Opið bréf til Ingibjargar
Óflokkað | Ummæli (25) Facebook
Kæra Ingibjörg Sólrún,
Mér finnst eins og það hafi verið í gær sem ég sat og hringdi í kjósendur í Reykjavík og sagði þeim að valið stæði á milli þín og Þorbergs Aðalsteinssonar. Þá var von í Reykjavík. Vonin að losna mætti við Sjálfstæðisflokkinn eftir allt of langa stjórn hans á borginni. Ég trúði á þig og það sem þú og Reykjavíkurlistinn stóðuð fyrir. Ég kom m.a. út úr skápnum og skrifaði mína fyrstu grein í moggann málstaðnum til stuðnings. Við sigruðum og Þorbergur Aðalsteinsson varð varaborgarfulltrúi en þú borgarstjóri.
Fyrstu árin voru góð. Síðan fannst mér þetta þynnast út og verða hálf máttlaust. Jafnaðarmenn skiptust síðar í tvo hópa og fyrst um sinn fylgdi ég þér ekki að málum. Seinna áttaði ég mig að jöfnuður og víðsýni væru það sem Samfylkingin boðaði og að skoðanir mínar og hugmyndir ættu betri samleið innan flokksins en með öðrum. Ég komst að því að líklega myndi árangur ekki nást í landsmálunum nema með þátttöku Samfylkingarinnar í ríkisstjórn. Það var gengið til kosninga og ný ríkisstjórn var mynduð.
Ríkisstjórnin tók við búi óhófs og frjálshyggju. Það verður að viðurkennast að vonbrigðin voru töluverð að þurfa að sitja uppi með Sjálfstæðisflokkinn í 4 ár til viðbótar eða hugsanlega í 20 ár samfellt. Á þeim 18 mánuðum sem nú eru liðnir frá kosningum er ljóst að martraðir svartsýnustu manna hafa ekki aðeins ræst heldur má líkja stöðunni við delerium tremens.
Fyrir síðustu kosningarnar lögðum við upp með fallega sýn. Við ætluðum að gera svo margt. Og við ætluðum að vinna svona:
Í lifandi lýðræði felst að almenningur eigi þátt í töku ákvarðana með virkum hætti. Vinnubrögð og viðhorf þeirra sem starfa í umboði þjóðarinnar þurfa að endurspegla virðingu fyrir lýðræðislegum gildum. Stjórnvaldsathafnir eiga að vera gagnsæjar, studdar málefnalegum rökum og lúta lýðræðislegu eftirliti. Þróa þarf leiðir og setja skýrar reglur um hvernig almenningur getur haft bein áhrif á ákvarðanir sem varða nánasta umhverfi. Samfylkingin vill:
• Setja ákvæði um þjóðaratkvæðagreiðslur í stjórnarskrá og setja ákvæði lög um framkvæmd atkvæðagreiðslna meðal almennings til að tryggja jafnræði og lýðræðislega umgjörð.
• Tryggja að gagnsæi og fagleg sjónarmið ráði við skipan hæstaréttardómara og tryggt sé að dómarar séu eingöngu valdir á faglegum grundvelli.
• Binda í stjórnarskrá ákvæði um þjóðareign á auðlindum.
• Styrkja eftirlitshlutverk Alþingis með framkvæmdavaldinu. Endurskoða lög um ráðherraábyrgð.
• Vernda með lögum heimildarmenn fjölmiðla er upplýsa um mál er varða almannahagsmuni og eiga brýnt erindi til almennings.
Leiðirnar til bættrar framtíðar má skoða á vef Samfylkingarinnar. Þú þekkir þessar leiðir eins og ég.
Eftir kosningar varð það einhverra hluta vegna talið heppilegast að leiðrétta óréttlætið með þeim sem áttu stærstan þáttinn í því að þetta sama óréttlæti var innleitt. Þeirra afstaða var önnur en okkar. Auðlindin skyldi áfram vera einkaeigu einkavina, þingið í gíslingu framkvæmdavaldsins, hagstjórnin í boði skaparans og legíóna hans, landbúnaðurinn í hlekkjum fátæktar, sveitarfélögin hunsuð og svelt tekjustofnum, launaleynd áfram við lýði, spilling og hagsmunagæsla fárra viðhaldið, samtryggingin aldrei sterkari o.s.frv. Flest af því sem við vildum koma til leiðar hefur þurft að víkja fyrir hugmyndafræði samstarfsflokksins.
Núverandi ríkisstjórn hefur algjörlega brugðist og getuleysi samstarfsaðilans hefur dregið Samfylkinguna niður á algjörlega óásættanlegt plan. Það er engin eftirspurn eftir þeirri stefnu sem boðið er upp á. Samskiptaleysið og ráðaleysið er slíkt að almenningi er freklega misboðið – ekki síst kjósendum Samfylkingarinnar. Við horfum upp á forsætisráðherra tönglast á því að peningamálastefnan hafi ekki brugðist og seðlabankastjóra sem talar eins og ábyrgðarlaus skríbent á málgagni stjórnmálaflokks. Hugmyndirnar bera keim af algjöru gjaldþroti hugmynda. Hin heimska hönd hagræðingarinnar virðist vera það eina sem mönnum dettur í hug.
Þegar ég spurði hvort fólk vildi Þorberg Aðalsteinsson eða þig vonaði ég svo sannarlega að fólk sæi ljósið eins og ég hafði gert. Ég hafði fulla trú á því að borgin myndi blómstra með þig við stjórnartaumanna og að nýjir tímar væru framundan. Það hefur algjörlega sýnt sig að það val var rétt. Borgin – þjónusta hennar og stjórnsýsla, tók algjörum stakkaskiptum á þessum árum.
Ingibjörg Sólrún ég fer þess á leit við þig að þú bregðist við því ástandi sem ríkir í þjóðfélaginu. Þjóðin bíður eftir að leiðtoginn standi upp og taki kúrsinn þannig að við getum fylkst að baki honum. Þú ert leiðtoginn og þú verður að axla þá ábyrgð. Þetta þarftu að gera (við erum öll með þér):
a) Slíttu stjórnarsamstarfinu og vertu í forsæti minnihlutastjórnar fram að kosningum í vor. Vei, þeim sem ekki verja þá stjórn falli.
b) Fáðu alþjóðlega sérfræðinga strax til að rannsaka hrunið – ekki skilgreina um of hvað skal kanna því það getur hamlað rannsókninni.
c) Skiptu út í stjórnum fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans. Fagaðilar að borðinu.
d) Leggðu það í dóm kjósenda í næstu kosningum hvort sækja eigi um aðild að ESB.
Að afloknum kosningum verður það vonandi hlutverk Samfylkingarinnar að leiða þjóðina fram á veginn. Stefnuskráin fyrir síðustu kosningar er ágætur leiðarvísir til þess.
Verði ekki gripið til þessara aðgerða næstu daga óttast ég að skaði íslensku þjóðarinnar verði enn meiri en nú er orðið. Vanhæfir þátttakendur og gerendur hrunsins eru enn við völd og störf í hinum ýmsu stofnunum og þá verður að stöðva. Það verður ekki gert með neinu öðru en að losna við þá gerspilltu valdaklíku sem við leiddum til áframhaldandi valda eftir síðustu kosningar.
Ég lýsi yfir stuðningi við þig og Samfylkinguna en ég styð ekki þessa ríkisstjórn. Ég treysti því að þú bregðist við án tafar þannig að uppbyggingarstarfið í þessu landi geti hafist. Tími aðgerða í stað vingulsháttar er runninn upp.
Áfram Ingibjörg Sólrún og Samfylkingin!
Með stuðnings- og vinarkveðjum,
Grímur Atlason
Grímur Atlason @ 20. nóvember, 2008
Grímur Atlason
Þetta er of seint. Hún er búinn að klúðra þessu og mun aldrei aftur öðlast traust þjóðarinnar.
Nú finnst mér að Samfylkingarfólk sem ekki sturlaðist af valdagræðgi við þetta samstarf við Sjálfstæðisflokkinn (eins og Össur, Ingibjörg og Björgvin) ætti að gera hallarbyltingu innafrá. Annars eru þetta bara sömu gungurnar og leiðtogarnir sem geta ekki slept tökunum.
