17 athugasemdir

  1. Kalli apríl 14, 2011 @

    Héldu ekki kjósendur Vinstri Grænna að þeir væru að kjósa flokk sem stæði gegn Icesave og EB?

    Hvoru megin liggja þá svikin?

    Hjá þeim vilja fylgja stefnuskrá flokksins fyrir kosningar eða þeim sem vilja fylgja stjórnarsáttmálanum?

  2. marat apríl 15, 2011 @

    Relax, það er kosið á fjögurra ára fresti. Ég mæli með því að þú kjósir ekki Ögmund. Hann er svo fjarri þér í hugsun. Þannig er lýðræðið, maður kýs sína hugsanafélaga.

  3. Lilja apríl 15, 2011 @

    Umræðan er þörf en meðan við erum með þessa grein í Stjórnarskránni : „48. gr. Alþingismenn eru eingöngu bundnir við sannfæringu sína og eigi við neinar reglur frá kjósendum sínum.“ er lítið sem við getum gert.

    Ég tel að þetta eigi heima í fornöld þegar lítill hópur manna kaus til Alþingis og hættan var mikil á þrýstingi. Í dag er það almenningur sem kýs og væri í það minnsta hægt að ætlast til þess að Alþingismenn taki tillit til kjósenda sinna og þrýstings frá þeim.

  4. Lilja apríl 15, 2011 @

    Kalli, VG skrifaði undir Stjórnmálasáttmála og ég býst við því að þeir hafi fengið eitthvað af sínum stefnumálum í þann sáttmála.

    Hver hefði verið stjórnin ef Samfylkingin hefði ekki samþykkt VG vegna þess að þeir samþykktu ekki aðildarviðræður ?

    Þetta heitir að vinna saman, lýðræði í raun, við sjáum hvar við getum hist á miðri leið án þess að skaða hvort annað.

    Ég held líka að Íslendingar sem eru á móti ESB geti alveg slappað af, það er ekki víst að þær 27 þjóðir sem þegar eru í ESB samþykki okkar aðild.

  5. Ari apríl 15, 2011 @

    Finnst þú hafa gleymt því að nefna seinast að aukinheldur leggir þú til að stjórnmálaflokkur skuli afnumdir og einstaklingskosningar teknar upp :)

  6. esb Andstæðingur apríl 15, 2011 @

    Sammála Kalla sem er efstur.

  7. Pétur apríl 15, 2011 @

    Þakka þér fyrir góða grein hér að ofan. Það er í sjálfu sér gott að þessir 3 þingmenn hafi yfirgefið VG, þeir hafa hagað sér eins og fífl allt frá stofnun ríkisstjórnarinnar. Þeir virða ekki samkomulag sem gert er við hinn stjórnarflokkinn, þeir eru kjarklausir og hafa setið aftur og aftur á svikráðum við félaga sína og kjósendur. Þeir eru gjörspilltir og virða ekki vilja kjósenda sinna. Megi nýja Ísland forða okkur frá svona stjórnmálamönnum, svona liðleskjum.

  8. Hólmfríður Bjarnadóttir apríl 15, 2011 @

    Það er mín persónulega skoðun og svo margra annarra að þingmenn hafi skyldur við kjósendur sína og geti ekki orðið að lausagöngufé á Alþingi eins og þá listir. Nú hafa þrír þingmenn VG kosið lausagönguna og áður flosnaði upp samstarfið minni Borgarahreyfingar og þingmanna hennar og úr varð Hreyfingin.

    Auðvitað viljum við ekki skoðanalausa þingmenn, en að þeir verða líka að hafa skyldur við sína kjósendur og það finnst mér skorta á núna.

    Sammála þér Lija.

  9. Ólinn apríl 15, 2011 @

    Ehm… Þráinn Bertelsson?

    Allt jafn fáránlegt fyrir því…
    Kominn tími á nýja flokka, enda þessir gersamlega útúrkú og í engum takti við nútímann.

  10. Kalli apríl 15, 2011 @

    Ég geri ráð fyrir því að þeir VG liðar sem tala hér um nauðsyn þess þingmenn megi ekki yfirgefa flokka sína séu búnir að ræða við Þráin Bertelsson.

    Er ekki töluverð hræsni í því að hella sér yfir Ásmund Daða en fagna Þráni?

  11. Grímur Atlason apríl 15, 2011 @

    Ekki ætla ég að gera lítið úr sprengingunni sem varð þegar Borgarahreyfingin hvarf – en varla er það sambærilegt við það sem hér er um rætt. Flokkur Þráins sundraðist og eftir sat hann einn – gat ekki einu sinni kallast þingflokkur. Margrét, Birgitta og Þór yfirgáfu flokkinn og stofnuðu nýjan flokk (þau eru Atli, Lilja og Ásmundur þeirrar sprengingar). Þráinn fann sér þingflokk til að starfa með þetta er eins og maðurinn sagði: þrennt ólíkt.

  12. Sveinbjörn apríl 15, 2011 @

    Sælir
    Það er gaman að sjá svona pistil og svona komment frá fólki sem mest hefur talað um mögulegt persónukjör og frelsi frá foringjaræði.

  13. Grímur Atlason apríl 15, 2011 @

    Foringjaræði? Er til of mikils mælst að þingmenn tali við fólkið sem kaus þá á þing í stað þess að tjilla á póstbarnum með viðhlæjendum og ná þar í línuna? Hvernig væri að Ásar þessa þings mættu til opinna funda í kjördæmum sínum og ræddu málefnið: „Að vera eða ekki vera“ áður en þeir hverfa á braut. En kjósi þeir að fara án samráðs sé þeim það frjálst en fari þá aftur í lögmennsku, Silfur Egils eða rúningar. Ég sé ekki foringjaræðið í þessu…

  14. Hriflungur apríl 15, 2011 @

    Þingmenn eru bundnir af sannfæringu sinni – en hvað gerist ef sannfæring þingmanns er ekki lengur bundin hollustu við þá sem þingmaðurinn er fulltrúi fyrir?

    Jú, þá gerist t.d. það að kjósendur VG í Norð-vesturkjördæmi missa annan fulltrúa sinn yfir til andstæðinganna án þess að fá nokkuð um það sagt. Þingmaðurinn hefur, vegna sannfæringar sinnar, ógilt atkvæði þeirra sem kusu hann.

    Hinn róttæki Dalamaður hlýðir boði íhaldsams lögfræðings úr Garðabæ.

  15. Kalli apríl 15, 2011 @

    Þannig að flutningur Þráins var í lagi vegna þess að hann var einn í þingflokknum, en það var ekki í lagi hjá Ásmundi vegna þess að hann var í stærri þingflokki!

    Eru fleiri undantekningar eða er þetta sú eina?

  16. ÁJ apríl 15, 2011 @

    Samninganefnd um Icesave var skipuð í febrúar 2009, tveimur mánuðum fyrir kosningar, þannig að þeir sem kusu VG árið 2009 vissu vel að flokkurinn styddi samningaleiðina. Þeir vissu líka að VG hefði samþykkt að fylgja áætlun AGS. Þegar Kalli, Sigurður Kári o.fl. tala eins og þetta séu svikin kosningaloforð fara þeir nokkuð á svig við sannleikann.

    Umsókn um ESB lá ekki fyrir á þeim tíma en þó hafði VG samþykkt þjóðaratkvæðagreiðslu um umsókn. Þegar ríkisstjórnin var mynduð lá hins vegar fyrir í málefnasamningi að umsóknin yrði lögð fram og það samþykktu allir þessir brotthlaupnu þingmenn.

    Það væri raunar áhugavert ef þeir sem saka t.d. VG um að svíkja kosningaloforð hefðu upp á kosningaloforðum flokksins og legðu þau fram máli sínu til stuðnings. Þá fyrst gæti rökrænn málflutningur hafist. En þá værum við sennilega í öðru landi.

  17. joi apríl 15, 2011 @

    þetta er nú bara enn einn kaflinn í sorgarsögu VG. Hann hófst fyrst nokkrum vikum eftir að VG gekk í stjórn og hafði tök á að stöðva hvalveiðar. Þá fengu menn forsmekkinn af því sem koma skyldi. Steingrímur gat ekki breytt fyrri ákvörðunum, síðan hafa hvalveiðar verið iðkaðar á Íslandi og það á vakt VG. Sama uppi á teningnum með AGS, ESB, Magma Energy o.s.frv. VG hafa svikið sína kjósendur um svo að segja allt sem hægt er að svíkja, enda er fylgið farið að tætast af flokkinum og aftur yfir á þá sem lánuðu VG fylgið, kjósendur Sjálfstæðisflokksins.

    Samfylking er búin að vera. Þar hafa fullyrðingar stangast á við veruleikann, orð gegn orði. Össur segir Nei við Icesave engin áhrif hafa á ESB aðild, á meðan forystumenn hollensku stjórnarinnar heita því að Íslendingar fari aldrei í ESB nema borga upp í top með vöxtum og vaxtavöxtum.

    Er ekki kominn tími á að Jóhanna geri bara eitt lítið glappaskot í viðbót, svo Jón Bjarnason eða skákdrottningin fari yfir í hinn vinstriflokkinn og stjórnin sé fallin? Líklega gerist það nú eftir páska þegar umdeild frumvörp líta dagsins ljós, þá gæti meira segja Björn Valur tekið sjópokann og gengið í land þegar á að rústa fiskveiðistjórnunarkerfinu. Þessi stjórn á enga möguleika á að koma neinum málum áfram hér eftir. Þetta er búið spil hjá fyrstu vinstri stjórn íslandssögunnar.

Eftirsjáin mikla

Óflokkað | Ummæli (17) Facebook

Stjórnmálaflokkar eru mögnuð fyrirbæri. Þegar vel tekst til eru þeir grundvöllur öflugra skoðanaskipta þar sem menn skipta með sér verkum og vinna saman að ýmsum ágætum málefnum.  Sumir veljast til forystu á meðan aðrir starfa bakvið tjöldin. Gallinn er hins vegar sá að oftar en ekki breytast þessir flokkar í kosningabandalög þeirra sem vilja ráða og fara með völdin. Og þá kárnar fyrst gamanið. Makkað og stungið, samherjar heilsast brosandi en brugga þeim sömu launráð á sama tíma. Þannig virðist ástandið vera í flestum stjórnmálaflokkum Íslands í dag. VG er nærtækt og áþreifanlegt dæmi.

Ögmundur Jónasson dómsmálaráðherra hefur lengi tekið málstað þeirra sem hafa verið í minnihluta í flokknum. Margir þeirra hafa verið með afar sérstaka sýn á ástand mála og hvaða leiðir skuli fara. Það kom því sjálfu sér ekki á óvart að Ögmundur hafi verið óþreytandi að mæra félaga sína  Lilju Mósesdóttur, Ásmund Einar Daðason og Atla Gíslason að þeim gengnum. Hann sér mikið eftir þessum fyrrverandi félögum sínum. Þeir ku vera öflugir þingmenn sem eru trúir skoðunum sínum. Ekki virðist skipta máli þó viðkomandi þingmenn ætli sér að stofna annan stjórnmálaflokk með haustinu – til höfuðs eða ekki til höfuðs stjórnmálaflokknum sem Ögmundur situr enn á þingi fyrir. Hann virðist ekki hafa mikið fyrir því að ræða við þann fjölda innan flokksins og kjósenda hans sem eru þessu ósammála og sitja eftir sviknir að þeim finnst. Þeir keyptu köttinn í sekknum með atkvæði sínu. Er engin eftirsjá eftir kjósendum og almennum félögum – bara þeim sem fá 700 þúsund á mánuði fyrir að vera vinstrimenn?

Allir þessir þingmenn virðist lítið pæla í hvað almennir félagar og kjósendur flokksins hafa að segja eða vilja gera. Þeir tönglast sínkt og heilagt á einhverju sem þeir segja vera sannfæringu sína og heilaga trú á fyrirbærið. Er bara í góðu lagi að ganga úr þingflokki þegar manni hentar og segjast ætla að stofna nýjan í haust? Eru það sjálfsögð réttindi félaga sem starfa saman að koma þannig fram við aðra félaga sína?

Ögmundur er eftirsjá? Ertu kannski á leiðinni líka? Verður þá líka hrópað jess? Þetta rugl verður að stöðva – þetta gengur ekki lengur.

Það væri óskandi að stjórnlagaráðið setji það í lög: Nú segir þingmaður sig úr þingflokki sínum á  milli kosninga. Skal þá varamaður  kallaður til. Eins og kerfið er í dag vita kjósendur ekkert hvað þeir fá þegar þeir setja atkvæðið í boxið. Vonbrigðin með þetta blóðbað á vinstri arminum eru algjör. Það er kominn tími til að þið rísið upp og takið ykkur saman í andlitinu – Ömmi!

Grímur Atlason @ 14. apríl, 2011


Skrifa ummæli

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Kæfuvörn:   Hver er summan af fimm og þremur? Svar: