17 athugasemdir

  1. Haukur G. febrúar 20, 2011 @

    Fannst það einnig skjóta skökku við að beita þessum rökum – Alþingi er með nýrra umboð en Ólafur Ragnar.

  2. Hrafn Arnarson febrúar 20, 2011 @

    Sammála hverju orði. Forsetinn hefur málskotsrétt en engin lög eða reglur virðast kveða nánar á um þettan rétt.Þetta er algerlega huglægt mat forsetans. Hann getur spunnið upp hvaða sögu sem er og gefið það sem ástæðu.Ákvörðun verður ekki áfrýjað. Þetta er augljóslega alvarleg veila í stjórnskipan landsins. Það verður eitt af verkefnum komandi stjórnlagaþings að bæta hér úr.Vonandi verður umræðan um samninginn á komandi vikum málefnaleg.

  3. Matthias febrúar 20, 2011 @

    Og þegar forseti hringdi út spurði hann rangrar spurningar. Ekki átti að spyrja hvort fólk hefði skrifað undir heldur HVERS VEGNA. Þá hefði komið í ljós að fólkið heldur að með því að segja nei, losni þjóðin við að borga þessa skuld FLokksmanna í Landsbankanum. Þess vegna geltir forseti upp í vitlaust tré.

  4. Gunnar Jóhannsson febrúar 20, 2011 @

    Hefði ekki verið betra ef ríkisstjórnin hefði „for a change“ hlustað á hjartslátt þjóðarinnar og samþykkt tillöguna um að samningurinn yrði borinn undir þjóðina þaðan sem hún fékk hann aftur í fangið eftir misheppnaða síðustu tilraun?

  5. Kristján Kristinsson febrúar 20, 2011 @

    Ólafur Ragnar átti mjög erfitt með að réttlæta þessa ákvörðun sína. Rökin fyrir henni voru ekki boðleg. Það er agalegt að búa við þessa stjórnskipun og huglægu mati Forsetans eins og Hrafn nefnir hér að ofan.

  6. Einar Guðjónsson febrúar 20, 2011 @

    Umboðslaust í þess máli því í millitíðinni hefur engin kosið nýtt þing þar sem frambjóðendur og flokkar buðu sig fram til að greiða Icesave atkvæði sitt yrðu þeir kosnir.Þetta er alveg rétt mat hjá Ólafi og hann gat illa annað því annars hefði hann bara orðið margsaga eins og Gosi og Skrudda.
    Sannleikurinn er auðvitað sá að núverandi þingheimur hverfur að mestu leyti í næstu kosningum og kannski var kosið of snemma.Nú er svo margt komið fram um núverandi þingheim sem menn vissu ekki í mars 2009.

  7. Einar Marel febrúar 20, 2011 @

    Bessastaðabóndinn var svo ákafur að nota undirskriftalista kjósum.is í rökstuðningi sínum, að hann gerðist úthringidama fyrir hópinn til að geta nýtt hann. Það berast þakkir frá ysta hægrinu fyrir stuðninginn. Það lið sem hjólaði í hann í denn, bera hann nú á höndum sér.

  8. GB febrúar 20, 2011 @

    Icesave og esb unnendur engjast um. Þetta er aðeins upphafið að hruni lygamyllu svikaranna.

  9. Magnús Björgvinsson febrúar 20, 2011 @

    „GB“ það eru svona ummæli sem valda því að maður hefur áhyggjur af greindarfari Íslendinga

  10. Bjarni febrúar 20, 2011 @

    Hvernig þið í VG ásamt Samfylkinguni hélduð á þessu máli allt frá byrjun hefur ekki verið til þess valdandi að auka virðingu né traust til Alþingis hjá þjóðinni sem mælist nú um 7,5%. Ásamt því hvernig þið hafið klúðrað hverju máli á fætur öðru síðan frá hruni og enn bólar tildæmis ekkert á hinni marg umtöluðu skjaldborg um heimilin, þið hafið ausið milljörðum í gjaldþrota fjármálastofnanir og jafnvel farið á svig við lög er varðar milljarðana sem var hent í Sjóvá.
    Því er spurningin þessi ætlið þið að væla eins og heimtufrekur krakki sem fékk ekki það sem hann vildi í jólagjöf,út af því að Forsetinn virkjaði lýðræðislegann rétt þjóðarinnar til að fá að kjósa um icesaveIII í þjóðaratkvæðagreiðslu.Eða fara að vanda ykkur í að vinna að því að upplýsa almenning um kosti þessa samnings án hræðluáróðurs, því ef að samningurinn er svona góður eins og þið viljið halda fram en ekki upplýsa almenning um, þá hafið þið engu að tapa með því að upplýsa almenning um samninginn án alls pukurs.
    Og eins að sjá til þess að Lansbankinn segji okkur hvert icesave peningarnir fóru.
    Lifi lýðræðið sem hafði sigur í dag og burt með einræðishyggju 4FLokksins.

  11. stefan benediktsson febrúar 21, 2011 @

    Væri gaman að fá mat Reynis á rökum forsetans………………..

  12. Hólmfríður Bjarnadóttir febrúar 21, 2011 @

    Þessi ákvörðun ÓRG er mér algjörlega óskiljanleg. Hann hagar sér eins og ofdekruð Hollyvoodstjarna sem er hrædd um að vera að missa af lestinni.

  13. Andri febrúar 21, 2011 @

    „Forseti sem flýgur með með mönnum, sem Jeltsín mútaði til fylgislags við sig með auðlindum fátæks ríkis, ætti ekki að ákveða hvort eitthvað sé rétt eða rangt. Slíka menn skortir dómgreind til að ákveða eitthvað fyrir aðra.“

    okei hann hefur átt tengsl við grunsamlega menn.

    En segðu mér þá er það siðferðislega réttlætanlegt að hæstvirtur fjármálaráðherra bregði sér ítrekað inn á hótel 101 til að fá sér bjór með samstarfsfélögum?

    Hótel sem skráð er í eigu Ingibjargar og virðist vera helsta fylgsni Jóns Ásgeirs í miðbænum.
    Já glæpurinn er ekki mikill en þessi maður tilheyrir hópi sem Steingrímur hefur fordæmt opinberlega og óþarft að rekja bakgrunn hans frekar.
    Þú villt kannski frekar „standa“ á barnum með SJS niðri á 101 og fá þér einn kaldann gamli ?

  14. Teitur febrúar 21, 2011 @

    Ég hjó líka eftir þessu að ÓRG sagði að alþingi væri umboðslaust í þessu máli. Semsagt – bóndinn á Bessastöðum ákvað það fyrir ári að alþingi væri umboðslaust til samninga. Skyld Bucheit gera sér grein fyrir að hversu miklu ginningarfífli hann hefur verið hafður. Ráðinn til að leiða samninganefnd sem var ekki með neitt umboð að mati æðsta handhafa lög- og framkvæmdavalds í landinu?

  15. Magnús Hávarðarson febrúar 21, 2011 @

    Ég veit ekki hvor er verri, forsetinn sem klappaði upp útrásarvíkingana og reynir nú að bæta fyrir það, eða fjármálaráðherrann sem þóttist vera vinur litla mannsins en sendir nú hvern reikninginn á fætur öðrum til lítilmagnans vegna fáranlegra ákvarðana hans sjálfs sem fjármálaráðherra. Milljarðatugir í VBS banka, Sjóvá, sparisjóðina – listinn er langur. Sjálfsagt má segja með nokkurri vissu að báðir þessir menn séu tækifærissinnaðir, en hver er það ekki Grímur? Svo er ég dálítið hissa á því Grímur að maður sem er haldinn svo mikilli réttlætiskennd gagnvart samskiptum manna við útrásarvíkinga skuli geta fengið af sér skrifa undir merkjum Binga og kámugu trýnanna.
    Framtíðin er fyrir vestan!

  16. Grímur Atlason febrúar 21, 2011 @

    Aðeins eitt vil ég segja: Maggi þú hefur rétt fyrir þér – hérna á ég ekki að skrifa. Þetta er síðasta færslan mín hér.

  17. Þorsteinn mars 18, 2011 @

    Sæll ertu enn þá sveitarstjóri Dalabyggðar. Ef ekki, veistu hver er það núna. Vefsíður sveitarfélaganna á Íslandi eru alveg glataðar.

Napóleon Bekk

Óflokkað | Ummæli (17) Facebook

Það Alþingi sem 16. febrúar afgreiddi málið er eins skipað og áður; þjóðin hefur ekki endurnýjað umboð þess í almennum kosningum.

Þetta er auðvitað með ólíkindum. Hvar segir í stjórnarskrá þessa lands um að forsetinn eigi að synja lögum staðfestingar af því að ekki hefur verið boðað til kosninga áður en Alþingi samþykkir lögin aftur? Með því ákveður forsetinn að Alþingi Íslendinga sé umboðslaust í dag – þetta er algjörlega út í hött. Það er líka sami forsetinn sem situr nú og sat fyrir 1 ári – hann hefur heldur ekki endurnýjað umboð sitt.

Forseti sem flýgur með með mönnum, sem Jeltsín mútaði til fylgislags við sig með auðlindum fátæks ríkis, ætti ekki að ákveða hvort eitthvað sé rétt eða rangt. Slíka menn skortir dómgreind til að ákveða eitthvað fyrir aðra. Ég mun eftir sem áður sitja sem fastast þegar aðrir standa upp fyrir þessum manni. Napóleon Bekk.

Þeir fallast nú vonandi  í faðma - og helst á forsíðu mogga - maðurinn með skítlega eðlið og sá sem sakaði hann um að vera haldinn því skítlega eðli.

Grímur Atlason @ 20. febrúar, 2011


Skrifa ummæli

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Kæfuvörn:   Hver er summan af núlli og sex? Svar: