Kúagerðisgangan
Óflokkað | Ummæli (23) Facebook
„Ganga á Keflavíkurgöngu á sunnudag frá Vogaafleggjara á Reykjanesbraut að Kúagerði til að leggja áherslu á kröfur um úrbætur í atvinnumálum á Suðurnesjum, velferð og uppbyggingu.“
Það að ganga frá Vogum að Kúagerði og kalla það Keflavíkurgöngu er nokkuð skrítið en látum það liggja á milli hluta. Hins vegar þykir mér merkilegt að forsvarsmenn Reykjanesbæjar o.fl. skuli ganga kröfugöngu þar sem lögð er áherslu á úrbætur í atvinnumálu á Suðurnesjum. Hverjir skulda Suðurnesjamönnum aðgerðir? Hvað hefur tafist og hvað hindrar frekari uppbyggingu? Ábyrgðin liggur ekki hjá vondri ríkisstjórn og einstaka stjórnmálamönnum. Hún liggur fyrst og fremst hjá Suðurnesjamönnum sjálfum – stjórnmálamönnunum í héraði sem völdu að tefla djarft. Þenslan og offjárfesting kemur nú til baka eins og boomerang með tvöföldum krafti. Sveitarfélagið er ofurskuldsett af því að það voru teknir stórir sénsar sl. ár. Línur um Reykjanes hafa ekkert með vanda Suðurnesjamanna að gera!
Kúagerðisgangan er þannig aðeins markaðstilraun þar sem markmiðið er að beina kastljósinu frá hinum raunverulegum vanda Suðurnesjamanna. Þó pólitískir vinir í Reykjavík vilji fórna vatnsbólum sínum fyrir héraðshöfðingjana á Suðurnesjum stendur ríkisstjórnin enn í lappirnar. Ég þakka herra mínum fyrir umhverfisráðherra sem hlustar ekki á patent bull. Umhverfisráðuneytið er ekki skúffa í Fasteignafélaginu Reykjanesbær!
Grímur Atlason @ 7. nóvember, 2009
Grímur Atlason
Hvað menn geta verið súrir og mikklir þverhausar að tala allt niður. „forna vatnsbólum sínum…“ já einmitt!! þó að nokkrir steypuklumpar og málmstaurar verða stungnir þarna niður þá er bara vatnsbólinu fórnað??? þetta er svo mikil Vinstri Geðveiki að það hálfa væri nóg.
Einu sinni þótti gott að hafa hundsvit á því sem menn létu út úr sér!
Ekki einn einasti blaðamannsræfill hefur haft fyrir því að skoða þessi mál ofan í kjölinn. 1987-1988 stóð nefnilega til að leggja tvær línur hlið við hlið, á núverandi línustæði. Ekki var hinsvegar til fjármagn til þess á þeim tíma.
OG ÞETTA VAR HREINLEGA AF ÖRYGGISÁSTÆÐUM!
Eigum við eitthvað að ræða göngin til Bolungarvíkur?
Af hverju ganga menn ekki alla leið ef þetta er þeim hjartans mál ?
Ég er suðurnesjamaður og vildi bara þakka þér hlý orð í okkar garð. Þér er greinilega skítsama um vanda fjölmargra á þessu svæði og sýnir sjónarmiðum þeirra sem vilja atvinnuuppbyggingu lítinn skilning. Þetta snýst ekkert um álver, frekar en á Húsavík, þetta snýst um atvinnuuppbyggingu og að koma málum af stað, td til að forða fjölda fólks frá því að missa heimili sín. Ég segi bara eins og er að mér bregður að sjá sveitarstjóra sýna svona lítinn skilning og nánast fyrirlitningu á þessum sjónarmiðum. Gangi þér vel í Dalabyggð og ég vona að enginn sýni þinni sveit sama hroka og skilningsleysi sem þú sýnir okkur suðurnesjamönnum.
Sæll Grímur
Herra þinn veri með þér. Það er ekki gott að vera atvinnulaus og ef þú hefur góðar tillögur handa Suðurnesjamönnum aðra en þær sem þeir vilja og vilt að þeir þyggi þær frekar kallaðist slíkt Fasismi í mínu ungdæmi. Langar að benda þér á að hér býr fólk. Eitt að lokum hvar get ég kært næsta eldgos segjum Skaftárelda númer tvö. Mér vitanlega hefur ekki farið fram umhverfismat á þeirri framkvæmd eða öðrum sambærilegum.
sæll að sinni
Guðmundur Ingi Kristinsson
Afhendingaröryggi rafmagns er áægtt mál. Við skulum hins vegar ekki blanda Vestfjörðum eða Bolungarvík inn í þetta eins og það sé sambærilegt. Afhendingaröryggi rafmagns er hvergi verra en á Vestfjörðum. Í dreifbýli borgar fólk 45% hærra verð fyrir dreifingu rafmagns en t.d. íbúar í Keflavík eða Hafnarfirði. Þetta er hins vegar ekki umræðuefnið hér.
Vandi Suðurnesjamanna hefur ekkert með línur og afhendingaröryggi rafmagns að gera. Hann snýst um offjárfestingu og bjartsýniskast sem ekki átti sér stoðir í raunveruleikanum. Hundruð tómra íbúða og 20% atvinnuleysi. Ástandið verður ekki lagað með því að leggja línur sem enginn veit hvar eiga að fara í samband.
Eitt hef ég lært með árunum að gagnvart heimsku duga engin rök en hún vopnast fúkyrðum og hennar félögum. Mun ég ekki eiga frekiri samskipti við yðar heilagleika.
Vertu blessaður
Guðmundur Ingi Kristinsson
Það er leitt til þess að vita hvursu lítið álit þú hefur á Suðurnesjamönnum.
Heimska mín og mein lítið álit mitt á Suðurnesjamönnum? Ég efa það stórlega að Suðurnesjamenn séu allir að fara í Kúgagerðisgöngu eða haldi að vandi svæðisins sé umhverfisráðherra að kenna.
Hugsanlega er ég heimskur – en ég hef ekki lítið álit á Suðurnesjamönnum. Ég gef hins vegar lítið fyrir skrum póitíkurinnar sem þar hefur ráðið ríkjum í allt of langan tíma. Hvernig væri að skoða afleiðingar þeirrar stefnu með gagnrýnum gleraugum?
Það má vel vera að forsvarsmenn Reykjanesbæjar hafi teflt djarft í fjárfestingum á undanförnum árum.
Það er hins vegar fráleitt að álykta að þar með eigi þeir að sitja með hendur í skauti eða lýsa yfir fullkominni uppgjöf varðandi rekstur sveitarfélagsins.
Auðvitað hljóta þeir með öllum heiðarlegum og lögbundnum ráðum að efla sveitarfélagið á nýjan leik; hefja atvinnustigið til vegs sem er núna í lamasessi og bæta með því fjárhagsstöðu sveitarfélagsins.
Og það er ofur skiljanlegt að Reyknesingar séu ekki sáttir við viðbrögð stjórnvalda sem hvað eftir annað leggja stein í götu þeirra. Þess háttar meðferð og skilningsleysi hafa sveitarfélög víða á landsbyggðinni oft þurft að reyna af hálfu stjórnvalda og hafa t.d. Vestfirðingar ekki farið varhluta af því. Það ætti sveitarstjórnarmaðurinn Grímur Atlason að þekkja manna best.
Grímur, ég missti vinnuna. Sem betur fer er ég ekki með húsnæðislán á bakinu en það eru margir atvinnulausir hér á suðurnesjum sem eru ekki svo gæfusamir. Ég tók ekki þátt í góðærisfyllerínu og það á við um marga hér. Af hverju á að refs fólki fyrir ofþenslu og offjárfestingu stjórnmálamanna? Á þá ekki að refsa öllu landinu? Eða kannski bara íbúum suðvesturhornsins? Fólk þarf að hafa vinnu og geta haldið þaki yfir höfði sínu og sinna. Það er efst í huga flestra hér eins og annars staðar. Atvinnuleysi er afar slítandi andlega og ég óska engum þess að verða fyrir því. Þau rök og sjónarmið sem þú reifar eiga fullkomlega rétt á sér og eru góðra gjalda verð, en þegar fólk stendur frammi fyrir því að missa vinnuna og heimili sitt og fjölskyldu sinnar þá eru rök þín ekki það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar atvinnutækifæri er í sjónmáli.
Algerlega kjarni málsins, Grímur.
Takk.
Sammála Grímur. Þetta er pilskapitalismi af bestu gerð. Sjálfstæðismenn hampa einkaframtakinu í góðæri þegar þeir geta hirt gróðann en koma svo vælandi í ríkið þegar þeir eru búnir að gera í buxurnar.
Jakob spyr „Af hverju á að refs fólki fyrir ofþenslu og offjárfestingu stjórnmálamanna? “
ég spyr Jakob á móti – af hverju á að refsa okkur Reykvíkingum fyrir ofþenslu og offjárfestingu Keflvískra stjórnmálamanna, leggja vatnsból okkar í hættu t.d. og refsa öllum landsmönnum með lagningu lína og ofþenslu á þessu svæði vegna ofþenslu og offjárfestingu keflvískra stjórnmálamanna?
Við höfum ekkert af okkur gert!
Mér finnst það alltaf jafn fyndið að heyra vinstri menn ásaka andstæðinga um populisma…en er ekki sagt: It takes one, to know one?
Hins vegar finnst mér það ekki fyndið þegar menn nýta sér veikleika mannsins sér og sínum málum til framdráttar. Að segja vatnsból Reykvíkinga í stórhættu vegna lagningar á línu til Suðurnesja er í besta falli hálfur sannleikur og í versta falli hrein lygi. En tilgangurinn helgar meðalið og að koma inn hræðslu hjá fólki um mengað vatnsból er aðferð svínvirkar um stund…og virðist vera notuð æði mikið í ráðuneyti umhverfismála. Menn skulu muna að atvinnuóöryggi fólks er ekkert sem menn geta leyft sér að hafa í flimtingum. Það er stutt til næstu kosninga!
Ástæða atvinnuleysis liggur sem sagt hjá Suðurnesjamönnum sjálfum, hvílíkt rugl og vitleysa. Þú ættir sem sveitarstjóri að venja þig af því að tala önnur sveitarfélög niður eins og þú gerir í pistli þínum. Það er enginn í Reykjavík að fara að fórna vatnsbólum sínum. Vonandi þín vegna lesa sveitungar þínir ekki þennan pistil frá þér, svo þú eigir nú ekki á hættu að hrökklast þaðan eins og frá Bolungarvíkinni.
Sæll Grímur,
Ég hef það sem reglu að lesa bloggið þitt, oft virkilega gaman að lesa og ég er oft sammála þér.
Núna fannst mér þú hreinlega missa í buxurnar eitthvað sem þú vildir ekki að aðrir lyktuðu af.
Þessi pistill þinn er pólitískur ógeðsbrandari og þú ættir að skammast þín fyrir þessi skrif, hér er verið að reyna að berjast fyrir atvinnuuppbyggingu á svæði sem hefur séð,ördeyð, uppkaup kvóta frá svæðinu, varnarsvæðið verður að draugabæ og kreppan tekur krumlutökum á reykjanesinu af meiri afli en þekkist annarstaðar á öllu landinu.
Þú merkir þetta sem pólitíkst kjag að ganga Keflavíkurgönguna til að reyna að vekja athygli á raflínum sem þegar liggja um sama svæði!!
Afhverju?
Þú skalt ekki blanda Árna Sigfússyni við þessa göngu þetta hefur ekkert með þann mann að gera heldur almanna hagsmuni íslendinga og þó ekki síst suðrnesjamanna.
Árni mun vonandi ekki láta sjá sig þarna skrifandi uppá enn eina yfirlýsinguna að hann sé svo æðislegur og frábær, en hann reynir þó að klóra í djúpan sandbakkan sem þið vinstrigrænir hafa lagt í götu okkar suðurnesjamanna.
Varðandi Fasteignafélagið sem Árni og félagar kukla með er allt önnur saga og stærri á ekkert tengt við rafmagn hingað suður með sjó.
Bæn Vinsrti Græna,
Verkamaður djöfuls heimski hundur,
Suðurnesja frekju mundur.
Þú átt engan rétt á réttlæti.
Þú heimtar vinnu þig að fæða,
kaupa föt og á þig klæða.
Næst þú heimtar heimsins rétt og réttlæti
að vera virtur Íslendingur
en allt þetta í veg vill koma
sem Vinstri Grænn vill ég því lofa
húktu bara í þínum hrákarkofa.
Hárrétt hjá þér Grímur. Bý því miður hér í gjaldþrota bæjarfélagi, sem þjófahyskið úr Vestmanneyjum er gjörsamlega búið að eyðileggja. Bæjarstórinn og hans fólk er algerlega óhæft til að stjórna bæjarfélaginu, eins og sjá má þessa dagana. Hann reynir því af veikum mætti að slá ryki í augun á fólki. Vonandi mun félagsmálaráðuneytið skipa tilsjónarmann með bæjarfélaginu, og skoða bókhaldið, þar er ýmislegt sem ekki er alveg samkvæmt bókinni!
Endilega farið í þessa göngu, Árni og þitt þjófahyski, en í guðanna bænum ekki koma tilbaka!
Hvaða hættur gætu vatnsbóli Reykvíkinga og Hafnfirðinga stafað af byggingu Suðvesturlínu? Það er þekkt að gróður í nánd háspennulínu þrífst ekki af völdum rafsegulbylgna, en berast þessar bylgjur betur í jarðvegi en í andrúmslofti? Ef svo er þá er vel hugsanlegt að vatnsbólin séu í hættu, það vantar að rannsaka þetta. Háspennulínur eru ekki einungis byggðar úr steinsteypu heldur einnig úr galvaniseruðu (húðuðu) stáli. Það er alþekkt að þessi húðun rýrnar með tímanum og málmurinn sem notaður er til húðunar fer niður í jarðveginn. Þessi málmur er blanda af mjög hættulegum efnum og ef þau berast í matvæli eða vatn, þá eru þau hættleg heislu manna. Ég tel að Íslendingar geti ekki gert lítið úr hættunni á Zink mengun vegna línubygginga, þeir hafa einfaldlega ekki efni á því.
„Þessi pistill þinn er pólitískur ógeðsbrandari og þú ættir að skammast þín fyrir þessi skrif,“ segir Ólafur Eyjólfsson. Jahá! Tíðkast þau nú hin breiðu spjótin. Mér finnst þessi skrif Gríms orð í tíma töluð. Og má í raun yfirfæra þau á byggðastefnu alla þá sem rekin hefur verið hér svo lengi sem ég man. Og við henni verður ekki hróflað fyrr en við lögum þetta einkennilega kjördæmafyrirkomulag. En það virðist ekki í mannlegum mætti að ráð við það að ég sem Hafnfirðingur kjósi með mínu eina atkvæði meðan Gúndi í Búðardal er með þrjá kjörseðla í vasanum. Sem FH-ingur vil ég segja þetta við Ólaf: Reynið þið Kebblíngar nú að einbeita ykkur að fleiru en því einu að hafa stig af okkur nágrönnum ykkar og vinum.
Atvinnuleysi á Suðurnesjum er auðvitað alvarlegt mál, rétt eins og atvinnuleysi annarsstaðar á landinu. Slíkt ástand er ekki einkamál Suðurnesjabúa ekki frekar en það sé þeirra einkamál hvort þar rísi eitt stærsta álver Evrópu. Það varðar landsmenn alla sem og möguleika komandi kynslóða.
Beautiful blog with nice informational content. This is a really interesting and informative post. Good job! keep it up, hope to read your other updates. Thanks for this nice sharing.