26 athugasemdir

  1. Teitur Atlason janúar 25, 2011 @

    ..Ég er búin að segja þetta í mörg ár. Vinstri menn hafa alltaf mætt hægrinu eins og ólánsami mafiósinn sem kom alltaf með hníf í byssubardaga.

  2. mar janúar 25, 2011 @

    Hefði kosningin verið minna ólögleg ef enginn hefði kært, eða þá einhver annar t.d Þorvaldur Gylfa? Þessi röksemdafærsla snýr öfugt hjá þér.

  3. Heiða B Heiðars janúar 25, 2011 @

    Auðlindastríðið byrjað… og þá er bara að rífa sig úr hönskunum og berjast

  4. Agnar Kr. Þorsteinsson janúar 25, 2011 @

    Þetta, kvótadæmi Líú og svo ofstopi Samtaka Atvinnulífsins segir manni eiginlega eitt:

    If they wnat war, we’ll give them a fucking war they won’t like.

    Hættum að vera næs við þessi fól.

  5. Steini janúar 25, 2011 @

    Ú fréttum RÚV fyrr í dag: „Skapti Harðarson, einn kærenda var ánægður með niðurstöðuna, og telur að ekki hefði verið hægt að komast að annarri niðurstöðu. „Heppilegast væri náttúrlega að flauta alla þessa vitleysu af og þennan fjáraustur á tímum þegar við höfum nóg annað við peningana að gera. En að öðrum kosti gætu þeir haldið áfram og efnt til annarra kosninga, sem ég held að væri nú bara til að bíta höfuðið af skömminni.“
    Hér er skýrt talað: Stjórnlagaþing er kjaftæði sem á ekki að eiga sér stað. Þetta er sama niðurstaða og sjálfstæðismenn komumst að í fyrra og kristallast m.a. í ummælum þingmanna flokksins á þingi, t.d. Sigurðar Kára, Ólöfu Nordal og Bjarna Ben sem hafa öll verið ólöt við að gera málið tortryggilegt. Þeir ætla að koma í veg fyrir nýtt Ísland byggt á nýrri stjórnarskrá sem þjóðin sjálf leggur af mörkum.
    Rétt hjá þér Grímur, No more mister nice guy!
    Orustan um Ísland er ekki aðeins háð á hinum pólitíska vettvangi heldur og ekki síður innan Hæstaréttar.

  6. Skítlegt eðli janúar 25, 2011 @

    Óðin

  7. Skítlegt eðli janúar 25, 2011 @

    Hvað rekur þig til þess að hafa fyrirsagnir á ensku?

  8. Ólinn janúar 25, 2011 @

    ehhh… hefði ekki verið gáfulegra að gera þetta bara rétt?

    Þá hefði aldrei komið til þessa…

    En nei þetta er allt Davíð Oddssyni og Jón Ásgeir að kenna…

    Þetta er farið að hljóma ískyggilega eins og handboltaþjálfarinn okkar og dómararnir…

    Skafti og co eru engu að síður snarvang—-nir…

    En þetta er ótrúlegt klúður…

  9. Kalli janúar 25, 2011 @

    Skafti og Óðinn dæmdu ekki, það var æðsta dómsvald þjóðarinnar sem tók þess ákvörðun samhljóða.

    „Live with it“

  10. Fannar H janúar 25, 2011 @

    taka stjórnlagaþingið af fólkinu? þú meinar af ykkur vinstirflokkadindlunum og elítunni ykkar sem bauð sig fram og beið á varamannabekknum eftir dúsum og öðrum sporslum?

    ef þetta hafi verið einhver kosning þjóðarinnar þá hefði verið meir en 50% kjörsókn.

    hættu að grenja reyndu lifa með því að vinstriflokkarnir geta engu komið frá sér án þess að brjóta allt og klúðra öllu svo að meiri skaði hlíst af heldur en ef aldrei hefði verið farið af stað.

  11. Fannar H janúar 25, 2011 @

    og er það ekki það lágkúrulegasta af öllu að kenna þeim sem kæra um að þið gátuðu ekki komið neinu í gegn sómasamlega?

