6 athugasemdir

  1. fannarh september 18, 2009 @

    hefuru aldrei keyrt um landið? hefuru aldrei keyrt á vestfirði? hvaða samgöngu bætur eru þar núna að klárast? göng, brú, heil heiði sem búið er að malbika. Snæfellsnes hefur varla vegi þannig að það er ekki mikið sem hægt var að gera þar. ein breið brú hér og þar og svo ein brú yfir einn fjörð og tvær litlar heiðar. og önnur verður bara rétt hálf kláruð.

    hvað segja bændurnir sem þú ert í vinnu fyrir um ESB aðild? hvernig mun afkoma þeirra verða? eða hefur þú meira vit á rekstri í landbúnaði en þeir sem vinna í honum? afhverju flytur þú ekki bara út í draumaríkið?

    þú ert semsagt á þeirri skoðun að ríkið eigi alltaf að gangast í ábyrgð fyrir einstaklinga og einkafyrirtæki? hvað átti ríkið að gera? brjóta reglur EES svæðisins sem þú dásamar og banna bönkunum að opna útibú erlendis? banna þeim að starfa samkvæmt lögum frá ESB sem þú vilt að Ísland gangi í?

    taktu þig til í andlitinu. þetta hrun er allt til komið vegna ESB. bankarnir voru einkavæddir útaf EES reglum. þannig að reyndu að koma með betra skítkast næst.

  2. Ómar Kristjánsson september 18, 2009 @

    Það er ekki skrýtið að svona er komi fyrir íslandi eins og raun er á, þegar fyrrverandi ráðherra og forseti alþingis steypar með þessum hætti. Það er bara ekkert skrítið. Maðurinn er augljóslega 1° kjáni. Svona kjána kaus þjóðin yfir sig slag í slag. Slag í slag.

    Það eru varla til orð yfir malbikið sem kemur frá honum. Slíkt er ruglið.

  3. Jóhann september 18, 2009 @

    Sturla er einn af þeim sem vilja viðhalda þeirr „sturlungaöld“ sem ríkir hér á landi, þ.e. að fáir stjórnni öllu (smákóngaríki). Ef við göngum í ESB þá dregur stórlega úr öllum kjördæmapotum sem hefur verið við lýði hér síðan um miðja síðustu öld. Meira eftirlit með öllum opinberum aðgerðum (ekki veitir af). Er Danmörk og Bretland búin að missa yfirráð yfir sínum olíuauðlindum? Eru Frakka og Portúgalar búnir að missa sínar vínekrur? Eru Finnar búnir að misa yfirráð yfir sínum skógum (timburframleiðslu)?
    Þetta kallast HRÆÐSLUÁRÓÐUR. Sturla segir í sínum pistli að nágrannaþjóðir okkar voru „vondir“ við okkur. Bíddu var það óeðlileg aðgerð að krefjast þess að Íslendingar greiddu til baka það sem þeir hirtu af Bretum og Hollendingum?

  4. Pétur september 18, 2009 @

    Fannarh mættur og hefur upp raust með rassgatinu.

  5. fannarh september 18, 2009 @

    já mönnum hér finnst í lagi að Íslandi hafi verið skipað á bekk með talibönum og AL-qaida. að það hafi verið eðlileg viðbrögð? að í krafti valds síns beiti gömlu nýlenduþjóðirnar AGS fyrir sig. er furða að andstæðingum ESB aðildar fjölgi þegar þið landsölufólkið talið svona?

    við áttum ekki greiða neitt. þjóðin á ekki að greiða skuldir einkafyrirtækja. þið viljið bara að þjóðin borgi svo að landið geti komist inn í ESB. það er eina ástæðan. tilbúnir að fórna framtíð barna okkar fyrir einhver draum færði Spáni 20% atvinnuleysi.

    og já Jóhann, þeir eru búnir að því eða við það að missa þær. eða hefur ekki heyrt talað Lissabon og neyðarlög ef upp koma orku vandræði? eða eruð þið allir jafn blindir og Grímur sem sjáið ekkert annað en áróðurinn frá Brussel sem kostar skattgreiðendur evrópu fleiri tugi milljarða á hverju ári?

  6. lydurarnason september 18, 2009 @

    Þruglið er beggja. Sjálfstæðisflokkurinn styður einkaeign fárra á þjóðarauðlindum enda kostaður úr sömu átt. Samfylkingin og grænir vilja leggja kvótakerfið niður en vanrækja samningu nýrrar stjórnarskrár sem tryggir innlent eignarhald auðlinda. Að auki vilja hvorugur þessara flokka styggja alþjóðasamfélagið á nokurn hátt og skilja ekki að til þess að vera þjóð á meðal þjóða þurfum við að koma beint fram og standa á okkar.

Golíat er vondur við Davíð

Óflokkað | Ummæli (6) Facebook

Sturla Böðvarsson, fyrrverandi forseti Alþingis og fyrrverandi ráðherra vegagerðar á Snæfellsnesi, segir að Evrópusambandið sé með fulla vasa fé og bíði eftir að kaupa auðlindirnar. Hann tjáir sig um málið í pistli í dag.

„Það blasir við að fulltrúar Evrópusambandsins eru á höttunum eftir aðgangi að auðlindum okkar með alla vasa úttroðna af evrum. Tilbúnir til þess að kaupa upp flotann og félögin sem hafa aflaheimildir og nýtingarréttinn á auðlindum.”

Merkileg rök hjá Sturlu. Rök óttans og einangrunarinnar. Þeir munu taka af okkur fiskinn og aðrar auðlindir. Allir vondir við Ísland sem eins og alltaf á bara allt gott skilið. En hvernig er það með Haf-lánasafnið hjá gamla Glitni – stendur það ekki í 180 milljörðum? Hvaða veð ætli standi þar að baki? Hvort ætli það sé frystihús eða óveiddur fiskur næstu 20 ára? Nú eiga erlendir kröfuhafar bankans þessar kröfur. Var það Jose Manuel Barroso sem náði í kvótann með þeim hætti? Hvað með vatnið í Snæfellsbæ og heita vatnið á Suðurnesjum? Er það Olli Rehn sem kom þessum auðlindum í hendurnar á útlendingum?

Hvað góðu útlendingar fengu þessar auðlindir? Man ekki til þess að Sturla hafi skammast þegar þetta var allt að gerast. Þetta eru þó auðlindir sem útlendingar fengu rétt í þessu. Vonda Evrópusambandið kom þar hvergi nærri.

Sturla heldur áfram:

„Reynsla okkar af samstarfi við Evrópuþjóðirnar síðustu mánuði er auk þess með þeim hætti að þar er ekki vinum að fagna meðal stjórnmálamanna þegar á reynir. Bæði Norðmenn og Evrópusambandsþjóðirnar sýndu okkur ótrúlegan fantaskap þegar  kreppan reið hér yfir með öllum þeim vandræðum sem henni hafa fylgt. Við vorum þjóð í nauðum stödd þegar leiðtogar þessara landa réðust raunverulega  gegn okkur.[…]

Í mínum huga var aðildin að Evrópusambandinu slegin út af borðinu þegar Bretar beittu hryðjuverkalögum gegn okkur og Norðurlöndin létu það viðgangast að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn stöðvaði afgreiðslu okkar mála að kröfu Breta og Hollendinga.”

Já, það er dásamleg söguskoðun að Íslendingar hafi ekki gert neitt af sér og að Golíat sé vondur við litla Davíð. Hin raunverulega atburðarás er bara ekki þannig. Árið 2006 þegar bankarnir, sem Sturla tók þátt í að einkavæða, voru í lausafjárkrísu eftir glórulausa útlánastefnu, opnuðu þeir innlánsreikninga með pýramídavöxtum í útlöndum. Innlánstryggingasjóðurinn með sína örfáu milljarða var þannig algjörlega eyðilagður. Ríkisstjórnin horfði með velþóknun á.

Til þess að strákunum í Kapþingi og Landsbankanum gengi sem best fóru menn um heiminn og sögðu fréttir sem í besta falli voru hagræðing sannleikans. Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin tóku þátt í þessu rugli: Ísland stendur vel. Allt í besta lagi. Við munum standa við allar okkar skuldbindingar. Við bökkum bankana upp. Við munum ekki svíkja neinn.

Korteri seinna hrundi kerfið. Fjármálaráðherra og gamli foringinn í Seðlabankanum sögðu báðir: Jú, jú við vitum að við sögðumst standa við bakið á bönkunum en það var bara ef allt gengi vel. Hvað áttu vondu útlöndin að gera við svona óábyrga þjóð? Hvað hefðum við gert í sömu stöðu?

Sögufölsun á borð við þá sem Sturla ber á borð er hreinlega ekki boðleg. Fínt að takast á um Evrópumál og kosti og galla þess að ganga í sambandið. En svona þrugl hefur ekkert með vitræna umræðu að gera.

Grímur Atlason @ 18. september, 2009


Skrifa ummæli

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Kæfuvörn:   Hver er summan af sjö og sjö? Svar: