Friðrik J.
Óflokkað | Ummæli (8) Facebook
Hann hringdi einu sinni í mig alveg brjálaður. Þá hafði ég gagnrýnt LÍÚ og EKG vegna stöðunnar sem var komin upp á Flateyri eftir að kvótinn var seldur úr byggðarlaginu. Aðdragandi kvótasölunar og framganga LÍÚ og þáverandi sjávarútvegsráðherra var til skammar. Tveimur mínútum eftir að ég lagði á hringdi EKG – jafn fúll. Þá vissi ég að ég hafði farið með rétt mál.
Það vakir hvorki fyrir LÍÚ eða Sjálfstæðisflokknum að stuðla að sanngirni eða réttlæti þegar kemur að endurskipulagningu kvótakerfisins.
Grímur Atlason @ 17. apríl, 2011
Grímur Atlason
Þjóðin er búin að fá nóg af yfirgangi LÍÚ. Nú duga engin vettlingatök, kvótann aftur til þjóðarinnar. Það á að opinbera hvernig sumir aðilar í þjóðfélaginu haga sér þegar einhverjir voga sér að gagnrýna þá. Símhringingar og hótanir. Friðrik beitir greinilega þessari taktik en það gerði Davíð líka, þó hann léti aðallega Hannes Hólmstein í þau skítverk.
Hvert eru stjórnvöld yfir höfuð að fara í sjávarútvegi? Er ekki lágmark að stóru sjávarútvegsfyrirtækin fái að vita EITTHVAÐ svo þeir geti planað í það minnsta næstu mánuði? Svona svipað að almenningur fái að vita EITTHVAÐ hvað er í gangi í ESB aðlögunarferlinu? Jóhanna er að verða eitt mesta djók í stjórnmálasögu Íslands. ALLT STOPP og svo er bara hótað og rifið kjaft öllum til stór skaða.
Ætla bara minna síðuhaldara og áhangendur hans, að sú stjórn sem kom núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi á var sú stórn er sat að völdum árin 1988-1991.
Í þeirri stjórn áttu sæti engin önnur en þau Jóhanna Sig og Steingrímur J.
Ábyrgð þeirra er því mikil.
Nú vilja öfundssjúkir vinstrimenn þjóðnýta kvótann og ætla að útdeila honum til pólitískra vina og vandamanna eftir því sem þau kalla „útboðsleið“.
Þessi tilraun vinstrimanna mun setja lykiliðnað þjóðarinnar í algjört hrun og þar með samfélagið allt.
Ástæðan fyrir þessu er að margir þeir sem eru núverandi eigendur kvótans hafa keypt hann dýrum dómum og hafa orðið að skuldsetja sig til þess.
Þeir hafa m.ö.o. verið að tryggja að þeir geti starfsrækt útgerð.
Þeir sem seldu kvótann eru meintir sægreifar sem áttu að hafa fengið kvótann gefin(þessir sem vinstrimenn öfundast svo mikið út í) og eru því löngu komnir út úr greininni og lifa góðu lífi erlendis.
En vinstrimenn, drifnir áfram af möntru sinni sem er; öfund, illska og hatur, eru komnir í heilagt stríð út í heila atvinnugrein og ætla að beita til þess aðferðum þeirra Chavez og Mugabe.
,,…sú stjórn sem kom núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi á ..“
Hvenær ætlar fólk að skilja ,,kerfið“ er ekki vandamálið ???
Vandamálið er hvernig unnið er með ,,kerfið“ !
LÍÚ hefur unnið með þetta ,,kerfi“ eins og þeim hefur þótt best, en alls ekki eins og best væri fyrir íslenska þjóð !
Því miður eru til ,,menn“ nota sér orð til að sverta skoðanir , sem ekki hentar inn í LÍÚ. Þetta gerir hér einn að framan og heldur greinilega að hann hafi þar með niðurlægt viðkomandi skoðun ! Eina sem þessi ,,Sigurgeir“ gerir er að sýna okkur hvað hægt að leggjast lágt til að vera LÍÚ þóknanlegur ! Ef þú segir það nógu oft , sama þó það sé lygi, þá endar það sem ,,sannleikur“ að hætti LÍÚ !
það var unnin skýrsla fyrir sjávarútvegsráðaneytið (að beiðni þess) um það hver áhrifin af innköllun og fyrrningu yrðu fyrir sjávarútveg á Íslandi, af Háskólanum á Akureyri. afhverju flétta menn ekki upp í því hver árangurinn yrði? geta menn bent á einhverja fræðigrein sem styður leið ríkisstjórnarinnar? ég spyr og vil fá að vita ef einhver slík er til.
Hvað kemur það málinu við hverjir sögðu já í þingsal fyrir 20 og eitthvað árum? Er þá kerfið ómubreytanlegt og varanlegt(framsalsheimildin innan þess) – af því að Steingrímur og Jóhanna sögðu já? Þetta eru með heimskari rökum.
Hagræn áhrif kerfisins ættu að vera öllum ljós. Hringið bara og spyrjir almenning á eftirfarandi stöðum: Grímsey, Flateyri, Reyðarfjörður (fengu álver í sárabót en þá var allur kvóti farinn), Raufarhöfn, Þingeyri, Súðavík o.s.frv. Landsbyggðinni blæðir vegna framsals aflaheimilda – en þær eru samkvæmt LÍÚ lykillinn að velgegni sjávarútvegsins.
Óvissan er öll innan kerfisins núna – algjörlega sjálfsprottin og hefur verið þarna um langt árabil. Óvissan liggur ekki í fyrningarleiðin – hún snýst um hvort útgerðarmaðurinn selji kannski allt á morgun eða ekki.
Sæll Fannar.
Úr því að þetta kerfi er svona hagkvæmt afhverju geta þá ekki útgerðir með erlendar skuldir og nota bene, tekjur í erlendri mynt eða tekjur beintengdu erlendu afurðaverði ekki borgað skuldir sínar?
Hvaða rök eru fyrir því að veita eftirgjöf (afskrifa) erlendra skulda til útflutningsfyrirtækja?
Gætir þú upplýst hvað Brim hf. hefur fengið mikið í eftirgjöf skulda hjá ríkisbankanum?
Hvernig eiga einstaklingar og fyrirtæki að keppa við LÍÚ fyrirtæki og LÍÚ einstaklinga í sjávarútvegi sem þurfa ekki að borga skuldir sínar?
Með vinsemd og virðingu
Finnbogi Vikar
Var samfylking ekki á svæðinu þegar sáttanefndin tók sig saman og komst að niðurstöðu? Hvernig stendur á að ekki var hægt að setjast niður og ræða þá tillögu? Gæti hugmyndin kannski verið sú hjá Samfó að það eigi að ríkisvæða kvótann? Þannig yrði kvótinn í eigu nokkurra aðila hjá ríkinu, en ekki þjóðarinnar? Svona svipað og nokkrir þingmenn virðast geta ráðið því eftir sínum dyntum og kenjum hvar séu grafin göng, hvar sé dúndrað niður álveri, hvar séu sett á veggjöld, hvar sé byggð höfn, hvar sé lagt niður pósthús o.s.frv. Fólkið í landinu er búið að gefa stjórnsýslunni og pólitíkinni langt nef. Fólkið vill ekki ríkisvæða fiskveiðistjórnunarkerfið, eins og Samfylking er að undirbúa.