  12. Andri janúar 25, 2011 @

    Já Fannar, betri stjórnarskrá með auknum réttindum fólks er bara fyrir elítu vinnstrimanna? SJálfstæðismenn hafa ekki áhuga á framförum bara sjálföku og sérhagsmunum. Gú gú ga ga

  13. Magnus Björgvinsson janúar 25, 2011 @

    Eftir að hafa hlustað á Alíngi núna m.a. Ólöfu Norðdal, Vigdísi Hauksdóttur og Bjarna Ármannsson þá er ég sammála um að nú ættu að auka þrýsing á að vinna við breytingu stjórnarskrár fari fram hið fyrsta. Og eins að Sjálfstæismenn og Vigdís Hauksdóttir verið látin finna fyrir viðhorfi þeirra gangvart því að þjóðin fái um stjórnrarskránna að segja, fái að finna til tevatnsins og verði minnt á það sem þau sögðu, það sem þau eiga eftir ólifað. Önnur ein óvirðing við þjóðina hefur ekki heyrst.

  14. Grímur Atlason janúar 25, 2011 @

    Já, það er ljóst að við misstum af þessu – við vinstrielítan sem býr í höfuðborgarsoranum.

  15. joi janúar 25, 2011 @

    Sammála. Það verður einhver að takast á við það erfiða verkefni að afhjúpa ruglið í þessari vinstri stjórn. Þetta er komið út fyrir allan þjófabálk.

    hvað á það eiginlega að þýða að selja fyrst til Magma Energy það sem samfylking kallar „þjóðareign“, koma svo stuttu síðar og vilja innkalla allar fiskveiðiheimildir, af því þær séu í eigu annarra en misviturra stjórnmálamanna?

    Þetta er eins og blaut tuska framan í andlit þeirra sem eru að reyna að skilja hvað sé hér í gangi.

    Þessi ræða Jóhönnu áðan var í einu orði sagt ÖMURLEG. Hún er að ala á sundurlyndi milli þjóðarinnar. Grunar að það eigi allt eftir að verða vitlaust hérna innan skamms.

  16. Gunnar Jóhannsson janúar 25, 2011 @

    Var stjórnlagaþingið krafa fólksins? Gefur kosningaþátttakan tilefni til að draga þá ályktun að fólkið í landinu kalli á breytta stjórnarskrá? Þjóðin svaraði þessu kalli með því að sitja heima að stærstum hluta.

  17. Grímur Atlason janúar 25, 2011 @

    Líklega ber mér að þakka Skafta, Þorgrími og Óðni fyrir kæruna. Ég hugsa að fólk átti sig á því núna að við erum að berjast um auðlindir landsins – eiga þær að vera í eigu útvaldra eða þjóðarinnar? Þeir félagar sem kærðu – ekki vegna framkvæmdarinanr sjálfrar heldur hugmyndarinnar um lýðræði til fólksins – hafa opinberað raunverulegan tilgang sinn: nú er komið að okkur að standa með þessari þjóð á leið okkar úr kjördæmapoti og hagsmunagæslu fárra á kostnað heildarinnar.

  18. Eyjólfur janúar 25, 2011 @

    Hefur þér nokkuð dottið í hug að spyrja um hvað/hvers vegna, málefni og merits? Í stað hver? Var þetta sem sagt löglegt þangað til Skafti og tveir aðrir bentu á að svo væri mögulega ekki? Af hvaða fólki er verið að ná þessu? 35.95%?

  19. Ólinn janúar 25, 2011 @

    Grímur!

    Þér finnst engu skipta þó að um 600 FOKKINGS milljónir sé að ræða?…Hvað gætu þær gert, t.d. fyrir fólkið á vestfjörðum????

    Þú vilt bara hafa þetta vinstri drullu á móti hægri skít?

    Þetta er nákvæmlega ástæðan fyrir því að það er ekki hægt að gera neitt rétt á þessu skíta skeri… Fólk er ekki að berjast fyrir aumingjans almenning, heldur snýst þetta bara um að hafa réttara fyrir sér en fólkið hinum megin við miðju.

    Megi öll stjórnmálastéttin (sama í hvaða helv. átt þið snúið) hafa SKÖMM fyrir þennan viðbjóð.

  20. Grímur Atlason janúar 25, 2011 @

    Ha? Eigum við þá bara að láta okkur það að kenningu verða: Að því að kosningarnar kostuðu 600 m.kr. eigum við að skammast okkur? Fyrir hvað? Að í stað þess að misvitrir hagsmunagæslumenn á Alþingi stýri breytingum á stjórnarskránni skuli lýðræðisumbætur reyndar? Er það hörmulegt – að kjördæmapotarar stjórni því t.d. ekki hvernig kjördæmaskipanin eigi að vera?

  21. NiceGuy janúar 25, 2011 @

    Vertu súr. Vertu reiður. Talaðu um skrýmsli og búðu til samsæriskenningar.

    Þetta verður líkkistunaglinn í kistu glataða fólksins sem vildi færa okkur Sovét nútímans.

    Til hamingju Ísland.

  22. Skrímsli janúar 25, 2011 @

    Með fullri virðingu og án athugsemda við innhald skrifa þinna, þá finnst mér bara rétt að árétta, og vil í leiðinni biðja kjaftaglaða menn sem tjá sig á netinu, menn sem hafa hátt í fjölmiðlum, að rita rétt á okkar ylhýra.
    Síðast þegar ég gáði þá var skímsli skrifað með einföldu í-i. Ypsilon er fallegur stafur, en í þessu tileflli, ofnotaður.
    Grímur Atlason, vandaðu þig vinur og gangi þér vel og fyrirgefðu þessa smámunasemi mína.

  23. Grímur Atlason janúar 26, 2011 @

    Skrýmsli eru samkvæmt réttritun með einföldu – en ég á bara svo erfitt með að fallast á það.

    Hvað Sovét Ísland snertir – þá verð ég nú að segja nafnleysingjanum að stemmingin í valdaklíkunni, sem missti völdin veturinn 2009, er beingetið afkvæmi einræðisins eins og Stalín framreiddi það þegar hann var upp á sitt „versta“. Ólöf, Skapti, Óðinn, Einar K hafa öll tjáð sig með þeim hætti að framkvæmdin var ekki málið – það var sjálf hugmyndin um að lýðurinn ætti að vasast í þeirra sjálfskipuðu málum.

  24. Hrafn Arnarson janúar 26, 2011 @

    Það eru gallar í framkvæmd kosninganna. Það var ljóst í upphafi og hefði átt að bregðast strax við. Hins vegar er ljóst að þetta hafði engin áhrif á úrslit. Að því leyti er dómurinn umdeilanlegur. Um hvatir Skafta Harðarsonar þarf enginn að efast. Hann skrifaði um nokkurt skeið frjálshyggjurugl á Eyjunna sem var svo einstakt að menn töldu hann vera HHG.

  25. níels a. ársælsson janúar 26, 2011 @

    Það er auðséð á öllu að flugumenn LÍÚ hafa komið fyrir mannskap í undirbúning við framkvæmd kosninganna.

    Varla hefði þetta klúður að öðrum kosti átt sér stað ?

    Nú þarf að ransaka þá sem stóðu að málum og skipulögðu framkvæmdina.

  26. Ólinn janúar 26, 2011 @

    Fyrir hvað? Í alvöru…

    Hélt að þú værir í þessu af alvöru…

    En mér sýnist þú vera eins og 90% af þessu liði.

    þeas það er litið á þetta sem fótboltaleik og jafntefli er ekki til. Neinei, bara verið upp i´stúku að styðja sitt fótboltalið.

    Ef eitthvað klúðrast, engin ábyrgð.

    Bara „helv. gaurarnir hinum megin við miðjuna eru svo glataðir að þetta er allt þeim að kenna“

    Ábyrgð er ekki til í íslenskri stjórnsýslu.

    (og takk fyrir að snúa orðum mínum eins og að ég vildi ekki stjórnlagaþing (ég reyndar vil allt þar sem þið elítan (hægri og vinstri) missið völd, þám stjórnlagaþing), eða ertu bara búinn að setja mig í annaðhvort skítaliðið?)

No more mister nice guy!

Óflokkað | Ummæli (26) Facebook

Ætli það hafi verið réttlætiskenndin sem rak þá Skafta og Óðinn út í það að ógilda stjórnlagaþingskosninguna? Því fer fjarri – þarna réðu hagsmunir skrýmslaklíkunnar. Nú hlær hádegismórinn og skrýmslin í kringum hann. Þeim er að takast að ná stjórnlagaþinginu af fólkinu. Þeir sögðu jú að stjórnarskráin væri ekkert barnaleikfang – henni mætti ekki breyta nema ef þeir; pakkið, hefðu alla þræðina í hendi sér.

Ömurlegur dagur sem aðeins eitt getur bjargað: No more mister nice guy!

Grímur Atlason @ 25. janúar, 2011


Skrifa ummæli

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Kæfuvörn:   Hver er summan af núlli og sjö? Svar: