Þjóðernisvillan
Óflokkað | Ummæli (3) Facebook
„Rót front! Rót front! Skyldu þessi lausnarorð nokkurntíma koma til okkar aftur? Þjóðernisvillan hefur tært merg og blóð úr sósíalismanum og nú sitjum við lamaðir úti á pólitísku dauðahafi. Ennþá ófullkomleiki mannanna!“
Pétur hefur gert meistaraverk um Þórberg Þórðarson. Hann gerði ævisögu sem má jafnvel bera saman við Árna. Ofangreint sagði Þórbergur í bréfi til vinar síns og útgefanda Kristins E. Andréssonar rétt í kringum 1970. Þórbergur var alþjóðasinni og sósíalisti. Það fer nefnilega ágætlega saman. Það er hollt að lesa þetta núna þegar vinstrimenn eru kallaðir hægri-vinstrimenn hugsi þeir á alþjóðanótum.
Grímur Atlason @ 25. janúar, 2010
Grímur Atlason
Það eru Blairistarnir sem eru kallaðir hægri-vinstrimenn, þ.e. þeir sem vilja framfylgja sama fjármagnsdekur og frjálshyggjumennirnir en láta eins og það sé allt í einu orðið vinstristefna. Hægri og vinstri snýrst um afstöðuna sem maður tekur í baráttu þeirra sem hafa tekjur sínar af eignum og þeim sem hafa tekjur sínar af vinnu.
Stofnaðirðu Kommúnistaflokk gætu þú hlustað á félagana játa villur sínar. Þjóðernisvillur, hægrivillur, vinstrivillur.
„Iðrunartárin ættu vor öll hér að væta gengin spor. Gengnum lífið með gleði og lyst, gengum við þá í himnavist.“
segir síra Hallgrímur Pétursson. Stalín var illa við sovétmenn með alþjóðleg tengls. Alþjóðleg tengsl voru ekki
fólki til framdráttar í Sovétríkjunum nema síður væri.
melódramatíkin í þessu bloggi er pínku hlægileg.
það er einstaklega ólíklegt að þórbergur væri til í að kjósa VG núna. og alþjóðahyggjan sem hann dreymdi um snérist alveg pottþétt ekki um evrópusambandið, eða AGS, eða það að láta almenning á íslandi borga skuldir einkabanka…
það er orðið ansi erfitt fyrir okkur sem kusum vg í síðustu kosningum, ekki vegna flokkshollustu heldur vegna raunverulegra væntinga til flokksins, að umbera ástandið.
hér er ágætis tilraun til að ’skilgreina ástandið’.
http://www.smugan.is/pistlar/adsendar-greinar/nr/2663
‘Voldug ESB-ríki þröngva ólögmætum skuldbindingum upp á Ísland, beita fyrir sig AGS, en stjórnvöld mæta árásunum ýmist á hnjánum eða liggjandi. Við bjuggumst ekki við miklum landvörnum af hálfu ESB-óðrar Samfylkingar, en aumingjaskapur VG í málinu olli mörgum vonbrigðum. En ég bendi á að VG sveigir sig einnig hér að ríkjandi efnahagsstefnu íslensks auðvalds. Með ríkisstjórnum til hægri og vinstri hefur hefur sú stefna allt frá 8. áratugnum verið mjög eindregin aðlögun að hnattrænu markaðs- og fjármálakerfi. Þess vegna eru íslenskt hagkerfi og stjórnmál mjög berskjölduð gagnvart þrýstingi frá „alþjóðakerfinu“, og ESB-hluta þess sérstaklega.’