Þú ert að skoða færslur fyrir mánuðinn: september, 2009.

Færslur

Groundhog day

Grímur Atlason @ 29. september, 2009 # Ummæli (3)

Einn brennivín í póló takk. Slappur? Já, ég er andskoti þunnur. Veit ekki hvað gerðist en ég ætlaði bara í bíó með strákunum og þetta endaði svona. Já, þetta var á laugardaginn. Ha – kominn miðvikudagur? Segirðu að það sé ekki sniðugt að fá sér einn? Jú, það er það eina sem virkar þegar maður [...]

Lesa meira

Fyrirvari til böls

Grímur Atlason @ 27. september, 2009 # Ummæli (6)

Hlustaði á formann Sjálfstæðisflokksins í gær. Hann var að tala um Icesave. Hann sagðist hvergi muna draga af sér, við stuðning sinn við ríkisstjórnina, ef hún tæki slaginn við Hollendinga og Breta. Góður ásetningur, falleg fyrirheit en engin innistæða. Hver er raunverulegur árangur af meðferð málsins á sumarþinginu? Við fáum fréttir af fórnfýsi þingmanna sem [...]

Lesa meira

Ríkisvætt tap Moggans/einkavæðing málpípunnar

Grímur Atlason @ 24. september, 2009 # Ummæli (13)

Mogginn fór á hausinn. Fékk niðurfelldar skuldir upp á 3 milljarða og lifði. Kvótagreifi frá Vestmannaeyjum eignaðist blaðið – seldi m.a. hlut sinn í Glitni 2 dögum fyrir hrun. Heppinn? Nýr ritstjóri ráðinn í dag. Davíð Oddson heitir hann. Útgáfustjórinn segir að Davíð Oddson hafi sýnt það að hann sé mikilhæfur leiðtogi sem fólk hlusti [...]

Lesa meira

Í Evrópu býr kölski sjálfur – sérstaklega í Brussel

Grímur Atlason @ 22. september, 2009 # Ummæli (11)

Einar Kristinn Guðfinnsson óttast ekki að banki í Lúxemborg eigi 20 milljarða veð í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum. En ef við göngum í Evrópusambandið – þá væri voðinn vís og þessi veð yrðu stórhættuleg. Það er alveg merkilegt í þessari Evrópusambandsumræðu hvað er hægt að snúa öllu á hvolf og grípa til undarlegustu raka. Hvernig í ósköpunum getur [...]

Lesa meira

Þjóðin er ónæm fyrir leið frjálshyggjunnar

Grímur Atlason @ 21. september, 2009 # Ummæli (9)

Hagfræðingur sveitarfélaga á Vesturlandi hampaði leið frjálshyggjunnar í fréttum í dag. Illugi Gunnarsson alþingismaður deilir þessum skoðunum með hagfræðingnum enda hljóma þær óneitanlega betur en raunsær vöndur skattheimtunnar. Formúla frjálshyggjunnar er sú að ekki megi hækka skatta. Þeir séu alltaf slæmir og dragi alltaf úr frumkvæði einstaklingsins. Hagfræðingurinn og alþingismaðurinn telja að atvinnulausir nenni ekki [...]

Lesa meira

Skrúfað frá krananum

Grímur Atlason @ 20. september, 2009 # Ummæli (2)

Fréttir helgarinnar hafa verið með ýmsu móti. Hér eru Tvö dæmi um slaka fréttamennsku að mínu mati. Hér ræður kraninn ríkjum: Skoðanakönnun MMR um fylgi stjórnmálaflokkana hefur verið gerð skil í fjölmiðlum undanfarna daga. Þar stekkur Sjálfstæðisflokkurinn upp um 8 prósent frá kosningum. Hinir flokkarnir hrynja og allt í voða þar. En hversu áreiðanleg er þessi könnun? Er [...]

Lesa meira

Golíat er vondur við Davíð

Grímur Atlason @ 18. september, 2009 # Ummæli (6)

Sturla Böðvarsson, fyrrverandi forseti Alþingis og fyrrverandi ráðherra vegagerðar á Snæfellsnesi, segir að Evrópusambandið sé með fulla vasa fé og bíði eftir að kaupa auðlindirnar. Hann tjáir sig um málið í pistli í dag. „Það blasir við að fulltrúar Evrópusambandsins eru á höttunum eftir aðgangi að auðlindum okkar með alla vasa úttroðna af evrum. Tilbúnir [...]

Lesa meira

Gamalgróið óréttlæti og færar leiðir

Grímur Atlason @ 16. september, 2009 # Ummæli (3)

Í skýrslu til þingsins um framkvæmd raforkulaga, þann 27. janúar 2005, sagði Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra eftirfarandi: Hingað til hefur gilt sama gjaldskrá fyrir raforku á veitusvæðum Rariks og Orkubúsins, hvort sem orkunni er dreift í strjálbýli eða þéttbýli enda þótt vitað sé að það sé allt að tvöfalt dýrara að dreifa í sveitum en bæjum. [...]

Lesa meira

Efnahagslegir timburmenn

Grímur Atlason @ 10. september, 2009 # Ummæli (3)

Komandi vetur verður landsmönnum mjög erfiður efnahagslega. Atvinnuleysi mun vaxa, einkaneysla dragast saman og þar með eftirspurn eftir vörum og þjónustu innlendra fyrirtækja. Fjárfestingar í atvinnulífinu og á byggingamarkaði verða í lágmarki, ríki og sveitarfélög munu draga úr útgjöldum og framkvæmdum. Peningar streyma inn á innlánsreikninga í bönkum en útlán eru lítil. Svona kemst Hannes [...]

Lesa meira

Hvað annað?

Grímur Atlason @ 9. september, 2009 # Ummæli (6)

Hagræðingarkrafan og rétthugsunin tröllríður öllu núna. Það er eðlilegt í kjölfar þeirra efnahagslegu hamfara sem þjóðin gekk í gegnum. Ákvarðanir eru hins vegar ekki alltaf teknar útfrá því sem er skynsamlegt. Ýmislegt kemur upp í hugann en ég ætla að benda á eftirfarandi: Utanríkisþjónustan. Heimsótti höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna á föstudaginn. Þar komst ég að því [...]

Lesa meira