16 athugasemdir

  1. Hrafn Arnarson maí 8, 2011 @

    Ég skrifa með þeim fyrirvara að ég heyrði ekki viðtalið. Það er löngu ljóst að VG eru klofnir í tvo arma. Líklegt verður að teljast að flokkurinn klofni formlega og endanlega. Viðræðurnar við ESB eru í eðlilegum gangi. Slíkir samningar eru gífurlega flóknir og taka tíma. Auðvitað gerir ESB sér nákvæma grein fyrir stjórnmálaástandinu hér á landi. Það kom berlega í ljós í nýlegri skýrslu frá nefnd á Evrópuþinginu. Sambúð Samfylkingar og VG er erfið en verri yrði staða beggja í stjórnarsambandi við aðra flokka. Stjórnin er illskásti kosturinn og hún mun lifa lengi, spái ég. Ögmundur er ekki óútreiknanlegur. Það eru fæstir stjórnmálamenn. Þeir beita allir svipuðum aðferðum.

  2. Elín Sigurðardóttir maí 8, 2011 @

    Evrópusambandið er bákn. Kaupmenn fluttu sig yfir í Kringluna vegna þess að þeir töldu það hagstæðara. Þar ræður stærsti aðilinn og valtar yfir hina. Fjarlægir rúllustiga vegna þess að hann vill fá allar kökurnar og ekkert minna. Formaður samtaka verslunar og þjónustu emjar undan 20% kjarabót verslunarfólki til handa. Stórar matvöruverslanir geta ekki borgað sómasamleg laun. Hver fær hagnaðinn Grímur?

    http://www.mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?grein_id=653834

  3. Rekkinn maí 8, 2011 @

    Ögmundur tekur afstöðu til ESB út frá alþekktum staðreyndum um þetta tollabandalag. Allt sem þörf er á að vita um ESB liggur ljóst fyrir nú þegar. Þetta veit Ömmi og myndar sér skoðun út frá þessum fyrirliggjandi staðreyndum um ESB. Það er eðlilegt að gera eins og meirihluti Íslendinga gerir einnig. Ömmi er á móti inngöngu Íslands í ESB á þessum forsendum eins og flestir Íslndingar eru einnig. Þessa einföldu staðreynd skilur fáviti eins og þú ekki.

  4. Hólmfríður Bjarnadóttir maí 8, 2011 @

    Það er ömurlegt að dragst með svona drauga eins og Ögmund og félaga í lestinni þegar verið er að vinna samfélagið út úr því gjörspillta samfélagi sem við höfum búið í undanfaran áratugi. Þegar okkur stendur til boða að stokka upp og koma hér á samfélagi jafnaðar og félagshyggju og verða aðili að samfélagi þjóða þar sem jarðvegurinn er frjór fyrir slíkt, þá kemur svona laumuíhald af vinstri kantinum og truflar sem mest það má. Hvern er verið að vernda – ég bara spyr

  5. Grimur Atlason maí 8, 2011 @

    Fyrst afstada Ogmundar til ESB adildar la fyrir – hvers vegna var hann tha fella tillogu Hjorleifs a landsfundinum 2009? Thad var hann sem gerdi stjornarsamstarf VG og Samfylkingar mogulegt – hann opnadi a thetta sem hann nu vill rumpa af no matter what….

  6. Úlfar Hauksson maí 8, 2011 @

    Sá sem skrifar undir merkjum REKKINN hlýtur að vera Davíð Odds eða HHG. „alþekktum staðreyndum um þetta tollabandalag“ er svona davíðska.

  7. Gunnlaugur Ingvarsson maí 8, 2011 @

    Sæll Grímur.
    Af því að Ögmundur er á móti ESB og hefur rökstutt þá afstöðu sína mjög vel marg oft og mikill meirihluti þjóðarinnar er honum sammála í því. Þá segir þú í mikilli vandlætingu þinni að Ögmundur fari með „dómadags rugl og þvælu sem sé ekki sæmandi manni í hans stöðu“

    Það er eins gott að þú sért ekki í hárri stöðu Grímur Atlason því að þá yrði ruglið og bullið um ESB þér ekki sæmandi.

    En af því að þú hefur ekki úr háum söðli að detta með þitt rugl og bull um dýrðir ESB apparatsins þá skiptir afstaða þín og áróður nánast engu máli og sæmir þér og þínum öfgafulla ESB sértrúarsöfnuði reyndar alveg hæfilega !

