3 athugasemdir

  1. Gunnar Jóhannsson janúar 17, 2009 @ 15:29

    Frábær ræða.

    Sýnir okkur samt hvað við erum rosalega fljót að gleyma. Um leið og ástandið lagast aðeins þá fær samtryggingar flokksspillingin að mala óáreitt.

    Fólkið í landinu mun bjarga landinu, stjórnmálamenn stela heiðrinum og allt heldur áfram eins og vanalega.

  2. Arnar janúar 17, 2009 @ 17:44

    Að sprauta ilmvatni yfir sveittan líkamann… heitir þetta ekki Rokk-sturta í bransanum? :)

  3. Balzac janúar 18, 2009 @ 09:09

    Frönsku aðferðinni?

    Þetta er íslenska aðferðin.

Varðhundar valdsins

Óflokkað | Ummæli (3) Facebook

Það er merkilegt að hlusta á ræðu Vilmundar sem flutt var í heild sinni í Krossgötum Hjálmars nú áðan. Ekki fyllist maður bjartsýni þegar maður hlustar á Vilmund og lítur síðan yfir sviðið og sér hvernig komið er fyrir Alþingi Íslendinga. Ræðan var flutt fyrir rúmum 26 árum og er algjörlega aktúel í dag. Vandinn er hins vegar sá að þeir sem hafa valdið eru ekki alveg á því að tími sé kominn til að breyta.

Fyrir 103 dögum voru sett neyðarlög á Íslandi. Í gær heyrðist loks stuna frá öðrum stjórnarflokknum þar sem lagt er til að bregðast við „varðhundum valdsins“. Taka til í Seðlabankanum, fjármálaeftirlitinu og skipta á stólum í ríkisstjórninni. Þetta hefði hugsanlega haft eitthvað að segja fyrir 102 dögum en núna er þetta eins og hvert annað píp. Framsóknarflokkurinn heldur flokkstjórnarfund og skiptir út forystu – og þá telja þeir að hið nýja Ísland sé hafið. Þessar aðgerðir hafa ekkert að segja. Þær byggja á frönsku aðferðinni að sprauta ilmvatni yfir sveittann líkama og segja: nú er ég hreinn.

Grímur Atlason @ 17. janúar, 2009


Skrifa ummæli

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Kæfuvörn:   Hver er summan af núlli og þremur? Svar: