Upp með helvítis sokkana!
Óflokkað | Ummæli (6) Facebook
Í fyrradag kynnti velferðarráðherra til leiks reglugerð um tímabundna tannlæknaþjónustu við börn tekjulágra. Þjónustan verður veitt í tæpa 3 mánuði í sumar og þurfa foreldar að sækja um þjónustuna hjá SÍ fyrir 1. júní nk. Börn sem hafa orðið fyrir tannskaða vegna slysa og/eða fæðingagalla eru hér ekki tekin með frekar en fyrri daginn og viðmiðin eru talsvert lág – í því árferði sem við búum við í dag.
Þessi reglugerð er íslenskri þjóð til skammar. Ein ríkasta þjóð heimsins býður þegnum sínum upp á tvöfalt heilbrigðiskerfi hvar efnafólk kemst af en aðrir þurfa að hugsa sig tvisvar um áður en þeir leita sér lækninga. Í tæpa 3 mánuði geta börn sem falla að viðmiðunum fengið þjónustu og síðan fer allt í sama farið.
Nú er kominn tími á að þessi svokallaða vinstristjórn sýni klærnar. Það er vissulega svo að hnignunin hófst með innleiðingu moggaritstjórans í landsmálin fyrir um 20 árum en það afsakar ekki neitt. Það eru ákveðin atriði sem félagshyggjufólk tekur ekki þátt í. Þetta er eitt þeirra og er í efsta forgangi. Þess vegna á ríkisstjórnin að fara á vinnufund í sumarbústað í eina viku og það án embættismannaklíkunnar sem segir ekkert vera hægt. Í bústaðnum á þetta fólk að teikna upp hvað þarf að gera og hvað eigi að njóta forgangs í samfélaginu og hvernig það skuli fjármagnað. Það verður alltaf sársaukafullt en hrunið er vont – það er bara ekki hægt að beita þessum foráttuheimska flata niðurskurði endalaust.
Ef ríkisstjórnina skortir kjark eða hugmyndaflug er þetta ágæt byrjun:
- Auka þorskkvótann um 50 þúsund tonn og innheimta 10% auðlindagjald.
- Setja 7% virðisaukaskatt á alla menningarstarfsemi (eykur veltu ríkissjóðs en kemur listamönnum einnig vel – það gerir bilið á milli inn- og útskatts).
- Fækka sýslumönnum um 90% og opna síðan sameiginlegar þjónustueiningar með sveitarfélagastiginu.
- Fækka sveitarfélögum um 90%.
- Fresta öllum ónauðsynlegum vegaframkvæmdum.
- Skera niður framlög til bændahallarinnar um 50% – 300 m.kr. þar.
- Leggja niður fjárlaganefnd í núverandi mynd – galið að alþingismenn dreifi dúsum í kjördæmum sínum.
- Afnema skúffupeninga.
- Setja á sérstakan afskriftaskatt – 10% væri ágæt tala. Þannig fengi ríkissjóður t.d. 40 m.kr. af 400 m.kr. afskrift fyrirtækis í fullum rekstri. Mér sýnist sum þessara fyrirtækja vera vel aflögufær eins og nýleg dæmi sanna.
- Að SÍ noti þá peninga, sem stofnuninni er ætlað til tannlækninga, í stað þess að skila afgangi – það er fáránlegt og ólýðandi enda aðferðirnar, sem stofnunin notar til að ná þessum árangri, sorglegar.
Við gætum með þessu fjármagnað heilbrigðisþjónustu barnanna okkar og ættum án efa afgang til þess að bæta önnur göt í velferðarnetinu. Þetta er verkefni velferðarstjórnar – ekki útgáfa bændablaðsins eða kjördæmamútur til velvalinna. Þetta eru grundvallaspurningar og þeim þurfum við hafa dug í okkur til að svara. Upp með helvítis sokkana!
Grímur Atlason @ 28. apríl, 2011
Grímur Atlason
Það er þessu máli kannski óviðkomandi, og þó. Fyrr í vikunni hélt breskur verkfærðingur fyrirlestur um nýja hugsun varðandi m.a. skipulagsmál m.t.t. orkusparnaðar. Hann kom dálítið inn á hvernig samspil skipulags og umferðar gæti þýtt orkusparnað. Í því samhengi datt manni ósjálfrátt í hug byggðastefnan, svokallaða, hér í heimalandi spillingarinnar. Það hefur mér vitanlega aldrei verið horft á hana útfrá sjónarmiði orkusparnaðar í samgöngum. Í skjóli margnefndrar byggðastefnu er fjármunum vísvitandi sóað í nánast allt sem nafn hefur. Hvernig væri nú að horfa til þess að a) nýta offramboð af húsnæði hér á höfuðborgarsvæðinu með því að gera fólki af landsbyggðinni fært að kaupa það og b) draga byggðina konsekvently saman á landinu? Er nokkurt einasta vit í að dreifa byggðinni í þeim mæli sem nú er gert án þess að nokkur velti því fyrir sér hvort við höfum efni á dreifingunni ellegar hvernig það líti út í hnattrænu samhengi að kosta svona miklu til í því efni?
Og loka Landeyjahöfn. Örugglega hægt að gera við nokkra jaxla fyrir peninginn sem dælt er í sjóinn á degi hverjum.
Orð í tíma töluð! Takk fyrir frábæran pistil Grímur!
Ágætar tillögur.
En engin von er til þess að ríkisstjórnin grípi til einhverra raunverulega og róttækra aðgerða.
Hún er nefnilega ekki róttæk.
Þessi ríkisstjórn er ægileg vonbrigði, einstaklega illa skipuð og ólánleg í hvívetna.
Situr fyrir völdin en eki fólkið.
Þetta er ekki það sem við töldum okkur vera að kjósa.
Sammála flestu nema þetta með „afskriftarskatt“, það þarf að skoða betur. Það er þá nýr fjárfestingaskattur, en bara á tæki og tól til atvinnusköpunar. Er þetta skynsamalegt?
Sæll Grímur,
Margt af því sem þú nefnir hér get ég tekið undir,(ekki allt). Mig langar hins vegar til að nefna eitt. Ég bý nú erlendis um stundasakir. Í tvígang hef ég hitt fólk sem segir mér að það meti velmegun þjóða á tannhirðu þeirra. Þegar við berum okkur saman við Norðurlandaþjóðirnar þá er hér skelfilegt ástand í þeim efnum. Hvers vegna? Jú þar er tannhirða barna hluti af velferðarkerfinu! Við greiðum nú niður til erlendra neytenda um 2 milljarða króna (sauðfjárafæurðir og mjólkurafurðir). Það mundi duga til að annast alla tannhirðu allra okkar barna !! Er þetta bjóðandi ?