21 athugasemdir

  1. Egill Helgason nóvember 26, 2008 @

    Mér finnst nú samt að Mogginn eigi lof skilið fyrir að upplýsa um þessi viðskipti og fleira í Glitni. Þessi útgerðarstrákur er augljóslega bara leppur.

    Mogginn er að standa sig best af fjölmiðlunum þessa dagana.

    Eða það finnst mér.

  2. Neisti nóvember 26, 2008 @

    Það er hart að þessar greinar Agnesar séu það skársta sem blaðamenn eru að gera þessa dagana. Það er hart að aðrir fjölmiðlar skuli ekki ná máli við þessa einsýnu en áköfu blaðakonu. Það er hart að aðrir blaðamenn geti ekki virkjað þá massífu óánægju og vilja til að segja frá sem virðist fyrir hendi í bönkunum.

  3. grimuratlason nóvember 26, 2008 @

    Leppur kann hann að vera í ýmsum viðskiptum. En það hefur verið ljóst um nokkurt skeið að hann er stórefnamaður. Mig minnir að hann hafi verið á topp tíu yfir stærstu hluthafa Exista 2006 og einn af 20 stærstu árið 2007. Það er gríðarlega stór hlutur.

    ´tgerðarstrákurinn er barnabarn Geira af Guggunni og hefur braskað í bréfum sl. 8 ár. Tengingar Bolungarvíkur við Glitni eru miklar og ég held að margt komi í ljós sem kemur á óvart þegar veldi bolvísku drengjanna er skoðað.

    Síðan er það augljóst að Agnes skrifar upp eftir einum heimildarmanni – allt úr einni átt alltaf. Og líklega alltaf sami heimildarmaðurinn.

  4. Hólmfríður Bjarnadóttir nóvember 26, 2008 @

    Það passar ekki að gagnrýna það sem heilagt í þessu landi, kvótabraskið og allann þann sora sem þrýfst í kringum hann. Agnes Bragadóttir er fjölmiðlamaður sem ég trysti ekki. einfaldlega vegna þess að hún skrumskælir sannleikann, ef það hentar málstaðnum

  5. Hörður Mar Karlsson nóvember 27, 2008 @

    Þvi miður tek eg allt með fyrirvara sem kella segir er svo lituð af daviðisma að það halfa væri hellingur. Hun atti vaktina þegar Johnsenin laug þau full a mogganum. Þa tok hun i taum Arna Þar með fauk allt traust mitt a henni. Sat bara a skrifstofunni og let kauða ljuga sig fulla, og hun prentaði alla lyginna sem hinn eina sannleika.Það verður aldrei fyrirgefið.

  6. Doddi nóvember 27, 2008 @

    Það er að koma í ljós að Baugsveldið starfar í pólitísku skjóli Samfylkingarinnar. ISG og JÁJ hafa gert með sér sáttmála um að koma Sjálfstæðisflokknum og Kolkrabbanum fyrir kattarnef. Það virðist ætla að ganga ótrúlega vel. Þetta er að fyrirmynd New Labour og Murdoch samstarfsins, sem líka heppnaðist bærilega.

    Jafnaðarmenn eru í hlutverki Sörla hestsins í Dýrabæ, sem sagði við hvert áfallið, sem dundi yfir. „Nú verð ég bara að leggja enn harðar að mér.“

  7. Ómar nóvember 27, 2008 @

    Mér finnst margt í framkomu og látbragði Agnesar bera með sér að hún er komin í stíð.

    Og já, kemur á óvart ef smástákurinn er kvótabraskari. Þar eru einmitt peningarnir.

  8. lydur arnason nóvember 27, 2008 @

    GRÍMUR RITAR: Hrun þessara kónga myndi hafa gríðarlega alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir fólkið í þessum plássum og fyrir landið í heild. LÝÐUR SPYR: Afhverju?

  9. grimuratlason nóvember 27, 2008 @

    Lýður – þ.e. ef kvótinn verður ekki þjóðnýttur fyrst! Kvótinn er veðsettur í 20 ár fram í tímann þannig að með einni undirskrift hverfur hann úr byggðalögunum. Þetta verður að stöðva áður en þeir hrynja og kvótinn verður seldur hæstbjóðanda. Ég er ekki að biðja um að viðhalda núverandi kerfi heldur að það verði afnumið.

  10. Skafti Steinólfsson nóvember 27, 2008 @

    Alveg rétt Grímur,nú er brýnasta verkefni þessa lands að vinda ofanaf kvótakerfinu. Kannski það verði hægt að láta Agnesi líta út fyrir Reykjavíkursvæðið,og taka leppana frá augunum.

  11. Sævar Helgason nóvember 27, 2008 @

    Er ekki mikilvægasta verkefni stjórnvalda í dag að taka yfir kvótann- þessi fyrirtæki sem skráð eru fyrir kvótanum eiga í raun ekkert nema skuldir sem nú eru í vörslu ríkisbankana- þ,e þjóðarinnar. En samsetning ríkisstjórnarinnar kemur sjálfsagt í veg fyrir það. Það er fátt mikilvægara nú en að kosninga fari fram hið fyrsta.

  12. helgavala · Af forpokuðum, ráðherrum og fleiru nóvember 27, 2008 @

    [...] Grímur – segir ýmislegt um ósýnilega og óþekkta vestfirska drengi…. ekki fleira um það. Látum hann um [...]

  13. Addi Björns nóvember 27, 2008 @

    Grímur, það er nú meira hvað ykkur krötum er alltaf í nöp við blaðamenn sem ekki eru stjórnmálalega í sama flokki og þið. Takið málefnalega á hlutunum. Það var gott hjá Agnesi að fletta ofan af þessu. Annars hefði aldrei neitt af þessu komið í ljós.
    Og að þið skuluð endalaust vera að bera blak af Baugi og JÁJ. Hvað gengur ykkur til? Hvað borgaði Baugur mikið í kosningasjóði Samfylkingarinnar? Þeir reikningar verða að koma upp á yfirborðið.

    Fannst þér þá ekki ræðan hans Þorvaldar Gylfasonar vera málefnaleg? Hann skautaði snyrtilega hjá Baugi, Glitni og Kaupþing, svo ekki sé talað um útrásarvíkingana, sem áræðanlega hafa verið lærisveinar hans margir hverjir. Hinsvegar fékk náttúrulega erkióvinur hans, Davíð og náttúrulega Seðlabankinn stórt pláss í ræðunni hans. Það sama má segja um Landsbankann og þeim sem að honum stóðu, enda hefur Landsbankinn alltaf verið bendlaður við Sjálfstæðisflokkinn. Virkilega selektív ræða hjá honum, full af fordómum og hlutdrægni.

  14. Grímur Atlason nóvember 27, 2008 @

    Nú er sorg í Dölum – ég er orðinn Krati…

    Krati eða ekki krati þá hafna ég því algjörlega að Baugur eigi sérstakt varnarþing í mér. Það er hins vegar ekkert persónulegt hvernig ég geri mín viðskipti eða haga mínum skrifum og ég er heldur ekki blaðamaður með eitt stykki Hádegismóa í forgjöf.

    Hvað Þorvald Gylfason hrærir að þá hef ég oft verið ansi ósammála honum. Frjálshyggjan helst til nakin á stundum fyrir minn smekk. Hins vegar deili ég hiklaust skoðunum með honum í ýmsum málum – Evrópusambandnu ekki síst. Ég er algjörlega sammála honum um Seðlabankann og mér hefur þótt hann tala skynsamlega um peningamál sl. misseri.

    Hann skautaði ekkert sérstaklega létt yfir víkingana þar með talið Jón Ásgeir í ræðu sinni:

    Hún (ríkisstjórnin)tók sjálfa sig fram yfir fólkið í landinu. Hún afhenti ríkisbankana mönnum, sem voru handgengnir stjórnarflokkunum og höfðu enga reynslu af bankarekstri. Í höndum þeirra uxu bankarnir landinu yfir höfuð á örfáum árum og vörpuðu með leynd þungum ábyrgðum á þjóðina.

    Og þetta:
    Bankakreppa á Íslandi er ekki einkamál Íslendinga. Þrálátur orðrómur um fjárböðun íslenzkra banka fyrir rússneska auðmenn (ef ég man rétt á þetta ekki síst við um Jón Ásgeir og félaga) horfir nú öðruvísi við en áður. Íslendingar og umheimurinn þurfa að fá að vita, hvort orðrómurinn á við rök að styðjast og hvað fór úrskeiðis.

  15. Snæbjörn nóvember 27, 2008 @

    Hvað með að Baugur geti átt nær allan matvörumarkaðinn? Ætti það ekki að vera bannað? Hversu mörg hátekjustörf hafa tapast við það eitt að Baugur komi mörgum verslunarmönnum og bændum í þrot með einokunarvaldi sínu? Hvar eru lögin sem hamla Baugi að eignast allt? Já og fjölmiðlalögin? Í kvótakerfinu er það þannig að enginn aðili má eiga meira en 11% af kvótanum. Af hverju eru ekki álíka lög í matvörumarkaðinum?

