Hin heimska hönd hagræðingarinnar
Grímur Atlason @ 26. janúar, 2010 # Ummæli (13)
Ég hef varið vinstristjórnina frá því hún komst til valda. Ég hef þó ekki gert það í blindni. Margt hefur gengið á og ýmislegt áunnist sem jaðrar við kraftaverk í því ástandi sem nú er. Eitt atriði er hins vegar ekki hægt að hrósa fyrir. Arfavitlaus aðferð við niðurskurð tröllríður íslensku stjórnkerfi og hefur gert [...]
Lesa meira
Þjóðernisvillan
Grímur Atlason @ 25. janúar, 2010 # Ummæli (3)
„Rót front! Rót front! Skyldu þessi lausnarorð nokkurntíma koma til okkar aftur? Þjóðernisvillan hefur tært merg og blóð úr sósíalismanum og nú sitjum við lamaðir úti á pólitísku dauðahafi. Ennþá ófullkomleiki mannanna!“
Pétur hefur gert meistaraverk um Þórberg Þórðarson. Hann gerði ævisögu sem má jafnvel bera saman við Árna. Ofangreint sagði Þórbergur í bréfi til vinar [...]
Lesa meira
Ég um mig frá mér til mín
Grímur Atlason @ 22. janúar, 2010 # Ummæli (8)
Það hefði án efa verið athyglisvert að vera á borgarafundinum í Vestmannaeyjum í gær. Þar virðist hafa verið samankomið fólk sem er einnar ákveðinnar skoðunar. Kollektíf hugsun var ekki leiðarstefið nema ef vera skyldi kollektíf hugsun örfárra.
Á fundinum fór sá ágæti maður bæjarstjórinn mikinn. Hann sagði m.a. þetta:
,,Það er akkúrat endastöðin í fyrningarleiðinni að afskrifa [...]
Lesa meira
Ákært
Grímur Atlason @ 21. janúar, 2010 # Ummæli (14)
Ég veit ekki hvað gengur á hjá ó-sérstökum ríkissaksóknara. Við erum enn að bíða eftir því að ákærur verði gefnar út á fólkið sem setti Ísland á höfuðkúpuna og fátt virðist gerast þar. Fyrstu ákærurnar sem gefnar eru út eru hins vegar gegn ungu fólki sem fékk nóg og gerði byltingu gegn ríkjandi ástandi. Aldrei [...]
Lesa meira
Kórstjórinn hótar
Grímur Atlason @ 13. janúar, 2010 # Ummæli (24)
Heyrði kvöldfréttir á Stöð 2. Á þessum sorgardegi fyrir Haítímenn þá valdi fréttastjóri að kalla á kórstjóra LÍÚ sem fyrstu frétt. Þar hótaði kórstjórinn því að sigla flotanum í land ef stjórnvöld gerðu ekki eins og stjórnvöld hafa alltaf gert í þessu landi: að lúffa fyrir greifunum.
Þeir tala um gjaldþrot og hörmungar. Ótrúlegur málflutningur. Bakvið [...]
Lesa meira
Ábyrgð
Grímur Atlason @ 12. janúar, 2010 # Ummæli (10)
Horfði á Lárus Blöndal í Kastljósi kvöldsins ausa úr brunni visku sinnar varðandi Icesave. Hann sagði ýmislegt. Tók það t.d. fram að skoðun Jan Egeland á stöðunni væri þunnur þrettándi. Jan Egeland er að margra mati einn reyndasti og besti milliríkjasamningamaður Norðurlanda. En Lárus Blöndal hrl. á Íslandi segir málflutning Jan Egeland bera þess merki að [...]
Lesa meira
Að taka slaginn eða ekki?
Grímur Atlason @ 11. janúar, 2010 # Ummæli (21)
Mér finnst alveg magnað að vinstrisinnaðir Evrópuþingmenn og græningjar skuli vera haldreipi hægrisinnaðra á Íslandi. Eva Joly og kollegi hennar Alain Lipietz hafa vissulega rétt fyrir sér: glórulaus græðgisvæðing og auðlindasukk settu hér allt á hvolft og eru rót vandans. Samningurinn um Icesave er vissulega ein ömurlegasta gjöf sem skattgreiðendum þessa lands hefur hlotnast frá [...]
Lesa meira
Afleiðingar hégómans
Grímur Atlason @ 6. janúar, 2010 # Ummæli (9)
Lánasjóður sveitarfélaga ætlar með skuldabréfaútgáfu að fjármagna 7 til 9 milljarða vegna nýrra lána árið 2010. Þetta mátti lesa í fréttum 4. janúar sl. Þetta er allt gott og blessað og Lánasjóðurinn sinnir þarna mikilvægu hlutverki sínu sem er að lána sveitarfélögum til framkvæmda. En það sjá það allir að hér er aðeins um dropa [...]
Lesa meira
Endurreisn lýðveldis
Grímur Atlason @ 5. janúar, 2010 # Ummæli (11)
Það er ekkert sem heitir. Það verður að leggja niður forsetaembættið í núverandi mynd. Það þarf reyndar að leggja niður lýðveldið í núverandi mynd og þá stjórnskipan sem hér er við lýði. Þingheimur varð sér til skammar í sumar og haust.
Það verður hins vegar að bjarga lýðveldinu Íslandi. Það verður aðeins gert með stofnun nýs [...]
Lesa meira
Forsetinn á þrjá kosti í stöðunni
Grímur Atlason @ 3. janúar, 2010 # Ummæli (11)
Menn velta því fyrir sér hvað forsetinn muni gera. Fljótt á litið koma aðeins tveir kostir til greina. Að forsetinn neiti að staðfesta lögin eða að hann staðfesti þau. Þriðji kosturinn er hins vegar einnig fyrir hendi. Hann er lítið ræddur en mér þykir vert að gefa honum gaum. Forsetinn getur hreinlega valið að segja [...]
Lesa meira