Efnahagslegt gjöreyðingarvopn var leyst úr læðingi
Grímur Atlason @ 31. mars, 2009 # Ummæli (3)
Öflugt og vel rekið bankakerfi er undirstaða alls atvinnulífs á Íslandi og útrás íslensku bankanna á erlenda markaði er ánægjulegur vitnisburður um þann kraft sem leystur hefur verið úr læðingi við það að færa bankana úr ríkiseigu í hendur einkaframtaksins. (Úr ræðu þáverandi forsætisráðherra nú Messíasar á ársfundi Seðlabankans í apríl 2003)
Ég veit ekki en þessi [...]
Lesa meira
Morgunverðarfundur hjá Viðskiptaráði
Grímur Atlason @ 29. mars, 2009 # Ummæli (1)
Messías mælti svo í desember 2005:
Mikilvæg breyting nú á haustmánuðum og það sem af er vetri er mikil útgáfa á skuldabréfum í íslenskum krónum á alþjóðamarkaði. Útgáfa þessi nærist einkum á miklum vaxtamun á milli Íslands og annarra þróaðra landa. Í Peningamálum er leitast við að greina áhrif útgáfunnar, meðal annars í sérstakri grein. Áhrifin [...]
Lesa meira
Hinn mikli ávinningur…
Grímur Atlason @ 28. mars, 2009 # Ummæli (1)
Aflamarkskerfi með framseljanlegum heimildum hefur gefið greininni nauðsynlegt svigrúm til hagræðingar og þróunar og skilað þjóðarbúinu miklum ávinningi.
Svo segir í drögum að ályktun um sjávarútvegsmál á landsfundi LÍÚ og Sjálfstæðisflokksins. Tja, 500 milljarða skuldir og óveiddur fiskur til næstu 30 ára veðsettur í topp - er það hið nauðsynlega svigrúm? Er hagræðingin kannski fólgin í blæðandi byggðarlögum Íslands og [...]
Lesa meira
Capacent á kostum
Grímur Atlason @ 28. mars, 2009 # Ummæli (4)
Í síðustu Capacentkönnun í NV-kjördæmi fékk D-listinn 41% fylgi, V-listinn 22,5%, B-listinn 23,3% og S-listinn 6,7%. Könnunin var gerð fyrir rúmum tveimur vikum. Í gær var önnur könnun opinberuð, unnin af sama fyrirtæki. Framsókn og vinstri græn standa í stað á meðan athyglisverð tíðindi eiga sér stað hjá D-lista og S-lista. S-listinn stekkur upp um 427% á [...]
Lesa meira
Also sprach Zarathustra:
Grímur Atlason @ 27. mars, 2009 # Ummæli (4)
Vilji Sjálfstæðisflokkurinn halda yfirráðum sínum yfir sjávarútvegsauðlindinni, þá hafnar Sjálfstæðisflokkurinn aðild að Evrópusambandinu.
Maður vissi það sossum að auðlindinni hefði verið úthlutað til frárra útvalda. Samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum eru það 24% þjóðarinnar sem fara með yfirráðin. Reyndar eru það ekki margir af þeim sem raunverulega hafa eitthvað að segja.
Lesa meira
Hver er dólgur þegar kemur að poppúlisma?
Grímur Atlason @ 26. mars, 2009 # Ummæli (3)
Ritstjóri Herðubreiðar mælir svo:
Yfirlýsing Ögmundar Jónassonar um að hann afþakki ráðherralaun markar trúlega nýjar lægðir í ódýrri yfirboðs- og yfirborðspólitík mánuði fyrir kosningar[...]
Skyldu líkurnar hafa aukist á því að Ögmundur verði ráðherra í næstu ríkisstjórn eða skyldu vera síðustu forvöð fyrir hann að slá enn eitt met í dólgapópúlisma?
Yfirboðs- og yfirborðspólitík? Ég veit ekki betur [...]
Lesa meira
Óbundið er algjörlega 2007
Grímur Atlason @ 20. mars, 2009 # Ummæli (1)
Það er ekki frumlegheitunum fyrir að fara í tengslum við kosningar þetta árið. Engin afgerandi stefna hefur verið mörkuð af flokkunum hvað framtíðar stjórnarsamstarf snertir. Jú, Sjálfstæðisflokkur er til í að vinna með öllum sem er í sjálfu sér heiðarlegasta útspilið af flokkunum 5. Vg og Samfylkingu líður vel saman og hefur það jafnvel komið [...]
Lesa meira
Að gefnu tilefni
Grímur Atlason @ 18. mars, 2009 # Ummæli (3)
Það komu úrslit í forvali VG í NV-kjördæmi um helgina. Reglur forvalsins og framkvæmd hafa verið talsvert til umræðu, bæði í aðdraganda forvalsins og nú eftir að því lauk. Persónulega hef ég tjáð mig um framkvæmdina við félaga og vini og lýst þeirri skoðun minni að á reglunum væru mjög alvarlegar brotalamir, þær væru í [...]
Lesa meira
Niðurstöður
Grímur Atlason @ 15. mars, 2009 # Ummæli (5)
Mér líst vel á Lilju, Ögmund og Ólaf. Það er hins vegar verk að vinna víða….
Lesa meira
37 ætla að kjósa
Grímur Atlason @ 14. mars, 2009 # Ummæli (3)
Merklegt þykir mér að lesa kannanir hins áður marktæka Capacent/Gallup. Samkvæmt hávísindalegri könnun fyrirtækisins er fylgi Sjálfstæðisflokksins 41% fí NV-kjördæmi á meðan VG fær 22,5%, Framsókn 23,3%, Frjálslyndir 2,5% og Samfylking 6,7%. Þetta hljómar auðvitað sláandi og við fyrstu sýn segja menn: Sjálfstæðisflokkurinn vinnur stórsigur og Samfylkingin bíður algjört afhroð.
Greinum þetta aðeins. 1.173 greiddu atkvæði á [...]
Lesa meira