Algerlega sammála en óttast að það sé of seint. Betra þó seint en aldrei. Annars hallarbylting innan frá. Skoðaði vef Sf í morgun en heyktist á skráningu í flokkinn v/þess að mér finnst hún hafa brugðist. Eigum við að þurfa bíða eftir nýjum flokki eða skrá mig í flokkinn og taka þátt í hallarbyltingu?
Grímur! Hættu þessu þrugli og taktu við forystunni.
Sópaðu hugsjónadruslunum úr brúnni og hleyptu þangað engum nema hreinhjörtuðum.
LÁ
Arinbjörn:
Það er öllum stjórnmálaflokkum lífsnauðsynlegt að ganga í endurnýjun lífdaga. Þar með talið flokknum mínum, Samfylkingunni.
Ég hvet þig eindregið til þess að skrá þig í Samfylkinguna, eða hvern þann stjórnmálaflokk þar sem að þú finnur mestan hljómgrunn með skoðunum þínum og beita þér fyrir breytingum.
Stjórnmálaflokkar taka aðeins breytingu að frumkvæði fólksins sem að stendur á bakvið þá.
„gerspilltu valdaklíku“
einhvern veginn gera samfylkingarmenn alltaf ráð fyrir því að þetta varði ekki þá sjálfa
það er þröngsýni
Það er vegna manna einsog þín, sem sérð ekki óréttlætið, sem hægt er að halda því áfram. Maður sem segir „Áfram Ingibjörg“ eftir allt sem hefur gerst, er að taka opinbera ábyrgð á gjaldþroti íslensku þjóðarinnar, spillingunni og óréttlætinu. Guð forði okkur frá skríðandi leiðtogadýrkendum.
Tek undir með þér Grímur.
Fyrir síðustu kosningar boðaði Samfylkingin að hún vildi leiða vinstri stjórn í landinu og að Sjálfstæðisflokkurinn væri höfuð andstæðingur hennar. Fólk átti val um jafnaðarstjórn eða ójafnaðarstjórn. Við fengum ekki það fylgi sem til þurfti að fá vinstristjórn. Úr varð versta leiðin, samsteypustjórn við Sjálfstæðisflokkinn. Það er meira en tímabært að slíta þeirri stjórn, við náum ekki árangri með höfuð andstæðinginn við völd, heldur ekki í samstarfi við hann.
Ég eins og Grímur Atlason hef óbilandi trú á Ingibjörgu Sólrúnu, á heilindum hennar og forystuhæfleikum. Hroðalegt að hún skyldi vera úr leik þegar þessi ósköp skullu á. Mér finnst aftur á móti stemningin sem ég upplifi á þessum síðum ( er stödd erlendis) afar ólík því sem ég upplifði í aðdraganda R-listans. Mér sýnist að fólk í örvæntingu sinni vilji henda öllu fyrir róða jafnvel súper stjórnmálamönnum eins og ISG.
Ég efast því um hollustu kjósenda við hana. Gremjan er svo mikil að það stefnir í stjórnleysi. Styrkur Sólrúnar yrði að vera næstum yfirnáttúrulegur og stuðningur frá fólki einsog Grími óbilandi.
Ég tek undir hvert orð hjá þér Grímur. Ég hef alltaf haft óbilandi trú á ISG og kaus Sf vegna þess að ég trúi á frelsi, jöfnuð og réttlæti. En því miður er tíminn að renna út og ef forusta Sf gerir ekki eitthvað róttækt á næstu dögum þá er hætt við því að fólk yfirgefi hana.Það er óþolandi ef Sf ætlar að taka við af Framsókn sem hækja Íhaldsins og viðhalda þannig þessari yfirgengilegu spillingu sem hefur verið við lýði í skjóli þess.
Já, blessuð sé minning hennar.
Hún (ekki ólíkt Davíð) sannaði sig svo um munar við stjórn borgarinnar, þar sem skörungsskapur hennar fékk að njóa sín.
Núna hins vegar hefur hún verið ofurseld málamiðlana pólitík og virðist það hafa algerlega dregið úr henni vígtennurnar og jaxlana líka.
Það er mikið gott í þessu bréfi Grímur, hugmyndin um stefnu er góðra gjalda verð. Ég hef bara litla trú á að núverandi forysta Samfylkingarinnar njóti þess trúverðugleika sem nauðsynlegur er til þess að fá afgerandi fylgi í næstu kosningum.
Til viðbótar við síðustu loforða skrá Samfylkingarinnar eru nú líka komnar fram nýjar kröfur, öðrum háværari.
1. Nýja stjórn Seðlabanka(sem þú nefnir) – ráða sérfræðinga.
2. Nýja stjórn FME(sem þú nefnir) – ráða sérfræðinga.
3. Stjórnarskrábreytingar sem taka á því að skerpa aðskilnað milli löggjafavalds og framkvæmdavalds.
4. Aflögn flokkaframboðs – við viljum fá að kjósa einstaklinga – ekki flokka.
5. Kosningar í vor – og svo kosningar í beinu framhaldi aftur vegna stjórnarskrárbreytinganna.
Gæti nefnt hér fleira, en bendi bara á bloggið mitt og hópa á Smettisskruddunni fyrir frekari útlistun.
Kv. Baldvin
[...] Grímur fyrir þitt [...]
Frábært bréf! Ég vona að hún lesið það. Það breytir samt ekki minni skoðun á manneskjunni, en það skiptir minnstu í dag, heldur framtíð barna okkar, lýðræðisins og réttlætisins. Við stöndum á tímamótum alræðis og lýðræðis; samtakamáttur okkar er það eina sem dugir.
Takk fyrir þetta bréf; ég er löngu hættur að eyða tíma mínum í að senda þessu fólki bréf; þau eru aldrei lesin.
Í 30 ár hef ég alltaf nýtt atkvæðisrétt minn og fundist ég kjósa rétt, en núna finnst mér að ég hafi sóað atkvæði mínu til Samfylkingarinnar. Ég byrjaði að veita ISG athygli þegar hún var í Kvennalistanum, loksins hafði eg fundið samhljóm með mínum skoðunum, jafnaðarstefnu með smá vinstri slagsíðu og samfélagsjöfnuði. Í dag finnst mér að ISG geti bara gengið í sjálfstæðisflokkinn. Samfylkingin fær ekki atkvæði frá mér aftur og hef ég heyrt marga segja það sama. Takk fyrir þessa grein, þú ættir að senda hana til Ingibjargar. Kv. Ása
Ég held að ansi margir samfylkingarmenn geti skrifað heils hugar undir þennan pistil.
Allt satt og rétt Grímur. Ég held að þetta bréf túlki vel það sem mörg okkar sem höfum kosið Samfylkinguna erum að hugsa og þusa. En Samfylkingin þarf líka að taka til í eigin ranni. Í minnihlutastjórninni sem þarf að stofna til sem fyrst geta ekki setið aðrir af núverandi ráðherrum Samfó en Ingibjörg og Jóhanna. Aðrir hafa ýmist brugðist eða þagað.
Já, takk fyrir þetta Jón Hnefill, reyndi að fara á bloggið þitt til að þakka þér fyrir góð ráð, tókst ekki, líklega ekki virkt.
Ótrúlega færsla. ISG hefur vitað um verðandi efnahagskreppu í marga mánuði. Verið á fundum með Davóð og Geir. Ekkert gert. Ekki brugðist við. Haldið samráðherrum fávísum. Ekki einu sinni talað við viðskiptaráðherrann. Og þú bindur vonir þínar við ISG ? ISG er VANHÆF. Samfylkingin er og verður sjúkur flokkur ef hann losar sig ekki við ISG.
Flokkur sem ekki axlar ábyrg með því að losa sig við þá sem eru vanhæfir (ISG og BGS) er ekki sú Samfylking sem ég kaus og batt vonir mínar við.
Samfylkingin er máttlaus og rúin öllu trausti líkt hinir flokkarnir Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn sem ásamt Samfylkingunni hafa stuðlað að því ástandi sem ríkir á íslandi í dag, og munu mörg mörg ár þurfa að líða þar til þessi þjóð mun bíða þess bætur.
Að tala um að ISG geti verið eitthvað afl til að leiða til sátta er veruleika fyrring þeirra sem halda því fram, hefur þetta fólk sem fylkist þeirri skoðun ekki hlustað/horft á fréttir undanfarna dag og mánuða. Hvenær ætlið þið að fara að hlusta á fólkið í landinu og fara frá og sæta ábyrgða fyrir ykkar vangetu og yfirhilmingu á þeirri spillingu sem viðgengist hefur hér undanfarin 20 ár.
Þið hlustið ekki á rök bullið bara blinduð af ISG og ESB, talið um upptöku evru og inngöngu í ESB. Staðreyndin er nú sú að upptaka evru fæst ekki nema að ganga í ESB og þá þarf hagkerfið hér að vera komið í lag til þess að svo geti verið og mörg ríki hafa ekki enn fengið að taka upp evruna þó mörg ár séu liðin frá því að þau gengu í esb vegna þess að þau hafa ekki náð að rétta af fjárhag ríkisins. Svo er það aukið atvinnleysi og óheft flæði erlends vinnuafls sem er að valda miklum skaða í löndum eins og Spánn og Portúgal. Svo er vert að velta því vel fyrir sér og skoða vandlega hvort og hve mikið af auðlindum landins gætu verið í hættu tapast frá þjóðinni til fárra handa í ESB.
Hættið þessari ISG blindni og opnið á athugula hugsun reynið að vinna glatað traust ykkar kjósenda með endurskipulagningu á forystunni og vinnið að því að hreinsa burt spillinguna sem hefur svo bersýnilega náð að síkja starfsemi Samfylkingunnar, og minnist þess líka hvernig ISG komst til valda í flokknum á landsvísu með því að svíkja kjósendur sína í Reykjavík.
Víkið burt þessari blindni og látið af gullfiskaminninu.
Til áréttingar
1. Evra og ESB gerist ekki á morgun – það er engin að halda því fram og allra síst Samfylkingin. En yfirlýsing um umsókn myndi hins vegar hafa veruleg áhrif og vera þannig beinlínis aðgerð til að slá á kreppuna. Að einangra sig og segja að þorri vestrænna þjóða séu bara kapítalistar sem fyrirlíta smáríki er vondur stígur að feta.
2. ISG og Samfylkingin eru alls ekki töfralausnin. Næstu dagar munu skera úr um það hvort flokkurinn beri verulegan skaða af og missi trúnað meira en orðið er. Eina leiðin út úr þessum ógöngum er að stíga upp og slíta samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn og gera þau atriði sem ég nefndi hér í færslunni.
Þjóðernisarmur Vg er ekki heppilegasti kosturinn til framtíðar Íslands. Sá armur þarf að vera á Benidorm þegar næsta ríkisstjórn verður mynduð. Það er aðeins ein lausn út úr þessari kreppu og það er að frjálslyndir vinstrimenn taki við völdunum á Íslandi.
Velkominn heim.
Samfylkingin er ekkert nema kratar og krati hafa aldrei verið annað en skammaryrði í mín eyru. Að láta sér detta í hug að það bjargi öllu að sækja um aðild að ESB og taka upp Evru, er ein sú mesta vitleysa sem ég hef nokkurn tíma heyrt. Og hvað höfum við að gera í samfloti með fátækum austur evrópu þjóðum og vestur evrópu þjóðum sem ramba á barmi gjaldþrota. Því ástandið hjá nágrönnum okkar er ekki allsstaðar beysið. Hvers vegna haldið þið að við getum fengið flýtimeðferð við inngöngu í ESB? Það er vegna þess að ESB vantar að komast í fiskinn og virkjanirnar og síðar olíuna. Nei takk. Við eigum að setja undir okkur hausinn og vinna okkur út úr vandanum á eigin spýtur, við verðum ekki lengi að því ef farið er skynsamlega að því. Það er sjálfhætt að flytja inn drasl eins og ofurjeppa, flatskjái og fl. Ég er ansi hræddur um að lánið frá IMF geti farið fyrir lítið ef allt verður opnað upp á gátt og þeir sem eiga einhvern kost á að koma þeim aurum sem þeir eiga í erlendan gjaldeyrir. Þá fer eins og Steingrímur sagði á þingi á mánudaginn, skuldirnar hækka sem nemur láninu frá IMF. En fyrst verður að reka DOddson á dyr, Geir og Ingu Sólu,. Seðlabankastjórnina eins og hún leggur sig og fjármálaeftirlitið. Síðan að ganga í meintar eigur útrásarvíkinganna og gera úr þeim eins mikið og hægt er til að greiða fyrir óreiðuna sem þeir skópu.
Sammála Neistir hér að ofan. ISG hefur logið og hlegið að þjóðinni í marga mánuði. Hrokagikksháttur hennar í ræðustólum og fjölmiðlum er varnarháttur afneitarans sem getur ekki tekið ábyrgð á gjörðum sínum vegna þess að undir slíkri ábyrgð fær enginn maður risið án þess að glata afganginum af glórunni. Samúðarkveðjur til þeirra sem enn líta til sjúkrar móðurímyndar þessarar með einhveri von um björgun eða breytingu. Burt með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur úr íslenskum stjórnmálum fyrir fullt og allt. Og alla hina siðblindingjana líka.
vel orðað bréf Grímur.
Ég verð að vera sammála mörgu að ofan, Samfylkingin hefur brugðist. Hún brást kjósendum sínum löngu áður en kreppan skall á, ráðherrar samfylkingar hafa ekki staðið við loforð sín (Hvar er Fagra Ísland?) Samfylkingin hagar sér eins og kjölturakki í fangi sjallanna. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var einu sinni lifandi og framsækin stjórnmálakona, í dag er hún hrædd við að rugga bátnum.
Ríkisstjórnin hefur öll brugðist landanum, hún hlustar ekki á vilja fólksins og tekur ekki tillit til almennings. Það er vægast sagt aumingjaleg tilraun til að efla ímynd sína að bjóðast til að taka launalækkun uppá 5-15%.
Þrátt fyrir að styðja ekki Samfylkinguna gladdist ég þarsíðasta vor þegar flokkurinn komst í stjórn. Ég treysti því að nú loks væri komið afl sem myndi verka jákvætt á vogarskálarnar á móti Sjálfstæðisflokki. Í staðinn hefur nær ekkert heyrst frá Samfylkingu síðan hún komst í stjórn. Átján mánuðir af hálfkáki og ímynduðum málamiðlunum er átján mánuðum of mikið.
Ég ber enga virðingu fyrir hvíslinu.
Núna er tíminn til að hisja upp um sig buxurnar og halda áfram, standa með hugsjónum sínum og vinna fyrir Íslendinga, ekki siðblinda auðmenn.
Ég tek undir hvert orð hjá þér. Ég hef stutt Samfylkinguna og haft óbilandi trú á Ingibjörgu Sólrúnu. Hún er ótvíræður leiðtogi. Því miður er hún farin að tala niður til þjóðarinnar og sýna hroka sem getur orðið bæði henni sjálfri og Samfylkingunni mjög dýrkeypt. Það þarf að breytast STRAX. Leiðtogi jafnaðarmanna á að hlusta á fólkið sitt með virðingu fyrir skoðunum þess og áhyggjum. Leggja fram lausnir sem við getum fylkt okkur á bak við. Lausnin er ekki að biðja okkur að styðja Sjálfstæðisflokkinn áfram til valda með óbreyttan Seðlabanka, Fjármálaeftirlit og svo framvegis. Það væri hægt að mynda ríkisstjórn með ráðherrum utan þings sem gæti starfað fram yfir kosningar.
Það sorglegasta í stöðunni er að núna ætti að vera tækifæri fyrir félagshyggjufólk og jafnaðarmenn að snúa bökum saman og leiða uppbyggingu á grundvelli nýrra gilda. Skynsamt fólk í Sf og VG ætti að fara að tala saman og vinna saman að því að skapa nýtt Ísland.
Ég er sammála þér Grímur Atlason. Ég styð Samfylkinguna en ég styð ekki ríkisstjórnina. Nú hljóta augu manna að opnast fyrir því að íhaldinu verður að koma frá.
Styrkur Samfylkingar hefur og á að vera hin opna og hispurslausa umræða. Styrkur leiðtogans verður að vera stuðningur félaganna.
Við erum núna að bíta úr nálinni með það að aðild að ESB hefur ekki verið tekin á dagskrá fyrr. Hugsið ykkur hvar við værum stödd núna ef t.d. aðildarviðræður hefðu hafist upp úr 2000.
Væri ábyrgt að slíta stjórn núna? Hvar myndi stjórnarmyndunarumboð lenda við stjórnarslit? Hjá þeim sem hafði það við myndun síðustu stjórnar? Það eru víða leiðtogaefnin en fæst þeirra eru á þingi.