Stærðfræðingur tekur (H)æstarétt í nefið…
Óflokkað | Ummæli (10) Facebook
Horfði á talsmann (H)æstaréttar í gær í nærmynd fara yfir sviðið. Hann var búinn að vera í málsvelti í nokkur ár eftir að honum var komið fyrir í (H)æstarétti. Þar áður var hann í mörg ár helsta málpípa mannanna sem gáfu bankana. Núna er hann kominn aftur í fjölmiðla – enda nýbúinn að ógilda kosningu sem einhverjir vinstribjálfar voru að vesenast með. Mér leið illa að hlusta á þennan mann. Hann er boðberi fortíðarinnar – þess tíma þegar hann og vinir hans réðu öllu, potuðu sér og sínum hingað og þangað á kostnað heildarinnar. Ojbarasta.
Það var því frelsandi að lesa grein Reynis Axelssonar stærðfræðings um niðurstöðu (H)æstaréttar. Hann hreinlega tekur þennan óskapnað, sem dómur réttarins í stjórnlagaþingsmálinu var, og tætir hann í sig. Það kemur ekki á óvart að Morgunblaðið hafi neitað að birta þessa grein enda ku ritstj. [lesist ritstjóri = Davíð Oddsson] vera þokkalega vel gefinn maður og ég get ekki ímyndað mér að heilvita fólk sem hana les skammist sín ekki fyrir þennan skrípaleik. Er furða að menn velti því fyrir sér hvort hægt sé að treysta dómstólum landsins eftir þessa hörmung?
Grímur Atlason @ 3. febrúar, 2011
Grímur Atlason
Sammála.
Reynir Axelsson
Félagi, Grímur… Það er hægt að kæra stjórnvaldsúrskurð, spurðu bara Helgu Völu…
LÁ
Og hvað á þá ekki að skipa þessa 25 í nefnd eða skal fylgja prinsippinu og bókstafnum og láta kjósa aftur svona einsog hæstiréttur………Hæstiréttur rökstuddi sitt mál og var það nokkur skýrt að annmarkar voru á kosningunni sem Landskjörstjórn ber ábyrgð á…..Ógilding er matsatriði og þykir mér þar full langt gengið út frá þeim rökum sem þar komu fram…..Talandi um stærðfræði þá segir það mér óháð lagatækni að lítill áhugi er fyrir því og kosningakerfið var of flókið en þessir tveir þættir þeas 35 % þáttaka hjá kosningaóðri þjóð og stór hluti vafaatkvæða hafði veruleg áhrif á niðurstöðuna
Þessi umfjöllun Reynis var mjög vandvirk og fagleg (ólíkt rökstuðningi Hæstaréttar.
Best væri að skutla þessu í Mannréttindadómstólinn, fá dóminum hnekkt og krefjast afsagnar níumenningaklíkunnar (les. fulltrúar FLokksins). Það er löngu tímabært að hreinsa út úr stjórnkerfinu safn flokksgæðinga sem plantað hefur verið hvar sem litið er.
Til að þessi hæstaréttaspuni endi ekki á sama hátt og karaókíspuninn – með engu – er einfaldast að efna til nýrra kosninga og kjósa í leiðinni um kvótann og Icesave.
Ragnar er auðvitað Reynir – biðst afsökunar og þakka fyrir ábendinguna…
Nú þarf að rýma réttinn.
Það er ekki hægt að búa við þessa ósvinnu (H)æstaréttar.
Ég heyrði viðtal við þennan mann sem þú ert að mæra Grímur. Hann tók það skýrt fram að ágallar hefðu verið á t.d. kjörseðlunum. Hann talaði um að það væri bara hægt að prenta yfir strikamerkingarnar og telja aftur.
Hann talaði líka um að hafa aldrei heyrt um að eitthvað væri ógilt áður en brotið væri gegn hugsanlegum lögum. Það er einfaldlega ekki rétt hjá honum og auðvelt að finna mörg dæmi um slíkt.
Auðvitað væri það æðsti draumur núverandi stjórnvalda að stjórna þessu öllu sjálf, fjölmiðlum, hæstarétti, alþingi, helstu atvinnutækjunum o.s.frv. Gallinn er bara sá að það módel hefur verið reynt, oftar en einu sinni. Það hefur yfirleitt endað með látum.
Hér hlýtur JOI að vera að vísa í síðustu valdatíð Sjálfstæðisflokksins, sem við erum að súpa seyðið af núna, eins og úrskurður Hæstaréttar sýnir.