Ráðherraábyrgð
Grímur Atlason @ 31. ágúst, 2009 # Ummæli (6)
Heilmargt hefur verið rætt að undanförnu um hverjir það eru sem beri ábyrgð á Icesave klúðrinu öllu saman. Landsbankamenn koma ítrekað fram í fjölmiðlum og segjast enga ábyrgð bera. Þeir hafi ekkert sagt að ríkisábyrgð væri á þessum innlánum og að þetta sé allt núverandi ríkisstjórn að kenna að vera að eigna sér þessar skuldir [...]
Lesa meira
23800 dagar
Grímur Atlason @ 30. ágúst, 2009 # Ummæli (6)
Fyrir u.þ.b. 23800 dögum tók ríkisstjórn Ólafs Thors við. Þetta var 21. október 1944. Frá því 16. desember 1942 hafði flokksbróðir Ólafs, Björn Þórðarson, farið með forsæti ríkisstjórnarinnar. Frá lýðveldisstofnun til 1. febrúar sl. höfðu aðeins tveir forsætisráðherrar komið úr röðum flokka sem telja má til vinstri á ás stjórnmálanna. Alþýðuflokksmennirnir Emil Jónsson og Benedikt [...]
Lesa meira
Hannes er einstakur
Grímur Atlason @ 24. ágúst, 2009 # Ummæli (9)
Hannes Hólmsteinn er dásamlegur. Hann hefur verið týndur sl. misseri en er kominn í leitirnar. Fór að blogga hressilega fyrir nokkrum vikum og hefur allur verið að braggast. Staðið í ritdeilum við skrímsladeild Samfylkingarinnar (má lesa allt um það stríð í netútgáfu Herðubreiðar og á bloggsíðu Hannesar). Hannes mætti síðan í útvarpið í morgun. Hann [...]
Lesa meira
Að endurskrifa söguna
Grímur Atlason @ 22. ágúst, 2009 # Ummæli (5)
Mér þótti merkilegt að lesa langhund þarþarsíðasta borgarstjóra Reykjavíkur um orkumál í Fréttablaðinu í morgun. Það er með svona greinar, eins svo margar aðrar, sem hafa það að markmiði að endurskrifa söguna, að þær eru ekki skemmtilegar aflestrar. Rómantískar stemmur um Ljósafossvirkjun og „samhenta, framtakssama og framfarasinnaða bæjarstjórn sjálfstæðismanna“ kveikja ekki neistann hjá mér. Langir [...]
Lesa meira
Eitt um peninga
Grímur Atlason @ 21. ágúst, 2009 # Ummæli (1)
Hér hefur því verið haldið fram að börnum með sérþarfir í „einkaskólum“ fylgi ekkert sérstakt aukafjármagn. Þetta er alrangt. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga greiðir sveitarfélögunum árlega talsverðar upphæðir vegna þessa. Mætti vissulega vera mun meira en þetta eru fjármunir sem skipta máli. Þannig fékk Reykjavíkurborg 719 m.kr. úr Jöfnunarsjóði á síðasta ári vegna barna með sérþarfir. Þessu [...]
Lesa meira
Um aðgreiningu barna
Grímur Atlason @ 20. ágúst, 2009 # Ummæli (17)
Í Reykjavík eru reknir nokkrir „svokallaðir“ einkaskólar. Þeir fá reyndar 75% af rekstrarkostnaði sínum frá Reykjavíkurborg en kalla sig sjálfseignastofnanir eða einkaskóla. Margar þessarar stofnanna eiga sér áratuga langa sögu og hafa að mörgu leyti auðgað skólaflóruna.
Dóttir mín hóf nám við slíkan skóla eftir að hafa útskrifast úr Melaskóla. Skólinn sem um ræðir er Landakotsskóli. [...]
Lesa meira
Hvað er að gerast í höfuðborginni?
Grímur Atlason @ 19. ágúst, 2009 # Ummæli (3)
Það er merkilegt að hlusta á borgarpólitíkina núna. Hanna Birna má eiga það hún er snillingur að láta aðra taka slaginn. Hún missti það samt út úr sér í gær að hún væri til í sölu á hlut OR í HS-Orku. Líklega gengur hin meinta sátt í borgarstjórn út á það að aðrir en hún [...]
Lesa meira
Maggi Kidd og við hin
Grímur Atlason @ 18. ágúst, 2009 # Ummæli (2)
Notaði vitlaust debetkort 10 sinnum. Borgaði í hvert skipti 1450 kr. í sekt. Úttektin var 13.450 kr. en refsingin 14.500 kr. Það væri munur ef Maggi Kidd og aðrir meistarar væru rukkaðir jafn ötullega og við ræflarnir…
Lesa meira
Gunnarsson, Kjartan
Grímur Atlason @ 18. ágúst, 2009 # Ummæli (2)
Kjartan heldur áfram en hefur ekki verið spurður um þetta:
Þann 23. júní sl. mátti lesa þetta í Mogganum:
„ÞÁVERANDI bankastjórar Landsbankans, Sigurjón Þ. Árnason og Halldór J. Kristjánsson, sendu bréf til hollenska seðlabankans (DNB) og Fjármálaeftirlitsins (FME) hinn 23. september 2008 þar sem þeir sögðust hafa vissu fyrir því að íslenska ríkið myndi ábyrgjast lágmarksinnstæður í [...]
Lesa meira
Þjóðin er eigandinn!
Grímur Atlason @ 17. ágúst, 2009 # Ummæli (10)
Við borgum ca. 300 milljarða startgjald til að koma „nýju“ bönkunum í gang. Við borgum að auki gríðarlegar fjárhæðir, líklega ekki undir 1000 milljörðum, til að rétta af þá gömlu. Þetta er beiskur raunveruleiki og þjóðin er að rembast við að kyngja þessum vonda munnbita. Á meðan við gerum það eru bankarnir enn að taka [...]
Lesa meira