota eða slíkt) áður en það fór tæknilega á hausinn.

    Ég gæti þó aflað mér upplýsinga hvað varð um fyrirtækið ef til þess kemur. Það verður þó að bíða betri tíma hjá mér, ég er örlítið upptekin um þessar mundir og hef ekki tíma í að elta uppi svona gamlar fréttir.

    Þannig er staðan Gunnlaugur að ég fer hvorki með fleipur eða rangfærslur.

  18. Konrad Ragnarsson júní 25, 2011 @

    Hvað sumir hafa þroskast lítið og eru ennþá pikk fastir í leðju fáfræðarinnar!Það segir manni bara eitt,að í öllu þessu upplýsingarflæði,þar sem fólk getur nánast kynnt sér allt á milli heims og jarðar, eru sumir sem treysta frekar á innsæi heimsku sinnar;-(.

  19. lydur arnason júní 25, 2011 @

    Sérdeilis uppbyggjandi og málefnalegar umræður hér um mannhatur og ESB. Bjartur og Svartur í sinni beztu mynd. En, félagi Grímur, þessi landamæralokun dananna, á hún nokkuð við um okkur?

  20. Karl júní 26, 2011 @

    Gunnlaugur er með athyglisverða punkta. Getur verið að það sé einmitt ESB-aðild sem leiði til uppgangs „öfgahægriflokka“ (sem eru reyndar alltaf miðjuflokkar eða til vinstri á efnahagssviðinu)? Þegar ríki eru mátulega lítil er valdið nær fólkinu, boðleiðir stuttar og mögulegt að ástunda virkt lýðræði. Risaríki leiða til örvæntingar og firringar borgaranna, sem upplifa sig vanmáttuga til að hafa áhrif á sitt nánasta umhverfi og fara að leita að blórabögglum. Við þyrftum sennilega fyrst að fara að hafa áhyggjur af uppgangi öfgaafla þegar við værum komin inn í ESB.

  21. Páll Skagfjörð júní 26, 2011 @

    Ekkert að þakka, Gunnlaugur, en þessi ESB-fíkn hans er alveg óþolandi fyrir vitiborið fólk. Hann er eins og einhver vírus hérna í netheimum með þetta ESB-trúðaboð sitt.
    Ég fer að halda að maðurinn sé ekki raunveruleg persóna, heldur einhver talvél sem plantað hefur verið inn í netheima af Evrópusamtöknum hér á landi.

    Hann gerði mislukkaða tilraun til að setja sig niður í eina af ríkjum ESB til að njóta alsælunnar þar, en eitthvað varð það endasleppt, því hann kom aftur heim með öngulinn í rassinum.

  22. Garðar Garðarsson júní 26, 2011 @

    Góðir punktar hjá Grími.

    Gunnlaugur Ingvarsson, júní 25, 2011 @ 12:11, telur þú að lýðræðið hér á Íslandi hafi verið meira og betra síðustu 10-20 árin en í nágrannaríkjum okkar sem eru aðildarríki að ESB?

    Það eru ekki mörg ríki sem hafa haft flokka við völd sem hafa leyft fáeinum flokkshestum að ræna nánast öllum verðmætum ríkisins eins og gerst hefur hér á landi síðustu 10 til 20 árin. Getur ástandið hér á landi versnað frá því sem það hefur verið?

  23. Stefán B. Hjaltason júní 26, 2011 @

    Satt segirðu, JOI, vinstrimenn er jafnvel meiri rasistar en hægrimenn.
    Útlendingahatur félaga í VG og annarra vinstrimanna hér á landi er t.d. mjög þekkt.
    Þeir eru að móti erlendri fjárfestingu hér á landi, auk þess að vera á móti öllum útlendingum sem eiga peninga og vilja setja sig niður hér á landi.

    VG hefur þannig tekist að loka að alla erlenda fjárfestingu hér á landi og hrakið í burtu þau fáu erlendu fyrirtæki sem hafa sýnt því áhuga að fjárfesta hér á landi.
    Þetta er gert undir því yfirskyni að hér sé um að ræða vonda útlendinga og aðra erlenda kapítalista sem vilji sölsa undir sig landið okkar og gera okkur að þrælum þeirra.
    Þvílík forheimska hjá vinstrimönnum enda er þetta byggt að lifsgildum vinstrimanna sem eru;

    - öfund
    - hatur
    - illska
    - og heimska.

  24. Stefán B. Hjaltason júní 26, 2011 @

    Já, Garðar Garðarsson, ástandið getur versnað til muna hér á landi, enda erum við með fólk við stjórnvölin sem;

    - búið er að setja fólkið í landinu í efnahagslega fjötra,

    - er gott sem búið að útrýma millistéttinni,

    - búið að gefa erlendum vogunarsjóðum tvo af stærstu bönkum landsins,

    - hefur innleitt hér fasískan femínisma,

    - beitir skoðanakúgnum,

    - hefur lögleitt ritskoðun í nýjum fjölmiðlalögum,

    - beitir boðum, bönnum og algjörri forræðishyggju,

    - ætlar að setja í lög í algjörri heimsku aðferðir Roberts Mugabe svo hægt verði að rústa lykiliðnaði þjóðarinnar, sjávarútveginum,

    - er búið að koma öllu athafnalífi í efnahaglegan frostavetur sem mun vara í mörg ár.

  25. Garðar Garðarsson júní 26, 2011 @

    Stefán B. Hjaltason, júní 26, 2011 @ 00:33, þú bullar út í eitt.

    Núverandi ríkisstjórn gaf ekki neina banka. Flokkshestar Sjalla og Framsóknar mistu bankana í hendur kröfuhafanna sem þeir voru búnir að arðræna í gegnum árin eins og okkur Íslendinga sjálfa.
    Útlendingar töpuöu þúsundum milljarða króna á svindli þessara vina helmingaskiptaflokkanna.

    70% þjóðarinnar vill breyta núverandi kvótaúthlutun í fiskveiðum þannig að í framtíðinni verði kvóti boðun út að mestu á frjálsum markaði þar sem jafnræðisreglan verður látin gilda. Fyrirhugaðar breytingar ganga allt of skammt, en eru þó til bóta með nokkrum lagfæringum.

  26. Jón Frímann júní 26, 2011 @

    @Páll Skagfjörð, Ég væri ennþá í Danmörku (sem hefur verið í ESB árið 1973). Ég skal segja þér afhverju ég þurfti að flytja aftur til Íslands.

    Ástæðan er mjög einföld og hún er þessi hérna.

    Íslenska krónan.

    Gengið er 22,16 ISK = 1 DKK hjá Seðlabanka Íslands og 22,76 = 1 DKK hjá Valitor (Visa).

    Þetta þýðir einfaldlega að ég varð of tekjulítill til þess að búa í Danmörku.

    Niðurstaðan varð því frekar einföld. Ég þurfti að flytja aftur til Íslands á meðan ég kom mér upp tekjum í öðrum gjaldmiðlum, og það ætla ég mér svo sannarlega að gera.

    Þetta mun taka mig einhverja mánuði að framkvæma, en mun væntanlega takast hjá mér.

    Enda er það stefnan hjá mér að flytja til Danmerkur árið 2013, þá með nægar tekjur til þess að búa þar varanlega. Enda verða tekjunar hjá mér þá vonandi orðnar nægar til þess að búa í Danmörku frekar en á Íslandi.

    Restin af þínum ummælum um mig dæma sig sjálf, og þig í leiðinni.

  27. Páll Skagfjörð júní 26, 2011 @

    Jón Frímann,

    Vegna íslensku krónunnar ?!??!???

    Fá Íslendingar í Danmörku laun í íslenskum krónum en ekki dönskum?!???!??

    Eða gastu ekki aflað þér tekna í Danmörku?

    Vegna yfirburðarþekkingar þinnar á ESB hefðir þú t.d. getað fengið starf hjá ESB-skrifstofunni í Danmörku (Europakommissionens kontor) eða þingskrifstofu ESB í Kaupmannahöfn (Europaparlamentets kontor).

    Þetta ætti að vera auðvelt fyrir þig enda Danmörk í ESB og því lífið svo auðvelt þar og það ætti því drjúpa smjör af hverju strái þar í landi.

    Bara að rétta út hendurnar og Evrum og DKK rignir yfir þig.

  28. Stefán B. Hjaltason júní 26, 2011 @

    Garðar Garðarson;
    Jú, núverandi ríkisstjórn gaf tvo íslenska banka til erlendra kröfuhafa (vogunarsjóða).

    Enginn hefur spurt spurninga út í þetta, en það verður gert seinna og rannsakað og sennilega (vonandi) verða þó Caeusescu-hjónin, Jóhanna og Steingrímur) dregin fyrir Landsdóm vegna þessa.

    Nei, það voru ekki neinir vinir Sjalla og Framsóknar sem töpuðu þúsundum mia.króna hér í bankasukkinu, flestir voru vinir Samfylkingarinnar og sér í lagi sérstakur skjólstæðingur hennar, Jón Ásgeir og félagar.

    Enginn nefnir þessa menn lengur né hlut þeirr í falli Íslands, þar á meðal þú.

    Þú lætur eins og þessir menn séu ekki til og hafi aldrei gert neitt rangt af þér.
    Það þýðir að þú ert jafn siðblindur og þessir banka- og fjármálasukkarar sem komu landinu á hausinn þegar þeir plötuðu út úr landsmönnum sparifé þess, svo þeir geti lifað í friði og vellystingum í útlöndum.

  29. Garðar Garðarsson júní 27, 2011 @

    Stefán B. Hjaltason, júní 26, 2011 @ 23:39, í hvaða landi býrð þú? Hverjir áttu Landsbankann? Svar, sjálfstæðismenn. Hverjir áttu Kaupþing? Svar, framsóknarmenn. Hverjir áttu Glitni? Svar, sjálfstæðismenn að mestu. Hvaða samfylkigarmenn áttu banka?

    Ég hef aldrei heyrt Jón Ásgeir segja að hann hafi verið í Samfylkingunni eða kosið hana, en ég hef heyrt að hann hafi stutt og kosið Sjálfstæðisflokkinn um tíma. Jóhannes í Bónus var flokksbundinn sjálfstæðismaður og studdi flokkinn fram að hruni.

    Stefán, kondu með einhverjar staðreyndir og nefndu þá samfylkingarmenn sem áttu stórann og ráðandi hlut í banka.

  30. Rafn B. Halldórs. júní 27, 2011 @

    Grímur, vertu rólegur yfir þessu. Þetta bitnar ekki á þér enda býrð þú heldur ekki í Danmörku eða í nálægum löndum.

    Danir hafa sjálfsagt góðar ástæður til að taka upp svona landamæraeftirlit, t.d. til að fylgjast með smygli á ólöglegum varningi eða vopnum, smygli á fólki t.d. vegna mansals, eða smygli á eiturlyfjum.
    Allt þetta smygl er víst mjög auðvelt milli ríkja í Evrópu í gegnum svona opin landamæri.

    Svo hafa verið krónísk vandamál vegna erlendra glæpagengja sem ferðast frá heimalöndum sínum til annarra landa í Evrópu til að fremja afbrot, og keyra svo strax aftur tilbaka til heimslandsins nást því aldrei.

    Danir hafa eflaust góðar og gyldar ástæður fyrir svona landamæraeftirliti.

    Svo ættum við líka að hafa í huga að Danmörk er miklu frjálslyndara og opnara samfélag en það Íslenska.

    Eftir að Jóhanna og co. komust til valda, hefur Ísland breyst í forræðishyggjuríki með ýmsum íþyngjandi boðum og bönnum þannig að frelsi og frjálslyndi er orðið mjög takmarkað hér á landi þar sem femínískur ofstopi ræður ríkjum.

    Ekki má heldur gleyma hinu stranga landamærieftirliti í Leifsstöð, en allir ferðamenn er fyrirfram stimplaðir glæpsamlegir smyglara og því leita tollverðir þar á öllum tollvörðu, allar töskur er gegnumlýstar, og varningur komufarþega gerður upptækur.
    Þannig er þetta ekki í Danmörku né í öðrum þeim löndum sem ég hef ferðast til, þar með talið Bandaríkin.

  31. Stefán B. Hjaltason júní 27, 2011 @

    Garðar Garðarson;

    Landsbankinn var í dreifðri eingaraðild en ekki í eigu Sjálfstæðisflokksins, þó svo að nokkrir Sjálfstæðismenn, einkum Kjartan Gunnarsson, hefðu átt stóran hlut í bankanum.

    Kaupþing var ekki í eigu í Framsóknarflokksin eða Framsóknarmann, þó svo að Óalfur Óalfsson hafi átt þar stóran hlut.
    Kaupþing var einnig í dreifðri eignaraðild, m.a. í eigu frægra útrásarvíkinga sem álitnir voru sérstakir skjólstæðingar Samfylkingarinnar.

    Á Glitni var alltaf litið svo á að um væri að ræða Samfylkingarbanka, því stór eigendahópur bankans voru aðildar sem Samfylkingin leit á sem sína skjólstæðinga, t.d. Bjarni Ármanns, Jón Ásgeir og félagar.

    Vera má að Jón Ásgeir og faðir hans hafi verið í Sjálfstæðisflokknum hér í eina tíð, en síðan um síðustu aldamót hafa þeir ekki verið í flokknum og alls ekki eftir 2002 þegar Baugsmálið hófst.

  32. Garðar Garðarsson júní 28, 2011 @

    Jóhannes í Bónus bað menn að kjósa Sjálfstæðisflokkinn árið 2007 sem sjálfstæðismaður í blaðaauglýsingum, en bað jafnframt menn að strika út Björn Bjarnason.

    Bjarni Ármanns og Jón Ásgeir hafa aldrei verið í Samfylkingunni svo vitað sé.

    Björgólfsfeðgar voru stærstu hluthafar Landsbankans og sjálfstæðismenn.

    Sigurður Einarsson og Ólafur Ólafsson voru meðal stærstu hluthafar Kaupþings og voru framsóknarmenn. Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri og framsóknarmaður réði miklu varðandi Kaupþing.

    Hér eru nokkrir af stærstu hluthöfum Glitnis árið 2007 og nokkrir áttu hlut í gegnum FL Group, og flestir ef ekki allir voru sjálfstæðismenn:
    Hannes Smárason, Jón Asgeir og fjölskylda, Kristinn Björnsson, Þorstienn Már Baldvinsson, Þorsteinn Jónsson, Pálmi Haraldsson, Magnús Ármann, Jón Kristjánsson, Guðbjörg Matthíasdóttir, o.fl.

    Stefán nefndu nú nokkra stærstu hluthafa bankanna fyrir hrun sem vitað er með vissu að voru samfylkingarmenn.

  33. Stefán B. Hjaltason júní 29, 2011 @

    Garðar Garðarsson;
    Það má vel vera að þessir bankar hafi verið í eigu einhverra aðila sem hafi einvhern tímanna verið í Sjálfstæðis- og Framsóknarflokknum.

    Þetta sýnir bara dugnað og áræði þessara manna í samanburði við ræfilshátt vinstrimanna, sem vilja að ríkið hugsi um þá og vilja því vera á spenanum hjá hinu opinbera.

    Aftur á mót voru margir stjórnendur bankann fyrir hrun valinkunnið Samfylkingarfólk. Nefni nokkur dæmi;

    Í Landsbankanum voru t.d. margir lykilstjórnendur í Samfylkingunni t.d.:

    - Yngvi Örn sem var forstöðumaður verðbréfasviðs
    - Arnar Guðmundsson, sem einnig var háttsettur þar,
    - Edda Rósa Karlsdóttir, sem var forstöðumaður greinigardeildar sem var í raun áróðursdeild bankans

    Í Kaupþingi var Kristín Pétursdóttir, núverandi eigandi Auðar Capital, sem var aðst.forstjóri Singer and Friedlander.

    Björgólfarnir voru löngu hætti í Sjálfstæðisflokknum þegar þeir eignuðusst Landsbankann, Sigurður Einarsson var óflokksbundinn, og Jón Ásgeir og vinir hans voru sömuleiðis allir óflokksbundnir, svo vitað sé.

    En að segja að þessir bankar hafi verið í eigu Sjálfstæðis- og Framsóknarflokka, er beinlínis rangt hjá þér.

  34. Garðar Garðarsson júní 29, 2011 @

    Stefán þetta er hálf hlægilegt hjá þér.

    Ingvi Örn er engan veginn samfylkingarmaður og sennilega óflokksbundinn eins og sennilega allir sem þú nefnir sem voru flestir millistjórnendur og tóku ekki endanlegar ákvarðanir í stórum málum.

    Fyrir þá er aðhyllast sértrúarsöfnuð Sjalla þá eru allir óflokksbundnir og sérstaklega sérfræðingar sem vinstri flokkar hafa leitað til vegna úttektar eða sérfræðiþekkingar flokkaðir einhverjum flokkanna til vinstri eftir hentisemi í pólitísku karpi. Vegna þessara fáránlegu flokkunar Sjalla þá hafa margir gerst sjálfstæðismenn til að vera ekki settir út í horn af Flokknum sem hefur verið við stjórnartaumana stærstan hluta lýðveldistímabilsins.

    Ég þakka fyrir umræðuna þó ekki hafi hún verið sérlega málefnaleg. Við erum að komast út í horn og langt frá umræðuefninu sem var upphaflega um lýðræðið og einangrunarhyggju í sumum nágrannaríkjum okkar og hér á landi.

Villta hægrið

Óflokkað | Ummæli (34) Facebook

Vinsældir stjórnmálaflokka, sem spila á strengi fáfræði og múgæsingar, fara vaxandi í heiminum í dag – ekki síst í Evrópu. Orðraforðinn er gjarnan þessi:„Landamæraeftirlit; Þeir eru að taka vinnuna frá okkur (útlendingarnir); Það fylgja þeim glæpir og ósiðir (útlendingunum); Fæðuöryggi; Finnland fyrir Finna; Forza Italia; Þeir ætla að taka rafmagnið og fiskinn; Við borgum ekki skuldir óreiðumanna og ….er land þitt og því aldrei skalt gleyma.“

Danmörk í skugga forheimskunnar sem fylgir Dansk Folkeparti hefur nú ákvæðið að loka landamærum sínum aftur. Það þarf jú að stöðva glæpamennina og vernda danska tungu og dönsk gildi. Þessa hugmyndafræði hafa Björn Bjarnason, Hjörleifur Guttormsson o.fl.  aðhyllts  – líklega vegna kaldastríðsskaða – og spila þannig á strengi þjóðernishyggju og einangrunnar. Landamærunum verður að loka. Mafíurnar eru jú út um allt og þær þarf að stoppa. Fyrirlitninguna sjáum við m.a. á Keflavíkurflugvelli þar sem þeir brúnu og gulu eru lengur að komast í gegnum vegabréfaeftirlitið en þessir skjannahvítu.

Það er svo einfalt að segja það: „Lokum aftur – þá verðum við örugg og vandamálin sem fylgja óæskilegu fólki frá öðrum löndum verða úr sögunni.“ Og kannski munum við vernda skammtímahagsmuni okkar með aðgerðum eins og landamæralokunum. Svörtu sauðirnir „fylla ekki fangelsinn lengur“, útlendingar taka ekki atvinnu frá okkur (út um alla Evrópu) og við verðum „örugg“. Við losnum við vandamálin. Hljómar vel ekki satt?

En hverjar verða raunverulegar afleiðingar þessarar auknu einangrunarhyggju? Spenna ríkja í milli mun aukast. Ójafnvægi á milli landa þar sem bilið á milli fátækra og hinna ríku verður sem aldrei fyrr. Sagan er full af minnisvörðum sem reistir voru á grunni fáfræði og hræðslu. Afleiðingarnar blasa við öllum þeim sem nenna að opna augun og slökkva á imbakassanum um stund. Fáfræði og ótti eru systur sem geta fátt gott af sér.

Það er svo einfallt að kenna öðrum um það sem miður fer. Fórnum því ekki langtímahagsmunum okkar fyrir löngun í þægindi hvar skammtímahagsmunir ráða för. Opnum augun og horfum í kringum okkur í stað þess að horfa stöðugt á eigin rass. Aðgerðir Danmerkur og villta hægrisins í heiminum munu ekki hafa neitt gott í för með sér til lengri tíma.

Grímur Atlason @ 25. júní, 2011


Skrifa ummæli

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Kæfuvörn:   Hver er summan af fimm og einum? Svar: