Er Staksteinn vænisjúkur?
Óflokkað | Ummæli (7) Facebook
Las Stakstein gærdagsins úr Mogga. Þar er því haldið fram að flokkseigendafélagið í VG hafi refsað Baldvini H. Sigurðssyni, oddvita flokksins á Akureyri, í forvali helgarinnar. Hann ku hafa skrifað opið bréf til formannsins sl. sumar vegna meints Evrópuandstöðuleysis formannsins. Formaðurinn og flokkseigendaklíkan þoldi auðvitað ekki pilluna og refsaði Baldvini með því að segja öllum að kjósa Andreu Hjálmsdóttur. Þetta meikar fullkominn sens sé maður á annað borð fullur af vænisýki.
Staðreyndin er hins vegar sú að Andrea Hjálmsdóttir er öflug kona sem sigraði í heiðarlegri keppni um 1. sætið í forvali stjórnmálaflokks. Hún keypti sér ekki sætið með peningum og skítabrögðum eins og svo oft tíðkast í prófkjörum í flokki Staksteins. Ég efa það að hún skuldi verktökum eða öðrum greiða sem koma til greiðslu á næsta kjörtímabili.
Vænisýki getur verið alvarlegur sjúkdómur sé hann ekki meðhöndlaður rétt. Staksteinn sýnir einkenni sem vert er að láta líta á…
Grímur Atlason @ 9. febrúar, 2010
Grímur Atlason
Er þetta ekki bara hið sígilda dæmi um að margur haldi mig sig?
Þú efar það já. Hvernig væri að fá þessa hluti á hreint í stað þess að sjúkdómsgreina fólk út í loftið?
http://www.visir.is/article/20091029/FRETTIR01/377316112/1195
Þetta álit „Hádegismóra“ á niðurstöðu prófkjörsins er aldeilis eðlileg, frá hans sjónarhorni.
Hann var vanur því að þeim sem ekki fylgdu honum að málum í einu og öllu var harðlega refsað af flokkseigendafélaginu. Ef annað dugði ekki til var viðkomandi stofnun lögð niður.
Sínum augum lítur hver á silfrið.
Hvað með Þorleif Gunnlaugsson? Er hann vænisjúkur? Öfundsjúkur?
Mig minnir nú að Baldvin hafi sjálfur verið sakaður um smölun fyrir 4 árum síðan. Annars finnast mér nú skiptin í 2. sætinu verðskulda athygli líka, Kristín Sigfúsdóttir stígur frá eftir langan og góðan feril og öflugur „nýliði“ (Edward Hujibens) kemur inn.
Ekki hef é minnsta áhuga á að hafa orðastað við ES, en ég hef hugmynd hver hann er. Ég bara spyr mig, er þessi persóna algerlega ósnortin af þeim veruleika sem þetta land býr við, hverjar séu grundvallar ástæður þess vanda sem við eigum við að glíma, og með hvaða hætti ÖLLU þessu ætti að linna, þ.e. regluverki og öðrum þáttum sem þessu kemur við.
Kennari í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands var á meðal þeirra stuðningsmanna Sóleyjar Tómasdóttur, sem tóku þátt í að ganga með atkvæðaseðla í forvali Vinstri grænna í heimahús. Fréttablaðið telur sig hafa staðfestar heimildir fyrir því að umræddur kennari sé Silja Bára Ómarsdóttir og að hún hafi með þeim hætti fengið nemendur sína til að taka þátt í forvalinu.Hvað skildi hún borga firrir herlegheitinn (betri einkannir)