Þú ert að skoða færslur fyrir mánuðinn: mars, 2010.

Færslur

Samtök þeirra sem eru á móti vinstristjórnum

Grímur Atlason @ 28. mars, 2010 # Ummæli (6)

„Það er ekki rétti tíminn til að vera með hugmyndafræðilega umræðu. Vissulega eru deilur um fiskveiðistjórnunarkerfið – en það er bara ekki rétti tíminn núna að fara í breytingar“. „Við verðum að nýta auðlindir okkar – það er leiðin út úr kreppunni. Hagvöxturinn verður enginn nema ef við nýtum auðlindirnar – virkjum og förum í [...]

Lesa meira

Aðför gegn landsbyggðinni!

Grímur Atlason @ 24. mars, 2010 # Ummæli (18)

Í kvöld verður haldinn ótrúlegur fundur í Edinborgarhúsinu á Ísafirði. Hann ber yfirskriftina: Sjávarútvegur í óvissu!  Almennur baráttufundur gegn: fyrningarleið í sjávarútvegi afnámi sjómannaafsláttar aðför gegn landsbyggðinni Ég hef fengið mig fullsaddan af loddaraskap og lygaþvælu Landssamtaka íslenskra útvegsmanna. Með í för eru síðan kjörnir fulltrúar sveitarfélaga á svæðinu sem margir hverjir eiga persónulegra og [...]

Lesa meira

Skötuselur í smjöri

Grímur Atlason @ 23. mars, 2010 # Ummæli (20)

LÍÚ hefur um langt árabil ráðið því sem samtökin hafa viljað ráða. Fyrir einu ári breyttist þetta þegar handbendi samtakanna á þingi urðu skyndilega í minnihluta og ný ríkisstjórn var mynduð – ríkisstjórn sem tók ekki skipunum frá LÍÚ. Núna hótar LÍÚ í gegnum vinina í Samtökum atvinnulífsins. Stöðugleikasáttmálinn er úti af því að 2000 [...]

Lesa meira

Af minni þjóðar

Grímur Atlason @ 19. mars, 2010 # Ummæli (8)

Samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins fengi Sjálfstæðisflokkurinn 40,3% fylgi ef gengið yrði til kosninga núna. Framsóknarflokkurinn fengi 13,3% – þannig að ríkisstjórnin er fallin ef marka má þessa könnun blaðsins. Auðvitað verður að setja fyrirvara við þetta allt saman – 800 manna úrtak, 60% svörun og slembiúrtak þeirra sem hafa síma – en þetta gefur vísbendingar. Ég [...]

Lesa meira

Eitt kjördæmi – strax!

Grímur Atlason @ 17. mars, 2010 # Ummæli (12)

19 þingmenn úr öllum flokkum, nema Sjálfstæðisflokknum,  hafa lagt fram frumvarp til laga um að landið verði gert að einu kjördæmi.  Þetta er eitt mikilvægasta málið sem liggur fyrir þinginu núna. Rót vanda okkar Íslendinga liggur einmitt í þeirri hugmynd Hriflunnar, sem enn er við lýði, að hafa mismunandi vægi á atkvæðum manna eftir því [...]

Lesa meira

Bændablaðið

Grímur Atlason @ 12. mars, 2010 # Ummæli (17)

Bændablaðið er ríkisstyrktur fjölmiðill sem dreift er út um allt land – lesendum að kostnaðarlausu. Þessi fjölmiðill er stundum ágætur og ýmislegt gott þar að finna. Það hefur reyndar dregið úr því merkilega þar upp á síðkastið og meira farið fyrir einstrengingslegum og staglkenndum áróðri. Í þessum fjölmiðli er þannig að finna einkar harða afstöðu [...]

Lesa meira

Ábyrgð okkar

Grímur Atlason @ 11. mars, 2010 # Ummæli (10)

Pétur Blöndal er á köflum skemmtilegur alþingismaður. Hann verður ekki sakaður um að fara ekki sínar eigin leiðir og að vera ekki trúr sannfæringu sinni (oftast). Sannfæring hans og skoðanir eru hins vegar ekki alltaf minn bolli af tei en það er eðlilegt. Í morgun var Pétur í viðtali á Bylgjunni og lét þar ýmislegt [...]

Lesa meira

Þvermóðska

Grímur Atlason @ 10. mars, 2010 # Ummæli (11)

Nú þegar stjórnmálamenn tala um sannfæringu sína og mikilvægi hennar er rétt að minna á eitt: Ef stóriðjukratarnir í Samfylkingunni fara nú að hlusta á sannfæringu sínu um álver hér og álver þar – hvað gerist þá? Mynda þeir ekki bara meirihluta með Sigmundi Davíð og Bjarna Ben eins og aðrir pólitískir sannfæringasinnar hafa gert [...]

Lesa meira

Sögulegar staðreyndir og minnisleysi þjóðar

Grímur Atlason @ 8. mars, 2010 # Ummæli (14)

Í aðdraganda alþingiskosninganna 1999 var tekist á um grundvallaratriði í pólitík á Íslandi. Stjórnarflokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, óskuðu eftir umboði til þess að ráðast í stóriðjuframkvæmdir, einkavæðingu Landssímans, ríkisbankanna og annarra gulleggja. Á stefnuskrá þessara flokkar voru skattalækkanir og önnur dæmigerð hægrisjónarmið. Þessir flokkar fengu umbeðið umboð og héldu völdum. Áður en gengið var til [...]

Lesa meira

Lifi tónlistin og Evrópa!

Grímur Atlason @ 4. mars, 2010 # Ummæli (7)

Það er merkilegt að fara í gegnum Evrópu með tónlist. Þar er þessari deild menningar gerð skil á þann hátt sem hún á skilið. Á Íslandi er vissulega slæmt hvernig komið er fram við kvikmyndagerð þessa dagana en það er þó ekkert samanborið við þá lítilsvirðingu sem tónlist og þá sérstaklega popptónlist er sýnd á [...]

Lesa meira