8 athugasemdir

  1. GVald maí 19, 2011 @

    Ég er sammála þér um allt nema um veiðiaukninguna. Þú kallar eftir því að álit sérfræðings sé virt og að það sé tekið mark á honum vegna sérþekkingar.

    Það sama á að gilda um veiðiráðgjöf. Okkar færustu sérfræðingar hafa mælt með ákveðinni veiði á fiskveiðiárinu, virðum þeirra álit.

  2. birgir maí 19, 2011 @

    Ómögulegt að greiða þetta sjálf? Þú sveitastjóri og konan lögfræðingur? Hvað er svona hrikalegt við að millistéttarfólk borgi einhverja þjónustu og millifærslusóun sé takmörkuð í kerfinu. Það er brjálæðisleg velferð á íslandi, í raun alltof mikil. Meina þetta ekki illa – ef þið hafið ekki efni á þessu með nokkru móti þá er sjálfssagt að ríkið styrki ykkur, en til hvers að hækka skatta á alla, með tilheyrandi neikvæðum áhrifum, svo fólk sem hefur efni á þjónustunni fái hana borgaða fyrir sig? Þetta er akkúrat kerfið sem svíar hafa unnið í 20 ár við að losa sig við. Það er líka ekki heilsteypt að telja sig vera með frítt spil í framkomu því málstaðurinn sé svo góður. Hverjum þykir fugl sinn fagur og allt það.

  3. Helga Vala Helgadóttir maí 19, 2011 @

    Birgir. Þetta snýst ekki síst um réttlæti. Ef stúlkan hefði brotið á sér höfuðkúpuna, nef eða fót þá hefði velferðarkerfið tekið þátt í kostnaði við að lækna og líkna. Reglugerðin er skýr. Hún segir að taka eigi þátt í kostnaði sem fellur til vegna alvarlegra afleiðinga slyss eins og þessa – BURT SÉÐ FRÁ TEKJUM FORELDRA TJÓNÞOLA enda koma þær málinu ekki við. Get reyndar sýnt þér námslánin sem ég hef fengið undanfarin ár ef þú hefur áhuga…. en líkast til hefur þú engan áhuga á slíku. Hlakka hins vegar til að fá að greiða skatta svo að þú og fjölskylda þín fái notið heilbrigðisþjónustu, enda vil ég að við höfum það á þann veg óháð því hvað þú eða börn þín hafa í laun. En … það er nú kannski bara mitt örlæti…

  4. Sigurður Sigurðsson maí 19, 2011 @

    Mér finnst þetta snúast um að kerfið fær að njóta vafans en ekki sjúklingurinn.

  5. Margrét maí 19, 2011 @

    Af hverju í ósköpunum eru tennur og tannheilsa ekki metin til jafns við aðra hluta og hluti líkamans hér á þessu skítaskeri?
    Er það vegna þess að tannlæknar eru FLokksbundnir og vilja geta okrað og grætt ótakmarkað og (4-flokks)kerfið hefur þjónustað þeirra græðgi eins og græðgi annarra flokksmanna?

  6. Grímur Atlason maí 19, 2011 @

    Svíar eru hreint ekki að reyna að losna við það kerfi að 18 ára og yngi borgi ekki fyrir heilbrigðisþjónustu þar með taldar tannlækningar. Við búum sem betur fer í landi sem hendir ekki fólki út á gaddinn þegar það fær hjartaáfall og er í skyndi sent á spítala nú eða fótbrotnar. Sumir þessara einstaklinga ástunda áhættulifnað: eru feitir, eru drykkjusjúkir, reykja sígarettur o.s.frv. Við tökum við þessu fólki og það er gott.

    Rétt er það að ég og mín fjölskylda greiðum það sem við þurfum að greiða til þess að barnið okkar fái bestu þjónustu sem í boði er – og við látum ekki veraldleg gæði á öðrum sviðum hindra það. En kerfi án mismununar er það sem máli skiptir. Ég sagði hins vegar aldrei að ég gæti ómögulega greitt reikningana – það hef ég gert og geri svo lengi sem ég þarf!

    Rök þín Birgir eru þunn og snúast án efa meira um pirring í minn garð en um raunverulega stöðu. Það er fullt af fólki sem er ekki til í að eyða nokkrum milljónum á ári í tannviðerðir og fullt af fólki sem hefur engnan veginn efni á því. Ég hef ekki efni á því en geri það samt – það breytir hins vegar engu um raunveruleikann: Ísland er eitt fárra ríkja í hinum siðmenntaða heimi sem býður upp á svona þjónustu fyrir þegna sína – það skiptir nákvæmlega engu máli að ég hafi verið sveitarstjóri eða konan mín hafi lokið mastersprófi í lögum fyrir 2 dögum!

  7. hildur maí 19, 2011 @

    Af einhverjum orsökum eru tennur lúxus á Íslandi en hlutir eins og bílar sjálfsagðir sbr. stefnu í skuldaaðlögun á landinu. Alltaf er það húsnæðið og bíllinn sem er tekið með í dæmið.

    Segi ég, sem er með massíf námslán á bakinu eftir að hafa verið í námi í Skandinavíu. Þar sem tennur eru einmitt skilgreindur hluti af líkama fólks.

    Og Margrét. Það getur vel verið að sumir tannlæknar séu í FLokknum en það er pólitísk ákvörðun að taka ekki þátt í niðurgreiðslu á þeirra þjónustu, eins og gert er með aðra lækna. Af einhverjum ástæðum eiga tannlæknar að starfa á samkeppnismarkaði og lítið sem ekkert er tekið þátt í kostnaði, eins og ykkar dæmi sýnir á sorglegan hátt. Samt er þetta fólk með mikla ábyrgð, langa menntun að baki, dýr tæki og oftar en ekki fólk í vinnu á stofum sínum. Þykir alveg sjálfsagt að Tryggingastofnun borgi húðlæknum upp í topp? Er heilbrigð húð ekki bara pjatt?

  8. Páll Þór Jónsson maí 19, 2011 @

    Góður pistill.
    Það kostar GBP 6 að fá holufyllingu í Skotlandi. Er einfaldlega hluti af velferðarkerfi þeirra. Menn greiða þetta að sjálfssögðu til baka með sköttum.

    Að halda því fram að hér sé til staðar norrænt velferðarkerfi er hugarburður einn. Við erum langt á eftir nágrannaþjóðum hvað það varðar en erum sérlega dugleg við að telja okkur trú um hið gagnstæða. Baldur McQueen hefur m.a. fjallað ágætlega um málið.

SÍ og velferðarstjórnin

Óflokkað | Ummæli (8) Facebook

Sjúkratryggingar Íslands synjuðu dóttur minni á síðasta ári um að greiða fyrir meðferð hennar vegna tannmissis sem hún varð fyrir árið 2007. Við kærðum þá niðurstöðu til einhvers áfrýjunarapparats sem óskaði eftir rökstuðningi frá SÍ sem tók sér síðan marga mánuði til að svara. Svarið barst okkur í síðustu viku. Þar segir m.a. að ekki sé hægt að fullyrða að dóttir mín hefði ekki þurft á tannréttingum að halda hefði hún ekki lent í slysi – og því sé eðlilegt að synja henni um endurgreiðsluna í samræmi við það sem segi lög og reglur segja. En að sjálfsögðu er okkur frjálst að punga út fyrir þessu sjálf nú eða færa henni falskar og góm í fermingargjöf – líkt og þekktist hér á árum áður.

Sérfræðingurinn sem unnið hefur með dóttur mína sl. 4 ár skrifaði í álitsbréfi sem SÍ óskaði eftir áður en apparatið andmælti kærunni: „Það er mitt mat að sennilega hefði [hún] ekki þurft tannréttingar ef hún hefði ekki lent í þessu slysi.“ Þetta er auðvitað með ólíkindum! Sérfræðingurinn gefur álit sem SÍ hendir út um gluggann – pakk!

SÍ hefur kvartað undan framkomu okkar foreldranna vegna þessa máls. Starfsfólk þar hefur sagt okkur ósanngjörn í þeirra garð. Mér er slétt sama um tilfinningar starfsmanna SÍ – það virðist ekki vaka neitt faglegt eða sanngjarnt fyrir því fólki sem fer með málefni dóttur minnar. Ég segi aftur og enn að það er fullkomin hneisa hvernig komið er fyrir tannheilsu í íslenska heilbrigðiskerfinu! Við eigum bara að skammast okkar!

Félagshyggjustjórn hefur ríkt hér í nafni velferðar sl. 2 ár og við búum enn við tvöfalt heilbrigðiskerfi og stofnanir eins og SÍ. Nú er mál að linni: Hendum sýslumönnum, sameinum sveitarfélög, veiðum 30.000 tonn til viðbótar, hagræðum í vitleysunni og búum við velferð ekki ameríska stéttaskiptingu!

Grímur Atlason @ 19. maí, 2011


Skrifa ummæli

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Kæfuvörn:   Hver er summan af fimm og einum? Svar: