Hættið að látast
Óflokkað | Ummæli (12) Facebook
Ásmundur, Lilja, Atli, Styrmir Gunnarsson og aðrir áhrifalausir áhrifamenn í VG – hvernig væri að leggja fram vantraust á þessa ríkisstjórn sem þið styðjið ekki. Hætta þessum látalætum – þetta er móðgun við heilbrigða skynsemi. Það er alveg hreint magnað að Syrmir Gunnarsson skuli stýra atkvæðum fólks í NV-kjördæmi.
Grímur Atlason @ 16. desember, 2010
Grímur Atlason
Þessir þingmenn verða að gera upp hug sinn. Þeir geta sagt sig úr VG. Þeir geta sagt af sér þingmennsku. En það er ekki hægt að bæði vera og ekki vera. Þú getur ekki bæði verið í meirihluta og ekki verið í meirihluta. Hvernig yrði ástandið ef allir þingmenn léku sama leik og þrímenningarnir?
Muniði hvernig hrunstjórnin tók á hvalveiðimálunum? Sjávarútvegs leyfði hvalveiðar. Utanríkis sagði útlendingum (og öðrum sem heyra vildu) að hún væri á móti hvalveiðum. Allir sammála (einhverjum í) ríkisstjórninni.
Nokkrir úr VG eru á móti ýmsu. T.d. inngöngu í EB. Aðrir eru í ríkisstjórn með Samfylkingu.
Ég spái VG feitum kosningasigri í komandi kosningum ef órólega deildin stendur sig nógu vel, án þess að rugga bátnum of mikið.
Stjórn landsins er eftir sem áður í höndum gróðabjálfa, útgerðargosa og bankakónga.
Skiptir engu máli hverjir eru að leika sér þarna niðri á Alþingi.
Sammála. Þessi skemmdarverkastarfsemi Lilju innan þingflokksins er sérlega áhrifarík en jafnframt ömurleg.
Hún er greinilega gífurlega óheiðarleg.
Síðan hvenær hefur það talist til “ skemmdarverkastarfssemi“ að framfylgja eigin sannfæringu ??
Er Sovét Island loksins að verða að veruleika ?? !
Ekkert icesave, ekkert esb, ekkert icesave osfrv. Hvenær ég kýs vg aftur? ja……….
Er þetta ekki svipað Þráinn double-tékk Bertels er að gera?
Fjórfokkið heldur áfram án gagnrýni.
Gleðileg jól
Á Íslandi sem og víðar í Vesturálfu er þingræði sem byggist á því að menn skipa sér í mismunandi stjórnmálaflokka sem síðan bjóða fram til þings. Í aðdraganda kosninga kynna flokkarnir síðan helstu stefnumál sín og ég er nokkuð viss um að flestir kjósendur láta þessi stefnumál ráða atkvæði sínu.
Hvaða réttlæti er þá fólgið í því, meðan ekki er um hreint persónukjör að ræða, að einstaka þingmönnum sé síðan frjálst að greiða atkvæði út og suður, jafnvel þvert á stefnu eigin flokks, bara af því að þeim finnst eitthvað annað?
Þessi ríkisstjórn er búin að vera. Hún á að sjá sóma sinn í að segja af sér, og boða til kosninga. Það þarf ekkert að bera neitt vantraust á hana, það er nú þegar til staðar.
Þeir sem kusu VG héldu að þeir væru að kjósa jafnaðarmanna flokk. Sú ömurlega staða er kominn upp að almenningur í landinu er látinn borga brúsan af þessu hruni.
Það er enginn skuldaleiðrétting, ekkert réttlæti enginn jöfnuður. Þeir sem höfðu héldu sýnu þeir sem skulduð hafa tapað.
Með þessum fjárlögum er verið að gera fólk atvinnulaust sem fær ekki annarsstaðar vinnu. Nú síðast benti nóbelsverðlaunahafinn Stiglitz á að menn eiga að eyða sig út úr kreppu en ekki senda fólk á bætur.
Í órólega deildinni er fólk sem kemst næst því að fylgja stefnu vinsti grænna sem jafnaðarmanna flokks. Steingrímur aftur á móti er á einhverri vegferð sem jú xD, LÍÚ og AGS lofa en gefur skít í sína kjósendur. Það verður fylgishrun í flokknum í næstu kostningum með sama framhaldi.
Mér er fyrirmunar að skilja að fólk sem kýs gegn sinni sannfæringu í einhverri foringjahræðslu, séu betri þingmenn er þeir sem kjósa eftir sinni sannfæringu og sannfæringu þeirra sem kusu þá.
Þetta er nú meira bullið í þér. Veit ekki betur en þessir þrír þingmenn hafi verið að greiða atkvæði samkvæmt sinni sannfæringu. Þetta fólk er að boða ný vinnubrögð en þá koma dindlar eins og þú og sjáið allt svart. GROW UP!
Ég geri ekki athugasemd við að Lilja og hitt liðið greiði atkvæði samkvæmt sannfæringu sinni.
En þá eiga þau að fylgja sannfæringunni eftir og hætta að þykjast styðja þessa ríkisstórn.
Það væri miklu meiri sómi af því fyrir liðið að vera heiðarlegir stjórnarandstöðuþingmenn en svona skemmdarvargar innan stjórnar.
Steingrímur J er ekki í VG hann er í Samfylkingunni hann ætlar sér inn bakdyra megin með VG eins og Ingi björg gerði með Kvennalistann og Jóhanna með Þjóðvakann.