Þú ert að skoða færslur fyrir mánuðinn: apríl, 2011.

Færslur

Upp með helvítis sokkana!

Grímur Atlason @ 28. apríl, 2011 # Ummæli (6)

Í fyrradag kynnti velferðarráðherra til leiks reglugerð um tímabundna tannlæknaþjónustu við börn tekjulágra. Þjónustan verður veitt í tæpa 3 mánuði í sumar og þurfa foreldar að sækja um þjónustuna hjá SÍ fyrir 1. júní nk. Börn sem hafa orðið fyrir tannskaða vegna slysa og/eða fæðingagalla eru hér ekki tekin með frekar en fyrri daginn og [...]

Lesa meira

Að míga í sauðskinnsskó er gamall vondur íslenskur siður!

Grímur Atlason @ 27. apríl, 2011 # Ummæli (15)

Andstæðingar Evrópusambandsaðildar Íslands hafa farið mikinn upp á síðkastið. Þeir hafa gengið úr stjórnarliði, fagnað krónunni og bent á aðrar þjóðir fullir heilögum íslenskum anda: „Sjáið bara hvernig fór hjá þeim – þessum þarna ESB löndum!“ Já, það er þjóðleg stemming víða í hornum og Morkinskinna er dregin fram og sögð mamma Hringadróttinssögu og annarra [...]

Lesa meira

Að skjóta sendiboðann – sérstaklega ef hann er danskur

Grímur Atlason @ 20. apríl, 2011 # Ummæli (10)

Það er pirraður Ögmundur sem birtist okkur í grein á ogmundur.is. Hann er ekki sáttur með þá Mogens Lykketoft og Uffe Elleman Jensen sem voru í danska sjónvarpinu í gær. Uffe og Mogens voguðu  sér nefnilega að gagnrýna framgöngu forseta Íslands og almennt vandræðaganginn á Íslandi. Ögmundur fer m.a. alla leið aftur til ársins 1813 til að stinga [...]

Lesa meira

Friðrik J.

Grímur Atlason @ 17. apríl, 2011 # Ummæli (8)

Hann hringdi einu sinni í mig alveg brjálaður. Þá hafði ég gagnrýnt LÍÚ og EKG vegna stöðunnar sem var komin upp á Flateyri eftir að kvótinn var seldur úr byggðarlaginu. Aðdragandi kvótasölunar og framganga LÍÚ og þáverandi sjávarútvegsráðherra var til skammar.  Tveimur mínútum eftir að ég lagði á hringdi EKG – jafn fúll. Þá vissi ég að ég hafði farið með rétt [...]

Lesa meira

Morgunblaðið rak Sigmund og réði þetta:

Grímur Atlason @ 17. apríl, 2011 # Ummæli (15)

Smart…

Lesa meira

Eftirsjáin mikla

Grímur Atlason @ 14. apríl, 2011 # Ummæli (17)

Stjórnmálaflokkar eru mögnuð fyrirbæri. Þegar vel tekst til eru þeir grundvöllur öflugra skoðanaskipta þar sem menn skipta með sér verkum og vinna saman að ýmsum ágætum málefnum.  Sumir veljast til forystu á meðan aðrir starfa bakvið tjöldin. Gallinn er hins vegar sá að oftar en ekki breytast þessir flokkar í kosningabandalög þeirra sem vilja ráða og fara með völdin. Og [...]

Lesa meira