  16. joð nóvember 27, 2008 @

    Auðvitað er það aumt að skrif Agnesar eru jú það skásta sem hefur sést til að reyna að upplýsa almenning um svínaríið sem hefur lagt þjóðarbúið í rúst. Og vonandi verður farið að svipaðri hörku í málefni tengd öðrum eigendum eins og Bjöggunum.

    Hvar er mest lesna dagblað þjóðarinnar Fréttablaðið þessa dagana, sem eyddi hálfu blöðunum í að reyna að hvítþvo eigendurna af afbrotunum eigenda? Varla telst það til dagblaðs þjóðarinnar miðað við lítinn áhuga þess á þessum málum í dag. DV heldur áfram að ljúga fyrir sig og sína.

    Helga Vala gerði vel með að segja frá þöggunartilburðum á rúv. Hvar eru blaðamenn td. af Baugsmiðlum? Skulda þeir ekki þjóðinni játningar um þeirra þátt lygaveitunnar og því þöggunarofbeldi sem þeir létu yfir sig ganga?

    Hvar hefur fagfélag blaðamanna verið öll þessi ár? Hafa menn þar ekkert að segja?

  17. joð nóvember 27, 2008 @

    Grímur. Er ekki alveg að kaupa þínar kenningar.

    Átt þú einhverja skýringu þá á hvers vegna maðurinn felur sig eins og þjófur um nóttu, og felur sig og það sem að þessum ásökunum Agnesar snýr?

    Doddi held ég að fari ansi nærri um sannleikann.

    Snæbjörn. Það er skemmtileg tilviljun með 11% markaðshlutdeildina. Þegar Jóhannes í Bónus stóð í að keppa við Hagkaup í árdaga, var það einmitt markaðshlutdeild Hagkaupa. Jóhannes fullyrti þá í blaðaviðtali að svo mikil markaðshlutdeild þeirra væri tilræði við þjóðina. Núna amk. fyrir hrunið, voru Baugsmenn komnir í um 70% markaðshlutdeild á höfuðborgarsvæðinu.

    En hvar er aðal Bónussvínið núna? Ekki múkk í Baugsmiðlum um samsæri gegn sér og sínum. Skrítið.

  18. grimuratlason nóvember 27, 2008 @

    Joð. Ég er ekki að verja Jón Ásgeir – það má vel vera að hann sé sekastur allra. Hann á að fá rækilega umfjöllun og rannsókn. Ég er bara að benda á að heimildarmaður Agnesar virðist bara leka til hennar upplýsingum um Jón Ásgeir og félaga. Þannig hefur það verið um árabil. Nú eða að Agnes sé í helgum leiðangri og sorteri frá allt sem kemur hennar fólki illa.

  19. joð nóvember 27, 2008 @

    Grímur. Biðst forláts ef orð mín hafa misskilist sem að ég teldi þig vera verja Jón Ásgeir. Heldur átti ég við að þú ert að verja Jakob Valgeir, sem er vel, enda þekki þú manninn augljóslega. Að verja þann sem maður telur vera beittur órétti er gott og sjálfsagt mál.

    Áhugavert væri að vita þínar hugleiðingar um hvers vegna hann hefur ekki eða vill ekki tjá sig um málið?

  20. grimuratlason nóvember 27, 2008 @

    Kobba þarf ég ekki að verja. Ég er greinilega algjörlega misskilinn ef menn halda að ég sé að verja hann. Ég óttast þvert á móti það að einstaka aðilar eigi lífæðir heilu byggðarlagana með húð og hári. Jakob er einn þessara manna. Alls ekki illmenni eða neitt slíkt – þetta eru bara of mörg egg í einni körfu.

  21. Kvótalaus nóvember 30, 2008 @

    Það er nú heila málið, Grímur. Yfirráðin yfir kvótanum eru nefnilega komin í hendur erlendra lánardrottna. Þeir, sem fá að veiða kvótana núna um stundir eru þeir, sem Björgúlfar, Hannes Smára, Bjarni Ármanns og hvað þeir nú allir heita, skuldsettu fyrirtækin sín upp fyrir lunningu til að kaupa kvótann á fáránlegu verði af þessum félegu kvislingum. Nú horfa þeir upp á erlendu lánin hækka og hækka og nú er ekki borð fyrir báru lengur. Er eitthvað betra að Deutsche Bank ráði kvótanum en að yfirráðin yfir miðunum séu í Brussell? Hverju munar það fyrir okkur þrælana hér á skerinu?

Kraninn Agnes

Óflokkað | Ummæli (21) Facebook

Agnes Bragadóttir meintur stjörnublaðamaður á Mogganum hefur farið mikinn undanfarna daga. Hún er mjög selektív á viðfangsefni og er himinn og haf á efnistökum eftir því hver á í hlut. Baugsararnir hafa í mörg ár verið Svarti Pétur viðskiptanna á meðan Bjöggarnir eru kórdrengirnir. Ákveðinn armur Sjálfstæðisflokksins er í uppáhaldi en vinstrimenn flestir hörmungin ein. Það kann að vera að Agnes segi á stundum satt og rétt frá en það dylst engum að hún heldur með ákveðnu liði og það mengar alla hennar umfjöllun. Það er ekki nokkur leið að vita hvort eða hvenær rétt er sagt frá.

Í kvöld mætti Agnes í debatt við Sigurð Guðjónsson á Stöð 2. Þar opinberaði hún enn og aftur fyrirlitningu sína á Baugsveldinu og öllum þeirra legíónum. Það má vel vera að Jón og félagar hafi margbrotið öll hugsanleg lög í þessu landi en það getur líka átt við um aðra arma viðskiptanna. Agnes segir bara aldrei frá þeirra bombertum.

Það er aftur á móti vafamál hversu djúpt þessi meinta þekking stjörnublaðamannsins á íslensku viðskiptalífi ristir. Og í kvöld opinberaði hún hversu takmörkuð og yfirborðsleg þessi þekking virðist vera. Hún botnaði þannig ekkert í því hvernig óþekktur strákur úr Bolungarvík gæti fengið 20 milljarða að láni frá Glitni. Hún kannaðist bara ekkert við þennan dreng enda geta milljarðarmæringar ekki verið til nema í koníaksklúbbum höfuðborgarinnar þar sem vinir Agnesar hreyfa sig.

Hafi Agnes eitthvað fylgst með íslensku viðskiptalífi sl. ár hefði hún vitað að Jakob Valgeir Flosason hefur undanfarin ár verið skattakóngur Vestfjarða. Hann hefur á sama tíma verið einn af stærstu hluthöfunum í Exista og fleiri félögum. Fyrirtæki hans á nær allan kvótann í Bolungarvík og er sú eign metin á marga milljarða. En Agnes hefur bara ekkert verið að fylgjast með viðskiptalífinu á Íslandi – hún virðist fá upplýsingar sínar úr einni átt og veit þannig lítið annað en það sem henni er skammtað hverju sinni. Dæmigerður kranablaðamaður.

Væri Agnes öflugur rannsóknarblaðamaður myndi hún elta peningana. Þeir komu auðvitað fyrst úr kvótabraskinu. Hannes, Bjarni og félagar áttu aldrei neina peninga – þeir högnuðust á lánum og hringamyndun fjármagns.  Það voru hins vegar menn eins og Jakob og Þorsteinn Már sem áttu peninga. Þá peninga fengu þeir í gegnum kvótann og brask í kringum hann. Peningarnir urðu til með því að auðlindin var leigð, veðsett og síðan seld. Með hruni bankanna er algjört forgangsatriði að ráðamenn, blaðamenn og aðrir einbeiti sér að  kvótakóngunum og stöðu þeirra. Í Bolungarvík, Akureyri, Vestmannaeyjum, Grindavík, Snæfellsnesi og sjávarplássunum hringinn í kringum landið. Hrun þessara kónga myndi hafa gríðarlega alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir fólkið í þessum plássum og fyrir landið í heild. Það skal tekið fram til að forða uppkomnum misskilningi að hrun kónganna sjálfra er ekki málið heldur sú staðreynd að kvótinn hverfur með þeim til hæstbjóðanda. Það þarf að taka kvótann af þessum kóngum áður en það gerist.

Ég bind engar vonir við að litli bankamaðurinn hennar Agnesar, sem mig grunar að sé alltaf sami heimildarmaðurinn að öllum hennar fréttum, ljóstri upp einhverju bitastæðu um LÍÚ.

Grímur Atlason @ 26. nóvember, 2008


Skrifa ummæli

XHTML: You can use these tags: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

Kæfuvörn:   Hver er summan af einum og fimm? Svar: