Þú ert að skoða færslur fyrir mánuðinn: nóvember, 2008.

Færslur

Dásamlegt

Grímur Atlason @ 30. nóvember, 2008 # Ummæli (7)

Gefum þeim vinnufrið. Róum okkur. Stöndum saman. Nú er ekki tími uppgjörs heldur samstöðu. Kosningar væru algjört glapræði. Það er einu sinni eðli lýðræðisins að kjósa á 4 ára fresti.

Þetta er mantra þeirra sem hafa vonda samvisku og vilja þagga niður raunverulega ábyrgð manna. Hlustaði á tvo þingmenn Sjálfstæðisflokksins syngja þennan söng í morgun í [...]

Lesa meira

Eitur

Grímur Atlason @ 29. nóvember, 2008 # Ummæli (0)

Nöfn eru ekki alltaf út í loftið. Zambandssjóðurinn sem átti að borga fólki tuttuguogeitthvað milljarða í fyrra en á ekki krónu í ár heitir þannig Gift. Danir myndu líklega ekki treysta þessum sjóði en nafn hans er eitur á baunskri tungu.

Lesa meira

Gjaldeyrir

Grímur Atlason @ 28. nóvember, 2008 # Ummæli (5)

Gjaldeyrisfrumvarpið þýðir einstígi sem auðvelt er að hrasa af. Sporin hræða íslenska þjóð – þá sérstaklega þá sem muna eftirstríðsárin og  fram að því þegar Guðni flaug af stað með fyrstu Sunnugestina. Og svei mér ef afleiðing haftastefnunnar hafi ekki sett mark sitt á 9. áratuginn líka. Ég hef svo sem ekki óttast forræðishyggjuna sem [...]

Lesa meira

Kraninn Agnes

Grímur Atlason @ 26. nóvember, 2008 # Ummæli (21)

Agnes Bragadóttir meintur stjörnublaðamaður á Mogganum hefur farið mikinn undanfarna daga. Hún er mjög selektív á viðfangsefni og er himinn og haf á efnistökum eftir því hver á í hlut. Baugsararnir hafa í mörg ár verið Svarti Pétur viðskiptanna á meðan Bjöggarnir eru kórdrengirnir. Ákveðinn armur Sjálfstæðisflokksins er í uppáhaldi en vinstrimenn flestir hörmungin ein. [...]

Lesa meira

4. valdið

Grímur Atlason @ 25. nóvember, 2008 # Ummæli (0)

Valdið er víða. Óttinn er stjórntæki valdsins. Hann kemur ekki síst í ljós á fjölmiðlunum. Alveg frá því ég man fyrst eftir mér hef ég heyrt af stjórnmálamönnum sem hafa hótað fjölmiðlamönnum með ýmsum hætti eða þá að fjölmiðlamenn hafa verið þátttakendur í samtryggingunni sem viðheldur kerfinu. Ég kom ungur inn á fjölmiðla sem viðhengi [...]

Lesa meira

Snærós

Grímur Atlason @ 24. nóvember, 2008 # Ummæli (3)

Þetta er Snærós Sindradóttir. Hún er stjúpdóttir mín og ég er stoltur af henni. Þarna er hún að tala á landsfundi stjórnmálaflokks. Hún er flottust og þar sem ég sé henni bregða reglulega fyrir á fremsta bekk á mögnuðum borgarafundi í Háskólabíó finn ég að það er talsverð von í framtíðinni! Og svo átti hún [...]

Lesa meira

Sjór og fiskur

Grímur Atlason @ 24. nóvember, 2008 # Ummæli (5)

LÍÚ íhugar úrsögn úr Samtökum atvinnulífsins. Það kemur kannski ekki á óvart þar sem leiðir þessara tveggja samtaka fara ekki saman í Evrópumálum. Það væri fróðlegt að fá núna uppgefna skuldastöðu sjávarútvegsins og finna þannig hina raunverulegu eigendur auðlindarinnar í hafinu. Það er ljóst að óveiddur fiskur næstu 20 ára hefur verið notaður sem veð [...]

Lesa meira

Laugardagur

Grímur Atlason @ 22. nóvember, 2008 # Ummæli (6)

Ásta Júlía og Arnaldur stóðu vel fyrir sínu í dag. Grótta gerði það líka. Annað sem ég sótti var pótemkímskt og uppstillt.
Framtíðin er fyrir vestan – það er algjörlega á hreinu!

Lesa meira

Eftirlaun

Grímur Atlason @ 22. nóvember, 2008 # Ummæli (7)

Auðvitað er það gott að skref voru stigin í eftirlaunahneykslinu í dag. Það var líka ágætt skref að sýna vilja til launalækkunar. Það er líka algjörlega á hreinu að Sjálfstæðisflokkurinn leit á hvorugt málið sem forgangsmál og hefði aldrei ýtt við þeim ef stjórnarmynstrið væri annað. Samfylkingin náði þessu fram. Vonandi þó ekki með því [...]

Lesa meira

Grótta og Austurvöllur

Grímur Atlason @ 21. nóvember, 2008 # Ummæli (11)

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar segir að ekki komi til greina að ganga til alþingiskosninga líkt og tveir ráðherrar Samfylkingarinnar hafa lýst vilja til. Þetta kom fram í máli hennar að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. Segir hún að ekki verði efnt til kosninga í miðjum björgunarleiðangri.
Þá veit maður það. Laugardeginum ráðstafað án samviskubits. [...]

Lesa meira