  8. Grímur Atlason maí 8, 2011 @

    Ég má detta úr þeim öllum þeim söðlum sem mér sýnist. Ég sit heldur ekki í ríkisstjórn sem samþykkti aðildarumsókn að ESB. Og ég greiddi heldur ekki atkvæði með aðildarumsókninni eins og innanríkisráðherra.

    Hvers vegna að stöðva viðræður núna og rumpa þessu af? Af hverju má ekki klára þetta mál núna? Það er ekkert samsæri í gangi hjá ESB gagnvart okkur – og ef einhver er að falla úr háum söðli þá er það innanríkisráðherra sem ætti að hugsa áður an hann hendir fullyrðingum um slíkt samsæri fram.

    Ögmundur þarf ekki að tala svona mikið hann getur bara komið fram með tillögu á ríkisstjórnarfundi eða í þinginu og látið á það reyna. Hann getur líka notað sama vettvang fyrir önnur mál sem hann er að básúna í fjölmiðlum um – eins og t.d. að hæstu laun ekki að vera hærri en sem nemur þreföldum lægstu launum. Eða er þetta kannski allt bara í nösunum á Ögmundi?

    Ég mun kjósa um ESB aðild þegar að því kemur – en þrátt fyrir að ég haldi að það sé gott fyrir þjóðina í dag að ganga í sambandið mun ég ekki segja já „no matter what“.

  9. Ögmundur Jónasson maí 8, 2011 @

    Ég samþykkti ekki að ganga til viðræðna við ESB til að sjá hvað kæmi út úr þeim viðræðum. Ég er andvígur inngöngu vegna lýðræðisþröskuldanna í ESB. Ég samþykkti viðræður vegna þess að ég veit að þau eru mörg sem vilja ganga í ESB og einnig hin sem vilja láta reyna á hvað kæmi út úr viðræðum. Mér sýnist þú vera í þeim hópi. Ég vildi með öðrum orðum verða við lýðræðislegri kröfu drjúgs hluta þjóðarinnar um viðræður við ESB og síðan kosningu úm málið. Ég kem ekki auga á mótsögn í þessari afstöðu. Hún er fullkomlega málefnaleg. Að öðru leyti ætla ég ekki að svara sleggjudómum þínum um mig og mínar skoðanir Grímur. Þú hefur þann hátt á sem þér finnst sæmandi.

  10. Gunnlaugur Ingvarsson maí 8, 2011 @

    Nú kemur Ögmundur sjálfur hér inn og svarar öfga ESB sinnanum Grími Atlasyni fullum hálsi. Þa’ var nú kannski óþarfi hjá ráðherranum að eyða púðri á þennan þúfutittling ESB trúboðsins. Ögmundur gerir honum þó ljóst að hann ætli samt ekki að svara stóryrðum hans og sleggjudómum.

    Það var mjög viturlegt hjá Ögmundi, því svona galtómar og gasprandi ESB tunnur eins og Grímur Atlason dæma sig sjálfar úr leik og eru bestu meðmælin fyrir því að Ísland og þjóðin öll skuli halda sig fjarri ESB elítunni og því handónýta og úrsérgengna spillingarpakki.

  11. Einar Marel maí 8, 2011 @

    Eithhvað hafa ummæli Gríms tekið í fyrst Ögmundur hefur fyrir því að svara. Það hlýtur að vera erfitt að dansa þennan línudans, að vera í stjórn sem er í samingaviðræðum við ESB en vera í hjarta sínu ósammála gjörningnum. Þá er það spurninginn hvers vegna í ósköpunum maðurinn var að koma sér í þessa aðstöðu. Vera á móti en samt vera með.

  12. Níels hermannsson maí 8, 2011 @

    Ögmundur skrifar að hann hafi ekki samþykkt að ganga til viðræðna við EB til að sjá hvað kæmi út úr þeim viðræðum. Nú vill svo til að ríksistjórn Íslands samþykkti að byrja viðræður við EB. Ögmundur er ráðherra í þessari ríkisstjórn. Það sem hann þó segir er að hann sé eiginlega ekki aðli að þessum viðræðum, því hann sé alfarið á móti og verði á móti, hvað sem í boði kann að verða. Svo Ögmundur er og er ekki í könnunarviðræðum við EB. Það er göfugt að vilja leyfa þeim sem vilja að hefja viðræður. Og vel getur verið að Ögmundur sé göfugt prinsippmenni. En hvers vegna þá ekki að stíga skrefið til fulls Ögmundur, draga sig úr áhrifastöðu og gefa ríkistjórninni, sem þú viðurkennir að fari í könnunnarviðræður vegna þess að býsna margir vilja fá að kanna hvað út úr þeim gæti komið, eðlilegan starfsgrundvöll? Væri það ekki bæði, skýrari, röklegri og stórbrotnari prinsippmennska? Hvaða málefni og lausnir hefur þú einn og sér svo mikilvægar fram að færa að það réttlæti setu þín á ráðherrastóli, þó þú sért margítrekað í nokkurs konar, ekki bara stjórnarandstöðu heldur í klári andstöðu við meirihlutan í þínum eigin stjórmálaflokki?

  13. Gísli Baldvinsson maí 8, 2011 @

    Grímur skrifar hér vaskmannslega líkt og við gerðum sem ungir menn, Ögmundur. Það má alveg túlka fyrirfram andstöðu þína í þessu viðtali. En gott að þú hafir nennu, sem fyrr, að svara.

  14. Grímur Atlason maí 9, 2011 @

    Sleggjudómar? Ég bendi á staðreyndir og spyr síðan hvers vegna og bendi síðan á nokkra möguleika sem hugsanlega gætu verið svar við spurningunni.

    Að sækja um Evrópusambandsaðild og semja síðan í kjölfarið er ekki eins og að ganga frá moggaáskrift. Að halda því fram að við getum rumpað þessu af er því í mínum augum ekkert annað en lýðskrum en þó væntanlega til einhvers brúks fyrir viðkomandi. Að koma núna fram og segja að þú hafir gert mistök er líka til einhvers brúks í dag – það hlýtur bara að vera.

    Mig langar til að spyrja þig Ögmundur að einu: Var breytingartillaga þín við tillögu Hjörleifs á landsfundinum þá líka mistök og ef svo er til hvaða brúks væru yfirlýsingar þínar þess efnis í dag?

  15. esb Andstæðingur maí 9, 2011 @

    Það sýnir sig vel nú, að það er viturlegt hjá jóhönnu að endurtaka ekki orð sín;“Þjóðaratkvæðagreiðslan um esb getur ekki verið bindandi. Það væri brot á lögum um alþingi!“

  16. Ari maí 9, 2011 @

    Það er allt í lagi að vera á móti aðildarviðræðum og hvað kemur út úr þeim ef að maður hefur þá prinsippafstöðu að vilja yfirleitt ekki ESB-valdið yfir okkur. Íslenskur kjósandi mun vera mun lengra frá ESB-Valdinu en hinu íslenska. Þetta er sú afstaða sem sumir taka.

Ömm á sunnudegi

Óflokkað | Ummæli (16) Facebook

Ögmundur Jónasson er á móti inngöngu í ESB alveg sama hvað kemur út úr aðildarviðræðunum. Þetta sagði hann í útvarpsviðtali nú í hádeginu. Hverskonar þingmaður/ráðherra er það sem tekur ekki afstöðu til mála út frá staðreyndum og rökum? Hvað ef samningurinn verður okkur afar hagstæður?

Ögmundur talaði síðan um seinagang ESB og að það þyrfti að flýta ferlinu og kjósa sem fyrst. Hér mætti ætla að maður með enga þekkingu á málunum væri að tjá sig við félagana yfir leiknum á Players. En það er ekki svo – hér talar innanríkisráðherra í ríkisstjórn lands sem á í flóknum samningaviðræðum við ríkjabandalag. Hann heldur því fram að viðsemjendurnir dragi lappirnar og séu að þreyta „bráðina“ – best sé að rumpa þessu af. Hvaða vitleysa er þetta í manninum? Er honum alvara – eða er þetta enn eitt sýndarupphlaupið?

Hvað veldur því að Ögmundur fer fram með þessum hætti? Það er spurning en það er ýmislegt sem kemur til greina:

  1. Hann er að plasera sig sem foringja í VG eða nýju afli.
  2. Hann telur ríkisstjórnina vera komna á leiðarenda og býr því til ágreining.
  3. Hann hefur eina prinsipp skoðun sem mun aldrei verða breytt – hvað sem tautar og raular.
  4. Ögmundur er óútreiknanlegur og segir bara eitthvað.
  5. Það eru erfið mál á borði ráðherra og hann kýs frekar að fara en að horfast í augu við þau. (Þetta var hávær skýring við síðustu brottför Ögmundar).
  6. Ráðherrann notar ESB sem smjörklípu í þeim tilgangi að fela vanmátt eigin ráðuneytis þegar allra augu beinast að því.

Hvað sem  um ræður fer maðurinn með dómadags rugl og þvælu sem ekki er sæmandi manni í hans stöðu.

Grímur Atlason @ 8. maí, 2011


Skrifa ummæli

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Kæfuvörn:   Hver er summan af fimm og átta? Svar: