Þú ert að skoða færslur fyrir mánuðinn: júní, 2009.

Færslur

Þeir sletta skyrinu

Grímur Atlason @ 30. júní, 2009 # Ummæli (4)

Við erum ekki að segja að Ísland eigi ekki að standa við skuldbindingar sínar…
Við skrifuðum reyndar undir að fara með málið gerðardóm í nóvember og við sættum okkur við 6,7% vexti og styttri lánatíma og styttra „safezone“..
En það er alveg ljóst að þeir sem sömdu núna eru landráðamenn miklir. Þeir eru líka amatörar allir – annað en við…
Vi’ð [...]

Lesa meira

Það bara gerist voða lítið

Grímur Atlason @ 28. júní, 2009 # Ummæli (4)

Leiguverð á kvóta rýkur upp. Kvótalausir binda báta sína og hætta útgerð. Geymsluréttur kvótaeigenda er 30% og engin teikn á lofti um að hann verði afnuminn í bráð. Tegundir vera ekki veiddar upp í kvóta – þrátt fyrir eftirspurn. Lénsherrarnir kúga leiguliðana. Leiguverð verður enn hærra með haustinu segja kunnugir. Hvað veldur þessu? Hvers vegna [...]

Lesa meira

Rub it in

Grímur Atlason @ 25. júní, 2009 # Ummæli (24)

Það er auðvitað vondur siður að rub it in en tónlistarhúsið í Reykjavík hreinlega kallar á slíkt.
Fyrir 5 árum skrifaði ég pistil um málið (mæli með honum) þar sem ég benti á ákveðna veruleikafirringu sem fólst í hugmyndinni um tónlistarhúsið í Reykjavík. Jafnframt benti ég á raunhæfa kosti í stöðunni.  Á þeim tíma var verðmiðinn þó [...]

Lesa meira

Strandsiglingar

Grímur Atlason @ 22. júní, 2009 # Ummæli (8)

Helga Vala er að vinna eitthvað samgönguverkefni í skólanum og það fékk mig til að rifja upp strandsiglingar. Það er alveg magnað að íslenska þjóðin láti bjóða sér 50 tonna trukka út um allt land í stað þess að nota hafnirnar sem við byggðum upp alla 20. öldina. Við hendum peninginum í vegaframkvæmdir á meðan [...]

Lesa meira

Heimssýn vs. Highlands and Islands

Grímur Atlason @ 16. júní, 2009 # Ummæli (4)

Heimssýn er á móti aðildarviðræðum við ESB. Það hefur legið fyrir lengi og ætti ekki að koma neinum á óvart. Þau hafa haldið uppi and-sambandsáróðri um árabil. Rökin hafa verið misgóð og stundum jafnvel alveg á brúninni. Í dag héldu samtökin fund þar sem þau fóru m.a. yfir meinta vonda reynslu Skota af aðild. Sjávarútvegsstefna [...]

Lesa meira

Við erum að taka til eftir ykkur

Grímur Atlason @ 14. júní, 2009 # Ummæli (14)

Það er magnað að fylgjast með málflutningi Indefence-hópsins aka Framsóknarflokksins í Icesave málinu. Orðaforði þeirra á þingi samanstendur af orðum eins þjóðníðingar og landráðamenn.  Þessi orð eru viðhöfð um hina meintu svikara sem vilja semja við Breta og Hollendinga. Lausn Framsóknarflokksins er að semja ekki við Bretana og sýna þeim í tvo heimana. Við berum [...]

Lesa meira

Á Teigunum með Loga Bergmann

Grímur Atlason @ 13. júní, 2009 # Ummæli (8)

Gunnar Lárus hefur þann sið að birta á stundum draumfarir sínar á blogginu. Ég veit ekki hvort popppunkti gærdagsins sé um að kenna en draumfarir mínar í nótt voru einkar undarlegar. Og ekki veit hvort það er Gunnari Lárusi að kenn eða ekki en ég ætla að segja frá þessum undarlega draumi mínum:
Stóð á stigapalli [...]

Lesa meira

Geymsluréttinn verður að afnema!

Grímur Atlason @ 9. júní, 2009 # Ummæli (1)

Þáverandi sjávarútvegsráðherra sagði árið 2007 þegar aflaheimildir í þorski voru skertar:

Framhjá því verður ekki litið að hinar litlu aflaheimildir í þorski munu hafa meiri áhrif á næsta fiskveiðiári en á því yfirstandandi. Þessu veldur meðal annars að geymsla aflamarks í þorski frá síðasta fiskveiðiári kom mönnum til góða á núverandi fiskveiðiári. Því verður ekki að [...]

Lesa meira

Status

Grímur Atlason @ 6. júní, 2009 # Ummæli (1)

Seðlabankinn vildi ekki lána stóru bönkunum peninga á síðasta og þarsíðasta ári af því bankarnir skulduðu of mikið. Í staðinn lánaði hann Sparisjóðabankanum sem lánaði peningana áfram til stóru bankanna. Eitthvað orðskrípi er til yfir þetta (innhverf eða afleiðu eða eitthvað slíkt bull) en í mínum orðaforða nær aðeins eitt orð yfir þennan óskapnað: „galið“ .  Á þessum viðskiptum [...]

Lesa meira

Mig langar til að segja þér

Grímur Atlason @ 5. júní, 2009 # Ummæli (0)

MIG LANGAR TIL AÐ SEGJA ÞÉR
MIG LANGAR TIL AÐ NEFNA AÐ
NÚNA ER TÍMI TIL AÐ MOKA
JÁ, NÚNA MOKA ÖLLU ÚT    
    
Svarta hús, í þér er falinn draumur
íslendings sem ekki fæddur er
Innan þinna veggja ríkir glaumur
Úti stendur ókunnugur her
MIG LANGAR TIL AÐ SEGJA ÞÉR
Heitir Jón og dauður er úr elli
Heitur, barðist öll sín helstu ár
Heimalningur núna [...]

Lesa meira