Var einhver að tala um pólitík?
Óflokkað | Ummæli (9) Facebook
Var í Grikklandi síðustu helgi hvar ég las í blaði fréttir frá Íslandi. Geir Hilmar og Landsdómurinn var fréttaefnið. Grikkjunum þótti merkilegt að forsætisráðherrann fyrrverandi hefði játað að hafa tekið við peningum frá bankanum sem færði Bretum og Hollendingum Icesave. Þið munið – þetta sem varla náði seinnifréttum á Íslandi.
Grikkjum, sem margir hér á eyjunni köldu álíta samnefnara þess sem er spilltast, þykja þetta semsagt töluverð tíðindi. Nóg er víst að frétta þar í landi þessa dagana. Þeir eru ekki mikið að viðurkenna opinberlega þegar þeir taka við mútugreiðslum – því slíkar peningagjafir eru ekkert annað. Á Íslandi er hins vegar á sama tíma haldið stuðningskvöld og safnað á bankareikninga fyrir þetta meinta fórnarlamb réttvísinnar. Þangað mæta m.a. bankamennirnir gömlu ásamt pólitískum útlögum.
Mér þykir því rétt að spyrja þær stöllur sem gráta hvað hæst: Var einhver að tala um pólitík?
Grímur Atlason @ 17. júní, 2011
Grímur Atlason
Geir er sekur um aðgerðaleysi. En Davíð segist hafa varað við því að bankarnir væru á leið í þrot. Kom samt ekki í veg fyrir, sem yfireftirlitsmaður fjármála, að Landsbankinn færi glórulausar innistæðusafnanir í Bretlandi og Hollandi. Segir síðan eftir hrun við borgum útlendingum ekki neitt. Er þetta ekki kriminalt? Er engin réttur fyrir höfuðpaurinn?
Las í Vísi uppgjör við hrunið snýst um sannleikann, þessi grein er mjög góð og segir allt sem segja þarf
Er ekki Kristrún Heimisdóttir í miðju valdaklíkunnar sem ræður Stjórnarráðinu ? er ekki Möllerissimo aðal skaffarinn í Norð-Austurkjördæmi. Myndi ekki kalla stuðningsmenn “ Hjálpum Haardeman“ utangarðsmenn heldur er þetta sjálf valdstjórnin í “ sínum frítíma“ eftir vinnu í stjórnarráðinu sem “ skundar á þjóðfund í Hörpu“ ásamt Ingibjörgu Sólrún leiðtoga frjálshyggudeildar S-listans sem formaði kjörorðið “ Þið fáið ekkert fyrir skattféð ykkar því þið kusuð Samfylkinguna “.
Geir Hilmar og Landsdómurinn var fréttaefnið. Grikkjunum þótti merkilegt að forsætisráðherrann fyrrverandi hefði játað að hafa tekið við peningum frá bankanum sem færði Bretum og Hollendingum Icesave. Þið munið – þetta sem varla náði seinnifréttum á Íslandi.
gætirðu útskýrt þetta fyrir mér?
Grímur.
Þú veist að það er enginn ,,fréttatími“ til í íslenskum fjölmiðlum lengur .
Það eru bara copy/paste frá PR-liðinu, eins og þú ert að vinna núna .
Um hvaða ,,pólitík“ er þú að tala um ?
Þið þetta lið, sem hafið unnið sem atvinnupólitíkusar, hugsið um eigið rassgat og það á um ykkur alla !
Þú ert ekkert undanskilin !
Loksins er félagi Grímur byrjaður að opinbera. Dásamlega orðaður sannleikur lyginni líkastur.
LÁ
Erling: Þú verður bara að átta þig á þessu sjálfur.
JR (nafnleysingi): Þú mátt vel tala um rassgatið á mér og hversu vel ég hugsa um það eða ekki – en atvinnupólitíkus hef ég aldrei verið.
Geir var ekki ákærður af landsdómi fyrir að þiggja mútur ef það ser það sem Grímur er að ýja að. Grikkjum til fróðleiks, þá hefði kannski átt að skýra þeim frá þvi hvernig utanríkisráðherrann Össur Skarphéðinsson náði að selja stofnbréf í Sparisjóði með tæplega 80 milljóna hagnaði á gráa markaðinum, þegar enginn var að selja, nema kannski nokkrir innherjar. Þessum Grikkjum þætti enn undarlegra ef þeir vissu að í rannsóknarskýrslunni tekur Össur þessi það sérstaklega fram að hann hafi ekkert vit á viðskiptum eða fjármálum. Af hverju þá þessi hundaheppni? Grikkjum þætti það svo ENN skrýtnara ef þeir fengju að vita að ENN er ekki farið að rannsaka fall sparisjóðanna.
Það væri kannski verðugt verkefni fyrir spunadeild samfylkingarinnar á Hallveigastígnum að koma með einhverjar fréttatilkynningar til handa grikkjum? svo þeir átti sig á þvi sem raunverulega gerðist hérna í hruninu mikla. Kannski myndu þeir þá átta sig á því að lang mest af þeim peningum sem töpuðust voru á forræði einkaaðila, en ekki ríkissins. Einkaaðila sem margir hverjir voru undir verndarvæng samfylkingar og höfðu verið það um áraraðir. Ætli það þurfi ekki að útskýra eitt og annað fyrir grikkjum áður en þeir stökkva á einhverja niðurstöðu’
Hvað kemur Össur Skarphéðinsson því við þó Grikkir furði sig á því að Sjálfstæðisflokkurinn hafi tekið við tugum milljóna frá bankanum sem fyrrverandi foringi flokksins gaf vinum sínum nokkrum árum áður?