Þú ert að skoða færslur fyrir mánuðinn: desember, 2009.

Færslur

Lýðskrum formanns

Grímur Atlason @ 29. desember, 2009 # Ummæli (41)

Eftir að hafa hlustað á Bjarna Benediktsson í morgun ár Rás 2, takast á við Guðbjart Hannesson, fékk ég nóg. Bjarni, núna í stjórnarandstöðu, bölvar ríkisstjórninni og skammar fyrir aumingjadóminn. Hann krefst þess að Icesavedeilan verði send dómstólum – bara sig svona niðrí héraðsdóm með hana. Þetta er sami Bjarninn og samþykkti þessa þingsályktunartillögu þann [...]

Lesa meira

Fagin sleppur

Grímur Atlason @ 28. desember, 2009 # Ummæli (8)

Það fer að detta í að við þurfum aðra rannsóknarnefnd til að fara yfir það sem hefur gerst eftir hrun. Allt frá hruni hafa borist fréttir af hinum og þessum hraðsoðnum ákvörðunum sem ríkisstjórnin hefur þurft að taka. Við höfum verið beðin um að sýna þolinmæði og biðlund. Það er bara ekki endalaust hægt.
Um jólin [...]

Lesa meira

Einum kennt – öðrum bent

Grímur Atlason @ 27. desember, 2009 # Ummæli (10)

Það er rúmur mánuður eftir af ári uxans. Það var ekkert sérstakt ár fyrir okkur hunda. Nú í febrúar hefst ár tígursins en það ár er hundum gott. Árið 874, sem sumir sagnfræðingar segja fyrsta ár landnáms á Íslandi, var líka ár tígursins. Ár tígursins ku einnig verða tígrinum sjálfum gott.
Ég verð að leita í [...]

Lesa meira

Máttlaus velferð

Grímur Atlason @ 22. desember, 2009 # Ummæli (3)

Það er eins og sumir hafi haldið að þetta þjóðarhrun okkar Íslendinga myndi ekki koma neitt sérstaklega mikið við okkur. Því miður er það ekki svo og tekjusamdráttur, atvinnuleysi, niðurskurður þjónustu ásamt skattahækkunum er staðreynd. Þetta lá alltaf ljóst fyrir að myndi gerast þegar lokinu yrði lyft af suðupotti vitleysunnar.
Sumt af því sem stjórnvöld hafa [...]

Lesa meira

„We have laid the foundations for at least another 15 years of prosperity“

Grímur Atlason @ 21. desember, 2009 # Ummæli (3)

Fyrrverandi utanríkisráðherra sendi í síðustu viku minnisblað til utanríkismálanefndar. Þar fer hún yfir Icesave og það sem gerðist rétt eftir hrunið. Hún tekur fram að hún hafi verið talsvert fjarverandi vegna veikinda á þessum tíma sem er klókt – nær þannig ákveðinni fjarlægð. Minnisblaðið má bæði lesa með gleraugum gagnrýnenda og stuðningsmanna Icesave. Þetta er allt [...]

Lesa meira

Keisarinn er allsber

Grímur Atlason @ 16. desember, 2009 # Ummæli (14)

Rakst á þennan gamla draug úr fortíðinni í morgun. Þar ræðst „reykneskur“ Sjálfstæðismaður með offorsi á vinstriskrílinn. Frá því að ég man fyrst eftir mér hefur því verið haldið að mér og öðrum landsmönnum að þeir sem væru til vinstri gætu ekki rekið eitt né neitt. Fjármálaóstjórn og glundroði fylgir víst þeirra stjórn umfram allt [...]

Lesa meira

Víglundur í svörtum ramma

Grímur Atlason @ 10. desember, 2009 # Ummæli (8)

Víglundur Þorsteinsson tjáir sig í Morgunblaðinu í dag. Hann fær þar svartan ramma eins og sönnum „vini aðal“ sæmir. Hann býsnast þar yfir aðgerðum Seðlabankans og ríkisstjórnarinnar:
Það skyldi þó ekki vera að nú skuli láta kné fylgja kviði og treysta enn frekar kreppufangelsi þjóðarinnar til viðbótar boðuðum skattahækkunum með því að skerða kaupmáttinn enn frekar [...]

Lesa meira

Enginn málstaður

Grímur Atlason @ 7. desember, 2009 # Ummæli (18)

Menn eru á því að þjóðinni beri engin skylda til að greiða Icesaveskuldbindingarnar. Landsbankinn stofnaði jú til þeirra – ekki þjóðin. Það er alveg hárrétt. Innistæðutryggingasjóðurinn á að taka á þessu – almenningur hefur ekkert með hann að gera. Alveg rétt líka. Hins vegar var líka ljóst að áður en Icesavemarkaðssetning náði hámarki var staða [...]

Lesa meira

Merkilegt viðtal

Grímur Atlason @ 6. desember, 2009 # Ummæli (5)

Það verður fróðlegt að fylgjast með viðbrögðunum við viðtali Egils Helgasonar við Roger Boyes í Silfrinu í dag. Þar var nokkuð nákvæm sálfræðigreining á síðustu tveimur forsætisráðherrum Sjálfstæðisflokksins – þó sérstaklega þessum sem var eitt sinn borgarstjóri líka. Þáttur hans í hruninu er tekinn til rækilegrar skoðunar í nýrri bók Boyes um hrunið á Íslandi. [...]

Lesa meira

Icesavelögmálið

Grímur Atlason @ 4. desember, 2009 # Ummæli (4)

Góður vinur minn er fakír í Háskólanum. Hann hefur nú sett fram Icesavelögmálið:
LÖGMÁL: Ef til er einhver tiltekin skoðun (x) á ICESAVE málinu úr mengi M sem inniheldur allar mögulegar skoðanir á ICESAVE málinu, (semsagt: M[x]), er til stak (y) í mengi H (H = Íslenskir Háskólakennarar; þar á meðal „prófessorar í lögum“) sem haldið [...]

Lesa meira