Þú ert að skoða færslur fyrir mánuðinn: nóvember, 2009.

Færslur

Flatur niðurskurður og þúfan

Grímur Atlason @ 27. nóvember, 2009 # Ummæli (10)

Skera á niður tugi milljarða í ríkisbúskapnum á næstu árum. Það er nauðsynlegt í því árferði sem nú er.  Það er hins vegar að mestu gert með flötum niðurskurði. Það er afleit aðferð. Vel reknar og mikilvægar stofnanir út um allt land verða að skera jafn mikið niður og illa reknar og jafnvel tilgangslausar stofnanir.  [...]

Lesa meira

Merkilegur samanburður

Grímur Atlason @ 26. nóvember, 2009 # Ummæli (4)

Þorsteinn Pálsson fékk á baukinn hjá fyrrverandi vegamálaráðherra Snæfellinga fyrir stuttu: Eftir að hafa flett upp á síðu sex í Mogganum og skoðað myndina, sem blasti þar við mér, og lesið myndatextann, var mér satt að segja brugðið. Utanríkisráðherrann virtist ánægður með bráð sína! Hann var að kveðja Þorstein Pálsson eftir fyrsta fund nefndarinnar sem [...]

Lesa meira

Einn tónn eða orgel?

Grímur Atlason @ 20. nóvember, 2009 # Ummæli (5)

Svona aðeins til að fara yfir málin. Við Íslendingar erum um það bil að fara að setjast að samningarborðinu við ESB. Kannski næst ásættanlegur samningur fyrir þjóðina – kannski ekki . Þjóðin mun kjósa um þann samning. Hún mun ráða – ekki Samfylkingin eða Heimssýn.  Í dag eru það aðallega slagorð sem ganga yfir. Snæfellski vegamálaráðherrann [...]

Lesa meira

Þessu náðu Vilhjálmur og Gylfi fram

Grímur Atlason @ 15. nóvember, 2009 # Ummæli (10)

Launakostnaður álfyrirtækja ku vera mjög lítill á Íslandi. Ég er reglulega minntur á þessa staðreynd þegar ég tala um hvað þessi fyrirtæki hafa grætt á bankahruninu. Því ætla ég að benda á hvaða áhrif hækkun tryggingargjalds hefur á rekstur þessara fyrirtækja samanborið við mörg önnur fyrirtæki. Ég gef mér að álfyrirtækin á Íslandi borgi 10% [...]

Lesa meira

Enn af meintri skattpíningu

Grímur Atlason @ 14. nóvember, 2009 # Ummæli (8)

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir borgarfulltrúi skrifaði um skatta í Fréttablaðið í vikunni. Þar kemur lítið nýtt fram þegar kemur að meintum afleiðingum skattahækkana. Klisjurnar eru þarna allar. Skattar eru: vinnuletjandi; auka skattsvik og „minnka umsvif“ hagkerfisins (hvað sem það nú þýðir). Hægrimenn hafa löngum talið skatta af hinu illa og þannig kallar frjálshyggjufélagið skattatillögur ríkisstjórnarinnar „tilræði“ við [...]

Lesa meira

Af meintri brjálsemi ríkisstjórnar

Grímur Atlason @ 11. nóvember, 2009 # Ummæli (26)

Hlustaði á formann Sjálfstæðisflokksins tala um brjálæðislegar skattatillögur ríkisstjórnarinnar í gær. Af orðum hans að dæma mátti draga þá ályktun að ríkissjóður myndi hirða bróðurpart launa fólks. Illugi Gunnarsson mætti síðan í útvarpið í morgun og málaði afar dökka mynd af ástandinu.  Það er líklegt að margir hafi orðið hræddir við þessar véfréttir og án [...]

Lesa meira

Tryggingagjald og kostnaður

Grímur Atlason @ 10. nóvember, 2009 # Ummæli (0)

Nú er að komast mynd á tekjuhlið fjárlaga næsta árs. Flestir höfðu gert sér grein fyrir að þetta yrði talsverður skellur. Auðvitað er það almenningur sem borgar mest. Það er því miður þannig að þeir sem standa sína plikt og hafa alltaf gert þurfa að borga brúsann. Það er vonandi að samfélagsvitund fari batnandi með [...]

Lesa meira

Hinn raunverulegi lýðræðishalli

Grímur Atlason @ 8. nóvember, 2009 # Ummæli (7)

Lýðræðishalli er eitt af þessum skyndihugtökum sem enginn veit hvaðan kom en er allt í einu orðið partur af daglegum orðaforða. Hugtakið er þannig talsvert notað í tengslum við Evrópusambandið og því afsali lýðræðisins sem notendur hugtaksins segja að fylgi aðild. Ég ætla mér ekki að skrifa um Ísland og Evrópusambandið hér en segi þó þetta: [...]

Lesa meira

Kúagerðisgangan

Grímur Atlason @ 7. nóvember, 2009 # Ummæli (23)

„Ganga á Keflavíkurgöngu á sunnudag frá Vogaafleggjara á Reykjanesbraut að Kúagerði til að leggja áherslu á kröfur um úrbætur í atvinnumálum á Suðurnesjum, velferð og uppbyggingu.“ Það að ganga frá Vogum að Kúagerði og kalla það Keflavíkurgöngu er nokkuð skrítið en látum það liggja á milli hluta. Hins vegar þykir mér merkilegt að forsvarsmenn Reykjanesbæjar [...]

Lesa meira

Vatnsból höfuðborgarinnar

Grímur Atlason @ 5. nóvember, 2009 # Ummæli (4)

Afar veigamiklar athugasemdir umhverfis- og samgöngusviðs og heilbrigðisnefndar Reykjavíkur um möguleg áhrif Suðvesturlínu á vatnsverndarsvæðin eru ekki nefndar eða þeirra getið í bréfi borgarráðs til Skipulagsstofnunar þann 22. október varðandi mat á Suðvesturlínum. Hvað segir borgarstjórinn í Reykjavík um þetta? Nú eða formaður borgarráðs? Er það léttvægt mál að vatnsból Reykvíkinga kunni að verða fyrir [...]

Lesa meira